NT - 07.02.1985, Qupperneq 5
Fimmtudagur 7. febrúar 1985 5
Nemendur í fyrstu kennslustund í einni af nýju skólastofunum í húsi Kaupfélagsins.
NT-myndir Stefán Pedersen
Var nærri
sokkinn
við hafnar-
bakkann
■ Slökkviliðið í Reykja-
vík var kvatt að Reykja-
víkurhöfn laust upp úr há-
degi í gær, til að dæla sjó
upp úr bát sem var að því
kominn að sökkva við
hafnarbakkann. Hafði
botnventill bilað og var
vatnið komið hátt upp á
vél, þegar slökkviliðið bar
að garði.
Slökkviliðsmönnum
tókst að dæla vatninu úr
bátnum þannig að unnt
var að stöðva lekann, og
forða því að báturinn
sykki. Báturinn ber nafnið
Arnbjörg RE-27.
Sauðárkrókur:
Kennslustofurnar eru á þriðju hæð hins nýja og myndarlega
húss Kaupfélags Skagfírðinga.
Ólafsvík:
Rúður
nötruðu
í húsum
- þegarhópur
af herþotum
rauf hljóð-
múrinn
■ íbúar Ólafsvíkur
vöknuðu upp við illan
draum í gærmorgun þegar
drunur miklar kváðu við
og rúður nötruðu í húsum.
Að sögn eins íbúa á Ólafs-
vík var engu líkara en að
gerð hefði verið loftárás,
svo mikill var hvellurinn
þegar þotur rufu hljóð-
múrinn yfir þorpinu.
„Ég hélt bara að húsið
væri að hrynja," sagði
kona ein í samtali við NT.
„Ég beið í ofvæni eftir að
eitthvað kæmi í kjölfarið-
en það gerðist ekkert,"
bætti hún við.
Samkvæmt þeim upp-
lýsingum sem NT fékk hjá
tíugmálastjórn. bendir allt
til þess að þarna hafi verið
að verki herþotur frá
bandaríska hernum á
Keflavíkurflugvelli. En
herþotur frá bandaríska
hernum voru á stanslausu
æfingaflugi um þetta
svæði í allan gærdag.
Að sögn starfsmanna
flugmálastjórnar, ná
venjulegar þotur ekki
þeim hraða sem þarf til-
þess að rjúfa hljóðmúrinn,
en öðru máli gegnir um
herþotur. Hinsvegar er
með öllu óheimilt að rjúfa
hljóðmúrinn, yfir byggð,
og því úthlutar flugmála-
stjórn hernum sérstökum
æfingasvæðum til að at-
hafna sig á. Eitt þeirra nær
frá norðanverðu Snæfells-
nesi og norður fyrir land,
svo að mati flugmála-
stjórnar, eru 99% líkur á
að þarna hafi herþotur
verið á ferð.
Fjölbrautaskólinn er
kominn í Kaupfélagið
5 prestaköll
til umsóknar
■ Biskupíslandshefurauglýst
fimm prestaköll laus til umsókn-
artil 27. febrúarn.k. Prestaköll-
in eru: Djúpivogur í Austfjarð-
arprófastsdæmi, Raufarhöfn í
Þingeyjarprófastsdæmi, Stað-
arfell í Pingeyjarprófasts-
dæmi, Háls í Þingeyjar.-
prófastsdæmi og
Sauðlauksdalur í Barðastranda-
prófastsdæmi.
Frá frétturitani NT á Sauðárkróki, G.Ö.:
■ Fjölbrautaskólinn á Sauð-
árkróki fékk rúmlega 400 fer-
metra viðbótarhúsnæði til ráð-
stöfunar í hinu nýja og mynd-
arlega húsi Kaupfélags Skag-
firðinga, við upphaf vorannar
skólans, er hófst 22. janúar s.l.
Að sögn skólameistarans,Jóns
Hjartarsonar, hafa fimm
kennslustofur verið innréttað-
ar í þessu nýja húsnæði auk
kennarastofu. Væntanlega
fengju nemendur þarna einnig
aðstöðu fyrir félagsstarf sitt.
Jón sagði Kaupfélagið hafa
annast allar framkvæmdir,
undir stjórn Péturs Pétursson-
ar. Allar áætlanir hafi staðist
og verkið verið prýðilega
unnið.
Við stofnun Fjölbrautaskól-
ans 1979 fékk hann 11-12 stof-
ur í húsi Gagnfræðaskólans
undir bóknám. Nemendur
voru þá rúmlega 80, en eru nú
orðnir um 280. Skólinn hefur
nú orðið að víkja að öllu leyti
úr húsnæði Gagnfræðaskólans.
Að sögn Jóns hefði bóknáms-
kennslan orðið á götunni hefði
leiguhúsnæði ekki fengist. í
verknámshúsi skólans eru allar
stofur fullnýttar frá morgni til
kvölds.
Að sögn skólameistara hafa
fjárveitingar ekki fengist til
framkvæmda við nýtt bók-
námshús fyrir skólann, en sam-
keppni um hönnun þess lauk
vorið 1982 og þess vænst að
framkvæmdir gætu hafist í
framhaldi af henni. Umsóknir
bæjarstjórnar Sauðárkróks
undanfarin ár hafi þar engan
árangur borið. Jón taldi líklegt
að nemendafjöldi skólans
komist í um 400 á næstu árum.
Sé þvf mjög brýnt að hafist
verði handa um að reisa bók-
námshúsið.
Á hinn bóginn telur skóla-
meistari það ranglátt að Sauð-
árkróksbæ einum, ásamt ríkis-
sjóði, skuli ætlað að greiða
stofnkostnað bóknámshússins.
Kemur þar til, að auk Sauðár-
króks standa mörg önnur sveit-
arfélög - m.a. Siglufjörður,
Hofsós, Blönduós og Skaga-
strönd - að rekstri hans og
nemendur skólans því víða að.
Eins megi benda á að stofnanir
í öðrum landshlutum, sem
veita sambærilega þjónustu,
eru að öllu leyti fjármagnaðar
af ríkissjóði. Telur Jón skóla-
meistari því vanta löggjöf er
tryggi það að íbúar allra
landshluta sitji við sama borð
hvað þetta áhrærir.
Jarðsímakerfið
veikt fyrir
■ Skyldu þrír geta talað saman í síma?
Það er ekki óhugsandi, a.m.k. hafði einn
lesenda NT samband við blaðið og kvaðst hafa
orðið fyrir því tvisvar sinnum með stuttu millibili,
að þriðji aðilinn kom inn í mitt símtal og töluðust
allir þrír við góða stund áður en sá, sem uppruna-
lega var hringt í, lagði á. Þá héldu hinir tveir
spjallinu áfram, enda góðkunningjar. Hins vegar
vissi hvorugur hver borgaði símtalið.
í framhaldi af þessum upplýsingum hafði NT
samband við Brand Hermannsson, deildartækni-
fræðing hjá Pósti og síma, og spurði hann hverju
þetta sætti. Sagði Brandur að samsláttur af þessu
tagi væri afar sjaldgæfur, en hins vegar gæti
annarskonar samsláttur alltaf orðið vegna bilana í
jarðsímakerfi eða sjálfvirku stöðvunum. Hann gat
þess að talsvert hefði verið um jarðsímabilanir í
hlákutíðinni að undanförnu.
Aðspurður hver það væri sem borgaði brúsann,
þegar þrír væru á sömu línunni, sagði Brandur að
sá sem veldi númerið greiddi símtalið. Það þýðir,
að sá senr hringir, greiðir símtalið fram til þess
tíma er þriðji aðilinn velur númer og kemur inn á
línuna. En þar sem slíkur samsláttur er mjög
sjaldgæfur. eins og fyrr segir, þá vildi Brandur
beina þeim tilmælum til símnotenda, að láta vita,
þegar þeir yrðu varir við bilanir af þessu tagi.
Nemendur í spænskudeild
HÍ vilja meiri kennslu
■ Nemendur í spænskudeild Háskóla Islands skrif-
uðu bréf til forseta heimspekideildar í desember, þar
sem þeir fara fram á að kennsla í spænsku við skólann
verði aukin. Vilja nemendur, að hún verði kennd til
60 eininga, í stað 30 nú, svo hægt sé að taka hana sem
aðalgrein.
Beiöni af þessu tæi hefur einu sinni áður komið frá
nemendum í deildinni, en henni var þá hafnað vegna
þess, að enginn fastur kennari í spænsku starfaði við
háskólann. Nú er aftur á móti einn fastur kennari, auk
sendikennara, og í samtali við NT taldi Höskuldur
Þráinsson forseti heimspekideildar líklegt. að orðið
yrði við beiðni nemendanna.
VIÐ RÝMUM
VEGNA FLUTNINGA
TEPPABUMN
SiOUMÚLA 31