NT - 08.02.1985, Side 20

NT - 08.02.1985, Side 20
w— • Pólland: Prestmorðingj- arnir dæmdir Torun-Keuter ■ Fjórir pólskir leyniþjón- ustumenn hafa verið sekir fundnir fyrir morðið á föður Jerzy Popieluszko og dæmdir í 14 til 25 ára fangelsi. Grzegorz Piotrowski kapt- einn, sem átti mestan þátt í ^ r Isbrjótur bjargar hvítum hvölum Moskva-Keuter ■ Sovétmenn hafa sent öflugan ísbrjót til að brjóta leið í ísinn nálægt Beringsundi þar sem nreira en þúsund hvítir hvalir allt að sex metrar á lengd eru innilokaðir að sögn sovéska dagblaðsins Izvestia. Hvalirnir hafa verið innilokaðir í rúma viku. Peir eltu fiskitorfu inn í Senyavina-sund sem er skammt fyrir sunnan Bcr- ingsund sem aðskilur So- vétríkin og Alaska. Porps- búar á þessum slóðum sáu hvalina og gerðu yfirvöld- um aðvart. Sovésk stjórnvöld ákváðu að senda ísbrjót- inn Moskvu á vettvang til að bjarga hvölunum en Moskvu-ísbrjóturinn er annars notaöur til að halda opnum siglingaleið- um viö Beringsund. ráninu á föður Popieluszko, og Adam Pietruszka höfuðsmaður sem var hvatamaöur að verknað- inum, voru dæmdir í 25 ára fangelsi. Undirmenn þeirra, Leszek Pekala og Waldemar Chmielewski, voru dæmdir í 14 og 15 ára fangelsi. Artur Kujawa yfirdómari sem kvað upp dóminn yfir mönnun- um, sagði að dómstólnum hefðu borist mörg þúsund bréf þar sem dauðadóms væri krafist yfir Piotrowski kaptein. En hann sagðist samt hafa komist að þeirri niðurstöðu að slíkt væri ekki nauðsynlegt. Morðið á fööur Popieluszko hafði mikil áhrif á Pólland þar sem talið er að um 33 milljón kaþólikkar séu. Jaruzelski for- sætisráðherra hefur sagt að morðið kunni að vcra liöur í samsæri harðlínumanna til að spilla bættum samskiptum pólska ríkisins við kaþólsku kirkjuna og vestræn ríki. Við réttarhöldin sýndu Pek- ala og Chmielewski ýmis iðrun- armcrki og grétu jafnvel viö yfirheyrslur. Piotrowski kapt- einn hélt hins vegar ró sinni að mestu öll réttarhöldin nema í gær grúfði hann höfuðið í höndum sér þegar liann heyrði að hann yröi ekki líflátinn eins og sak- sóknari hafði krafist. Föstudagur 8. febrúar 1985 20 Útlönd ■ Átökin milli lögreglu og námumanna hafa oft veriö æriö hörð. í augum ríkisstjórnar nýfrjálshyggju Thatchers er verkfallið prófdæmi um hvort tekst að mölbrjóta breska verkalýðshreyfingu. Kolaverkfallið breska: Verkst jórar styðja óvænt námamenn ■ Verkstjórar í kolanámunum bresku veittu námumönnum óvæntan stuðning í gær er þeir kröfðust þcss að stjórn nám- anna hefji nú þegar viðræöur til að binda enda á 47 vikna verk- fall námumanna. í sameiginlegri yfirlýsingu verkalýðsfélaga námumanna og verkstjóra eftir fund forystu- manna þcirra er krafist skilyrð- islausra viðræðna af hálfu stjórnar námanna. Sjórn námanna hefur sett þau skilyrði fyrir viðræðum að námumenn gefi út skriflega yfir- lýsingu um að þeir séu tilbúnir til viðræðna um lokun „óhag- kvæmra" náma. Verkstjórar hafa aldreið áður stutt beint verkfall námumanna. Ólöglegt er að vinna í námunum án viðurvistar verkstjóra. Félag verkstjóra, NACODS, aflýsti verkfalli í október eftir að stjórn námanna hafði fallist á aó mat óháðra aðila yrði lagt á „óhagkvæmni" námanna. Talsmenn verkstjóra sögöu að skilyrói stjórnar námanna fyrir viðræðum við námumenn kipptu grunninum undan samn- ingi verkstjóra við stjórn nám- anna um rannsókn á námunum. Arthur Scargill formaður fé- lags námumanna, NUM. sagði eftir fundinn í gær með Peter McNcstry, formanni NACODS, að námumenn myndu krefjast opinberrar rannsóknar ádeilum þeirra við stjórn námanna ef stjórnin virti yfirlýsingu verk- stjóra að vettugi. Slík rannsókn myndi kanna þau hagsmunaöfl sem liggja að baki deilunni. Afstaða ríkisstjórnar Thatc- hers og stjórnar námanna hefur harðnað eftir að verkfallsbrjót- um tók að fjölga í nóvember s.l. Hagsmunir ríkisstjórnarinnar ná langt út fyrir verkfallið sem slíkt því gagnvart ríkisstjórn ný- frjálshyggju Thatchers er deilan prófdæmi urn hvort tekst að mölbrjóta verkalýðshreyfing- una á Bretlandi. í fyrradag var haft eftir tals- manni námumanna í Suður-Wa- les að þeir hyggðust breyta um baráttuaðferðir og hefja aftur vinnu en berjast með skæru- verkföllum í einstökum verk- Smiðjum. Kcultr o.fl. Andstöðuleiðtogi kemur aftur heim Tveggja ára útlegð Kim Dae-Jung lokið Suður-Kórea: ■ Kini Dae Jung, einn helsti forystumaður stjórnarandstæðinga í Suður-Kóreu, er væntan- legur til heimalands síns í dag eftir tveggja ára útlegð í Bandaríkjunum. í forsetakosningum árið 1D71 munaði litlu að Kim tækist að sigra þáverandi forseta Park Chung Hee sem setti á herlög skömmu eftir kosningarnar. Þegar hcrlögin voru sett á var Kim í heimsókn í Japan og ákvað hann að dveljast þar áfram af ótta við að hann kynni að verða handtekinn við heint- komuna í Suður-Kóreu. En þann 8. ágúst 1973 rændu fimm óþekktir Kóreumenn Kim Dae Jupg frá hóteli í Tokyo. Almennt er álitið að stjórnvöld í Suður-Kóreu hafi staðið bak við mannránið þótt þau Itafi aldrei viðurkennt það opinber- lega. Síðan var Kim haldið meira eða minna í stofufangelsi þar til hann var ásakaður fyrir undirróðurstarfsemi og dæmdur til dauða eftir blóðugar óeirðir og uppreisn í Kwangju. Þeim dómi var síðar breytt í 20 ára fangelsi. Eftir að hafa afplánað tæp þrjú ár af fangelsisdómi sínum tékk Kim Dae Jung leyfi til að fara til Bandaríkjanna til lækn - inga. Þar hefur hann síðan verið í útlegð. Ekki er enn fullljóst hvernig yfirvöld í Suöur-Kóreu munu bregðast við heimkomu þessa stjórnarandstöðuleiðtoga sem fékk 46% greiddra atkvæða í forsetakosningununr 1971. Ólíklegt er samt talið að hann verði aftur hnepptur í fangelsi þar sem slíkt gæti leitt til nýrrar óeirðaöldu en nú hefur verið tiltölulega friðsamt í Suður- Kóreu um nokkurt skeið. Fyrstu viöbrögð suður-kór- eskra stjórnvalda hafa verið þau að setja nokkra helstu stuðn- ingsmenn Kim Dae Jung í stofu- fangelsi og hindra allan frétta- flutning um hann í u.þ.b. eina viku. Einnig hafa stjórnvöld komið í veg fvrir að 20 lang- férðabílar nteð stuðningsmönn- um Kim færu frá heimabyggð hans í Kwangju til að taka á móti honurn á flugvellinum. Að minnsta kosti 1.750 manná lið lögreglumanna munu gæta flugvallarins í Seoul þegar Kim kemur þangað í dag og líklega verður urn 50.000 stuðn- ingsmönnum hans meinað að taka á móti honum á flugvellin- um þótt nokkrir fulltrúar þeirra kunni að fá leyfi til þess. Það hefur vakið nokkra reiði í Suður-Kóreu að tuttugu liátt- settir Bandaríkjamenn, þar af tveir öldungadeildarþingmenn, eru í för með Kim Dae Jung. Flestir Kóreumenn eru mjög þjóðernissinnaðir og ekki er 'ólíklegt að þessi tilraun Kim Dae Jung til að sýna fram á, að hann hafi stuðning frá Banda- ríkjunum, lítillækki hann í aug- unt margra ungra stjórnarand- stæðinga í Suður-Kóreu. ■ Þessi mynd var tekin af Kim Dae Jung á Naritaflugvelli við komuna til Japans í gær. Þar dvaldist hann í gær og í nótt á hóteli. Japanska lögreglan hafði mikinn viðbúnað til að tryggja að honum yrði örugglega ekki rænt í þetta skipti eins Og árið 1973. Símamynd-POLFOTO Sameinuðu þjóðirnar: Hafi eftirlit með pyntingum Genf-Rt‘uler ■ Fráfarandi formaður mann- réttindanefndar Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt til þess að Sameinuðu þjóðirnar settu upp kerfi til að fylgjast með pynting- um frá hinum ýmsu löndum heims. Peter Kooijmans frá Hollandi sagði á ársfundi mannréttinda- nefndarinnar, sem hófst í þess- ari viku, að pyntingar væru daglegur viðburður þrátt fyrir að Sameinuðu þjóðirnar hefðu samþykkt að þær skyldu bann- aðar. Hann sagði að ályktanir einar saman dygðu ekki til að binda enda á þennan glæp. Kooijmans lagði til að mann- réttindanefndin hefði frum- kvæði að því að koma upp kerfi sem gæfi stöðugt upplýsingar um pyntingar og benti á leiðir til að berjast gegn þeim. Mannréttindanefnd Samein- uðu þjóðanna mun halda fundi næstu sex vikur í Genf og ræða ýniis mál sem snerta mannrétt- indi. Meðal annars verða skýrsl- ur um ástandið í Afganistan og Iran ræddar. Einnig er búist við umræðum um Chile. E1 Salva- dor, Guatemala, Grenada, Kambódíu, Namibiu, Vestur- Sahara og þau svæði sem ísra- elsmenn hafa hertekið. Fyrrverandi forseti og utan- ríkisráðherra Bangladesh, Abu Sayeed Chowdhury, var ein- róma kosinn fundarforseti.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.