NT - 08.02.1985, Qupperneq 24
Ólafur Laufdal sækir um lóð við Suðurlandsbraut:
Vill reisa skemmti-, ráð-
stef nu-og fjölskylduhöll!
- umsókninni vísað til skipuiagsnefndar
■ „Það eru engar umrædiir neindar ug skrifsiofustjóra stærri en veitingahúsið Broad- 2000 manns. Sagðist Ólafur vera
halnar við borgina ennþá. Það borgarverkfræðings,“ sagði way. með í huga alls kyns ráðstefnur
eina sem helur gerst er að ég hef Olalur Laufdal veitingamaður í Sækir Ólafur um 2500 fer- ogsárnkomur, sem hið nýja hús
sent inn umsókn um lóð á horni saintali við NT, en hann hefur metra lóð á þessum stað, þar gæti hýst, en veitingahúsið
HoltsvegarogSuðurlandsbraut- sótt um að fá aö byggja skemmt- sem nú er tún, og kemur fram í Broadway er of lítið fyrirsumar
ar og borgarráð lielur vísaö ana-, ráðstefnu- og fjölskyldu- umsókninni að fyrirhugað hús þeirra, að hans sögn.
henni til umsagnar skipulags- höll á þessum stað sem yrði ætti að geta tckiö milli 1400- Ólafurkvaðstaðspurðurekk-
ert vera farinn að velta fyrir sér
fjármögnun þessarar byggingar,
það væri nægur tími til þess
seinna, enda ætti margt eftir að
koma í Ijós fyrst, t.d. hvort
borgin væri til í að láta þessa lóð
og tæki afgreiðsla málsins ef-
laust drjúga stund. En hann
hefði áhuga á að kanna þetta
má!.
Börn kveiktu
í kofanum
sínum
■ Slökkviliðið var síð-
degis í gær kvatt að Mið-
túni þar sem börn höfðu
verið að fikta með eld í
litlum kofa sem þau sjálf
höfðu hyggt. Hafði eldur-
inn náð að læsast í kofan-
um og eyðilagðist hann í
eldingum en frekara tjón
varð ekki.
Kofi þessi stóð á baklóð
í Miðtúninu og höfðu
börnin kveikt í bréfi inni í
honum. Fljótlega komst
eldurinn í teppi sem var í
kofanum og réðu þau litlu
þá ekki við neitt úr því.
Banaslys:
Varð undir vörubíl
og lést samstundis
iMirA moA noim h'pfti 1-,., „f .XI
■ 2*) ára gamall Keykvíkingur
beið bana í gærmorgun þegar
hann varð undir vörubifreið á
vinnusvæði við Krókháls 7,
austarlega í Ártúnshöfðahverf-
inu. Maðurinn varð undir cinu
afturlijóli hifreiðarinnar og er
taliö að hann hafi látist sam-
stundis.
Slysið varð með þeim hætti
að maðurinn sem vann á gröfu
var að segja vörubifreiða-.
stjóranum til hvar skyldi losa
híass bifreiðanna. Tveir bílar
komu hvor á eftir öðrum og
uggói maðurinn ekki að ser
þegar sá fyrri hafði losað sinn
farm. Var liann á tali við híl-
stjóra fyrri bifreiðarinnar þegar
sá síðari bakkaði og lcnti mað-
urinn þá undir einu af afturhjól-
um bílsins sem er stór tveggja
hásinga bíll.
Að Krókhálsi 7 fara fram
jarðvegsframkvæmdir fyrir
væntanlega byggingu Bygginga-
vörudeildar SÍS. Vörubílar voru
að keyra möl ofan i svæðið og
hinn látni vann við að slétta úr
mölinni. Ekki er hægt að birta
nafn. hins látna að svo stöddu.
Góðar stundir
með MS sam-
lokum -hvar
og hvenær____
sem er. l
Mjólkursamsalan
Arnarstofninn:
„Svæfður mávur aldrei
drepiíörnhérálandi"
- segir Árni G. Pétursson
■ „Mér vitanlega hefur aldrei verið staöfest að örn hafi
drepist hér við land vegna þess að hann hafi étið hræ af
lyfjadauöum vargfugli. En Fuglaverndarfélaginuer að sjálf-
sögðu - eins og öðrum - heimilt trúfrelsi," sagði Árni G.
Pétursson, hlunuindaráðunautur Búnaöarfélagsins vegna
fréttar frá Fuglaverndarfélaginu um aö örnum stafi hætta af
eyðingu vargfugla með lyfjum.
Að mávur sem étið hefur
svefnlyf fljúgi langar leiðir
áður en hann deyr. segir
Árni einnig útilokað. Að
sjálfsögðu geti þcir étið mis-
stóra skammta eftir því hvað
þeir væru gráðugir. og fugl
sem lítið hefði étið geti
kannski flogið nokkra kíló-
metra áöur en yfir lýkur. En
að svæfing vargfugla á t.d.
Norðurlandi eða Suðurlandi
geti valdið hættu fyrir arnar-
stofninn, sem nánast ein-
göngu heldur sig við Breiða-
fjörðinn, sagði Árni t.d. af
og frá, auk þess sem engar
sönnur væru á færðar að hræ
af slíkum fugli gæti drepið
örn.
Þær hugleiðingar Fugla-
verndunarfélagsins að lyfja-
notkun sé gagnslaus til fækk-
unar á svartbaksstofninum
hérlendis sagði Árni og úr
lausu lofti gripnar og ekki
styðjast við innlendar rann-
sóknir. „Þvert á móti liggja
fyrir staðreyndir um að stór-
lega hefur slegið á máva-
stofninn á svæðum þar sem
lyf hafa verið notuð.
Ef á hinn bóginn aðild ís-
lenskra áhugamanna að
einhverjum alþjóðasam-
tökum gcri.r ísland óbyggi-
legt, er sjálfsagt að hætta
þeirri aðild, sem og sumar
nágrannaþjóða okkar hafa
heldur aldrei gerst þátttak-
endur í," sagði Árni.
Þaö álit kom og fram hjá
Árna, að hann og ýmsir aðrir
teldu arnarstofninn nú að
verða of fjöltalinn. sérstak-
Iega vegna þess að hann hafi
nú - öfugt við það sent áður
var - þjappast saman á af-
mörkuðu landssvæði. Á
þcssu svæöi hafi nrenn á
undanförnum árum orðið
fyrir umtalsverðu tjóni af
völdum arnarins. „Það virð-
ist því vera komið að þeim
mörkunt að stemma þurfi
stigu við offjölgun arnar-
stofnsins," sagði Árni G.
Pétursson.
■ Ung stúlka varð fyrir bíl í Tryggvagötunni í gærdag en meiösli hennar voru ekki talin mjög alvarlcgs
eölis. Sjúkrabifreið flutti stúlkuna á Slysadeild. NT-mymi: Svenír
Fyrsti
leigubíll-
inná
Hvolsvelli
■ Iivolsvellingar hafa nú
eignast sinn fyrsta leiguhíl
og bílstjóra og þar með
stigið enn eitt skrefið í átt
til borgarmenningar.
„Ég hef í nokkur ár
spáð í að byrja leigubíla-
akstur en lét nú loks verða
af því að prófa þetta,"
sagði þessi fyrsti leigubíl-
stjóri á Hvolsvelli, Ingi
Guðjónsson. Hannsagðist
hafa haft spurnir af að
slíkur rekstur gæti gengið
þó á iitlum stöðum sé, en
ætlar þó að hafa þetta að
aukastarfi til að byrja með
a.m.k. Enda vafalaust að
niest þörf fyrir leigubíla-
akstur sé á kvöldin og um
helgar - í kringum böll og
aðrar skemmtanir.
Helgarblaði NT er að finna punktinn
yfir i-ið hvað helgina snertir.
Meðal efnis að þessu sinni:
Er stjörnuspeki vísindi eða bull?
Höfum við gengið til góðs? Hvernig
standa baráttumál kvenna í lok kvenna-
áratugs?
Reagan Bandaríkjaforseti og rauði
síminn. Eitt samtal gætiþýtt lok mann*
kynssögunnar.
Hvað mundir þú taka með þér að lesa
efþú ættir að dvelja á eyðieyju?