NT - 10.04.1985, Qupperneq 1
Miðvikudagur 10. apríi 1985 - 94. tbi. 69. árg.
Bankaráðin á teppið?
Ríkisstjórnin óskar
eftir greinagerðum
- og enginn veit hver átti hugmyndina að 450.000 kr. launaauka
■ Ekki liggur Ijóst fyrir
hverjir áttu hugmyndina að
launuauka bankastjóra ríkis-
bankanna er NT greindi frá í
síðustu viku.
Samkvæmt heimildar-
mönnum NT eru tveir mögu-
leikar helst nefndir; að hug-
myndin hafi verið Jóhannes-
ar Nordal og Björgvins Vil-
mundarsonar, eða að hug-
myndin hafi upphaflega
komið frá bankaráði Lands-
bankans, en þar var mál
þetta tekið fyrir fyrst, 22.
desember eða 28. desember
sl.
Astæða launaaukans mun,
einnig samkvæmt heimildum
NT, vera sú að endur-
skoðendur einhvers bankans
gerðu athugasemdir við
endurgreiðslur bankanna á
aðflutningsgjöldum bifreiða
bankastjóranna, nema að
þær greiðslur væru taldar við-
komandi bankastjórum til
tekna.
Þá mun, eins og greint var
frá í NT, hafa verið gripið til
þess ráðs að greiða banka-
stjórunum 450.()()() krónur á
ári, og er sú upphæð fengin
með því að reikna með að
bankastjórarnir skipti um bíl
á þriggja ára fresti, og dugi
upphæðin, 1.3 milljónir, að
frádregnum 60% skatti er
greiddur verði af launauk-
anum, fyrir aðflutningsgjöld-
um bifreiðarinnar.
Matthías Á. Mathiesen,
viðskiptaráðherra, hefur
óskað eftir greinagerð
bankaráða bankanna um mál
þetta, og farið fram á að
bankaráðin fresti samþykkt
tillagnanna. Sjá bls. 3.
WHAM í Kína:
Gekk ber-
serksgang
í flugvél
Peking-Reuter:
■ Að afloknum geysifjöl-
mennum tónleikum popp-
hljómsveitarinnar Wham í
Peking í Kína gekk hinn
yndisfríði söngvari hljóm-
sveitarinnar, George Micha-
el berserksgang um borð í
kínverskri flugvél.
Ekki kom til neinna
meiðsla í æðiskastinu en sál-
arástand söngvarans er talið
venju fremur bágborið. Að
loknum tónleikunum sem
voru á páskadag sagði hann
að ekki hefði tekist að brúa
menningarlegt bil hljóm-
sveitarinnar og aðdáenda
hennar þar austurfrá með
tónleikunum sem annars
voru vel heppnaðir. Um á-
stæðu þess að Wham var
valin til tónleikahalds sagði
söngvarinn það vera vegna
þess að þeir væru ekki eins
úrkynjaðir og aðrar vestræn-
ar rokkhljómsveitir.
Þrátt fyrir geysivinsældir
Wham meðal ungmenna þar
eystra þögðu flest útbreidd-
ari blöð þar þunnu hljóði um
tónleikana og eru margir þar
eystra sagðir lítt hrifnir af
„andlegri mengun“ sem
þessari.
■ Hér gefur að líta
Wham-gæjana George
Michael og Andrew Rid-
geley ásamt kínverskum
strák á kínvcrska
múmum. Myndin er
greinilega tckin áður en
George gekk berserks-
ganginn mikla. i'ou-wo
Bankastjóra-
kaupið:
Rætt utan
dagskrár
-áfimmtudag
■ JóhannaSigurðardótt-
ir, þingmaður Alþýðu-
flokks, mun kveða sér
hljóðs utan dagskrár í sam-
einuðu þingi á íimmludug
og gera launaauka banka-
stjóra ríkisbankanna að
umtalsefni.
Þá hafa bæði Jóhanna
og Guðmundur Einars-
son, Bandalagi jafnað-
armanna, lagt fram fyrir-
spurnir um málið.
Bílvelta við
Hafnarfjall
■ Fólksbifreið valt á veginum
við Hafnarfjall seinni part dags í
gær. Ökumaður og farþegi voru
fluttir á sjúkrahús í Borgarnesi.
Að sögn lögreglunnar sprakk hjól-
barði á bílnum, og mun það hafa
leitt til slyssins.
Flateyri:
Ekiðá
stúlku
■ Ekið var á unga stúlku á Flat-
eyri að morgni annars í páskum.
Stúlkan meiddist talsvert, en mun
þó ekki vera í lífshættu. Að sögn
'lögreglunnar á ísafirði var stúlkan
flutt í sjúkrahúsið á ísafirði, og
dvelst hún þar enn. Grunur leikur
á að ökumaður bifreiðarinnar hafi
verið ölvaður.
Ríkisstjórnin enn í minnihluta
- 49% kjósenda segjast styðja stjórnina; svipað hlutfall í ratsjárstöðvamálum
■ Þriðjungur kjósenda
Bandalag jafnaðarmanna
styður ríkisstjórnina sem nú
situr. Einnig nýtur stjórnin
stuðnings 25% kjósenda
Alþýðuflokksins, 10%
kjósenda Kvennalista auk
13% kjósenda Alþýðu-
bandalags.
Þetta eru meðal annars
niðurstöður skoðana-
könnunar NT um fylgi
flokkanna og ríkisstjórnar-
innar.
Fjörutíu og níu prósent
þeirra er svöruðu, kváðust
styðja stjórnina, en 51%
sögðust andvígir henni.
Mest fylgi, innan einstakra
flokka, hafði stjórnin hjá
kjósendum stjórnarflokk-
anna eða um 80%.
Þá var spurt um afstöðu
manna til ratsjárstöðvanna.
Þar reyndust niðurstöður
svipaðar, og voru 50%
þeirra er tóku afstöðu fylgj-
andi og 50% andvígir upp-
setningu slíkra stöðva.
Sjá nánar bls. 4.