NT - 08.02.1985, Blaðsíða 6

NT - 08.02.1985, Blaðsíða 6
IU' Föstudagur 8. febrúar 1985 6 Dregst Treholt-málið inn í kosningabaráttuna í Noregi? Sjötug kona mun skipa sæti ■ I7RÁ 25. þ.m. op næstu fimm vikur á eftir verður Osló eins konur miðdcpill heimsfréttanna, nemaeitthvað óvænt beri til tíðinda. Ástæðan er sú, að þann dag hefjast rcttarhöldin í njósnamáli Arne Treholt, en óhætt er að segja að ekkert njósnamál hefur á síðari árum vakið eins mikla athygli. Saksóknari norska ríkisins kynnti Arne Treholt kæruna.á lögreglustöðinni í Osló 31. jan- úar. Par var þó aðcins um útdrátt að ræða. Ákæruskjalið verður ekki birt í heild fyrr cn í upphafi réttarhaldanna yfir Treholt, sem hefjast 25. þ.m. eins og áður segir. Það hefur verið tilkynnt hvaða dómari muni stjórna rcttafhöldunum yfir Arne Treholt, en það val hefur ekki verið talið vandalaust. Valið féll á Astri Rynning, en hún hefur unnið sér orðstír sem myndugur og réttsýnn dómari. Hún hefur gegnt dómarastörf- um frá 1962, að undanskildum þeim tíma, sem hún átti sæti í Stórþinginu á árunum l%5- l%9. Hún varvaramaður Kare Willoeh núverandi forsætisráð- herra, en hann var þá verslun- armálaráðhcrra en ráðherrar í Norcgi mega ekki gegna þing- mensku og taka varamenn þcirra því sæti á þingi. Astri Rynning verða til að- stoðar tveir dómarar, Hákon Weiker og Tore Schei, og fjórir ólöglærðir borgarar, sem þegar hafa verið valdir en nöfn þcirra verða ekki birt fyrr en réttarhöldin hefjast. í samein- ingu munu þessir sjömenning- ar kveða upp dóminn. Af hálfu ríkissaksóknarans liefur Lasse Ovigstad vcrið skipaður sækjandi í málinu, en honum til aðstoðar verðurTor- Aksel Busch. Ovigstad, sem er 38 ára, varð þekktur þegar liann kvað upp dóm yfir sjö Sömum, sem voru í hungur- verkfalli fyrir framan Stór- þingshúsið, Undanfarið hcfur hann verið ráöunautur Monu Rökhes dómsmálaráðherra í eiturlyfjamálum. Tor-Aksel Busch cr 35 ára og hefur gctiö sér orö sem sækjandi. Verjandi Treholts veröur Ulf Underland, 57 ára. Hann nýtur mikils álits sem málflutn- ingsmaður. Treholt kvaddi Underland strax sér til aðstoð- ar, þegar lögreglan handtók hann á flugvellinum hjá Osló 2I. janúar í fyrra. Underland hefur annast mál Treholts síðan. Viö réttarhöldin mun Underland hafa tvo málflutn- ingsmenn sér til aðstoðar, Andreas Arntzen og John Lyng.-en þeir vinna viö sömu málflútningstofu og hann. John Lyng er sonur Johns Lyng fyrrverandi forsætisráð- herra og lciðtoga íhaldsflokks- ins. Þetta verða sennilega síð- ustu réttarhöldin, sem Astri Rynning stjórnar, en hún verö- ur sjötug í maí og lætur af dómarastörfum I. júní. EINS OG ÁÐUR segirvoru Arne Treholt tilkynnt 31. janú- ar helstu atriðin í ákærunni gegn honum. í þeim kemur fram, að hann hafi látið Rússa fá lcynilegar upplýsingar á ár- unum 1974-1983 og íraka á árunum 1981-1983. Brot hans eru talin þess eðlis, að þau heyri undir tilteknar greinar hcgningarlaganna um njósnir, en samkvæmt þeim er hægt að dæma menn í allt að tuttugu ára fangelsisvist. Arne Treholt lét sér ekkert bregða viö upplesturinn og var liinn hressasti, er blaðamaður frá Dagbladet náði tali af honum, þegar veriö var að VEGNA þess, að Treholt er nákunnugur og raunár vinur ýmissa lciðtoga Alþýðuflokks- ins norska, reikna ýmsir meö því, að mál hans muni dragast inn í kosningabaráttuna, en þingkosningar verða í Noregi í september. Andstæðingar flokksins kunni að reyna að bendla hann eitthvað við málið, en þeir verða samt að gera það meðgát, efþaöáekki að mistakast. Jens Evensen virðist liins vegar sloppinn úr allri hættu, því að hann var á nýloknu aíísherjarþingi Sameinuðu þjóðanna kosinn í Alþjóða- dómstólinn í Haag og skipar nú dómarasæti þar. Treholt var í nokkur ár einn nánasti samverkamaður Evensens, sem hafði mikið álit á honum. Þórarinn Þórarinsson skrifar: aðaldómarans færa hann aftur í fangaklefann. Fangavistin virðist ekkert hafa beygt hann, enda hefur hann haft nóg að gera við að skrifa ævisögu sína, sem mun verða jafnframt eins konar varnarrit. Peningalcysi þarf hann ekki að kvíða, þótt lutnn fái fangels- isdóm, því að honum hefur áhyggjur. Líkamlega og and- lega væri hann vcl undir réttar- höldin búinn (Jeg föler meg í kjempeform). Treholt heldur því fram, aö hann liafi ekki látiö af hendi upplýsingar, sem gætu hafa skaðað öryggi og hagsmuni Noregs. ■ Astri Rynning dómari. ■ Arne Treholt þegar verið boðið stórfé fyrir ævisöguna. Viðtalið við Arnc Treholt var stutt, enda vart leyfilegt. Ertu ekki undrandi að sjá fréttamenn Dagbladets hér, spurði fréttamaðurinn. Ekki aldcilis, sagði Treholt. Þið eruð alls staðyr. Blaðamaðurinn spuröi þessu riæstí hvort eitthvað í ákærunni hefði komið honum á óvart. Treholl svaraði neitandi. Hann hefði átt von á ílestu sem komið hefði fram, en hins vegar gæti hann ekki nú rætt einstök atriði. Það myndi hann gera í réttarhöldunum. Þá sagðist hann vera búinn að undirbúa sig eins vel og frekast væri kostur og að hann myndi færa sitthvað fram, sem myndi liafa áhrif á niðurstöð- una. Hann hefði því ekki r „Þá verður gaman að lifa, Láramín...“ ■ ...dregin er einstaklingum. grýlumvnd af fjöldamörgum íslenskum ■ í hinum deyjandi risa, hinu þunga blaði, Morgunblaðinu. AB og C, eru oft þungir og virðulegir leiðarar þar sem íjallað er um málefni af þekk- ingu. og í ritgerðum þessum er oft hið sænrilegasta samhengi. Hins vegar fær rödd auglýs- endakórsins á sig allt annan blæ þegar fjallað er um Al- þýðubandalagið, það hið sama og blaðið biðlar oft til í sögu- legu sáttaskyni. Þá er tappinn dreginn úr öllum götum og skeytin standa eldglærð í allar áttir. Góöu mennirnir eru þó oftast menn hinna sögulegu sátta með Þröst Ólafsson. Dagsbrúnarforingja, í broddi fylkingar. Vondu mennirnir allir hinir, en þó sérstaklega framsóknarmenn sem gengið hafa í Alþýðubandalagið. Vondur vinnur vondan Raunar lendir leiðarahöf- undur blaðsins á miðvikudag síðasta í hugsanaflækju sem hann sér ekki framúr. Illu öflin með Bjarnfríði Leósdóttur í broddi fylkingar unnu sigur yfir góðu sögulegu sátta- mönnunum þegar kosið var í verkalýðsmálaráð Alþýðu- bandalagsins. Gallinn er sá, að sá sem góðu mennirnir buðu fram er fyrrverandi framsókn- armaður, og slíka þolir hið virðulega blað ekki. af ein- hverjum óskilgreindum sál- fræðilegum ástæðum. Fulltrúi góðu þrastanna var þess vegna vondur maður og þess vegna unnu vondu mennirnir sigur vfir vonda manninum. Þessir erfiðleikar gera leiðarann í heild ansi röklausan þó ekki sé meira sagt. Hið þunga blað Raunar er það liinu þunga blaði til ævarandi vansæmdar hvað það leggst á einstaka menn og getur þeirra aldrei nerna af illu einu. Þetta hefur blaðið stundað alla tíð og held- ur nú eitt íslenskra blaða uppi þessari rætnu persónulegu hefð. Blaðið hefur dregið upp grýlumynd af fjöldamörgum íslenskum einstaklingum. Sumir hafa staðið hana af sér og jafnvel vaxið af. en aðrir ekki og þess eru vafalaust dæmi, að menn hafi hætt opin- berri pólitískri þátttöku vegna þessa. Morgunblaðið er firnasterkt blað. Það getur búið til dýr- linga og grýlur að vild sinni. Hið fyrrnefnda er saklaust - einhvern veginn verða sjálf-

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.