NT - 16.02.1985, Page 21
Brasilía:
Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn
sýnir klærnar
- hótar að greiða ekki 400
milljóna dollara lán í mars
■ Hinn nýkjörni forseti Brasi-
líu, Tancredo Neves, mun þurfa
að taka óþægilegar ákvarðanir
fljótlega eftir að hann tekur við
embætti í næsta mánuði. Hann
mun þurfa að ákveða hvernig
bregðast eigi við hótun Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins um að hætta
við fjármagnsáætlun sína gagn-
vart Brasilíu.
Embættismenn í Washington
sögðu á fimmtudag að Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn myndi ekki
inna af hendi 400 milljóna doll-
ara greiðslu sem Brasilíumönn-
um var ætluð í mars. Ástæðan er
Bandaríkjamenn
vinna gegn friði
í Mið-Ameríku
- Nicaraguamenn óttast innrás Bandaríkjamanna
Mexíkóborg-Reuter.
■ Nicaraguamenn ásökuðu
Bandaríkjamenn á fimmtudag
um að reyna á óábyrgan hátt að
koma í veg fyrir friðarfrum-
kvæði Contadora-ríkja í Mið-
Ameríku.
Fundur Contadora-ríkjanna
- Mexíkó, Panama, Venesúela
og Kólombíu var fyrirhugaður á
fimmtudag, en á þeim fundi
áttu fulltrúar fimm Mið-Amer-
íkuríkja að hittast.
Fundinum var frestað seint á
miðvikudagskvöld eftir að
Hondúras, Kosta Rica og E1
Salvador tilkynntu að þau-
myndu ekki senda fulltrúa sína
vegna deilna Kosta Rica og
Nicaragua um diplómatísk mál-
efni.
Utanríkisráðherra Nicarag-
ua, Miguel D'Escoto, sagði í
Managua á fimmtudag að
Bandaríkjamen hafi beitt Kosta
Rica þrýstingi og fengið stjórn
Kosta Rica til að nota deiluna
sem tæki til að koma í veg fyrir
fundinn.
Nicaraguamenn eru ótta-
slegnir og telja frestun fundarins
benda til að innrás Bandaríkj-
anna í Nicaragua sé yfirvofandi.
í dagblöðum í Nicaragua á
fimmtudag voru birtar auglýs-
ingar þar sem fólk á aldrinum
18-22 ára var hvatt til að skrá sig
í herinn. Ótti Nicaragua við
innrás er líka mikill vegna sam-
eiginlegara heræfinga Hondúras
og Bandaríkjanna sem hófust á
mánudaginn s.l.
Spánn:
Stúdentar mótmæla
Sevilla, Spáni-Reuter
■ Spænska lögreglan skaut
gúmmískotum til að dreifa
20.000 stúdentum við Sevillahá-
skóla sem mótmæltu því á
fimmtudag að stúdentar hafa of
fáa fulltrúa í stjórn háskólans.
Að sögn lögreglunnar særðist
enginn alvarlega í skotárás lög-
reglunnar og enginn var hand-
tekinn.
Laugardagur 16. febrúar 1985 21
■ Neves, forseti Brasilíu á
erfitt starf fyrir höndum þegar
hann tekur við völdum í mars,
að sameina andstæða hagsmuni
verkalýðshreyfingarinnar og
hægrisinnaða stefnu Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins.
sögð vera að Brasilíumönnum
hefur ekki tekist að ná efnahags-
legum markmiðum sínum og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Talsmenn Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins sögðu á fimmtudag að
sjóðurinn myndi halda áfram
viöræðum við Brasilíumenn um
efnahagsáætlun fyrir 1985, en
bankamenn í Washington sögðu
í gær að ekki gæti orðið úr neinu
samkomulagi fyrr en Neves tek-
ur við völdum 15. mars n.k.
Brasilíumenn geta ekki geng-
ið frá samningum við viðskipta-
banka í Bandaríkjunum um
lánapakka til að greiða um
helming þeirra 100 milljarða
dollara sem þeir skulda í erlend-
um lánum, fyrr en gengið hefur
verið frá samkomulagi við Al-
þj óðagj aldey rissjóði n n.
Bankamenn og hagfræðingar
í Sao Paulo sögðu í gær að
ákvörðun hafi verið frestað eftir
að Ijóst var að Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn myndi ekki fallast á
efnahagsstefnu Brasilíumanna
sem var opinberuð í síðasta
mánuði.
Á síðasta ári voru mikil mót-
mæli í Brasilíu vegna efnahags-
stefnunnar í landinu sem runnin
var undan rifjum Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, en stefna hans
felur í sér m.a. niðurskurð í
ríkisgeiranum og félagslegri
þjónustu, kaupmáttarskerðingu
launa og gengislækkanir sem
eiga að hafa hvetjandi áhrif á
útflutning. Gengisstefnan
hækkar innfluttar vörur í verði
og eykur kaupmáttarskerðing-
una.
Stjórn Brasilíu á erfitt starf
fyrir höndum þ.e. að koma til
móts við andstæða hagsmuni
verkalýðshreyfingarinnar og
hægrisinnaða stefnu Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins.
(Reuter o.fl.)
Alþjóðasamtök
stofnuð í gær
Amsterdam-Reufcr.
■ Vændiskonur frá tíu löndunr
stofnuðu í gær alþjóðasamtök til að
berjast fyrir réttindum vændiskvenna.
M.a. vilja þær lögleiða vændi og, að
vændiskonur hafi jafnan rétt gagnvart
skattalögum og vinnumalalöggjöf.
Við lok fyrstu alþjóðaráðstefnu
vændiskvenna samþykktu um 150 full-
trúar á ráðstefnunni að samtökin
skyldu beita sér fyrir þrýsingi á stjórn-
málamenn og ríkisstjórnir og „endur-
mennta" samfélögin.
„Stofnanir eins og Sameinuðu þjóð-
irnar og Evrópuþingið munu heyra
frá okkur og við munum beita þrýst-
ingi okkar á þær,“ sagði Margo St.
James, talskona samtakanna á blaða-
mannafundi í gær.
Yfirlýsing ráðstefnunnar var sam-
þykkt eftir miklar deilur en í henni
segir að lögleiða beri vændi og það
eigi að heyra undir venjulegan við-
skiptarétt, en sérstök lög beri að setja
sem komi í veg fyrir misþyrmingar á
vændiskonum.
■ Alþjóðasamtök vændiskvenna
voru stofnuð í gær. Markmið þeirra er
að gæta réttar vændiskvenna.
V-Berlín:
Kvikmyndahátíð-
in hófst í gær
- islendingar eiga þar enga mynd
Kra Marj>réti Rún Cuömundsdóttur í Berlín
■ í gær hófst kvikmyndahátíð-
in í Berlín. Hátíðin sem stendur
í 12 daga nýtur mikillar virðing-
ar í kvikmyndaheiminum og er
ásamt kvikmyndahátíðunum í
Cannes og Feneyjum stærsta
hátíð.sinnar tegundar.
Yfir sex hundruð kvikmyndir
víðs vegar að úr heiminum
verða sýndar á hátíðinni, en
mest bcr á kvikmyndum frá
V-Þýskalandi, Bandaríkjunum
og Frakklandi auk fjölda mynda
frá Suður-Ameríku.
Athygli vekur hversu margar
stuttar myndir eru á hátíðinni.
Hátíðin sjálf skiptist í margar
deildir en ein þeirra er sjálf
keppnin þar sem 32 kvikmyndir
berjast um hin eftirsóttu verö-
laun, gullbjörninn.
íslcndingar ciga enga mynd á
hátíðinni að þessu sinni.
Umsjón: Ragnar Baldursson og íyar Jónsson
Spánn:
Bandarískum
njósnurum
vísað úr landi
Madrid-Reuter
■ Tveir bandarískir
diplómatar voru reknir frá
Spáni fyrr í þessum mán-
uði fyrir njósnir.
Mennirnir reyndu að
hlera leynilegar sendingar
opinberra aðila sem send-
ar eru út á sérstökum
bylgjulengdum stofnana á
milli. Frá þessu skýrði
Fréttastofa ríkisins á
Spáni í gær.
Annar mannanna var
starfsmaður í bandaríska
sendiráðinu í Madrid en
hinn vann við borgaraleg
störf á bandarískri
herstöð.
Mennirnir voru hand-
teknir þegar þeir Ijós-
mynduðu byggingar leyni-
legra opinberra stofnana.
■ ítalskir öryggisverðir ráðast til atlögu viðbóndabæ í Palermo
þar sem var einn af mörgum inngöngum í kerfi neðan-
jarðarganga semítalska mafían notaði við myrkraverk sín.
Símaraynd: Polfoto.
Mafíuhreið-
ur í Palermo
Palermo-Reuter.
ítalskar öryggis- og lögreglusveitir hafa fundið
mikið neðanjarðarkerfi leyniherbergja í Palermo á
Sikiley sem tengdust með leynigöngum.
Mikið magn vopna, skotfæra og sprengiefnis
fannst í göngunum sem félagar í ítölsku mafíunni
notuðu til fundarhalda, skyndiflótta og ýmissar
leynilegrar starfsemi.
Fundur neðanjarðarkerfisins markar hámarkið á
herferð lögreglu gegn mafíunni í þessari höfuðborg
Sikileyjar.
í ljós kom að heimili margra helstu foringja
mafíunnar tengdust með göngum sem sum voru
meira en hundrað metrar á lengd. Á einum stað
fannst 20 metra víður neðanjarðarsalur þar sem
lögreglan segir að um 70 manns hafi getað komið
saman.
Neðanjarðarkerfið er í austurhluta Palermo. I
fyrradag lokaði lögregla og öryggissveitir svæðinu af
og hóf síðan kerfisbundna leit. A.m.k. tíu manns
voru handteknir.
Meira en 300 grunaðir félagar í mafíunni hafa
verið handteknir á Ítalíu frá því í september á
síðasta ári þegar fyrrverandi mafíuleiðtogi, Tom-
maso Buscetta, féllst á að aðstoða lögregluna í
baráttunni gegn mafíunni.
FIAT eigendur
Nýkomið:
Framljós og afturljós
FIAT - UNO - 127 - 128 - 131 - 132
Ritmo Argenta
STEINGRÍMUR BJÖRNSSON SF.
SUÐURLANDSBRAUT 12, RVÍK. SÍMAR 32210 - 38365.