NT - 08.02.1985, Blaðsíða 22

NT - 08.02.1985, Blaðsíða 22
Föstudagur 8. febrúar 1985 22 Haldin í Englandi? Það verður hörð keppni um að halda hana ■ Enska knattspyrnusam- bandið hefur sótt um að fá að halda úrslitakeppni Evrópu- keppninnar í knattspyrnu árið 1988. Um leið lofar knatt- spyrnusambandið miklum gróða af keppninni og að þeim takist að hafa hemil á áhorfend- um, sem eru þekktir fyrir að vera með ólæti á leikvöllum og utan þeirra. hafa boðist til að halda keppn- ina. V-Þýskaland, Holland og Danir, Norðmenn, Finnar og Svíar með sameiginlegt tilboð eru líka um hituna. Pað verður því mikið rætt á fundi UEFA í Bern þann 18. febrúar næst- komandi, er farið verður yfir tilboðin. Englendingarnir benda á að þeir hafi ekki haldið meirihátt- ar keppni síðan 1966 er HM var í Englandi. V-Þjóðverjar héldu aftur á móti HM 1974. Þá benda Tjallarnir á að Wembley leikvangurinn tekur 25 þúsund áhorfendum fleira en leikvang- ar í hinum löndunum. Þá má geta þess að Danir hyggjast sækja um að fá að halda úrslitakeppnina árið 1992. ■ Tony Cunning- ham í búningi Sheffi- eld Wednesday, en hann spilaði þar áður en Man. City keypti hann. Nú fer hann til Newcastle. „Gulureðagrænn skiptir engu máli“ - segir Jackie Charlton um kaup sín á Tony Cunningham Frá Heimi Hernssyni rréltarilara N'l' í Knjj-’ landi. ■ „Mér er alveg sama hvort hann er gulur, bleikur að grænn. Hann er góður knatt- spyrnumaður og á vonandi eftir að gera góða hluti hjá okkur. Ég er viss um að áhorfendur niunu kunna að meta hann." Þetta sagði Jackic Charlton, framkvæmdastjóri Newcastlc. í samtali við enskt blað eftir að hann hafði keypt Tony Cunn- inghant frá Manchester City. Cunningham er svartur og er fyrsti svarti leikmaðurinn sem Ritari enska knattspyrnu- sambandsins, Ted Croker, seg- ist vera viss um að allar aðstæð- ur í Englandi séu góðar og að þeim muni ekki verða skota- skuld úr að hemja áhorfendur. En það eru fleiri lönd sem Blak ■ Á síðasta ársþingi BLI var samþvkkt tillaga þess efnis aö hyrjað verði að keppa í 1. flokki kvenna á íslandsmótinu i hlaki. Keppnin fari þann- ig fram að skipt verði í riðla cftir landshlutum en síðan fari frani úrslita- keppni um íslandsmeist- aratitilinn. Tilgangurinn með þessu er fyrst og fremst sá að blakkonur sem ekki eru með í fremstu víglínu geti „leikiö nokkra leiki sér til gamans og gagns", eins og segir í fréttabréfí Henrik Andersen hjá Anderlecht: „Festu þig í sessi“ - segir Piontek, þjálfari Dana ■ Daninn Henrik Andersen. scm er einn fjögurra Dana í stórliðinu Anderlecht í Belgíu, hvar Islendingurinn Arnór Guðjohnsen situr á vara- mannabekknum þessa dagana, er ungur maður á uppleið. Hann er nú á góðri leið með að ná föstu sæti í liðinu, og lands- liðsbakvörðurinn belgíski. Michel de Groote, er á leiðinni út í kuldann. Eins dauði er annars brauð. Danska blaðið Berlingske Tidende hefur sínar skýringar á því hvers vegna Henrik sé á Dundee vann ■ Einn leikur var í skoska bikarnum í fyrra- kvöld. Dundee sigraði St. Johnstone 2-1 og spilar við Rangers í ijórðu umferð. svo mikilli uppleið nú, og um leið hvað það hafi verið sem var honum mest hvatning, enda hefur blaðið orð Andersens fyrir því: „Sepp Piontck (lands- liðsþjálfari Dana - innsk.blm.) hefur sagt, að hann fylgist náið með mér. Hann sagði ntér að hann teldi mig vera mjög gott efni í landsliðsmann. og geti ég náð föstu sæti í liði Anderlecht sé það klárt að ég sé frambæri- legur með danska landsliðinu." Eins og áður sagði eru fjórir Danir í liði Anderlecht, og hafa allir fast sæti í liðinu, nema helst ef vera skyldi um- j ræddur Andersen en það stend- ur greinilega til bóta. Hinir eru fyrirliðinn og miðvörðurinn Morten Olsen, markaskorarinn Per Frimann og miðjumaður- inn Frank Arnesen. Síðan eru Arnór og stór hluti belgíska landsliðsins fyrr og nú í liðinu, j meðal annarra stórstjarnan Enzo Scifo og markakóngurinn 1 Vanderbergh... Newcastle gerir fastan samning við. Þeir hafa veriö heldur andstæðir lituðum leikmönnum áhangendur Newcastle og gjarnan „tekið þá fyrir" í leikj- um. Eru menn því dálítið ugg- andi um hvernig komið verður fram við Cunningham. Charl- ton og Cunningham eru þó báðir óhræddir og sagði Cunn- ingham að hann væri viss um að áhorfendur tækju sér vel ef hann stæði sig vel, og það; myndi hann reyna að gera. Amerískur fótbolti: ■ Það er ekki hægt að segja annað en að í ameríska fótbolt- anum (American Football) séu peningar í spilinu. allavega fyr- ir þá bestu. í fyrradag gerði leikmaðurinn Doug Flutie, sern spilaði í háskólaliði Boston College, samningvið NewJers- ey Generals sem spila í atvinnu- mannadeildinni USFL (United States Football League). Samningurinn er til fimm ára og fær Flutie 7 milljónir dollara sem eru rétt tæpar 300 milljónir BLl. Þátttöku skal tilkynna til BLÍ í síma 686895, en keppnin fer fram í febrú- ar og mars. íslandsmótið í 1. flokki gæti verið ágætis æfíng fyrir þátttöku í alþjóðleg- um blakmótum fyrir trimmara sem haldin verða í Hollandi 22. og 23. júní og í Osló um hvítasunnuhelgina 25.- 27. maí. íslenskra króna fyrir samning- inn. Flutie var kosinn besti leikmaðurinn í háskólafótbolt- anum fyrir árið 1984. Hann leikur stöðu „stjórnanda" (qu- arterback). Þess má geta að í samningn- um sem er yfir 40 blaðsíður á lengd, þá eru ákvæði þess efnis að ef USFL fer á hausinn eða hættir af einhverjum ástæðum þá á eigandi New Yersey Gen- erals, Donald Trump, allan rétt á Flutie og getur ráðstafað honum að vild. Nægir peningar Borðtennis: Grubba ósigrandi ■ Pólski borðtennisleikarinn Andrzej Grubba er ósigrandi þessa dagana. Síðasti sigur hans var fyrir örskömmu í Top 12 keppninni í Barcelona, þar sem hann vann 9 leiki í keppni þar sem allir léku við alla. Síðasti leikur keppninnar var á milli Grubba og Svíans Michael Appelgren, og úrslitin 21-14, 21-16 og 21-6. Grubba lauk því keppninni með glæsibrag... I kvennakeppni sama móts sigraði fyrrum Evrópumeistar- inn frá Hollandi, Bettine Vrise- koop. Hún var í algjörum sér- flokki, tapaði aðeins tveimur lotum... ■ Andrzej Grubba er snjall borðtenniskarl. Eru Danir skárri en við? ■ I heimsmeistarakeppninni í alpagreinum skíðaíþrótta í Bormio á Ítalíu eru tveir Danir við keppni, sem útaf fyrir sig hlýtur að teljast dálítið merkf- legt því hæsti hóllinn í Dan- mörku er aðeins á átjánda tug metra á hæð þar sem hann er hæstur. Annar þessara Dana keppti í bmni, en hinn mun keppa í svigi. Brunkóngur Dana, reyndar annar tveggja úr Danaveldi sem leggur fyrir sig brun af alvöru, Thomas Rostgaard, varð í 50. sæti í Bormio. Hinn sem einnig stundar brun, Henrik Kongsholm. keppti ekki í brun- inu í Bormio, heldur ætlar að einbeita sér að svigi að þessu sinni. íslendingar eiga einn kepp- anda í Bormio, Daníel Hilm- arsson frá Dalvík. Daníel ætlar að keppa í svigi, og ereiginlega tilneyddur til að skáka Danan- um Kongsholm, og lenda fyrir framan 50. sæti, svo Danir geri íslenskum fjallagörpum ekki skömm til... Danir ganga íkrikketsambandið ■ Um síðustu helgi voru Danir og írar teknir formlega inn i alþjóðlega krikketsambandið. Danir hafa iðkað krikket i u.þ.b. tiu ár, og kvennakrikket er nú orðin allvinsæl íþrótt í Dana- veldi. Danir eiga kvennalands- lið, sem keppir út og suður, reyndar án nokkurs stórárang- urs. Það er talsverður munur að þurfa ekki að æða yfir Atlants- hafið i hvert sinn sem farið er og keppt á erlendri grund. BYGGI STÓRT 0G SMÁTT Hef flekamót, byggingakrana, 30 tonna bílkrana, vörubíla, gröfur og loftpressu. Fullkomið verkstæói. — Góóur mannskapur. SIGFÚS KRISTINSSON Byggingameistari — Bankavegi 3, Selfossi — Sími 1275 Verkstæði Austurvegi 42-44 — Sími 1550 Gengur vel hjá Bertelsen ■ Miðvallarleikmaður danska iandsliðsins í knatt- spyrnu. Jens Jörn Bertelsen gerir það gott þessa dagana með félagi sínu í Frakklandi. Rouen. Bertelsen og félagar ‘ hafa vart tapað leik og Daninn 1 hefur fengið góða dóma. Jens Jörn Bertelsen er einn þeirra fjölmörgu Dana sem íeika í atvinnuknattspyrnu víða um Evrópu. Hann lék í Belgíu áður en hann fór til Frakklands sl. sumar.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.