NT - 10.01.1985, Blaðsíða 19
ÚtBönd
Grikkland:
Mesta skipasvindl
í sögu siglinganna
Piraeus-Reuter
■ Grískur dómstóll tók fyrir í
gær mál 25 manna sem hafa
verið ásakaðir fyrir mesta skipa-
svindl í sögu siglinganna.
Mennirnir eru ásakaðir urn að
hafa sökkt risaolíuflutningaskipi
eftir að hafa selt farm þess til
Suður-Afríku.
Átján hinna ákærðu eru
Efnahags-
bandalagið
aðhlátursefni
Brussel-Rculer
■ Pennock lávarður,
formaður iðnaðarsam-
bands EBE, segir að Efna-
hagsbandalagið sé næstum
því orðið „aðhlátursefni
heimsins vegna þess
hvernig hægt er að kaupa
okkur tii andstöðu hverja
við aðra“ eins og hann
orðaði það.
Hann hvatti til meiri
einingar f EBE og afnáms
allra viðskiptatakmarkana
innan bandalagsins til þess
að það geti orðið sameig-
inlegur markaður í raun.
Pennock sagði að EBE-
ríkjunum hefði mistekist
að koma fram sem einn
sameinaður aðili í við-
skiptum við Japani,
Bandaríkjamenn og Com-
ekon, sem er efnahags-
bandalag sósíalískra ríkja.
Þetta kom fram á blaða-
mannafundi sem Pennock
hélt fyrr í þessari viku
áður en hann fór á fund
Jacques Delors, hins nýja
forseta stjórnar EBE.
Pennock gagnrýndi einnig
seinagang stjórnar EBE
við að staðfesta hvort ný
samvinnufyrirtæki, sem
aðilar í hinum ýmsu Iönd-
um bandalagsins stæðu að,
væru í samræmi við settar
reglur.
Hann átaldi einnig
nokkra kaupsýsiumenn í
Evrópu fyrir óheilindi.
Þeir segðust trúa á frjálsan
markað og frjálsa verslun
á fundum en þegar til
kastanna kæmi ynnu þeir
að því að vernda eigin
athafnasvið með tak-
mörkunum.
Grikkir en sjö eru af ýmsum
þjóðernum. Þeim er gefið að
sök að hafa siglt olíuskipinu
Salem, sent er 92.228 tonn að
þyngd, til Durban í Suður-Afr-
íku án vitundar Shell-olíufélags-
ins sem átti 180.000 tonn af olíu
sem skipið flutti.
Eftir að hafa selt Suður-Afr-
íkumönnum olíuna sigldi áhöfn-
in skipinu út á rúmsjó þar sem
það sökk út af ströndum Sene-
gals 17. janúar 1980. í ákæru-
skjalinu, þar sem meint brot
mannanna eru talin upp, segir
að þeir hafi komið fyrir sprengi-
efni í skipinu og sökkt því.
Stjórnvöld í Suður-Afríku
eru sögð hafa greitt 44 milljónir
dollara fyrir olíuna í gegnum
svissneskan banka og að auki
var skipið tryggt fyrir 24 milljón-
ir dollara og olían fyrir 56
milljónir dollara.
Eigandi skipsins, Fredrick
Soudan, sem er Bandaríkja-
maður fæddur í Líbanon, er
meðal þeirra sem hafa verið
ákærðir um aðild að þessu
skipasvindli.
■ Stúdentar í Equador hafa efnt til mikilla mótmæla í Equador til stuðnings allsherjarverkfallinu þar.
Einn stúdent lést og 300 manns voru handtckin daginn áður en verkfallið hófst.
Allsherjarverkfall í Equador
- stúdent lést - 300 handteknir
■ Einn stúdent lést og þrjú-
hundruð manns voru handtekin
í átökum við lögreglu á mánu-
dag. Tveggja daga allsherjar-
verkfall hófst í gær í Equador.
Handtökurnar áttu sér stað
er lögregla í brynvörðum bílum
réðst til atlögu við stúdenta sem
höfðu reist götuvígi í borgum
Equador.
Stúdentar liafa staðið fyrir
öflugum mótmælum síðan á
mánudag til stuðnings allsherj-
arverkfallinu. Verkalýðshreyf-
ingin í Equador hefur boðað
verkfallið til að mótmæla sér-
stökum aðhaldsaðgerðum ríkis-
stjórnarinnar í efnahagsmálum.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
hefur gert slíkar aðhaldsaðgerð-
ir að skilyrði fyrir frekari lánum
til landa rómönsku Ameríku.
Aðhaldsaðgerðirnar koma
harðast niður á launafólki og
fátæklingum og hafa skapað
mikinn óróa í löndum álfunnar.
Fimmtudagur 10. janúar 1985 19
■ Kim Dae-Jung (t.v.) og Kim Young-Sam. Þeir eru báðir miklir
andstæðingar stjórnar Chun Doo Hwans í Suður-Kóreu og
stjórnvöld telja þá svo hættulega að þau hafa bannað þeim að skipta
sér af stjórnmálum.
Sudur-Kórea:
150 lögreglumenn
passa einn
stjórnarandstæðing
regluþjónar hring um heimili
hans og stöðvuöu alla umferð
svo að hann varð að sitja heima.
Þetta er annar dagurinn í röð
sem Kim er meinað að fara að
heiman. í fyrradag stöðvuðu
150 lögregluþjónar líka alla um-
ferð í kringum heimili hans í
þrjár klukkustundir til að koma
í veg fyrir að hann gæti sótt
kosningafund í Seoul.
Nú er verið að undirbúa al-
mennar þingkosningar í Suður-
Kóreu sem eiga að fara fram í
næsta mánuði. En stjórn Chun
Doo Hwans hefur takmarkað
mjög starfsemi stjórnarand-
stæðinga þótt sumum stjórnar-
andstöðuflokkum hafi verið gef-
ið leyfi til að bjóða fram.
Mörgum Jeiðtogum stjórnar-
andstæðinga hefur samt verið
bannað að skipta sér af stjórn-
málum. Þannig hefur Kim Yo-
ung-Sam verið bannað að taka
þátt í stjórnmálastarfsemi fram
til ársins 1988 og var lögreglu-
verðinum við heimili hans í gær
og í fyrradag ætlað að hindra að
hann bryti það bann.
Kim Dae-Jung, sem nú dvelst
í útlegð í Bandaríkjunum, hefur
einnig verið bannað að taka
þátt í kóreskum stjórnmálum.
Hann segist ætla að snúa aftur
heim til Seoul á næstu vikum
þótt hann eigi á hættu að vera
settur í fangelsi þar sem hann
var dæmdur í 20 ára fangelsi
fyrir nokkrum árum.
Kim Dae-Jung tókst að losna
úr fangelsinu árið 1982 vegna
slæmrar heilsu þótt hann hefði
þá aðeins afplánað tvö og hálft
ár.
Kim Dae-Jung og Kim Yo-
ung-Sam hafa gert með sér
bandalag gegn stjórn Chun Doo
Hwans. Þeir krefjast afsagnar
hans, breytinga á kosningalög-
um og ritfrelsis.
Seoul-Reuler
■ Suðurkóreski stjórnarand-
stæðingurinn Kim Young-Sam
er því sem næst í stofufangelsi á
heimili sínu í Seoul. Þegar hann
ætlaði að bregða sér á stjórn-
málafund í gær slógu 150 lög-
Skæru-
liðar
hand-
teknir
Colombo-Reuler
■ Sexskæruliðarfélluog
20 voru handteknir í árás
öryggissveita á leynibæki-
stöð tamilskra skæruliða í
Norður-Jaffna fylki á Sri
Lanka í gær.
Að sögn yfirvalda fund-
ust vélbyssur, rifflar og
handsprengjur í bækistöð
skæruliðanna.
Fjölmiðlum á Sri Lanka
hefur verið bannað að
skýra frá aðgerðum gegn
skæruliðum nema um væri
að ræða opinberar tilkynn-
ingar stjórnvalda þar að
lútandi. Þetta gildir þó
ekki um erlenda frétta-
menn. Embættismaður í
upplýsingaráðuneytinu
segir að þetta sé gert til að
koma í veg fyrir að slíkar
fréttir verði til að aðstoða
skæruliða í baráttunni
gegn öryggissveitum
stjórnarinnar.
VERTU AHYGGJIIAUS
Sparibók með sérvöxtum aðlagast verðtryggingu.
Sama gildir um 18 mánaða sparireikninga.
BIJNAÐARBANKIÍSLANDS
TRAUSTUR BANKI