NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 12.05.1985, Qupperneq 9

NT - 12.05.1985, Qupperneq 9
aö vera helsta verslunarhverfið þannig að umferð um þetta svæði er mikil bæði dag og nótt. Reyndar er það svo að glæpir eru tíðari í miðju borga en í útjaðri þeirra og Reykja- vík virðist ekki vera nein undantekning hvað það snertir. Þessi staðreynd ætti einnig að gera það að verkunt að auðveldara væri að skipu- leggja lögreglueftirlit þar sem þessi ferningur er ekki ýkja stór. Eftirlit ófullnægjandi? Þó svo að eftirlit lögreglunn- ar í Reykjavík sé einna mest á miðbæjarsvæðinu eru þó marg- ir sem telja það engan veginn fullnægjandi. Hilmar Þor- björnsson, einn af vaktstjórum lögreglunnar sagði okkur til dæmis að í þau 27 ár, sem hann hefði starfað sem lögreglu- þjónn hefði aukning löggæsl- unnar ekki verið í neinu sam- ræmi við þá aukningu sem orðið hefði á íbúafjölda borg- arinnar. „Við erum í stórum dráttum með sama bílaflota og sama mannskap og var þegar ég byrjaði. Ég hef orðið vitni að því að líkamsárásir og ýmis önnur alvarleg lögbrot aukast og mér finnst að bæði lögreglan og almenningur eigi heimtingu á því að reynt sé að stemma stigu við þessu. Maður horfir líka upp á það að hinir svoköll- uðu síbrotamenn, sem búnir eru að fremja tíu til tuttugu alvarlega glæpi, ganga lausir vegna þess hve langan tíma tekur að afgreiða mál þeirra. Þeir eru síðan ekki dæmdir fyrr en eftir dúk og disk. Þessu þarf að breyta auk þess sem við þurfum einfaldlega á fleiri lögregluþjónum að halda. Götulögregluþjónunum er að fækka miðað við það sem var en skrifstofumönnunum innan lögreglunnar fer fjölgandi." Við bárum spurninguna um nauðsyn á auknu eftirliti undir þá Þóri, Gísla, Gunnleif og Sigurbjörn. Þeir töldu að eftir- lit óeinkennisklæddra lög- reglumanna og rannsóknarlög- reglu hafði sannað gildi sitt en úr því hefði því miður verið dregið. Þórir benti þó á að rannsóknarlögreglustjóri hefði fullan hug á því að taka það mál til endurskoðunar. Það kom og fram í máli þeirra fjórmenninganna að slíkt eftir- lit hefði einnig leitt til þess að mál, sem væru í rannsókn upplýstust fyrr en ella auk þess sem veskjaþjófnuðum á veit- ingahúsum fækkaði á því tíma- bili sem slíkt eftirlit var fram- kvæmt reglulega. Þeir Sigurbjörn Víðir og Gunnleifur undirstrikuðu það að það væri ekki refsigleði, sem réði afstöðu lögreglunnar til þeirra, sem fremdu rán og önnur ódæði. „Þegar tekst að hafa hendur í hári þessara manna þarf að taka þá úr umferð og í framhaldi af gæslu- varðhaldi þurfa þeir að taka út sinn dóm. Hér er um öryggis- mál að ræða og hinn almenni borgari á heimtingu á því að þessu fólki sé sýnd miklu meiri festa en nú er.“ Óhugnanlegur listi Þegar flett er í dómabók Sakdóms Reykjavíkur kemur fram að flestir þeirra sem dæmdir hafa verið fyrir rán og ofbeldi eig að baki sér lang- an afbrotaferil. Þar kemur og fram að mjög algengt er að þeir hafi brotið alvarlega af sér á því tímabili eftir að dómur hefur fallið og til þess tíma er þeir hafa verið fangels- aðir vegna fyrri dóms. Þannig hefur þessum mönnum verið sleppt úr gæsluvarðhaldi eftir að rannsókn er lokið og síðan líður oft langur tími þar til dómur gengur og afplánun hefst. Á þessum tíma hafa þeir jafnvel haldið áfram fyrri iðju. Til að gefa lesendum nokkra hugmynd um umfang afbrota hinna svokölluðu síbrota- manna skal hér drepið lítillega niður í dómabók salcadóms þar sem fjallað er um mál N.N. sem tekið var til dóms 18. apríl 1984. Við birtum ekki nafn mannsins fyrst og fremst af tiliitssemi við aðstandendur hans. Sakadómari dæmdi þá N.N. í 14 mánaða fangelsi fyrireftir- tahn brot: 1) Tilraun til ráns 20. mars 1983 í félagi við annan mann þar sem N.N. réðst á ungan pilt á Lindargötu í því skyni að ræna hann verðmætum. 2) Fyrir rán 9. maí 1983 þar sem N.N. veittist að tveimur piltum í Austurstræti með barsmíðum og hótunum og rændi annan þeirra fé. 3) Innbrot í bílasölu Garðars í Borgartúni í Reykjavík 6. nóvember 1982. 4) Innbrot í Aðalbílasöluna við Skúlagötu 6. nóvember 1982. 5) Stolið bensíni af bifreið- um við Hátún 12 í Reykjavík aðfaranótt 30.janúar 1983. 6) Innbrot í félagi við annan mann þar sem N.N. braust inn í húsið númer 54 við Seljabraut í Reykjavík og hafði á brott með sér peningakassa og fleira. 7) Innbrot við þriðja mann í húsnæði Sláturfélags Suður- lands við Skúlagötu þar sein N.N. og félagar hans höfðu á brott með sér ýmsa fjármuni auk þess að valda miklu tjóni á húsnæðinu. 8) Fyrir tilraun til þjófnaðar þar sem N.N. braust inn til bæklaðrar konu sem lá í rúmi sínu í Hátúni lOb í Reykjavík þar sem hann sótti fjármuni 12,maí 1985 9 ofan í skúffu á hirslu við hlið sjúklingsins. 9) Fyrir að hafa veist að gömlum manni, sem fæddurer 1890, fyrir utan Sundhöll Reykjavíkur 16. maí 1983 og rænt hann veskinu með pen- ingum gamla mannsins. 10) Gripdeild á Snorrabraut í Reykjavík þar sem N.N. tók veski af óþekktum manni sama dag og hann hafði rænt öldung- inn við Sundhöll Reykajvíkur. Fyrir þessar sakir sem hér hafa verið lauslega raktar var N.N. dæmdur í 14 mánaða fangelsi og komu tveir mánuðir til frádráttar dómnum. Áður cn Jsessi domur var upp kveðinn mátti sjá á sakavott- orði N.N. eftirtalin brot: Ölvun á almannafæri, ölvun við akstur, fíkniefnabrot. um- ferðalagabrot, þjófnaði, tvær nauðganir og þar auki fleiri líkamsárásir. Ótti í stað brosa Dómaranum þótti þó ekki ástæða til að dæma N.N. þyngri dóm en áður getur. N.N. situr nú í fangclsi og mun Ijúka afplánun á rniðju næsta ári og verður þá aftur frjáls maður. Það er óhætt að fullyrða að Reykjavík er ekki lengur sá friðsæli sveitabær sem menn eitt sinn þekktu. Rán og of- beldi eru farin að setja sinn svip á daglegt líf í miðborginni þó svo að gamla sveitaróman- tíkin svifi ef til vill enn yfir tjörninni. Allt bendir til þess að þessi þróun haldi áfram á komandi árum, ef ekkcrt verð- ur að gert. í stað feintnislegra brosa vcrður ótti í augum fólks. JÁÞ Hl INTERNATIONAL TRAKTORAR 62ja og 72ja ha. Vorum að fá nokkra I.H. traktora til landsins á sérstaklega hagstæðu verði. Vélarnar eru með mjög fullkomnum búnaði: Vel einangruðu lúxus húsi með sléttu gólfi • Kraftmikilli miðstöð • Tveggja hraða aflúrtaki • Vökvalyftum dráttarkrók • Niðurgírun óháð kúplingu og fleiri aukahlutir til hagræðingar og þæginda. ARMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.