NT - 10.04.1985, Blaðsíða 22

NT - 10.04.1985, Blaðsíða 22
Útlönd Miðvikudagur 10. apríl 1985 22 Skæruverkföllin í Danmörku halda áfram: Svínin f itna Frá Guörúnu Ögmundsdóltur frétturitaru NT í Ruupniunnahöfn. ■ Danskir bændur og slátur- hús í þeirra þjónustu standa nú frammi fyrir þeim vanda aö svínin fitna og fitna ogsjá bænd- urnir fram á geysilegt tap á fjármunum meö hverju kílóinu sem svínin bæta á sig. Til þess aö þau haldist í topp-veröflokki veröur að halda fitulaginu í skefjum en við venjulegar að- stæöur cr þaö gert með því aö slátra þeim á nákvæmlega rétta kílóinu. En nú fæst sem sagt enginn til að slátra þeim - slátrararnir virða þessi svín ekki viðlits á meðan þeir berjast á öðrum vígstöðvum. Danir ætla sem sagt ekki að sætta sig við lagasetningu ríkis- stjórnar Schlúters, sem kveöur á um að launahækkanir verði ekki meiri en 2%, og danska stjórnin setti viku fyrir páska til að binda enda á vinnudeilurnar í landinu. Og í gær hófu 15000 manns víðs vcgar um landið verkföllin á ný eftir hléið sem gert var um páskana. Á sjúkrahúsum er einungis haldið uppi neyðarþjónustu. Starfsemi skóla, dagheimila og skóladagheimila er meira og minna lömuð og starfsmenn hreinsunardeildarinnar leyfa ruslinu að safnast upp í friöi. Þeir sem mæta í vinnu sína nota 1 tímann til fundahalda en þeir sem ekki mæta eru sektaðir um 1850 ísl. krónur á dag. Þar sem vcrkföll þessi eru ólögleg cru verkfallsstyrkir ekki heimilir en þegar cr farið að borga fólki styrkina undir borðið. Verkfallsaðgerðum verður haldiö áfram í dag og verða haldnir miklir fundir í öllurn borgum og bæjum landsins, þ.á m. tveir í Kaup- mannahöfn. Danska samfélagið mun þá lamast algjörlega, útvarp og sjónvarp þagna og samgöngur leggjast niður svo þcir sem ekki eru í verkíalli, t.d. opinberir ■ Verkföllin í Danmörku héldu áfram í gær aö páskaleyfinu loknu og eru frekari aðgerðir fyrirhugaðar uns ríkisstjórnin lætur sér segjast. Hér sést lögreglan leggja til atlögu við veVkfallsverði á bensíneyjunni í Kaupmannahöfn. starfsmenn, munu ekki komast til vinnu sinnar. Formaður málmiðnaðar- sambandsins hefur látið hafa eftir sér að aðgerðunum verði haldið.áfram þar til ríkisstjórnin fer frá eða dregur lagasetning- una tiLbaka, öðrum kosti. Pví var spáð í gær að verkföll- in í dag verði jafnvel víðtækari en nokkru sinni og þeim verði haldið áfram þar til ríkisstjórnin lætur undan. Talið er víst að ríkisstjórnin hrökklist frá völd- um láti hún ekki að vilja þjóðar- innar. Súdanir vilja bjórinn aftur Kharton-Kcuter. ■ Mörg hundruð Súdan- ir söfnuðust saman annan páskadag og kröfðust þess að áfengisbanni yrði aflétt í landinu en það var sett á fyrir einu og hálfu ári af Jaafar Nimeiri þáverandi forseta sem herinn steypti af stóli nú á laugardaginn. Nimeiri lét hella öllu áfengi í Súdan í Nílarfljót í september 1983 eftir að hann tók upp íslömsk lög til að þóknast hreintrúuð- um múhameðstrúarmönn- um. Nú þegar honum hef- ur verið steypt af stóli vona áfengisaðdáendur að herstjórnin leyfi aftur áfengisneyslu. Mótmælendur söfnuð- ust saman fyrir framan hótel og ýmsar opinberar byggingar og hrópuðu: „Við viljum bjór.“ Herstjórnin í Súdan undirbýr samninga við skæruliða Khartoum-l.ondon-Reuter Atvinnumálaráðherra Spánar: 20% atvinnuleysi - gæti verið verra Vladrid-Kcuter ■ Herstjórnin í Súdan, sem steypti Jaafar Nimeiri forseta af stóli nú fyrir helgi, leggur mikla áherslu á samningaviðræður við skæruliða í Suður-Súdan sem hafa barist gegn stjórninni í tvö ár. Skæruliðunum virðist samt lítið um herstjórnina gefið því að útvarpsstöð, sem þeir reka, gaf stjórninni viku frest til að koma á borgaralegri stjórn ann- ars myndu þeir blása til bylting- ar gegn henni. Bardagar milli skæruliða og stjórnarhersins hafa komið í veg fyrir efnahagsuppbyggingu, olíuleit og frekari þróun land- búnaðarins í Suður-Súdan. Eg- ypsk fréttastofa hefur eftir heimildamönnum, sem hafa náin tengsl við herstjórnina, að stríðið hafi kostað Súdana um 350.000 dcllara á hverjum degi. Síðastliðmn föstudag, einum degi áður en herinn tók völdin, skýrðu leiðtogar skæruliða frá því að þeir hefðu hafið viðræður við herforingja um leiðir til að binda enda á ófriðinn sem ógnar einingu landsins. Nimeirí varð sjálfur á sínum tíma þekktur fyrir að koma á friði milli stríðandi fylkinga í Súdan fyrir 13 árum. Þá hafði innanlandsstríðið geisað í Súd- an í 17 ár og kostað um eina milljón manns lífið. Bardagar blossuðu síðan aftur upp árið 1983 þegar Nimeiri skipti suðurhluta landsins niður í hér- uð og tók upp islömsk lög í öllu landinu þótt stór hluti íbúa Súdan sé ekki múhameðsstrúar og kristin trú sé útbreidd í suðurhluta landsins. Herinn var illa búinn til bar- áttu við skæruliða sem hafa fært sér í nyt kjarr og skóglendi til að gera skyndiárásir á stjórnarher- inn. En skæruliðar eru líka innbyrðis klofnir og sumir leiðtogar þeirra hafa lýst sig sammála stjórninni um að mjög erfitt yrði fyrir suðurhéruðin að halda sjálfstæði sínu gagnvart nágrannaríkjunum Eþíópíu og Líbýu. En skæruliðarnir vilja samt ekki leggja niður vopnin nú þótt Nimeiri hafi verið steypt af stóli. Þeir segja að herinn hafi stolið sigri landsmanna með stjórnarbyltingunni og hann verði nú að skila völdunum til fólksins. Geri hann það ekki muni skæruliðar grípa aftur til vopna eftir eina viku með það fyrir augum að steypa herstjórn- inni sem sé í engu betri en stjórnin sem hún steypti. ■ Spánverjar eiga nú Evrópu- met i skráðu atvinnuleysi, eða 20%, en ríkisstjórn sósíalista segir að þá tölu verði að skoða með nokkrum fyrirvara þar eð í landinu blómgist neðanjarðar- efnahagskerfi auk þess sem hefðbundin og rígföst fjöl- skyldugerð hafi dregið úr þeirri ólgu sem annars mætti vænta við þvílíkar aðstæður. Atvinnumálaráðherrann, Al- varo Espina, segir að tölurnar séu réttar en því fari á hinn bóginn fjarri að hinar 2,6 mill- jónir atvinnulausra Spánverja séu með öllu tekjulausar. Espina heldur því fram að sé fylking atvinnuleysingjanna skoðuð komi í ljós að húsmæður og börn, komin á vinnualdur en búandi heima hjá foreldrunum, skipi um 65% fylkingarinnar og telur ráðherrann það draga mjög úr alvöru ástandsins á vinnumarkaðinum. Neðanjarðarhagkerfið dreg- ur svo, að sögn ráðherrans, úr spennunni en það virkar á þann hátt að fyrirtækin halda fast- ráðnu starfsfólki í algjöru lág- marki en ráða síðan atvinnu- leysingja í einstök verkefni. Þannig loki t.d. fyrirtæki í vefn- aði og skóiðnaði verksmiðjum sínum’og opni síðan aftur hve- nær sem eigendunum hentar. Framleiði þá reiðinnar ósköp í einu sem orsaki það aftur að önnur fyrirtæki hrökklist undir yfirborðið. Ríkisstjórnin reynir að lokka ■ Franskir húsverðir - hingað til þekktastir fyrir að hafa um aldur og ævi staðið vörð um reglusemi og hreinlæti ætla að losa úr ruslafötunum á götur og torg til þess að mótmæla lágum fyrirtækin upp á yfirborðið með kostaboðum eins og lágvaxta- lánum, opinberri tryggingu og skattaívilnunum og sveigjan- legri vinnulöggjöf. Ráðherrann segir hið aukna atvinnuleysi vera arf frá slæmri stjórn Francos einræðisherra sem lést árið 1975. Sósíalistar geta hrósað sér af góðum árangri á flestum sviðum efnahagslífsins frá því þcir voru launum og lélegu húsnæði. • Húsverðirnir, sem sett hafa svip sinn á íbúðablokkir í Frakklandi um aldir, hafa auga með útidyrunum, stigapöllun- um og lyftunum í húsunum fyrir eigendur þeirra. kosnir til valda árið 1982, en verða að horfast í augu við það að þeim hefur ekki tekist að draga úr atvinnuleysinu. En eins og ráðherrann segir hafa þeir nú gert ráðstaíanir til þess að greiða fyrir auknum fjárfestingum fyrirtækjanna og þykir þeim mál til komið að viðskiptajöfrarnir fari að vinna sín verk. Um 80% Spánverja vinna hjá einkafyrirtækjum. Formaður félags húsvarða, sem telur 35.000 meðlimi, sagði fréttamönnum í gær að félagið hefði boðað til fjögurra daga „ruslafötu-verkfalls“ frá og með deginum í dag. Flestir þeirra 115.000 sem starfa við húsvörslu í Frakklandi vinna 55 stunda vinnuviku en fá ekki nema 60% af venjulegum lágmarkslaunum fyrir þjónustu sína og verða oft að borga leigu, hitakostnað og aðra reikninga í þokkabót. Formaður félagsins sagði að ef ruslafötu-verkfallið tryggi húsvörðum ekki láginarkslaun muni félagið boða til harðari aðgerða - þeir muni þá ekki rukka leiguna og vinna þá papp- írsvinnu sem innifalin er í starfi þeirra. Formaðurinn sagði að laun húsvarða væru algjör svívirða - jafnvel unglingar undir átján ára aldri fengju 80% af venju- legum lágmarkslaunum. Formaðurinn sagði að lokum að þriðjungur allra húsvarða væri konur, þetta væri hefð- bundið kvennastarf og illa laun- að eins og önnur kvennastörf. Nær helmingur húsvarðanna er útlendingar, aðallega Portúgal- ir, Spánverjar og Júgóslavar. Utanríkisráðherra Japans: Hafnar kjarnorkuvernd gegn hefðbundinni árás Tokyo-Rcutcr ■ Við umræður í japanska þinginu fyrir skömmu lýsti utanríkisráðherra Japana, Shintaro Abe, því yfir að japönsk stjórnvöld ntyndu ekki fallast á að Bandaríkja- menn beittu kjarnorkuvopn- um til að verja Japan t'yrir árás þar sem einungis hefð- bundnum vopnum væri beitt. Ráðherrann sagði einnig að Japanir rnyndu ekki held- ur samþykkja notkun kjarn- orkuvopna til að koma í veg fyrir árás á Japan. Þessi af- staða Japana er greinilega frábrugðin yfirlýstri stefnu Bandaríkjamanna og NATO sem segjast mundu beita kjarnorkuvopnum ef með þurfi gegn hugsanlegri árás Sovétmanna og bandamanna þeirra þótt aðeins hefðbund- in vopn yrðu notuð í slíkri árás. Abe sagði að Bandaríkja- menn myndu taka tillit til afstöðu Japana í þessu máli ef það þyrfti að verja landið. í febrúar á þessu ári lýsti Yasuhiro Nakasone forsætis- ráðherra Japana því yfir að Japanir myndu leyfa Banda- ríkjamönnum að beita kjarn- orkuvopnum til að verja Jap- an ef framtíð landsins væri í hættu vegna óvinaárásar. Öll framleiðsla og geymsla kjarnorkuvopna í Japan er bönnuð samkvæmt japönsku stjórnarskránni. Frakkland: Verðir hreinlætisins í ruslafötu-verkfalli París-Reuter

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.