NT - 08.02.1985, Side 21
ÍTT ? Föstudagur 8. febrúar 1985 21
Ljl Útlönd
Forsætisráðherra Ástralíu:
Fjölbýlishús hrundi
18 létust 40 saknaö
Castellancta-Rcuter
■ 18 létust er fjölbýlishús
hrundi til grunna í gær í borginni
Castellaneta á Suður-Ítalíu. 30-
40 ntanns er leitað í rústununi.
Níu manns sluppu með minni
háttar meiðsl er þetta sex hæða
hús hrundi. Eftir hrunið gat að
líta 10 metra háan steinhaug.
Lögreglan sagði að 25 íbúðir
hefðu verið í þeim hluta hússins
sem hrundi og að íbúarnir hafi
verið í fastasvefni þegar aburð-
urinn átti sér stað um klukkan 4
í fyrrinótt.
Haft var eftir talsmanni rann-
sóknarnefndar, sent var skipuð
af borgaryfirvöldum vegna
málsins, að óljóst væri hvað olli
hruninu. Engir íbúanna sem
komust af söguðust hafa heyrt
sprengingu og því virtist ekki um
gassprengingu að ræða.
Á síðasta ári höfðu eigendur
íbúðanna aflient borgaryfir-
völdum skýrslu þar sem kvartað
var yfir leka frá götu inn í
kjailara hússins. Embættismenn
segja að þegar hafi verið hafist
handa við lagningu gangstéttar
við húsið, en henni var ekki
lokið.
40.000 Banda-
ríkjamenn
undirbúa mót-
mælaaðgerðir
- rádist bandaríski herinn inn í Nicaragua
Washington-Rcuter
■ Ýmsir trúarhópar og and-
stöðuhópar gegn kjarnorku-
vopnum hafa skráð að minnsta
við
erum og það þrátt fyrir að útlit
sé fyrir að viðskiptahalli Banda-
ríkjanna muni enn aukast á
þessu ári.
Háir vextir í Bandaríkjunum
og hátt gengi dollarans gerir
það að verkum að fjármagn
streymir úr öðrum löndum og er
mikið áhyggjuefni ráðamanna í
iðnríkjunum.
kosti 40.000 Bandaríkjamenn
sem segjast munu taka þátt í
mótmælaaðgerðum ráðist
Bandaríkjaher inn í Nicaragua
eða E1 Salvador.
Skipuleggjendur undirskrifta-
söfnunarinnar segja að mótmæl-
in yrðu meðal annars fólgin í
því að einstaklingar úr hópi
mótmælendanna myndu ferðast
til vígstöðvanna og taka sér
friðsamlega stöðu með þeim
sem yrðu fyrir árásinni.
Áætlun um mótmælaaðgerð-
irnar hefur verið dreift meðal
bandarískra stjórnarstofnana.
Beth Leopold, talsmaður eins
hópsins sem stendur að þessan
undirskriftasöfnun, segir að
hugmyndin bak við söfnunina
sé að draga úr líkunum á beinni
íhlutun Bandaríkjanna í Mið-
Ameríku.
Reagan Bandaríkjaforseti og
ýmsir háttsettir menn í stjórn
hans hafa lýst því yfir að engin
áform séu um að nota banda-
rískt herlið í átökum í Mið-Am-
eríku.
Aðstoðum ekki við kjarn-
orkuflaugatilraunir USA
Ítalía:
FjárlagahalliUSA ógnun
al þjódag jaldey r iskerf i ð
- segir seðlabankastjóri V-Þýskalands
Oavos-Rcutcr
■ Karl Otto Poehl, banka-
stjóri v-þýska seðlabankans
sagði í gær að fjárlagahallinn í
Bandaríkjunum væri helsta
ógnunin við alþjóðagjaldeyris-
kerfið.
Poehl gagnrýndi stjórn Reag-
ans fyrir „hirðuleysi í gengis-
málum dollarans, en dollarinn
hækkaði enn í verði í gær gagn-
vart þýska markinu. Dollarinn
hefur ekki verið hærri gagnvart
markinu í tólf ár.
Hann sagði á alþjóðamóti
hagfræðinga í Davos í gær að
fjárlagahallinn í Bandaríkjun-
um myndi auka enn frekar við-
skiptahalla Bandaríkjanna.
Seðlabankastjórar Banda-
ríkjanna og Japans tóku undir
varnaðarorð Poehls.
Enginn þessara þriggja seðla-
bankastjóra gaf til kynna hvern-
ig hægt væri að draga úr styrk
dollarans. Samkvæmt hagfræði-
kenningum á gengi gjaldmiðils
að lækka í því landi þar sem
viðskiptahalli við útlönd ríkir.
Þrátt fyrir að viðskiptahalli
Bandaríkjanna hafi aldrei verið
meiri en á síðasta ári, eða um
100 milljarðar dollara, hefur
gengi dollarans sjaldan verið
hærra en á undanförnum miss-
■ Fjölbýlishúsið sem hrundi með sviplegum hætli í fyrrinótt í
borginni Castellaneta á Suður-Ítalíu.
Camberra-Reuter
■ Fyrr í þessari viku tilkynnti
forsætisráðherra Ástralíu, Bob
Hawke, að Ástralir myndu ekki
veita Bandaríkjamönnum að-
stoð við tilraunir á MX-eld-
flaugum sem ætlað er að bera
kjarnaodda.
OPECfær
lögfræðinga
til verðlags-
efftirlits
Frá Rcyni Þór Finnbogasyni frétta-
ritara NT í Hollandi:
■ Samtök olíuútflutn-
ingslanda OPEC hafa
fengið hollensku lög-
fræðings- og endurskoð-
unarskrifstofuna Klyn-
feld Kraayenhof en co. í
Amsterdam, til að annast
eftirlit á olíuframleiðslu
aðildarríkjanna svo og á
hvaða verði þau selja
olíuna; hvort þau fylgi
samþykkt sem gerð var á
fundi OPEC. Var þessi
ákvörðun tekin á fundi
OPEC í Genf í lok janú-
ar.
Yantani. olíumála-
ráðherra Saudi Arabíu
sagði: „Það er mjög
mikilvægt að fá hlutlaus-
an aðila til að fylgjast
með ntálunum og gefa
skýrslu uni þau. Frá og
með 1. mars vitum við
nákvæmlega hversu mik-
ið er framleitt í hverju
aðildarríkjanna og á
hvaða verði þau selja.
Klynfeld Kraayenhof
en co. hefur rnikla reyn-
slu á þessu sviði. þar sem
fyrirtækið sér um allt
eftirlit og endurskoðun
fyrir risafyrirtækið Shell.
Framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins J.A. Steenmeij-
er er að vonum ánægður
með að fyrirtæki hans
varð fyrir valinu og mun
þetta auka umsvif þess
mikið. Fyrirtækið kemur
til með að þurfa að fjölga
starfsmönnum en Steen-
meijer kvað ekki enn
ljóst hve mikið.
Að minnsta kosti fjórir ráð-
herrar í stjórn Bob Hawkes eru
andvígir þessari ákvörðun hans
og telja að Ástralir verði að
taka þátt í tilraununum þar sem
Bandaríkjamenn séu banda-
menn þeirra. Ástralska frétta-
stofan segir að utanríkisráð-
herrann, Bill Hayden, sé „eins
reiður og óður skröltormur"
vegna ákvörðunar forsætisráð-
herrans.
George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði eft-
ir viðræður við Hawke í Was-
hington að Bandarikjamenn
myndu gera tilraunirnar án að-
stoðar Ástralíumanna í Suður-
Kyrrahafi.
Aðstoð Ástralíumanna átti
að felast í aðgangi Bandaríkja-
manna að herstöð í nágrenni
■ Bob Hawke, forsætisráð-
herra Ástralíu.
Sydney, en þar áttu þeir að fá
bensín á vígvélar sínar og
birgðir.
Ákvörðun Hawkes er talin
mikill sigur fyrir kjarnorku-
vopnaandstæðinga, sérstaklega
vegna þess að hún kemur
skömmu eftir að Nýsjálendingar
hafa neitað Bandaríkjamönn-
um um hafnaraðstöðu fyrir her-
skip sem geti borið kjarnavopn.
Nú í vikunni tilkynntu Banda-
ríkjamenn að hætt hefði verið
við sameiginlegar flotaæfingar
Ástralíumanna, Bandaríkja-
manna og Nýsjálendinga sem
fyrirhugaðar voru í mars. Þessar
þjóðir hafa með sér hernarðar-
bandalag á Suður-Kyrrahafi
sem gengur undir nafninu ANZ-
US og telja margir atburði síð-
ustu daga steypa framtíð banda-
lagsins í hættu.
Erlent
audmagn
í Kína-
múrinn
■ Kínverjar hafa fengið meira
en sem svarar einum milljarði
dollara í gjafir erlendis frá til að
gera við Kínamúrinn sem sagð-
ur er því sem næst fimm þúsund
kílómetra langur.
Kínverskir embættismenn
segja að gjafir hafi borist frá 18
löndum frá því í júlí á seinasta
ári þegar þeir hófu alþjóðlega
söfnun til að endurreisa múrinn
sem liggur yfir fjöll og firnindi í
Norður-Kína.
Elstu hlutar Kínamúrsins eru
sagðir allt að 2.500 ára gamlir
en í gegnum aldirnar hefur hann
margoft verið endurbyggður og
honum breytt. Kínamúrinn er
nú í mikillli niðurníðslu vegna
veðrunar og vegna þess að
bændur í Norður-Kína hafa oft
sótt byggingarefni í hann þótt
það sé nú stranglega bannað að
viðlögðum hörðum refsingum.
Það er ákveðin kaldhæðni í
því að Kínverjar skuli nú fá
erient fjármagn til endurreisnar
múrsins sem upphaflega var
reistur til þess að hindra útlend-
inga í að komast inn í Kína.
■ Hluti Kínamúrsins í Badaling fyrir norðan Peking en þar hefur
hann verið endurnýjaður. Meirihluti múrsins er hins vegar í rústum
og hafa Kínverjar nú beðið útlendinga um að hjálpa til við
endurreisn hans þótt Kínamúrnum hafi upphaflega verið ætlað að
halda útlendingum frá landinu.