NT - 08.02.1985, Page 13
1985 13
■ .,Ég elska hesta og hef
alltaf þráö að eignast hest,"
sagði Linda McCartney við
enskan blaðaraann, sem heira-
sótti McCartney-fjölskykluna
á húgarð þeirra í Sussex. „Nú
á ég líka I2 hesta, og ntörg
fleiri dýr. Við höfura hérna
þrjá hunda. hænsni. fasana og
kindur fvrir utan smærri gælu-
dýr. Hér slátrum við cngu
dýri. svo við erum ekki að ala
þau upp til matar. Við crum
nefniiega grænmetisætur hér á
heimilinu."
Linda er þekkt fvrir að vera
mikill dýravinur. svo mikill, -
að hún scgir að reynt sé að
gæta þess aö hún komist ekki
á hrossauppboð. því að þá
kaupi hún sjálf þau hross sem
ekki gangi út og útséö sé um að
fari beint í sláturhúsið. „I’að á
ekki að slátra góöum hestum.
þó þeir séu hættir að vinna til
vcrðlauna á kapprciðum eóa
sýningum. Þeir hafa unnið sinn
vinnudag í lífinu og eiga skiliö
aö fá „eftirlaun", ganga á
grænu grasi á meðan heilsan er
í lagi," segir Linda. Hún hcfúr
líka sýnt aö henni cr alvara,
því að hún hugsar vcl um
gamlan veöhlaupahest, sem
Paul keypti fyrir löngu handa
pabba sínum, og kallaður er
„Drake’s Drum '. Hann er nú
orðinn gamali en liíir í besta
vfirlæti hjá þeim á búgarðin-
um.
Mér finnst dýraveiöar villi-
mannslegar. Af hverju geta
mcnn ekki hcldur fariö á
„Ijósmvndaveiöar", þ.e. reynt
aö ná myndunt af dýrunum í
staöinn fyrir aö skjóta þau“,
segir Linda, scm sjálf cr viöur-
kcnndur Ijósmyndari.
Linda læddist í Scarsdale í
New York, dóttir þekkts lög-
fræðings Lce Eastman og konu
hans. í barnæsku dreymdi
l.indu stöðugt um að eignast
hest, en þaö varö ekkert úr
því. Reyndar lofuðu foreldr-
arnir henni því, að ef hún tæki
góö próf í skólanum, skyldi
hún fá hest. en ég var
aldrei neitt dugleg í skólan-
um," segir Linda.
Linda giftist mjög ung skóla-
bróður sínum frá háskólanum
í Arizonti og þau eignuöust
dóttur, Heather, sem er nú hjá
móöur sinni í Englandi. Pau
skildii og Linda sncri sér að því
að verða Ijósmyndari og sér-
hæfði sig í að ntynda rock-
hljómsveitir. Pað var við slíkt
tækifæri sem þau hittust Paul
McCarntey og Linda. Þau giftu
sig svo 1968 og stuttu síðar
fékk Linda sinn fyrsta hest.
fallcga jarpa mcri. sem hún
réð ekkert viö og illa gekk að
temja. „Hún hljóp alltaf með
mig út í buskann. en ég seldi
hana ekki. Hún er liérna í
dýrahjöröinni okkar."
Paul smitaðist |af hesta-
mennskunni, ogöllfjölskyldan
sömuleiðis, svo þaö er mikið
um útretðartúra á landareign
McCartney-fjölskyldunnar.
Linda McCartney:
„Ég er alveg vitlaus í hesta!“