NT


NT - 20.01.1985, Page 5

NT - 20.01.1985, Page 5
Sunnudagur 20.janúar 1985 5 ■ Útrás gæti þessi mynd heitið... Elísabet Gunnars■ dóttir kennir í Kramhúsinu. M Hættið að telja... Við búum öll yfír náttúrulegum rythma. Abdul Dohr. M Sreiflur og grettur. Á myndinni má sjá Kolbrúnu Halldórsdóttur M Snerting og traust. leikkonu, en hún er hægri og vinstri hönd Hafdísar í Kramhúsinu. er eitthvað svo gamaldags. Hafdís brosir. Þar kenndi ég leikfimi og moderndance og voru það aðallega konur, sem sóttu tíma hjá mér. Svo tók ég að mér að kenna nemendum Leiklistarskólans og fannst ég ailtaf verða að koma með eitthvað nýtt og ferskt. Og ég brá mér til Kaupmannahafnar enn á ný haustið 1976. Uppgötvaði Laban upp á nýtt Þar fylgdist ég með líkams- þjálfun í leiklistarskólanum í Kaupmannahöfn og Málmey og sótti s.k. „workshops" í dansi. Og þá uppgötvaði ég Laban kerfið upp á nýtt og sá hvað Mínerva var í raun með merkilegar tilraunir á Laugar- vatni. í gegnum þessa kennara. sem fyigja hugmyndum Laban komst ég í samband við sarntök, sem heita Internation- al Humanistic Physical Edu- Cation. Aðalforsprakkarnir í þessunt samtökum er íslensk kona Þóra Óskarsdóttir og maður hennar Olaf Ballsager en þau eru búsett í Árósum, svo og Betty Toman kennari í modern dance og kóreógrafíu, sem starfað hefur mikið við leikhús og kvikmyndir í Bandaríkjunum. I þessum samtökum er líka fjöldinn allur af íþróttafélagsfræðingum frá Kanada og Bandaríkjunum. Þessi samtök berjast fyrir breyttum viðhorfum í íþrótta- kennslu í skólum. Eins og málin eru í skólunum í dag þá er keppnisandinn allsráðandi. Hinir bestu eru valdir úr, þeir lokast inni í einni grein þar sem þeir svo eru þar til þeir staðna og detta út. Hinir lenda í klappliðinu. Samtökin vilja gera íþróttir að meiri leik, sem ailir geta tekið þátt í og þar sem sköpunargleði þeirra sjálfra er látin njóta sín. Samtökin eru mjög sterk í Danmörku og hafa haldið miklar og fjölmennar ráðstefn- ur og er áhrifa þeirra farið að gæta í dönskum skólum. Þau hafa lent í háværum deilum, því þetta er hápólitískt mál og stendur slagurinn um fjárveit- ingar frá hinu opinbera. Ráðstefnan skyldi haldin Við héldum ráðstefnu hér á íslandi á síðastliðnu sumri. Við höfðum sótt um styrk til Menntamálaráðuneytisins en fengum synjun. En svo sátum við Þóra og Ólöf hér í Kram- húsinu yfir hvítvínsflösku og urðum sammála um að láta ekki fjárskort stöðva framtak okkar. Ráðstefnan skyldi hald- in hvað sem það kostaði. Við höfðum bæði mannafla og húsnæði til þess. Ráðstefnan var öllum opin og buðum við upp á námskeið í leikrænni tjáningu, akróbatík, dans- spuna og svo í alls konar dansi. Það voru 20 Danir og um 50 íslendingar sem sóttu þau og djöfluðust þau og hömuðust frá tíu til tíu í heila fimm daga. Þetta var fólk á öllum aldri, sumir voru þaulvanir, aðrir höfðu aldrei komið nálægt neinu slíku áður. Það komu bara þrír íþrótta- kennarar á námskeiðin hjá okkur, og var það miður, en þeir eru vanir að fara á nám- skeið, sem hið opinbera styður og miðar við kennsluprógramm- ið í skólunum. Svo er líka ákaflega erfitt að koma nýjum hugmyndum að í skólunum. íþróttakennslan miðar við ákveðin próf og svo eru bara tvær40mínútna kennslustund- ir á viku. Tíminn er of naumur til að koma nýjungum að, en kyrrseta hefur aukist mikiö hér á landi og líkamsástand ungs fólks hér almennt mjög slæmt og mætti auka leikfimi- kennslu til muna í skólunum. Eins og i krambúð Hér í Kramhúsinu var í áratugi trésmíðaverkstæði. Hrafn Gunnlaugsson keypti húsnæðið til að búa til leik- myndir fyrir Hrafninn flýgur. Eftir að töku myndarinnar lauk auglýsti hann til leigu „óvanalegt húsnæði." Við Gylfi Gígja, en hann er með- eigandi minn. komum og litum á plássið. Þetta var sannast sagna allsérkennilegt húsnæði og þurftum við að beita ímynd- unaraflinu til að sjá að hér gæti orðiö alveg prýðilegur dans- skóli. En okkur hafði alltaf dreymt um að fá skólanum fastan samastað. Hér var allt yfirfullt af dóti, frá títuprjónum upp í stórar vélar, rétt eins og í krambúö. Og við fórum að kalla þetta Kramhúsið. Nú svo þegar skól- inn var aö opna bað ég vini og kunningja að stinga upp á nafni fyrir hann. Það kom engin tillaga sem mér leist eins vel á og Kramhúsið, svo það varð úr að við héldum þessu nafni og er ég voða ánægð með það núna. Það má eiginlega segja að þetta sé enn Kramhús, hér ægir saman alls kyns fólki og námskeiðum. Við erum með leikræna tjáningu, dansspuna og afríkanska dansa. Við höf- um alveg frábæran kennara frá Marokko, Abdul Dohr. Hann býr hér með íslenskri stúlku. stundar nám í myndlista- skólanum, lék í Gullsandi og kennir líka á bongótrommur. Hann korn til rnín og spurði hvort ég vildi ekki fá hann til að kenna afríkanska dansa. Ég hélt nú það og baö hann um að byrja strax. Hann hefur ekki lært dans sérstaklega, hann hefur þetta bara í blóðinu, enda segir hann að hans skóli hafi verið Afríka. Abdul er vinsæll hjá börnun- um, það er svo garnan að sjá þegar hann kennir þeim að skynja rythmann í sjálfum sér og hætta að telja einn, tveir, þrír. Annars er alltof lítið gert fyrir börn og erurn við voða stolt yfir því að Sigríður Ey- þórsdóttir leikkona ætlar að fara að kenna börnum leiklist hjá okkur. En við erum auðvitað með eitthvað fyrir alla, allt frá fim- leikum niður í rólega leikfimi fyrir kyrrsetufólk. Og þú, Hafdís beinir orðum sínum til blaðamanns, þú ættir endilega og koma á námskeið hjá okkur." - Og það er aldrei að vita nema að hann falli í freistni, því það er svo gaman að koma í Kramhúsið; um- hverfið og andrúmsloftið er svo létt og skemmtilegt. I.D.B.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.