NT - 08.02.1985, Blaðsíða 2

NT - 08.02.1985, Blaðsíða 2
 Föstudagur 8. febrúar 1985 Margeir Pétursson tapaði þriðju einvígisskákinni: Skemmtilegu einvígi lauk með sigri Agdesteins ■ Simen Agdestein stendur uppi sem sigurvegari í einvígi sínu við Margeir Pétursson. Þriðja skák einvígis þeirra var tefld í gær að Hótel Loftleiðurn og eins og tvær þær fyrri var hún æsispennandi. Eftir tímahrak og darraðadans missti Margeir öll tök á stöðunni og gaf taflið þegar setja átti skákina í bið. Agdestein hlaut því IVi vinning gegn Vi vinningi Margeirs. Hann verður fyrsti Norðmaðurinn sem nokkru sinni hefur teflt á millisvæða- móti. tíðinni. Skák gærdagsins fylgir hér á eftir: 3. einvígisskák: Hvítt: Simen Agdestein Svart: Margeir Pétursson Drottningarindversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. RD b6 (Að þessu sinni velur Margeir drottningarindverska vörn sem gefur færi á öllu snarpari baráttu en Tartakower - afbrigðið sem varð uppá teningnum í fyrstu skákinni.) 4. a3 (Afbrigði Petrosjans, ein skarpasta leið hvíts gegn drottn- ingarindversku vörninni. Eins og kunnugt er þá beitti Kaspar- ov því í sinni fyrstu vinnings- skák gegn Karpov.) 4. .. Bb7 5. Rc3 d5 Pað var flestum Ijóst sem fylgdust með baráttunni að Hót- el Loftleiðum að Margeir var langt frá sínu besta að þessu sinni. Taflmennska hans var oft hikandi og hann hætti sér út í tímahrak sem hefurorðið mörg- um skákmanninum að falli. Hann var undir miklu álagi í einvíginu því Norðmaðurinn hafði í raun eins vinnings for- skot þegar þeir hófu leikinn; 2:2 úrslit dugðu honum og gat hann þess vegna leyft sér að tcfla til jafnteflis í flestum skákum ein- vígisins. Sú varð þóekki raunin, því þessi geðþekki 17 ára gamli piltur tefldi af mikilli hörku og reyndist afar harður í liorn að taka í hinum taktísku flækjum sem einkenndu einvígið. Má mikils af honum vænta í fram- 6. cxd5 Rxd5 7. Da4 - (Pessi óvænti leikur er, eins og svo margt í þessu afbrigði, runninn undan rifjum Kaspar- ovs. Hann beitti honum í einvígi sínu við Kortsnoj.) 7. .. Rd7 8. Rxd5 Bxd5 9. Bg5 Dc8 (Eðlilegri leikur er 9. - Be7 Margeir vill sennilega forðast mannakaup sem verða eftir 10. Bxe7 Dxe7 11. Re5 o.s.frv. Hann verður að halda taflinu flóknu því Agdestein dugar jafntefli í þessari skák til þess að komast á millisvæðamót.) 10. Hcl Bd6 11. Rd2 c5 12. dxc5 bxc5! (Þó svartur tái etnangrað peð á c - línunni þá hefur hann viss mótfæri vegna opinnar b - línu og nokkurra yfirburða í liðs- skipan.) 13. e4 Bc6 14. Dc2 (E.t.v. var betra að leika 14. Bb5 Bxb5 15. Dxb5 Hb8 16. Rc4.) 14. .. Dc7 (Svartur hótar 15. - Bxh2 16. g3 Bxg3! o.s.frv.) 15. Bh4 0-0 16. Bg3 Hab8(?) (Einum of hægfara leikur einkum þegar haft er í huga að Margeir þarf að vinna þessa skák og staðan býður fyllilega uppá skarpa leiki. Best er tví- mælalaust 16. - f5! 17. Bxd6 Dxd6 reyni hvítur að koma skikk á lið sitt með 18. Be2 nær svartur öflugu frumkvæði með 18. -fxe4 19. Rxe4 Df4! o.s.frv. Eftir textaleikinn situr Margeir uppi með þokkalega stöðu sem Dýrt að þekkja ekki Völsunga ■ Htnir heimsfrægu hús- vísku Völsungar eru sagðir heldur vonsviknir með þá frammistöðu Árna Berg- manns að vita ekki deili á íþróttafélagi þessu í spurn- ingaþætti sjónvarpsins fyrir skemmstu. Eða svo segir fréttablað Húsvíkinga, Vík- urblaðið, sem út kom nú í vikunni. Segir blaðið þau tíðindi að þar í bæ séu nú í uppsiglingu ný samtök manna sem munu bera nafnið, Samtök von- svikinna Völsunga um að segja Þjóðviljanum upp. Já, það er dýrt að þekkia ekki inn á sveitavarginn, Árni. En spurningin sem Árni gataði semsagt á hljóðaði í fyrstu vísbendingu upp á það hvað væri talið elsta örnefni á íslandi. Þegar báðir kepp- endur götuðu á þeirri spurn- ingu var næsta vísbending að þaðan væri íþróttafélagið Völsungur. En hvað hefðu nú stjórn- endur ef annarhvor kepp- andinn hefði viljað fá Snæ- land eða Garðarshólma viðurkennt sem elsta örnefni á íslandi? Naddoður er í barnaskólafræðum Jónasar frá Hriflu talinn fyrstur nor- rænna til íslands og talinn hafa nefnt þetta sker Snæ- land og Garðar sem kom næstur honum var varla fyrr kominn hingað en hann hét sömu þúfu eftir sjálfum sér og kallaði Garðarshólma. Eina vík nefndi hann svo Húsavík og önnur hlaut nafn eftir þræli hans. Náttfar- avík... Sparka í köttinn og segja konunniaðþegja ■ „Pað er sorglegt að sjá dagfarsprúða og ljúfa drengi fara gersamlega úr öllum mannlegum ham, ef liðið þeirra tapar leik. Sitjandi fyrir framan sjónvarpið, kall- andi fríunarorð á myndina (eins og það breyti gangi leiksins eitthvað), standandi upp baðandi út öHum skönkum, sparkandi í heim- ilisköttinn, hreytandi ókvæð- isorðum í blessaða krakk- ana, segjandi konunni að þegja þegar hcnni verður á að tilkynna að maturinn sé tilbúinn o.s.frv." Petta er lýsing húsvísks „friðarsinna" (í Víkurblað- inu) á afleiðingum hins hryllilega sjúkdóms, sem hann segir marga íslendinga ganga með, er nefnist enska knattspyrnan. „Guð, ég' þakka þér fyrir að vera ekki eins og þeir,“ er hin hljóða bæn er hann sendir himna- feðrum á laugardögum þegar hann sér ýmsa af sínum bestu vinum „ganga hreinlega úr öllum mannlegum ham og breytast í urrandi ófreskjur fyrir framan sjónvarpsskjá- inn“. „Þeir geta líka tíundað hvað þeir heita þessir spark- skjónar, sem skora mörk í viðkomandi leikjum, hvort það er með hægri eða vinstri löpp, hvort skorað var innan eða utan vítateigs, hver að- dragandinn var að markinu og a{) sjálfsögðu á hvaða mínútu ósköpin áttu sér stað,“ segir friðarsinni. Svo vel séu þessir menn að sér í knattspyrnufræðum Eng- lendinga, að þeir viti miklu betur nafnið á hægri fram- verði einhvers 2. deildar liðs, en t.d. kaupfélagsstjórans á Kópaskeri. Og það er ekki nóg fyrir friðarsinna að forðast þessa vini sína á laugardagseftir- miðdögum. „Einhverja skelfi- legustu stund hverrar viku upplifi ég á mánudagsmorgn- um. Þá rifja fortboltafríkur tvær sem ég þarf daglega að umgangast atburði liðinnar helgi og fella dóma um þessar helgarorrustur á enskum knattspyrnuvöllum. Það ætti að refsa íslensk- um stjórnvöldum fyrir að flytja inn í stofu úrkynjaða sparkmenningu, enda er þessi andskoti þegar orðinn stórfellt böl á mörgum heim- ilum,“ eru lokaorð hins , langhrjáða friðarsinna. Alexander Stefánsson félagsmálaráðherra: / *** Legg áherslu á ný við- horf í húsnæðismálum Nú þarft þú ekki að borga neinn eignaskatt litli vinur erfitt er þó að þróa til vinnings. Peðaveikleikarnir á a- og c- línunni skipta þar höfuðmáli.) 17. Be2 a5 (Og hér mátti reyna 17. - Bxg3 18. hxg3 Db7) 18. b3 Hfd8 20. hxg3 Db7 19. 0-0 Bxg3 21. Hfdl h6 (Hvítur hefur eilítið betri möguleika í þessari stöðu vegna peðaveikleikanna sem áður var minnst á.) 22. Dc3 Da8 23. a4!? (Tvíeggjaður leikur hjá Norðmanninum en um leið ein- kennandi fyrir hann. Meiningin er að stöðva framrás a-peðsins og skorða peð svarts á drott- ningarvæng. Gallinn er sá hrók- urinn fær ákjósanlegan reit á b4.) 23... Hb4 25. D Db8 24. Bc4 Rf6 26. g4!? (Peð hvíts eru nú öll á áhrifa- svæði biskupanna. Það þykir ekki góð pólitík að stilla peðum sínum upp á þennan hátt en Margeir á alls ekki svo gott með að notfæra sér þetta atriði.) 27. .. Hd4 (Flestir viðstaddra töldu Margeir standa betur hér en sannlcikurinn er sá að staðan er u.þ.b. jöfn með möguleikum á báða bóga. Margeir var þegar orðinn nokkuðnaumurá tíma.) 27. Be2 Rd7 30. Hc3 Hb8 28. De3 Da7 31. Hdcl Hbd8 29. Kf2! Re5 32. Rc4 Rd7 (Uppskipti eru hvítum í hag. Eftir 32. - Rxc4 33. Bxc4 getur rey nst erfi tt að ver j a c5 - peðið.) 33. Ra3 (Dálítið undarlegur leikur en kannski ekki svo slæmur. Agde- stein var með hugann rígbund- inn við drottningarvænginn og miðborðið og veitti ekki athygli ~ og hann verðurfyrsti Norðmað- urinn sem teflir á milli- svæðamóti litlum leik sem hefði getað reynst Margeiri erfiður, 33. g5!? ef h - línan opnast er það hvítum áreiðanlega í hag.) 33. .. Db6 34. Hlc2 Rf6!? (Hann hyggst rugla andstæð- inginn í ríminu en fellur á eigin bragði. En hugmyndin með þessum leik er góð. Það er síðar sem stærstu mistökin í skákinni koma.) 35. Hxc5!? (Djarfur leikur.) 35. .. Bxe4 36. H2c4! (Auðvitað ekki 36. fxe4 Rxe4 - og svartur vinnur.) U llil IIIIIIII4 Hllllll III i 1 Uf 111 i H B ■1 IBII ■ III 1 il 1 llfflffllHI £ 11 111111 1111 111 III 36. .. Hxc4?? (Margeir hefur sennilega átt eitthvað 2-3 mínútur eftir á klukkunni. Hann gat veitt harð- vítugt viðnám með 36. - H4d5. Staðan sem kemur upp eftir 37. Hxd5 Dxe3 - 38. Kxe3 Bxd5 er trúlegast jafntefli. Nú vinnur Agdestein.) 37. Rxc4 Da7 38. Hxa5 Dxe3 - 40. Kel Hb8 39. Kxe3 Bbl 41. Hb5 Hér átti skákin að fara í bið en Margeir gafst upp án frekari taflmennsku. Ekkert fær stöðv- að frípeð hvíts á drottningar- væng. Helgi Ólafsson skrifar um skák Er Háskólaútvarp í burðarliðnum? ■ Háskólaútvarp sem þjóna niyndi stúdentum og stofnunum skólans er hugmynd sem unnið hef'ur verið að í sameiginlegri undirbúningsnefnd Háskólans og Stúdentaráðs. Nefndin mun Ijúka störfum innan tíðar en þá eiga stúdentaráð og háskólaráð eftir að meta niðurstöður hcnnar. Frumkvæðið er komið frá stúdentum en leitað er sam- starfs við Háskólann um fjár- mögnun og rekstur. „Ég tel að Háskólinn geti vel staðið að slíkri stöð þannig að til fyrirmyndar yrði,“ sagði Þor- björn Broddason, dósent, for- maður undirbúningsnefnda innar í samtali við NT. Nefnc hann að stöð sem þessi gæ bæði verið kjörinn milliliði Háskólans og almennings o hagnýtt kennslutæki, einkum fjölmiðlakennslu. Flutningsmaður tillögunna um útvarpsstöðina er Ólafii Sigurðsson, stúdentaráðsliði Fí lags vinstri manna, og á han sæti í undirbúningsnefndinn; Sagði hann að með þessu mæti auka samskipti stúdenta o Stúdentaráðs, styrkja innvic skólans og auka tengslin út við. Þjóðmálaumræða á Gauk á Stöng: Hrynur menntakerfið? ■ Á sunnudaginn verður hald- in önnur þjóðmálaumræða í vcitingahúsinu Gauk á Stöng. Umræðuefnið að þessu sinni er „Hópuppsagnir kennara - hryn- ur menntakerfið?" Frummælendur verða Krist- ján Thorlacius, formaður HÍK, og Inga Jóna Þórðardóttir. aö- stoðarmaður ráðherra. Að framsögum loknum verða fyrir- spurnir og umræður úr sal. Við síðustu þjóðmálaumræðu urðu fjörugar umræðurog má ætla að svo verði einnig að þessu sinni. Fundurinn hefst kl. 14.30.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.