NT - 10.04.1985, Qupperneq 5
Miðvikudagur 10. apríl 1985 5
„Hjálpartæki hafa opnað
margar dyr fyrir fatlaða“
Rætt við Guðrúnu Nielsen og Snæfríði EgilsoH um hjálpartækjasýningu Sjálfsbjargar
verið mikil á síðustu árum. Stærstur er
hlutur hjálpartækja fyrir hreyfihamlaða
en hjálpartæki fyrir þroskahefta eru einn-
ig margvísleg og sama má segja um
blinda og heyrnarlausa.
Með tilkomu Hjálpartækjabankans,
annarra innflytjenda og íslenskrar fram-
leiðslu á hjálpartækjum hefur ástandið
batnað mikið en oft eru tækin ekki til á
lager og biðtími eftir hjálpartækjum er
iðulega margir mánuðir.
Tryggingarstofnun greiðir flest hjálpar-
tæki að miklu eða öllu leyti en þau eru oft
mjög dýr, t.d. hjólastóllinn sem er eina
hjálpartækið sem undanþegið er sölu-
skatti og aðflutningsgjöldum. Pví er
stundum ódýrara að flytja hjálpartækin
inn sem húsgögn heldur en sem hjálpar-
tæki,“ sögðu Guðrún Nielsen og Snæfríð-
ur Egilson að lokum.
■ Guðrún Nielsen hjá Hjálpartækjabankanum og Snæfríður Egil-
son, iðjuþjálfi, sitja hér hjá Laufeyju Eiríksdóttur, 4 ára. Laufey
situr í hjálpartæki, sérhönnuðum stól sem gefur góðan stuðning.
NT-mynd: Ari.
Gefum þeim mikið af mjólk!*
Nœstum allt það kalk sem Ifkaminn þarfnast í uppvextinum fer til uppbyggingar tanna og beina. Skorti
barnið kalk getur það komið niður á því síðar sem alvarlegir sjúkdómar í beinum og baki, auk þess sem
hœtta á tannskemmdum eykst. Foreldrar œttu að hafa í huga að nœr vonlaust er að fullnœgja kalkþörf
líkamans án þess að barnið neyti nœgs mjólkurmatar. Tvö mjólkurglös á dag innihalda lágmarksskammt af
kalki svo barnið vaxi og þroskist eðlilega. Ónóg kalkneysla getur stuðlað að beinþynningu sfðar á œvinni.
Mjólk í hvert mál * Mjólk: Nýmjólk, léttmjólk, eða undanrenna.
Aldurshópur Ráðlagður dagskammtur afkalkiímg Samsvarandi kalk- skammtur í mjólkur- glösum(2,5dl glðs)* Lágmarks- skammturí mjólkurglösum (2,5 dl glös)**
Böm 1-lOóra 800 3 2
Unglingar 11-18 óra 1200 4 3
Ungtfólkogfullorðið Ófrlskar konur og 800*“ 3 2
brjóstmœður 1200"" 4 3
* Hór er gert ráð fyrlr að allur dagskammturlnn af kalkl komi úr mjólk.
** Að sjálfsögðu er mögulegt að fá allt kalk sem likamlnn þarf úr öðrum matvœlum en mjólkurmat en slíkt krefst
nákvœmrar þekklngar á nœrlngarfrœði. Hér er miðað við neysluvenjur eins og þœr tíðkast í dag hór á landi.
***Marglr sórfrœðingar telja nú að kalkþörf kvenna eftir tíðahvörf só mun meiri eða 1200-1500 mg á dag.
****Nýjustu staðlar fyrlr RDS í Bandaríkjunum gera ráð fyrir 1200 til 1600 mg á dag fyrir þennan hóp.
■ •••%,
ssm..
mm
1 N ; WWkm-
'X-rsr í
Mjólk inniheldur meira kalk en nœr allar aðrar faeðutegundir og auk þess B-vítamín,
A-vítamín, kalíum, magníum, zink og fleiri efni. Um 99% af kalkinu notar líkaminn til vaxtar
og viðhalds beina og tanna. Tœplega 1 % er uppleyst í líkamsvökvum, holdveljum og
frumuhimnum, og er það nauðsynlegt m.a. fyrir blóðstorknun, vöðvasamdrátt, hjartastarfsemi
og taugaboð. Auk þess er kalkið hluti af ýmsum efnaskiptahvötum. Til þess að líkaminn geti
nýtt kalkið þarf hann D-vítamfn, sem hann fœr m.a. með sólböðum .og úr ýmsum fœðutegundum,
t.d. lýsi. Neysla annarra fœðutegunda en mjólkurmatar gefur sjaldnast meira en 300-400 mg
á dag, en það er langt undir ráðlögðum dagskammti. Úr mjólkurmat fœst miklu meira kalk,
t.d. 800 mg úr u.þ.b. þremur glösum af mjólk.
am— n
MJÓLKURDAGSNEFND
■ Hjálpartækjasýning verður haldin að
frumkvæði Sjálfsbjargar - landssam-
bands fatlaðra - á Hótel Loftleiðum
dagana 12.-16. apríl.
Að sýningunni standa samtök fatlaðra,
tvær svæðisstjórnir og Hjálpartækjabank-
inn.
Markmið sýningarinnar er þríþætt:
framleiðendur og innflytjendur sýna og
kynna fjölbreytt úrval hjálpartækja, flutt
verða fræðsluerindi fyrir fatlaða og að-
standendur, faghópa og almenning og
kynnt verður fristundastarf fatlaðra.
Fjórir erlendir gestir sækja sýninguna
heim. Jette og Ole Bentzen frá Dan-
mörku halda fyrirlestra og Catu Lie og
Gitte Molberg frá Noregi sýna hjólastóla-
dans.
í viðtali NT við Guðrúnu Nielsen, hjá
Hjálpartækjabankanum og Snæfríði Egil-
son, iðjuþjálfa, kom fram að þetta er
fyrsta samsýning á hjálpartækjum hér-
lendis en erlendis eru slíkar sýningar
algengar.
En hvað eru hjálpartæki? „Pví reynum
við að svara með þessari sýningu," sögðu
Guðrún og Snæfríður. „Hjálpartækin
hafa opnað margar dyr fyrir fatlaða og
þróun í gerð og framleiðslu þeirra hefur
Kísilmálmverksmiðjan
við Reyðarfjörð:
Heimamenn
eru óþreyju-
fullir
■ Hreppsnefnd Reyðarfjarðar-
hrepps hefur skorað á ríkisstjórnina
að nýta heimild Alþingis um byggingu
kísilmálmverksmiðju við Reyðar-
fjörð sem allra fyrst og ákveða að
hefjast handa þegar í vor hvort heldur
sem erlendir meðeigendur finnast
eða ekki.
Er á það bent í áskoruninni að
rekstur kfsilmálmverksmiðju sé einn
af örfáum raunhæfum kostum í orku-
frekum iðnaði sem í sjónmáli séu og
næg orka sé til staðar til að reka slíka
verksmiðju, a.m.k. í nokkur ár. Pessi
orka er nú verðlaus en höfuðröksemd
þess að fyrirhugaðri verksmiðju var
valinn staður á Austurlandi var sú að
rétt væri að efla byggð í fjórðungnum
til að hann yrði hæfari til að nýta þá
orku sem þar er fyrir hendi. Bent er
á að þessi rök hafi í engu breyst en
þegar sé hafinn fólksflótti frá svæðinu
og telur hreppsnefnd Reyðarfjarðar-
hrepps að þrátt fyrir erfiða stöðu
vegna erlendra skulda, verði að mæta
henni með nýrri framleiðslu fremur
en auknum samdrætti.
Kísilmálmverksmiðjan var til um-
ræðu á Alþingi fyrir páska en í svari
Sverris Hermannssonar iðnaðarráð-
herra við fyrirspurn Helga Seljan
kom fram að engir innlendir aðilar
hafa sýnt áhuga á eignaraðild og ekki
hefur verið leitað til neinna. Viðræð-
ur hafa farið fram við allmarga
erlenda aðila en ekkert hefur komið
út úr þeim sem skýrt getur framtíð
fyrirhugaðrar kísilmálmverksmiðju
við Reyðarfjörð.
Björn Guömundsson
frá Reynhólum:
Lifði 100 ár
og einn mánuð
■ Húnvetnski bændahöfðinginn, Björn
Guðmundsson frá Reynhólum, sem hress
og kátur hélt upp á 100 ára afmæli sitt
hinn 23. febrúar s.l. í hófi miklu, reyndist
þá aðeins eiga einn mánuð ólifaðan.
Björn lést á sjúkrahúsinu á Hvamms-
tanga aðfaranótt 24. mars og var jarð-
settur frá Melstaðarkirkju sl. laugardag.