NT


NT - 10.04.1985, Síða 15

NT - 10.04.1985, Síða 15
„Súkkulaðidrengurinn" Rob Lowe er uppáhald ungu stúlknanna í Bandaríkjunum ■ í Hollywood er heill her af ungu fólki, sem ætlar að vinna sér frægð og frama í kvikmynd- um. en það fer ekki sögum af nema örfáum af þeim skara. Einn af ungu leikurunum sem hefur skotið upp kollinum upp úr fjöldanum er Rob Lowe. Hann er þegar orðinn mjög vinsæll hjá ungu fólki í Banda- ríkjunum, og eftir því sem myndir með honum fara víðar um heiminn eykst aðdáenda- fjöldi þessa unga manns. Rob Lowe er hlédrægur og vill halda einkalífi sínu utan sviðsljóssins. Hann kýs heldur að fólk þekki hann af myndurn þeim, sem hann hefur leikið í. svo sem The Outsiders. Class. Oxford Blues. Hotel Hamps- hire, Youngblood og þeirri nýjustu St. Elmo's Fire. En fréttir af frægu fólki eru fjótar að berast um heiminn og þau hafa fengið að kenna á því Rob Lowe og vinkona hans. Melissa Gilbert (Laura í Hús- inu á sléttunni). - Samband okkar er engu líkara en við íifðum í gagnsæju fiskabúri, því að alltaf er fylgst með því sem við tökum oíckur fyrir hendur. Það er lítið einkalífið. þegar þannig stendur á, segir liinn ungi leikari. Melissa hefur ekki getað stillt sig unt að láta í Ijós afbrýðissemi, þegar Rob hefur verið langtímum saman í burtu við kvikmyndaleik með falleg- um ungurn stúlkum, svo sem Jodie Foster í Hotel New Hampshire. Þó hefursamband þeirra Robs og Melissu haldist traust. því að þau vinna bæði markvisst að því að vinskapur- inn haldist. þrátt fyrir tjarveru og ýmislegt annað. sem alltaf getur komið upp á hjá ungu ástföngnu fólki. Nú þegar Rob hefur lokið við að leika í myndinni St. Elnio's. þá er sagt að hann ætli að taka sér frí frá kvikmynda- leik um hríð og gera upp sín mál: Hvort hann sé á réttri braut í leiklistinni. eða eigi að breyta eitthvað til. Gagnrýnendur hafa verið hálfvondir við Rob Lowe upp á síðkastið. en hann er þó afar vinsæll hjá öllum almenningi og aðdáendabréf til hans koma í stórum bunkum. Myndir af hinum unga leikara renna út eins og heitar lummur og við birtum hér eina slíka, sem gefin er út sem plaggat til veggskreytingar hjá aðdáend- um hans. Þessi mynd er úr kvikmyndinni Ungt blóð (Youngblood). Þeir sem þessa dagana sjá í bíói í Reykjavík myndina Hotel New Hampshire hafa áreiðanlega tekið eftir þessum fallega unga leikara, Rob Lowe, sem í myndinni er ein- um of hrifinn af systur sinni, Franny (leikin af Jodie Foster). Bókin Hotel New Hampshire er stórskemmtileg og hefur vel tekist að halda söguþræðinum. Auðvitað verður stundum að stikla á stóru í myndinni. en flest kemst þó til skila, - og Rob hinn ungi er „æðislega sætur og algjör dúlla", eins og ein 15 ára heyrðist segja á leiðinni út úr bíóinu! ■ „Hjónaband er orð sem við notuin ekki okkar á milli ennþá," sagði Melissa Gilbert er hún var spurð hvort þau Rob Lowe ætluðu að fara að gifta sig. Þau eru nú bæði önnum kafín við að vinna að næstu kvikmynd. ■ Rob Lowe í myndinni Ungt blóð (Youngblood), þar sem hann leikur ungan hokkí- leikmann og þurfti því að æfa sig stíft í þeirri íþrótt fyrir myndina. Þetta er sögð upp- áhaldsmynd margra „smápía“ sem dást að Rob í fjarska.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.