NT - 08.02.1985, Page 3
Föstudagur 8. febrúar 1985
Bjórinn:
Milljarður á ári í ríkiskassann
33 cl flaska
af bjór á 65 krónur?
■ Tekjur ríkissjóðs af bjórsölu gætu numið 915 milljón-
um króna á ári. Þetta kemur fram í könnun sem
Þjóðhagsstofnun hefur gert að ósk forsætisráðherra.
í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu í gær segir
hins vegar að Steingrímur Hermannsson hafi aldrei gert
að tillögu sinni, hvorki innan ríkisstjórnar né utan, að
bjórsala yrði leyfð hér á landi - en frumvarp þess efnis er
nú til afgreiðslu á alþingi.
Þá segir í fréttatilkynningu
forsætisráðuneytisins að þær
forsendur sem þjóðhagsstofnun
gefur sér við útreikningana efu,
að árleg neysla íbúa eldri en 15
ára komi til með að vera 40
lítrar á ári. Neysla í nágranna-
löndum okkar fyrir sama aldurs-
hóp er 45-160 lítrar á ári.
Aætlaður fjöldi íslendinga
árið 1985 er 177 þúsund, og yrði
heildarneysla þá 7.100.000
■ Heildartekjur ríkissjóðs af sölu á sterku öli gætu numið um
einum milljarði. NT-raynd: Árni Bjarna
Olís ekki til sölu
- segir forstjórinn
■ NT barst í gær eftirfarandi
bréf frá Þórði Asgeirssyni for-
stjóra Olíuverslunar íslands, í
tilefni af frétt NT í gær.
Fyrirsögn NT í gær vegna
tilboðs OLÍS til útgerðar- og
sjómanna er alveg í ætt við
viðurnefnið þjófur, sem manni
var gefið vegna þess að stolið
var frá honum. Dæmigerð NT-
vinnubrögð til að selja blaðið.
Ekki gengur þó að skrifa dag-
blað þannig að ekkert sé nema
fyrirsagnir.
í fréttinni sem fylgdi fyrir-
sögninni í gær er vitnað til
heimildarmanna, sem auðvitað
eru ekki tilgreindir og sagt að
skuldir OLÍS við Landsbankann
nemi a.m.k. 800 milljónum
króna og séu fjárhagserfið-
leikarnir nú svo miklir að til
vandræða horfi. í lok greinar-
innar koma svo eins konar
minningarorð um OLÍS þar sem
þess er getið að Olíuverslunin
sé stofnuð árið 1926, starfs-
mannafjöldi sé um 250, bensín-
stöðvar séu 45 o.s.frv.
NT hafði að vísu samband við
mig og getur þess í greininni að
ég hafi neitað þessu alfarið.
Fyrir það ber mér að þakka því
það er því miður ekki alltaf haft
svo mikið við að bera sannleiks-
gildi sögusagna undir þá sem
vita og verða fyrir barðinu á
þeim. Hitt finnst mér skítt að
NT skuli trúa þessum huldu-
heimildarmönnum beturen mér
og samkvæmt því skrifa risa-
fyrirsögn sem kemur eins og
skrattinn úr sauðaleggnum.
Þið verðið að skoða þessa
heimildarmenn ykkar betur
þarna hjá NT. Skuldir OLÍS við
Landsbankann nema ekki rúm-
lega 800 milljónum. Heildar-
skuld OLÍS á olíukaupareikn-
ingi í Landsbankanum er í dag
510 milljónir. ÞarámótiáOLÍS
um 490 milljónir útistandandi
hjá útgerðinni og fiskvinnsl-
unni. Um það bil 60 milljónir á
OLÍS hjá innkaupajöfnunar-
reikningi og 200 milljónir á fé-
lagið útistandandi hjá öðrum
viðskiptamönnum en útgerð og
fiskvinnslu. OLÍS á meira í
birgðum en félagið skuldar
vegna þeirra og svo getið þið
hjá NT leikið ykkur að því að
reyna að meta verðmæti olíu-
tanka, birgðastöðva, tækja,
húseigna ogannarra eigna OLÍS
um land allt sem félagið á á
hreinu. Af þessu ætti hver mað-
ur að sjá að OLÍS er eiginlega
mjög sterkt fyrirtæki og á marg-
faldlega fyrir skuldum.
Þórður Ásgeirsson
forstjóri
Háskólinn:
Prófkjör
rektors
■ Rektorskjör við Há-
skóla íslands fer fram 2.
apríl n.k. Kjörstjórn hefur
ennfremur ákveðið að láta
fara fram prófkjör og
verður það 1. niars.
Kjörgengir eru allir
skipaðir prófessorar við
skólann, en atkvæðisrétt
hafa allir fastráðnir starfs-
menn skólans meö há-
skólapróf og stúdentar.
Atkvæði stúdenta gilda
sem þriðji hluti allra
greiddra atkvæða.
Á kjörskrá eru 325
kennarar og 4.360 stúd-
entar.
Nýr rektor mun taka
við embætti sínu í haust,
en kjörtímabil rektors við
Háskólann er 3 ár.
lítrar.
Framleiðslukostnaður eða
innkaupsverð, á lítra, er áætlað
um 35 krónur, og meðalálags-
prósenta 30%. Þjóðhagsstofnun
tekur fram að um hreina ágisk-
un er að ræða og verði þessi
liður tekinn til frekari athugun- j
ar. I
Ef tekið er dæmi um fram-
leiðslugjald, sem næmi 90 kr. á
lítra, yrðu tekjur af framleiðslu-
gjaldi 640 milljónir króna.
Heildarsöluskattstofn yrði
1.150 milljónir, og tekjur af
söluskatti 275 milljónir króna.
Eins og áður segir yrðu heildar-
tekjur ríkissjóðs miðað við þess-
arforsendur915 milljónirkróna
á ári.
Þjóðhagsstofnun gerir ráð
fyrir því að á móti þessum
tekjum komi tekjutap vegna
hugsanlegs samdráttar í sölu
annarra áfengra drykkja. Einn-
ig er það tekið fram að af
sterkum bjór yrði dreift gegnum
útsölustaði A.T.V.R., myndi
aukinn kostnaður fylgja í kjöl-
farið, en ekki væri fjarri lagi að
áætla að tekjuauki ríkissjóðs
yrði á bilinu 600-800 milljónir
króna á ári og þar með 300-400
milljónir á þessu ári ef sala á
sterku öli yrði leyfð frá og með
fyrsta júlí 1985.
Ef við gefum okkur að for-
sendur Þjóðhagsstofnunar séu
réttar, þá er framleiðslukostnaö-
ur og framleiðslugjald samtals
125 kr. Ofan á þessa tölu leggst
síðan 30% meðaálagsprósenta,
og út úr því kemur 162,5 krónur
og loks leggst 20% söluskattur
ofan á allt saman þannig að
heildarverðið er 195 krónur á
líter. Útsöluverð úr ríkinu, á
einni 33 cl bjórflösku yrði 65
krónur. Hálfur lítri til ölstofu
frá Á.T.V.R. myndi kosta rúm-
ar 97 krónur þannig að eftir að
bjórinn hefur farið í gegnum
krana veitingahússeigandans er
viðbúið að verðið væri komið
upp í 180 krónur á hálfs lítra
kollu. Til samanburðar er al-
gengt verð 150 fyrir bjórlíkis-
kollu með sama magni.
NT spyr Steingrím
Hermannsson:
;
u/. i
!
Á að selja
börnum bjór?
■ „Það er ekki tekin
nokkur minnsta afstaða til
þess, þetta er svona ein-
ungis vegna þess að al-
þjóðlegar töflur nota
þessa viðmiðun." sagði
Steingrímur Hermanns-
son, að • spurður hvort
ríkissjóði hefði nú þegar
verið reiknaðar tekjur af
bjórsölu til unglinga á
aldrinum 15 ára til tvítugs.
í fréttatilkynningu for-
sætisráðuneytisins sem
gerð eru skil hér á síðunni
er reiknað út hverjar tekj-
ur ríkisins gætu orðið ef
hver íbúi eldri en 15 ára
neytti tiltekins magns af
bjór. „Það skiptir ekki
máli með hvaða tölu er
deilt í það magn sem
reiknað er með að selja.
En það er þó mín persónu-
lega afstaða að ég vona að
ekkert af þessu verði selt
þeim sem eru undir aldri.
Ég hef alltaf gert ráð fyrir
því að bjórinn verði aðeins
seldur í ÁTVR og ekki
öðrum en þeim sem hafa
aldur til,“ sagði Steingrím-
ennfremur.
Athugasemd
ritstj.
■ í athugasemd Þórðar er í raun
aðeins fundið að fyrirsögn fréttar-
innar. í því sambandi er rétt að
benda á að í undirfyrirsögn var
tekið fram að hugsanleg sala eða
leiga ætti aðeins við þann hluta
viðskipta Olís sem snýr að útgerð.
Þá bendir Þórður á hluta fréttar
NT, sem skrifaður sé í stíl minn-
ingargreina. Það er alrangt. Hlut-
verk þess hluta fréttarinnar var að
skýra hversu gamalt og rótgróið
fyrirtæki Olís er og hversu um-
fangsmikill rekstur þess væri, með
veltu upp á 2 milljarða og um 250
starfsmenn.
Þá segir Þórður að skuldir fyrir-
tækisins nenti ekki 800 milljónum
króna, en segir að skuld fyrirtækis-
ins við olíukaupareikning Lands-
bankans nemi 510 milljónum
króna. Það segir ekkert um heild-
arskuld fyrirtækisins.
Varðandi hlutverk heimildar-
manna, ónafngreindra, í íslenskri
sem erlendri blaðamennsku er það
að segja, að ef blöð ekki hefðu
heimildarmenn og ekki treystu
þeim. þá væri lítið um fréttir,
aðrar en þær sem menn í áhrifa-
stöðum ákvæðu að mætti prenta.
Frétt NT stendur því óhögguð.
Víó byggjum vióskipti okkar
á gagnkvœmu tnausti og
góóri þjónustu
Traust bankastarfsemi er nauðsynleg hverju byggðarlagi. Ekki aðeins fyrir fyrirtækin og uppbyggingu
atvinnulífs, heldur einnig fyrir einstaklingana.
Hjá okkur átt þú greiða leið að góðum viðskiptum
Leitaðu upplýsinga um þá möguleika sem við bjóðum
þér til þess að ávaxta peningana þína og vinna þér
lánstraust.
Sparivelta og Launavelta eru kostir sem vert er að
kanna!
Samvínnubankínn
ÚTIBÚ SELFOSSI - AUSTURVEGI 3 - SÍMI 2177