NT - 12.05.1985, Qupperneq 15
ímyndunaraflið
„Syns ikke du de'var bra i
jjjutteborg..." sagöi blómasali
á miöri Karl Jóhann götunni.
Hann var að selja blóm í tilefni
næturinnar. Yfirleitt eru slíkar
búðir lokaðar á nóttunni sem
og aðrar en menn tóku uppá
ótrúlegustu hlutunr. Hanne
Krogh hefur t.d. aldrei átt jafn
marga bræður eins og þessa
nótt á Karl Jóhann. Hún hefur
heldur aldrei átt jafn marga
fjarskilda ættingja eins og þá.
Hún hefur aldrei átt eins marga
vini og eftir Grand Prix. Og
það hafa heldur aldrei eins
margir karlmenn haldið að þeir
hafi átt ástarævintýri með
Hönnu Krogh, eins og einmitt
nú.
Heimkoman
Þegar Bobbysocks bíllinn
kom heim frá Gautaborg á
sunnudeginum höfðu fleiri
þúsund manns safnast saman í
miðborginni. Einkum þó í
kringum Grand Hótel. Út á
svalirnar stigu „sjokkararnir"
Hanne og Elísabeth veifuðu til
fólksins sem veinaði og hróp-
aði „gradulere... o.s.frv."
Hvað var eiginlega að gerast?
Var 17. maí ekki lengur þjóð-
hátíðardagur Norðmanna?
Var kannski búið að færa þann
dag fram um 12 daga?
Svona uppstilling eins og á
Grand gerist kannski þegar
þjóðhöfðingjar eiga hlut að
máli og svo á þjóðhátíðardag-
inn. Hvar var búið að staðsetja
Bobbysocks? Margir telja sig
ekki hafa þurft að leita lengi á
landakortinu til þess að sjá
nýja heimilisfang gullstúlkn-
anna. Pað var ágætis pláss á
innsíðum, í bókhaldi ríkis-
stjórnarinnar. „Þær verða út-
flutningur..." sagði maður
nokkur sem ekki var boðinn í
veisiuna sem ríkisstjórnin hélt
Bobbysocks. „Káre Willock og
hinir strákarnir í ríkisstjórn-
inni hafa sett þær í fjárhags-
planið,“ sagði hinn sami.
Þegar svo loksins að Hanne
kom heim til sín þá tók á móti
ngvakeppni
Sunnudagur 12 maí 1985 15
arpsstödva
henni 31/2 árs gamall sonur
hennar, Sverrir. „Mamma þú
ert best" sagði snáðinn sem
hafði að sjálfsögðu fylgst með
alla vikuna sem mamman hafði
verið í Gautaborg að undirbúa
sig. Hann hafði líka fylgst með
heima þegar nágrannarnir
voru að skreyta húsið þeirra.
Trampa niður blettinn fyrir
framan húsið. Hann mátti ekki
einu sinni vera með bílana sína
þar. Ekki nóg með það að búið
hafi verið að skreyta húsið
með blómum og fánum, held-
ur var búið að breyta götunafn-
inu og á skiltunum stóð
„Swing street". Að sjálfsögðu
höfðu nágrannarnir í Swing
street hópast saman í móttöku-
nefnd enda það ekki skrítið
þótt smá ráðstefna hafi verið
nauðsynleg. Húsin í Swing
street hafa víst rokið upp í
verðieftir Grand Prix.
Og hvað svo.. ?
Jú Bobbysocks verða millar
það er á líreinu. Frægar eru
þær orðnar nú þegar, með
tilheyrandi afleiðingum. Áður
en þær skruppu yfir til Gauta-
borgar sungu þær fyrir gesti í
einkasamkvæmum, á árshátíð-
um svona af og til fyrir smá
pening. Nú er eiginlega komið
„bobb" íbátinn. Aðsjálfsögðu
voru þær búnar að skipuleggja
sumarvertíðina, ganga frá
samningum út um allan Noreg.
Þær voru búnar að lofa að
koma fram á kvenfélagssam-
komum, hjá lionshreyfingunni
og íþróttafélögum o.s.frv. fyrir
fáeinar krónur. Sú dagskrá
hefst 1. júní n.k. og stendur
fram í ágúst, þannig að gull-
vertíðinni verður að fresta.
Undirbúningurinn er þó
hafinn.
Tryggve Sundby, eiginmað-
ur Hönnu Krogh, hefur fengið
hálfs árs leyfi frá störfum sem
blaðamaður á Verdens Gang.
Hann hefur verið ráðinn sem
framkvæmdastjóri Bobby-
socks og ekki veitir af. Spurn-
ingunni um hverjir yrðu múlti
millar eftir Grand Prix hefur
verið svarað.
■ Hvað annað en kampavín þegar sigurinn er í höfn. Það að norski jentudúettinn varð í fyrsta sæti hefur þegar tryggt
þeim systrum milljóna tekjur og það í beinhörðum gjaldeyri.
Henne og Elisabeth í Bobbysocks: „ Satnan
erum við handsprengjur“
■ Hanna og Elisa-
beth „Bobbysjokkar-
ar“ eru hressar og kát-
ar stelpur, svo eðlileg-
ar og venjulegar, eig-
inlega heimilislegar.
Vel miðvitaðar um að
„heimsfrægðin“ varir
ekki endalaust, hafa
þær oftast báðar fætur
á jörðinni.
-,,Ég sem hef haft svo mik-
inn höfuðverk í dag“, geispar
Hanne Krogh þegar Elisabeth
dró hana uppí stóra parísar-
hjólið í Thomas Tivoli í Oslo.
Af þeim tveimur er það Elisa-
beth sem er syndaselurinn og
■ Það var mikið um að
vera þegar þær Hanne og
Elisabeth komu frá Gauta-
borg. Það var tekið á móti
þeim líkt og þjóðhöfðingjum
og nágrannarnir höfðu
breytt nafni götunnar sem
Hanne býr við. Það heitir nú
Swing Street eða Sveiflu-
stekkur eins og það mundi
heita á góðri íslensku.
til íalltsemernóguspennandi móti skoðar vel og vandlega hugsar um hvert skref sem hún
og vafasamt. Hanne aftur á allt sem hún tekur sér fyrir , tekur og hvert orð sem hún
segir. En á toppinn komust
þær báðar saman, jafnt á parís-
arhjólinu sem Grand Prix. Föl
og hrædd brosti Hanne og
sagði að allt írafárið eftir sigur-
inn væri barnaleikur einn á
móts við þetta.
Vinir og
starfsfélagar
- „Svona er þetta alltaf", seg-
ir Hanne - „Elisabeth er svo
hress og hefur svo mikil áhrif á
mann að ég veit ekki fyrr en ég
er búin að taka þátt í öllu sem
henni dettur í hug. Það getur
einmitt verið ástæðan fyrir því
að við náum svo vel saman í
Bobbysocks. Hún er hundrað
ög fimmtíu prósent í öllu sem
hún gerir og hennar besti kost-
ur er að hún er sannur vinur,
ásamt því að vera frábær
vinnufélagi."
Elisabeth Andreasson er oft
talin vera sænsk, en í raun og
veru er hún norsk. Foreldrar
hennar búa í Sykkylven í Vest-
ur Noregi. Hún óx upp á lítilli
eyju fyrir utan Gautaborg en
býr nú ein í eigin íbúð í
Stokkhólmi. Hennar einu fé-
lagar á heimilinu eru tveir
sætir kettir.
- „Það er rétt ég óska mér
fjölskyldu," segir hún.
- „En fyrst þarf ég að finna
þann rétta. Ég var trúlofuð í 3
ár en uppúr því slitnaði. Éghef
ekki mikinn tíma fyrir annað
en vinnu núna, það nægir mér
að koma heim til Hanne og
fjölskyldu hennar."
Bobbysocksævintýrið byrj-
aði fyrir rúmu einu ári
eftir hugmynd Hönnu. Hana
hefur lengi dreymt um að
syngja í dúett með annarri
stúlku og þá einkum langað að
syngja rokk frá 5. og 6. ára-
tugnum.
- „Elisabeth hitti ég fyrst
fyrir tveimur árum í
söngkeppni í Belgíu. Einu ári
seinna hringdi ég til
Stokkhólms.“
- „Ég var aldrei í vafa, mér
fannst hugmyndin mjög góð
og sagði já samstundis", segir
Elísabeth. Og Hanne skýtur
inní að Elísabeth sé einmitt
„týpan“ sem hún hafi verið að
leita eftir.
- „Mér finnst ég svo örugg á
sviðinu þegar Elísabeth er ann-
ars vegar og það er stórt atriði
að maður geti treyst þeim sem
maður vinnur með, ekki satt?“
Undir þetta tekur Elísabeth
og Bobbysocks dúettinn brosir
sínu breiðasta.
Arnþrúður Karlsdóttir.
<.