NT - 10.04.1985, Page 16
Sjónvarp
Miðvikudagur 10. apríl 1985 16
■ Júlíus Einarsson er sjáifur mikill útivistarmnúur* enda
meðlimur Flugbjörgunarsveitarinnar.
VETRARBRAUTIN
- um öll ferðalög milli
himins og jarðar
■ Á miövikudögum kl. lft-17
er á Rás 2 þátturinn Vetrar-
hrantin, sem Júlíus Einarsson
stjórnar. Við báðum Júlíus að
segja okkur aöeins nánar frá
þættinum.
..Þátturinn er á dagskrá í
vetur eins og nafniö gefur til
kynna og í honum er fjallað
um tómstundir og útivist,"
sagði Júlíus. Hann licfur í
vetur l'engið í heimsókn til sín
forsvarsmenn ýmissa félaga-
samtaka og klúbba sem stunda
útivist, s.s. jöklaklúbbs, bjtirg-
unarsveita og í síöustu viku
var það fliigáhugafólk og flng-
kennari sem hann ræddi við.
Það má því segja að hann taki
öll fcrðalög milli himins og
jarðar fyrir í þætti sínum.
I dag fær hann til sín menn
frá Landssambandi vélsleða-
manna.
Hvort Júlíus sé sjálfur mikill
ferðamaður, útivistarmaður,
svarar hann því til að heldur sé
hann það. Hann stundar
gönguskíði og segist eiga
jeppahró scnt hann skrölti á
þegar hann getur. Júlíus er í
Flugbjörgunarsveitinni og þtir
gefast góð tækifæri til að
stunda útivist allan ársins
hring.
Sjónvarp kl. 22.40:
I Grikklandi
herforingjanna
■ Kl. 22.40 í kvöld verður
sýnd í sjónvarpi leikin dönsk
heimildarmynd frá 1981, sent
hlotið hefur nafnið Sonur ná-
granna þíns á íslensku. Mynd-
in var áður sýnd í sjónvarpinu
í febrúar 1983.
Myndin lýsir atburðum, sem
gerðust í Grikklandi á dögum
herforingjastjórnarinnar 1967-
1973 og er hún tekin í Grikk-
landi. Þau árin ríkti algert
einræði í grískum stjórnmálum
og engin frávik frá stefnu her-
foringjanna leyfð, þau voru
reyndar bæld niður með harðri
hendi. Þá var ungurn mönnum
kennt að beita samborgara
sína grimrnd og ofbeldi og fá
sjónvarpsáhorfendur smjör-
þefinn af því í kvöld.
Leikstjórn myndarinnar
hafa þeir Erik Flindt Pedersen
og Erik Stephensen með
höndum. Þeir sömdu einnig
handrit í samráði við Mika
Haritou-Fatouros, Panos Sak-
elleriadas og Gorm Wagner.
Þýðandi er Jón Gunnarsson.
■ Papadopoulos og herforingjastjórn hans stjórnuðu Grikk-
landi harðri hendi í 6. ár.
Sjónvarp kl. 20.40;
Farið um eyðimerkur
■ I fimmta þætti breska
heimildamyndaflokksins Lif-
andi heimursemsýndurverður
í sjónvarpi í kvöld kl. 20.40,
kynnast sjónvarpsáhorfendur
leyndardómum eyðimarka.
Þátturinn heitir Sólheitir
sandar.
í augum þeirra sem ekkert
■ Sinn crsiðurílandi hverjii.
Hér svalar maður þorsta sínum
með innihaldi strútseggs!
þekkja til eyðimarka er þar
ekkert að finna ncma auðn og
einstaka vin á stangli við
vatnsból. Hreint ekki lífvæn-
legir staðir. En David Atten-
borough umsjónarmaður þátt-
anna hefur löngum sýnt að
hann hefur glöggt auga fyrir
hverju því sem lífsanda dregur
og á vafalaust margt eftir að
koma áhorfandum á óvart í
þættinum í kvöld.
Þýðandi þáttanna er Óskar
Ingimarsson.
Utvarp kl. 16.20:
Islensk tónlist
■ I dag kl. 16.20 hefst flutn- rrT: ——
mgur á íslenskri tónlist í út-
varpinu og stendur hann til kl.
17.10. Flutningurinn er í tveim
liðunt.
í fyrri lið tónleikanna syngur
Eiður Á. Gunnarsson lög eftir
Skúla Halldórsson og Einar
Markan. Ólafur Vignir Al-
bertsson leikur undir.
í síðari liðnum syngur
Hamrahlíðarkórinn Iög eftir
íslensk tónskáld. Þorgerður
Ingólfsdóttir stjórnar.
■ Einar Markan.
■ Ólafur Vignir Albertsson.
■ Skúli Halldórsson.
Miðvikudagur
10. apríl
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degi. 7.20 Leikfimi. Til-
kynningar.
7.55 Daglegt mál: Endurt. þáttur
Sigurðar G. Tómassonar frá kvöld-
inu áöur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar Dagskrá.
8.15 Veöurfregnir. Morgunorö -
Sólveig Ásgeirsdóttir talar
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Kalli ullarskott" eftir R.W. Esc-
ameyer Guörún Snæbjörnsdótfir
byrjar lestur iiýðingar Eyjólfs
Guömundssonar.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.).
10.45 Islenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.15 llr ævi og starfi íslenskra
kvenna Umsjón: Björg Einarsdótt-
ir.
11.45 íslenskt mál Endurlekinn þátt-
ur Ásgeirs Blöndals Magnússonar
frá laugardegi.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Barnagaman Umsjón: Sigrún
Jóna Kristjánsdóttir.
13.30 „Blús“ af ýmsu tagi
14.00 „Eldraunin“ eftir Jón
Björnsson. Helgi Þorláksson les
(12).
14.30 Miðdegistónleikar Frönsk
rapsódía eftir Darius Milhaud.
Hljómsveit belgíska lífvarðarins
leikur; Yvon Ducene stjórnar.
14 45 Popphólfið - Bryndis Jóns-
dóítir.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 íslensk tónlist a. Eiöur A.
Gunnarsson syngur lög eftir Skúla
Halldórsson og Einar Markan.
Ölafur Vignir Albertsson leikur á
pianó. b. Hamrahlíöarkórinn syng-
ur lög eftir ísiensk tónskáld. Þor-
gerður Irigólfsdóttir stjórnar.
17.10 Siðdegisútvarp Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.45 Málræktarþáttur. Baldur Jóns-
son formaöur Islenskrar málnefnd-
ar flytur.
19.50 Horft i strauminn meö Úlfari
Ragnarssyni. (RÚVAK).
20.00 Útvarpssaga barnanna:
„Grant skipstjóri og börn hans“
eftir Jules Verne Ragnheiöur Arn-
ardóttir les þýöingu Inga Sigurös-
sonar (17).
20.20 Hvað viltu verða? Starfskynn-
ingarþattur í umsjá Ernu Arnardótt-
ir og Sigrúnar Halldórsdóttur.
21.00 Bach-tónleikar i Domkirkj-
unni Islenskir organleikarar leika
á tónleikum 4. febrúar sl.
21.30 Að tafli Jón Þ. Þór flytur
skákþátt.
22.00 Tónleikar
22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Timamót Þáttur i tali og tónum.
Umsjón: Árni Gunnarsson.
23.15 Nútímatónlist Þorkell Sigur-
björnsson kynnir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Miðvikudagur
10. apríl
10:00-12:00 Morgunþáttur Stjórn-
andi: Kristján.
14:00-15:00 Eftir tvö Stjórnandi: Jón
Axel Ólafsson.
15:00-16:00 Nú er lag Gömul og ný
úrvalslög aö hætti hússins. Stjórn-
andi: Gunnar Svalvarsson.
16:00-17:00 Vetrarbrautin Þáttur um
tómstundir og útivist. Stjórnandi:
Júlíus Einarsson.
17:00-18:00 Tapað fundið Sögukorn
um soul-tónlist Stjórnandi: Gunn-
laugur Sigfússon.
Þriggja mínútna freftir sagöar
klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og
17:00.
Miðvikudagur
10. apríi
19.25 Aftanstund Barnaþáttur meö
innlendu og erlendu efni: Sögu-
hornið - Þrastarskeggur kon-
ungur, sögumaöur Þórður B. Sig-
urösson. Kanínan með köflottu
eyrun og Högni Hinriks, sögu-
maöur Helga Thorberg.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Aúglýsingar og dagskrá
20.40 Lifandi heimur 5. Solheitir
sandar. Breskur heimildamynda-
flokkur i tólf þáttum. Umsjónar-
maður David Áttenborough. Þýö-
andi og þulur Óskar Ingimarsson.
21.50 Herstjórinn Níundi þáttur.
Bandariskur framhaldsmynda-
flokkur í tólf þáttum, geöur eftir
metsölubókinni „Shogun" eftir
James Clavell. Leikstjóri Jerry
London. Aöalhlutverk: Richard
Chamberlain, Toshiro Mifune og
Yoko Shimada. Þýöandi Jón O.
Edwald.
22.40 Sonur nágranna þíns (Din
nabos sön) Endursýning. Leikin.
dönsk heimildarmynd frá 1981 tek-
in i Grikklandi. Leikstjórn: Erik
Flindt Pedersen og Erik Stephens-
en, sem einnig sömdu handrit í
samráöi viö Mika Haritou-Fatpur-
os, Panos Sakelleriadas og Gorm
Wagner. Myndin lýsir atburðum,
sem geröust í Grlkklandi á dögum
hertoringjastjórnarinnar 1967-
1974. Jafnframt er sýnt hvernig
uiigum mönnum er kennt aö beita
samborgara sína grimmd og of-
beldi. Þýöandi Jón Gunnarsson.
Myndin var áður sýnd í Sjónvarp-
inu í febrúar 1983.
00.05 Fréttir í dagskrárlok.