NT - 08.02.1985, Side 4
Föstudagur 8. febrúar 1985 4
Fá sveitarfélög sem
eru betur stæð í dag
- segir Stefán Jónsson, bæjarstjóri á Selfossi
■ Stefán Jónsson er yngsti bæjarstjóri á ísiandi, og
gegnir hann embætti sínu á Selfossi. Stefán er 29 ára
gamall og tók við embættinu í júlí árið 1982.
NT átti samtal við Stefán um efnahagsástand bæjarins,
og ýmislegt fleira.
úttekt í fyrra, og kom þá í ljós
að helmingur íbúanna var undir
fertugt, og sýnir þetta að Selfoss
er ungur bær, byggður upp af
ungu fólki.“
Hvað þýðir svona rúmur
efnahagur fyrir sveitarfélagið?
„Nú, hann þýðir það að við
höfum borgað upp mikið af
skammtímalánum, sem við vor-
um með á bakinu, og losnum
þar við stóran útgjaldalið, og
getum því einbeitt okkur betur
aðframkvæmdum. Bæjarsjóður
er þó engan veginn laus við
langtímaskuldir, og um síðustu
áramót skuldaði hann 33 mill-
jónir. t>að er réttlætanlegt að
taka langtímalán til sannanlegra
fjárfestinga. Hins vegar að taka
lán sem fara í reksturinn, eða
kók og prins, eins og ég kalla
Það kom strax fram hjá Stef-
áni, að efnahagsstaða kaupstað-
arins hefur batnað snarlega, síð-
an 1982, og sem dæmi nefndi
hann að innheimta á bæjar-
gjöldum árið 1984 var 90%,
sem er liðlega tveimur prósent-
um meira en árið 1983. „Árið
1982, þegar ég tek við stjórn,
hafði verið mikið framkvæmda-
ár, og efnahagurinn verulega
genginn úr skorðum, bæði
vegna verðbólgu, og yfirstaðins
kosningaárs. Við settum okkur
það markmið að laga efnahags-
stöðu bæjarins og byrjuðum
strax að vinna að því á árinu
1983. Það árið varheldurdregið
úr framkvæmdum, á meðan ver-
ið var að rétta úr mesta kútnum.
Það tókst fullkomlega að ná
þessu meginmarkmiði ársins,
sem var að laga efnahagsstöð-
una örlítið. Síðan rákum við
endahnútinn á þetta með því að
laga verulega greiðslufjárstöðu
bæjarins á síðastliðnu ári.Til
marks um þetta má nefna að
fjármagnskostnaður bæjarins
árið 1982 var rúm fjórtán prós-
ent af heildargjöldum. Árið 1983
var þessi tala komin niður í tæp
sex prósent, og loks á siðast-
liðnu ári er fjármagnskostnað-
urinn tæp fjögur prósent. Á
þessu ári, sem er nýhafið, er
búist við að kostnaðurinn verði
kominn niður í þrjú og hálft
prósent, í lok ársins.
Þetta skapast af því að við
höfum mun betri stýringu á
öllum okkarfjármagnshreyfing-
um og höfum hreinsað af okkur
allt sem heitir dráttarvextir, þeir
eru ekki lengur til hjá okkur."
Hvernig er bæjarfélagið stað-
sett í félagslegu tilliti?
„Ég held að það sé óhætt að
segja að við stöndum vel að vígi
þar, og nægir að líta á íbúafjölg-
unina, sem var tvö prósent á
tímabilinu 1983-1984. Þetta er
rúmlega tvöfalt landsmeðaltal,
sem er tæpt prósent. Það er
greinilegt að við erum að fá til
okkar fólk úr sveitunum. Það
kemur hér og sest að, og ég er
sannfærður um það að ein
ástæðan fyrir því er sú að við
reynum að gera talsvert fyrir
eldri borgara, og höfum við
byggt 16 leiguíbúðir fyrir aldr-
aða, á síðastliðnum fjórum
árum, og nú er á döfinni að
byggja söluíbúðir fyrir aldraða,
í nálægð sjúkrahússins. Með
þessu er ég ekki að segja að
Selfoss sé bær, sem er eingöngu
byggður eldra fólki. Ég gerði
■ Það gilda sömu lögmál hjá
sveitarfélagi og fjölskyldum í
landinu; að eyða ekki um efni
fram. NT-mynd: Árni Bjama
það, er algerlega bannað og
þekkist ekki hjá okkur.
Veltufjárhlutfall bæjarsjóðs-
ins er mjög hagstætt, og ég þori
að fullyrða að jafn hagstætt
hlutfall þekkist óvíða hjá sveit-
arfélögunum hér á landi, og ég
er viss um að við höfum ein-
hverja þá bestu stöðu að þessu
leyti sem sveitarfélag getur stát-
að af.“
Einhver ráð sern þú vilt gefa
öðrum sveitarfélögum, sem
ekki eru jafnvel stæð?
„Það er stutt og laggott: Eyða
ekki um efni fram, það er sama
lögmál sem gildir hjá sveitarfé-
lagi og fjölskyldunum í land-
inu.“
Hvernig leggst framtíðin í þig
fyrir hönd Selfoss?
„Ég er viss um að Selfoss á
eftir að vaxa og þróast sem
iðnaðar- og þjónustubær, og þá
með tilliti til staðsetningar og
okkar hlutverk er fyrst og fremst
að vera þjónustumiðstöð fyrir
stóru héruðin í nágrenninu."
l- *„ :
.
Jörgen Pind sýnir samstarfsmönnum sínum hjá Orðabók Háskólans tölvuforrít. NT-mynd: Ámi Bjamn
Orðabók HÍ tölvuvæðist
■ Töluverðar breytingar hafa
orðið á starfsemi Orðabókar
Háskólans, síðastliöin tvö ár.
Verkaskipting hefur orðið skýr-
ari en áður og mótast hafa þrjú
ný verksvið, þ.e. orðtökusvið,
tölvusvið og ritstjórnarsvið.
Tölvutæknin opnar nýjar
leiðir til skráningar og úrvinnslu
hinna feiknalega umfangsmiklu
gagna sem seðlasafnið hefur að
geyma og gefur um leið færi á
miklu stórvirkari orðsöfnun en
hægt hefur verið að sinna til
þessa. J örgen Pind hefur á hendi
yfirumsjón með tölvusviði. Hef-
ur hann annast alla forritun og
aðra tölvuvinnu fyrir Orðabók-
ina ásamt fleirum. Einnig hefur
hann unnið að leiðréttingafor-
riti fyrir IBM, ýfnsum verkefn-
um í sambandi við ritmáls-
skrána, forritum um beygingu
mannanafna o.fl.
Guðrún Kvaran hefur um-
sjón með orðtökusviði, sem sér
um orðtöku, geymslu textasafns
og úrvinnslu þess.
Umsjón með ritstjórnarsviði
er í höndum Jóns Hilmars Jóns-
sonar. Þar eru m.a. mótaðar
aðferðir við orðlýsingu og
skráningu notkunardæma fyrir
ýmsar hugsanlegar orðabókar-
útgáfur.
Forstöðumaður Orðabókar
Háskólans er Jón Aðalsteinn
Jónsson.
■ Helgi Gíslason við eitt verka sinna.NT-mynd: Róberi
Helgi Gíslason sýn-
ir í Listmunahúsinu
■ Á morgun verður opnuð í
Listmunahúsinu, Lækjargötu 2,
sýning á 26 brons- og kopar-
myndum eftir Helga Gíslason,
myndhöggvara. Þetta er þriðja
einkasýning hans, en hann hefur
tekið þátt í fjölda samsýninga.
Helgi nam við Myndlista- og
handíðaskóla Islands á árununi
1965-1969 og var við framhalds-
nám við Valands konstskola í
Gautaborg árin 1971-1976.
Á sýningu Helga verður sýnd
ný mynd, sem ísfilm h.f. hefur
gert, um listamanninn og sýnir
listamanninn við gerð mynd-
verka sinna, bæði á vinnustofu
og í málmsteypunni.
Letterstedtski sjóðurinn:
Ferðastyrkir til
rannsóknarstarfa
■ íslandsnefnd Letterstedtska
sjóðsins hefur ákveðið að veita
tvo ferðastyrki á árinu 1985,
handa íslenskum fræði- eða vís-
indamönnum sem vilja ferðast
til Svíþjóðar í rannsóknarskvni.
Styrkfjárhæð verður fimm til
tíu þúsund sænskar krónur til
hvors styrkþega.
Hér er ekki um eiginlega
námsferðastyrki að ræða, held-
ur koma þeir einir til greina,
sem Iokið liafa námi en hyggja
á frekari rannsóknir. Umsóknir
skulu berast íslandsnefnd Lett-
erstedtska sjóðsins, c.o. Þór
Magnússon, Þjóðminjasafni
íslands, Pósthólf 1439, 121
Reykjavík, fyrir febrúarlok.
Þórshöfn:
Ný heilsugæslustöð í sumar
Frá Halldori lnj>a Ásgeirssyni, fréttaritara NT
á Akureyri:
■ Þrátt fyrir að innheimta út-
svars og fasteignagjalda í Þórs-
hafnarhreppi hafi verið nokkru
lakari um síðustu áramót en þau
á undan, eru talsverðar fram-
kvæmdir fyrirhugaðar á vegum
hreppsins í ár.
Að sögn Stefáns Jónssonar
sveitarstjóra Þórshafnarhrepps
var innheimta um 83,2% um
áramótin, sem . væri um 6%
lakara en árið 1983. Áætlað er
að hefja byggingu nýrrar heilsu-
gæslustöðvar á vegum hreppsins
í sumar, unnið verður að styrk-
ingu sjóvarnargarðsins, svo og
gangstéttalagningu við Fjarðar-
veg. Á síðasta sumri var hafin
bygging fjögurra verkamanna-
bústaða og er áætlað að þeir
verði teknir í notkun á árinu.
70 tonna bátur bættist í flota
Þórshafnarbúa nýverið Fagra-
nes ÞH 123, og er hann sameign
Árna Helgasonar útgerðar-
manns og Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar.
REYKJAVÍK
og höfuðborgarsvæðið
GÖTUKORT
Selfyssingar
Permanent - lagningar
klippingar - litanir
næringarkúrar.
Verið velkominog reynið viðskiptin
Kappkostum vandaða vinnu.
Hárgreiðslustofa Önnu
Austurvegi 44. Sími 2309, Selfossi.
Götukort af Reykja-
vík og nágrenni
■ Olíufélagið Skeljungur h.f. hefur nú, í samvinnu
við ýmsa aðra aðila, gefið út götukort af Reykjavík
og nágrannabyggðum. Er kortunum ætlað að bæta
úr brýnni þörf fyrir íslendinga jafnt sem erlenda
ferðamenn, og fást kortin ókeypis.
í fréttatilkynningu frá Olíufélaginu Skeljungi,
segir að vegakerfi Reykjavíkurborgar og nágranna-
byggða hat'i breyst og lengst til muna á tiltölulega
fáum undanförnum árum og svarar Iengd gatnakerf-
isins á höfuðborgarsvæðinu nú til lengdar gatnakerf-
is ýmissa borga með mun stærri íbúatölu. „Nú á því
öllum að vera fært að finna hagkvæma og rétta leið
á áfangastað á höfuðborgarsvæðinu og ekki lengur
þörf á að rífa kortin úr símaskránni heima til þess
að setja út í bíl," segir að lokum.