NT - 10.04.1985, Side 12
Miðvikudagur 10. apríl 1985 12
Evgení Barbukho:
Stefna Sovétríkjanna er og verður óbreytt
segir Gorbachjov aðalritari miðstjórnar KFS
■ Á marsfundi miöstjórnar
KFS var Mikhail Gorbachjov
kjörinn aðalritari miðstjórnar
KFS. Þessi atburður fór ekki
fram hjá fólki á íslandi. Mikið
var fjallað um hann í fjölmiðl-
um. Persónuleiki Gorbachjovs
og forrennarar hans voru þá
aðallega í brennidepli. íslensk-
ir fréttaskýrendur sögðu lítið
frá ræðu Gorbachjovs á um-
ræddum fundi, sem var leitt
vegna þess að óhlutdræg um-
fjöllun á ræðu Gorbachjovs
gæti t.d. varpað Ijósi á megin-
atriðin í stefnu sovéska ríkisins
og á það að strategísk stefna
þess er og verður slefna, sem
beinist að félagslegri og efna-
hagslegri þróun landsins, að
því aö fullkomna allar liliðar
þjóðarbúskapsins.
Efnahagslífið: Að þróun
verði sem örust
Þegar M. Gorbachjov tók
fyrir vandamálin á sviði efna-
hagslífsins, ræddi hann nauð-
syn þess að þjóðarbúskapnum
yrði komið yfir á braut örrar
þróunar. „Við verðum,-sagði
hann, - að komast á skömmum
tíma í fremstu stöðu hvað
varðar vísindi og tækni og ná
mestu framleiðni í heiminum.“
Hann sagði að auk þess yrði
„stöðugt að vinna að áætlunar-
þróun efnahagslífsins, efla sós-
íalískar eignir, auka réttindi
og auka sjálfstæði og ábyrgð
fyrirtækja og vekja hjá þeim
meiri áhuga á endanlegum
starfsárangri."
Allt ofangreint úr ræðu M.
Gorbachjovs sýnir og sannar
einn hlut: í framtíðinni verður
allt gert til að náist sem mestar
framfarir í sovésku efnahags-
lífi. Hver hefur árangurinn á
því sviði verið undanfarið?
Hagstofa Sovétríkjanna til-
kynnti nýlega að iðnaðarfram-
leiðslan í heild í janúar og
febrúar sL hefði aukist um
1,7% miðað við sama tímabil
á fyrra ári, en um 3,7% þegar
miðað er við meðalsólarhrings-
framleiðslu. Framleiðni hefði
aukist um 1,2%.
M. Gorbachjov sagði frá því
á fundinum að í framtíðinni
yrði framkvæmd sú félags-
stefna, sem mótuð var á 26.
þingi KFS (1981), en hún bein-
ist að því að bæta lífskjör
sovéskra þegna. Það verður að
segjast að í þeim efnum er um
mikið átak að ræða í Sovétríkj-
unum. Tökum t.d. þau málefni
er lúta að byggingu íbúðar-
húsnæðis. Á árum 11. fimm
ára áætlunarinnar (1981-1985)
verða byggðir í Sovétríkjunum
yfir 550 milljónir fermetra
íbúðarhúsnæðis (sem mun
bæta húsnæðisaðstæður u.þ.b.
50 milljóna þegna). Er hús-
næði dýrt í Sovétríkjunum?
Þið skuluð sjálf dæma. Húsa-
leiga og kostnaður við húsnæði
fer venjulega ekki yfir 3% af
tekjum verkamanna og skrif-
stofufólks (14 hlutar íbúða í
Sovétríkjunum eru byggðar á
kostnað ríkisins). Húsaleigan
nægir ekki fyrir nema tæpum
þriðjungi af kostnaði við við-
hald og viðgerðir húsnæðisins.
Ríkið tekur á sig það sem upp
á vantar.
Sovétríkin eru
fylgjandi útrýmingu
kjarnorkuvopna
Þegar M. Gorbachjov fjall-
aði um stefnu Sovétríkjanna á
sviði utanríkismála í ræðu sinni
áfundinum,sagði hann: „Þetta
er stefna friðar og framfara." í
samskiptum sínum við hin kap-
ítalísku lönd munu Sovétríkin
eftir sem áður halda sig við
regluna um friðsamlega
sambúð. „Sovétríkin munu
ætíð svara góðum vilja með
góðum vilja, trausti með
trausti,“ sagði sovéski leiðtog-
inn.
Eftir að hafa lagt jákvætt
mat á þann árangur slökunar-
stefnunnar, sem náðist á átt-
unda áratugnum, fjallaði M.
Gorbachjov um ástandið í
heiminum í dag og sagði að
„aldrei áður hefði vofað svo
hræðileg ógnun yfir mannkyn-
inu sem á vorum dögum“.
Eina skynsamlega leiðin út úr
því ástandi, sem skapast hefði
væri að hin andstæðu öfl kæmu
sér saman um að vígbúnaðar-
kapphlaupinu skyldi hætt þeg-
ar í stað - fyrst og fremst á
kjarnorkusviðinu - á jörðu
niðri og komið í veg fyrir að
það færi út í geiminn. Áð þau
kæmust að samkomulagi á
heiðarlegum og jöfnum grund-
velli, án tilrauna til að „leika
á“ hinn aðilann og þröngva
skilyrðum sínum upp á hann.
Samkomulagi, sem hjálpaði
öllum til að færast nær því
markmiði, sem óskað væri eftir
- algerri útrýmingu og banni
kjarnorkuvopna um ókomna
tíma (leturbreyting greinarhöf-
undar), að fyllilega verði bægt
frá hættunni á kjarnorkustyrj-
öld. Um þetta erum við sann-
færðir.
Þegar sovéski leiðtoginn
fjallaði um viðræður Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna í
Genf, lagði hann áherslu á að
Sovétríkin væru ekki að reyna
að ná einhliða yfirburðum um
fram Bandaríkin né NATO-
löndin ná hernaðaryfirburðum
um fram þau. Sovétríkin vilja
að vígbúnaðarkapphlaupinu sé
hætt en ekki að því sé haldið
áfram og leggja þess vegna til
að kjarnorkuvopnabúr verði
fryst og hætt verði uppsetningu
eldflauga. Sovétríkin vilja í
raun verulegan niðurskurð á
þeim vígbúnaði, sem safnast
hefur fyrir og að ekki verði
komið fyrir nýjum vopnakerf-
um, hvorki úti í geimnum né á
jörðu niðri. „Það er von okkar,
- sagði M. Gorbachjov, - að
mótaðilar okkar í viðræðunum
í Genf skilji afstöðu Sovétríkj-
anna og svari í sama máta. Þá
verður mögulegt að ná sam-
komulagi. Þjóðir heims munu
varpa öndinni léttar.“
Þessi orð mælti sovéski
leiðtoginn daginn áður en við-
ræðurnar áttu að hefjast í
Genf. Nú hafa þessar viðræður
staðið í nokkrar vikur. Hafa
tillögur Sovétríkjanna verið
samþykktar og hefur verið tek-
ið tillit til óska þeirra? Það er
ekki liægt að halda því fram þó
ekki sé nema vegna þess að
nýlega (þegar viðræðurnar í
Genf voru hafnar) var sam-
þykkt í bandaríska þinginu að
veita fé til framkvæmdar áætl-
unarinnar um smíði MX-eld-
flauga.
Nú gæti lesandinn spurt: En
Sovétríkin? Þar er afstaðan
önnur.
Nýjar tillögur
Sovétríkjanna
í friðarmálum
Þann 7. apríl sl. lýsti Mikhail
Gorbachjov, aðalritari mið-
stjórnar KFS yfir og sýndi þar
með einlæga löngun Sovétríkj-
■ Mikhail Gorbachjov, aðalritari miðstjórnar KFS, sagði á fundi
miðstjórnar að hann væri fylgjandi að kjarnorkuvopn yrðu eyðilögð
og þau bönnuð um ókomna tíð.
anna til að bæta andrúmsloftið
á alþjóðavettvangi, að Sovét-
ríkin leggðu til að Sovétríkin
og Bandaríkin frystu, meðan
samningaviðræður stæðu yfir,
smíði strategískra árásarvopna
sinna, þar á meðal vísinda- og
rannsóknastörf á þessu sviði,
tilraunir og uppsetningu kjarn-
orkubúnaðar í geimnum.
„Jafnframt verður að hætta
uppsetningu meðaldrægra
bandarískra eldflauga í Evr-
ópu, -sagði M. Gorbachjov,
- og þar með auknum svarráð-
stöfunum okkar.
Bandarískir ieiðtogar lýsa
yfir að þeir séu fylgjandi rót-
tækum niðurskurði vígbúnað-
ar. Ef því er þannig varið er
rökrétt að hægja á vígbúnaðar-
kapphlaupinu og hverfa síðan
tii niðurskurðar.
Við erum fylgjandi heiðar-
legum viðræðum. Við erum
reiðubúnir til að sýna vilja
okkar. Og frá og með þessum
degi - og ég legg á það áherslu
- frysta Sovétríkin uppsetn-
ingu meðaldrægra eldflauga
sinna og stöðva þar með aðrar
svarráðstafanir í Evrópu.
Frystingin gildir þar til í nóv-
ember næstkomandi. Sú á-
kvörðun, sem við tökum þar á
eftir er háð því hvort Banda-
ríkin fara að dæmi okkar:
Hvort þau stöðva uppsetningu
meðaldrægra eldflauga sinna í
Evrópu.“
Evgeni Barbukho,
yfirmaður
APN-fréttastofunnar
á Íslandi
Reykjavík, 8. apríl, 1985
Leiksoppar örlaganna
Sér grefur gröf (Blood Simple).
Bandaríkin 1984. Handrit: Eth-
an og Joel Coen. Kvikmynda-
taka: Barry Sonnenfeld.
Leikendur: John Getz, Frances
McDormand, Dan Hedaya. M.
Emmet IValsh, Samm-Art Wil-
liams. Leikstjóri: Joel Coen.
Það er ekki á hverjum degi,
sem kvikmyndagerðarmenn
hefja feril sinn með jafn miklum
glæsibrag og Coen-bræðurnir
Ethan og Joel. Ungir menn -
um og innan við þrítugt - sem
eiga framtíðina fyrir sér, fái þeir
að gera myndir eftir eigin höfði,
án afskipta skessunnar í Holly-
wood, eins og í þessari mynd.
Sér grefur gröf er á yfirborð-
inu sakamálamynd, og líka kol-
svört kómedía, svo svört, að
hún verður að harmleik. Hún er
líka stúdía um ráðvillta einstak-
linga, sem dragast inn í atburða-
rás, sent þeir ráða ekki við, og
sem þeir stjórna ekki. Persón-
urnar verða fórnarlömb at-
burða, sem eins og spinnast
áfram fyrir eigin tilverknað.
Söguþráðurinn er í sjálfu sér
einfaldur - kokkálaður eigin-
maður fær subbulegan einka-
spæjara til að drepa eiginkon-
una og elskhugann gegn dágóðri
fjárfúlgu - en bærðurnir toga
hann og teygja í allar áttir og
koma áhorfandanum stöðugt á
óvart. En áhorfandinn er þó
heppnari en sögupersónurnar
sjálfar, þar sem þær vita sjaldan
hvað er að gerast, þær vantar
yfirsýnina, sem er nauðsynleg
Eyrna lyst og augna með
■ Samtökin Musica Antiqua,
eða Tónlist forn, hafa nú starfað
um allmargra ára skeið, og hald-
ið reglulega tónleika af ýmsu
tagi. Oftast hafa þeir verið með
hefðbundnu sniði, mest hljóð-
færaleikur, með lútu, blokk-
flautu, sembal, fiölu og víólu da
gamba, en einu sinni a.m.k. var
kvæðalestur með í bland, og
lásu þá Óskar heitinn Halldórs-
son og Kristín Anna Þórarins-
dóttir. Nú var enn vikið frá
venjunni því á tónleikum á
Kjarvalsstöðum hinn 1. apríl
komu fram fjölmargir söngvar-
ar, hljóðfæraleikararogdansar-
ar, og allir klæddir í litklæði,
væntanlega í stíl 16. aldar Evr-
ópu, en Camilla Söderberg
blokkflautu leikari hafði saum-
að eigin hendi. Uppistöðuna í
spilverkinu mynduðu auk Cam-
illu þau Hildigunnur Halldórs-
dóttir (fiðla) Ólöf Sesselja
Óskarsdóttir (víóla da gamba)
og Snorri Örn Snorrason (lúta),
en fyrir söngmönnum fóru
Marta Halldórsdóttir, Erna
Guðmundsdóttir og Halldór
Vilhelmsson. Dnas höfðu í
frammi Margrét Gísladóttir og
Viðar Maggason, en að auki
voru þarna margir sem ýmist
léku á blokkflautu eða trumbu,
eða sungu og stigu dans, nema
allt væri. Ög varð af mjög
þokkafull, litrík og góö
skemmtun, fyrir fullu húsi á
Kjarvalsstöðum.
Þarna voru til skiptis fluttir
þættir úr „Scherzi musicali" eða
Tónleikjum (1607) Monteverdis
(1567-1643), og gerði það fyrr-
ncfnt söngtríó með hljóðfæra-
undirleik, ogýmis verk 16. aldar
tónskálda, fyrir kór eða hljóð-
færaleikara. Dansana hafði æft
Ingibjörg Björnsdóttir; þeir
voru þokkafullir, eins og áður
sagði, en fremur tíðindalitlir.
Ef draga skal stærri ályktanir af
tónleikum þessum er Ijóst, að
áhugi á fornri tónlist fer vax-
andi, Camilla Söderberg hefur
stofnað til skóla í æðri blokk-
flautuleik, og margir góðir og
efnilegir söngvarar vilja stunda
söng af þessu tagi. Og kunnátt-
an er á því stigi, að af varð mjög
falleg og „kúltíveruð“
skemmtun. Halldór Vilhelms-
son, sem var stólpi í flutningn-
urn ásamt með tveimur dætrum
sínum frumvaxta, hefurstundað
iðngrein Frelsarans til skamms
tíma ásamt með söngnum, en
mun nú hafa helgað sig listinni
heill og óskiptur. Fer vel á því,
því Halldór er meðal vorra
öruggustu og beztu óratoríu- og
kammersöngvara.
Siguröur Steinþórsson.
til að ráða við aðstæðurnar.
Handrit myndarinnar er
óvenju vel úr garði gert, þar
sem fáu eða engu er ofaukið,
hvorki gerðum né orðum. Per-
sónurnar segja það, sem þær
þurfa að segja, en láta þagnirnar
tala þess á milli. Ofan á þetta
bætist svo örugg leikstjórn Joels
Coen og stórkostlega falleg
kvikmyndataka Barry Sonnen-
feld. Saman tekst þessum
mönnum að skapa drungalegt
og subbulegt andrúmsloft, sem
hæfir persónunum vel. Og til að
undirstrika sálarástand og stöðu
persónanna, er myndin að lang-
mestu leyti tekin að næturlagi
og í þröngu rými, þar sem allt
er takmörkunum háð.
Leikararnir eru síðan eins og
sniðnir fyrir hlutverkin. Eftir-
minnilegastur þeirra allra er þó
M. Emmet Walsh í hlutverki
einkaspæjarans.
Sér grefur gröf er einhver
besta stemmningssakamála-
mynd síðari ára, og kvikmynda-
áhugamenn ættu að leggja nöfn
Coen-bræðranna á minnið. Þeir
eiga vonandi eftir að láta meira
í sér heyra.
■ Eftirminnilegt atriði í Tónabíói. Einn dregur annan í gröfina.