NT


NT - 12.05.1985, Page 22

NT - 12.05.1985, Page 22
■ NT hefur frá áramótum minnst stríðslokanna með því að rifja upp frá einni viku til annarrar viðburði styrjaldar- innar á lokaskeiöi hennar fyr- ir 40 árum. Þessir þættir hafa mælst vel fyrir meðal Ies- enda, og að endingu er hér ætlunin að rekja þessa við- burði í stærra samhengi og lýsa því hvað var að gerast á hinum hæstu stöðum, þar sem þættirnir að undanförnu hafa fjallað uin atburði á víg- völlum í nærmynd. I mars 1945 var svo komið að Hitler hafði beint meiri- hluta liðsins á vesturvígstöðv- unum austur á bóginn í því skyni að stöðva framsókn Rússa við Oder. Ástæða þessa var sú að hann taldi að þótt Ardennasóknin hefði mistekist, þá hefði hún þó dregið svo úr bardagaþrótti Bandamanna að þeir yrðu ekki færir um að gera umtals- verða sókn. Auk þess voru vonir bundnar við V-2 flugskeytastöðvarnar í grennd Antwerpen. Því voru þau hergögn sem þýskar verksmiðjur önnuðu að fram- leiða öll send austur. Sunnudagur 12.maí 1985 22 Hefði mátt knýja framuppgjöffyrren raun varð á? ■ Churchill veifar fagnandi mann- fjölda af svölum Whitehall í styrjald- arlok. Fyrir vikið var mikil harka í sókn Bandaríkjamanná á þeim stöðum þar sem þeir voru einráðir unr aðgerðir og gátu Þjóðverjar þeir sem til varnar voru engan veginn staðist þeim snúning. Þann 7. mars brutust sveitir þriðja hers Pattons í gegn um veikar varnir Þjóðverja við Eifel og komu að Rín í grennd við Coblenz eftir þrjá daga. Þá höfðu þeir farið sextíu ntílur. Þar varð að stöðva, því brýr höfðu verið sprengdar í loft upp áður en þeir komu. En nokkru norðar hafði lítil sveit úr fyrsta hernum fundið opna leið og sótti svo hratt fram að þeim tókst að komast í tínia til Remagen og taka brúna þar, áður en tími vannst til að sprengja hana. Liðssafn- aður var strax dreginn þangað og brúnni tókst að halda. Bradley hershöfðingi hugðist nota tækifærið og koma raski á varnirnar við Rín, en Eisenhower bannaði honum það, - kvað þetta stangast á við áætlanirnar. Þetta orsakaði mikla óánægju. ekki síst þar sem Montgomery hafði komið í veg fyrir að 9. herinn reyndi að sækja yfir Rín í grennd við Dússeldorf fjórum dögum áður. Þetta gramdist foringja 9. hersins, Simpson, ákaf- lega. Montgomery hugðist ekki sækja yfir Rín fyrr en hinn 24 mars, þrem vikum síðar. Þetta varð til þess að Patton skund- aði í suðurátt til þess að sópa frá þýska liðinu vestan Rínar og leita um leið að heppilegum stað til þess að fara yfir fljótið. Þann 21. mars hafði hann hreinsað árbakkann af óvinum á 70 mílna svæði milli Coblenz og Mannheim. Sveitir hans héldu yfir Rín nóttina á eftir gegnt Oppenheim, milli Mainz og Mannheim. ÁRUM En eftir sem áður bjuggu banda- menn sig undir stórsókn við Rín. Yfirherstjórnin var í höndum Mont- gomery og hafði hann yfir 9. her Bandaríkjamanna að segja auk fyrsta kanadiska hersins og annars hers Breta. Þessi skipan mála fór raunar mjög í taugarnar á Bandaríkjamönn- unt, sem töldu Eisenhower hafa slak- að til fyrir Bretum sern myndu njóta hins mesta af vegsemd væntanlegra sigra. ■ í júlí 1939 kom til Reykjavíkur í kurteisisheimsókn G. von Fricdeburg, kafbátaforingi á kafbáti sínum. Hann ávarpaði Reykvík- inga sem safnast höfðu saman til þess að skoða gestina í Reykjavík- urhöfn. Myndin er tekið við það tækifæri af Skafta Guðjónssyni, Ijósmyndara. G. von Friedeburg varð síðar aðmíráli og undirritaði uppgjöf Þýskalands 1945 ásamt öðrum æðstu herforingjum, fyrst á Lúneborg- arheiði, en síðar í Reims og Berlín. Til hægri mynd frá uppgjöfínni á Lúneborgarheiði, þar sem von Freideburg er lengst til hægri við borðið. Neðan við þá mynd sést Busch marskálkur taka við skipunum óbreytts hermanns, ineðan Montgomery horfír á. Busch var einnig í nefnd Þjóðverja á Lúneborgarheiði. Hinir mikillátu foringjar Þjóðverja þoldu auðmýkinguna illa og framdi t.d. von Friedeburg sjálfsmorð eftir uppgjöfína.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.