NT - 07.06.1985, Side 1

NT - 07.06.1985, Side 1
Meirihluti borgarstjórnar sagði já: Hitaveitan kaupir Ölf usvatn fyrir 60 millj. ■ Borgarstjórn Reykjavík- ur samþykkti í gærkvöldi að kaupa jörðina Ölfusvatn í Grafningshreppi handa Hita- veitu Reykjavíkur fyrir 60 milljónir króna. Tólf fulltrú- ar meirihlutans greiddu at- kvæði með samningsdrögum Hitaveitunnar og landeig- enda, en sjö fulltrúar minni- hlutans voru á móti. Sigurjón Pétursson, Al- þýðubandalagi, hóf urn- ræðuna um samningsdrögin og sagði m.a., að hingað tii hefði sú grundvallarregla gilt, að sá sem selur, afhenti kaupanda eitthvað. Því væri ekki að heilsa hér, þar sem seljendur héldu öllum notum af jörðinni næstu hálfa öld- ina, svo sem veiðirétti og sumarbústaðalandi. Pað eina, sem væri selt, væru gæði, sem ekki hefðu verið nýtt til þessa. Fulltrúar minnihlutans gagnrýndu harðlega kaup- verð jarðarinnar, sem þeir telja vera allt of hátt. Þarna sé verið að gefa fjármuni borgarinnar. Kristján Bene- diktsson, Framsóknarflokki, benti á, að engin þörf væri á að tryggja Hitaveitunni hita- réttindi í þessu landi nú. Ef sú þörf kæmi hins vegar í Ijós síðar mcir, gæti Hitaveitan fengið heimild til eignar- náms, og ekki bara á landi Ölfusvatns, heldur á landi í öllunt austurhluta Hengils. Hann sagði, að það væri dýrt að láta 60 milljónir króna liggja í áratugi, án þess að gefa nokkuð af sér, og þær yrðu komnar upp í 200 millj- ónir eftir 20 ár. Davíð Oddsson borgar- stjóri sagði um eignarnámið, að dæmin sönnuðu, að eign- arnámsvirði stígi með mark- aðsverði, og því teldi hann þetta vera góðan og hagstæð- an samning, sem kæmi borg- inni til góða. Kvennaframboðskonur: Léku hlutverk fegurðardísa - til að mótmæla ummælum borgarstjóra I Broadway ■ Borgarfulltrúar Kvenna- framboðsins og stuðningsmenn þeirra á áhorfendapöllum, brugðu sér í gervi fegurðar- drottninga á borgarstjórnar- fundi í gær til að mótmæla ummælum Davíðs Oddssonar borgarstjóra við krýningu feg- urðardrottningar Reykjavíkur á dögunum. Guðrún Jónsdóttir, eða Ungfrú Meðfærileg, eins og hún sjálf kallaði sig, sagði að borgar- stjóri hefði gerst opinber fulltrúi karlrembunnar með ummælum sínum og hann hefði sýnt sinn innri mann með því að reyna að vera fyndinn á kostnað kvenna. Sagði hún, að í mótmælaskyni myndi verða nokkur misbrestur á málefnalegri afstöðu Kvenna- framboðsfulltrúa á fundinum. Guðrún lauk orðum sínum á því, að það væri sorglegt að horfa á unga menn í geirfugls- hlutverki. Davíð Oddsson borgarstjóri svaraði fyrir sig og sagðist aldrei hafa upplifað annað eins á 11 ára setu í borgarstjórn. Taldi liann fulltrúa Kvennaframboðs- ins hafa orðið sér til minnkunar og borgarstjórn til vansæmdar. ■ Guðrun Jónsdóttir borgar- fulltrói Kvennaframboðsinsflyt- ur ádrepu sína á fundi borgar- stjórnar í gær. Davíö Oddsson borgarst jóri og Páll Gíslason 1. varaforseti fylgjast með, en á efri myndinni sjást stuðnings- konur Kvennaframboðsins í fegurðardrottningarbúningum á áhorfendapölluin. Fyrir aftan þær eru konur, sem ælluöii að cn þá reyndist ekki unnt að leysa tækið út sökum fjárskorts. Tækið var því sent aftur til verksmiðjanna í Sviss, en er nú á leiðinni í annað sinn til landsins. Sigurður Helgason fisksjúk- dóma- og gerlafræðingur sem starfar við annan mann á Keld- um að rannsóknum á sjúkdóm- um í eldisfiski á íslandi, sagði í samtali við NT í gær að fyrstu tækin hefðu komið á hafnar- bakkann í byrjun febrúar, en nú fyrst væru þau að komast í hendur stofnunarinnar á Keldum. Tækin sem mörg hver eru sérhæfð eru tæki sem nauð- synleg eru til grunnrannsókna á seiðum og fiskeldi almennt. „Það er nauðsynlegt fyrir ís- lenskt fiskeldi að við getum rannsakað sciði og almennar afurðir til útflutnings. Við mið- um alla okkar sölu við erlendan markað og til útflutnings er nauðsynlegt að framvísa heil- brigðisvottorði, en það fæst ekki nema eftir miklar rannsóknir á tilraunastöðvum. Ég tel öfugsnú ið að ætla að efla fiskeldi og urn leið vanrækja þátt sem er jafn sjálfsagður og rannsóknir,“ sagði Sigurður. Jón Helgason landbúnaðar- ráðherra sagði í samtali við NT í gær að Alþingi hefði samþykkt ályktun um að bæta aðstöðu til rannsókna fyrir fiskeldi. Um þá ályktun sagði Sigurður að hún væri góð og gild og hann vonaðist eftir því að fram- kvæmd yrði jafn góð. ■ Tilraunastöðinni á Keldum á sjúkdómum í fiskeldi, var veitt leyfi, af ríkisstjórninni, snemma í janúar. í febrúar kom til tækjakaupa fyrir rannsóknir fyrsta tækið á hafnarbakkann Tæki til fisksjúkdómarannsókna stóðu á hafnarbakkanum í 4 mánuði: Eitt tækið er á leiðinni til landsins í annað sinn - því ekki var hægt að leysa það út þegar það kom fyrst Leiðsögumenn funduðu fram á nótt: Allt benti til samkomulags ■ Allt benti til þess, að samkomulag í kjaradeilu leiðsögumanna og ferða- skrifstofanna væri í burðar- liðnum, þegar NT fór í prent- un í nótt. Um miðnættið var aðeins eitt atriði tengt launa- lið samningsins órætt og vildu samningamenn ekkert láta hafa eftir sér, þar sem málið væri á viðkvæmu stigi. Leiðsögumenn og við- semjendur þeirra komu til fundar hjá ríksisáttasemjara kl. 13.30 í gær, og eftir kvöldmatarhlé, lögðu vinnu- veitendur fram tilboð, sem leiðsögumenn voru enn að ræða, þegar síðast fréttist. Verkfall leiðsögumanna hefur verið boðað frá 10. júní, takist samningar ekki nú. rwrwwww newsinbrief NEWSINBRIEF NEWSINBRIEF WWWWWW ^ ■ ZURICH - The Intemat- s ional Football Federation ^ FIFA banned English Soccer tQ clubs indeflnitely from niatc- hes worldwide after last week’s European Cup Final riot killed g 38 people in Briissels. English rj clubs have already been bann- ^ ed indeflnitely from competit- ion in Europe and England’s Football Association said it would appeal against the latest ban. ^ SAO PAULO, BRAZIL - Brazilian policc plan to ex- humc a body they believe is that of Second World War criminal Josef Mengele. A spokesman said he was 90 per cent sure the body buried west of Sao Paulo was that of Mengele, sought over the deaths of 400.000 Jews at Auschwitz concentrat- ion camp. But in Paris, Nazi Hunter Serge Klarsfeld said he was certain Mengele was still alive. ESTORIL, PORTUGAL - Foreign ministers of all Eur- opean members of NATO urg- ed Washington to continue respecting the SALT-2 arms limitation treaty. British and West German offlcials said this consensus emerged after U.S. Secretary of State George Shultz outlined options on the unratifíed pact, due to expirc at the end of the year. • BIRMINGHAM, AL- ABAMA - President Reagan stepped up his attacks on Communism, calling the Nic- araguan govcmment an agent of Soviet expansionism and accusing Victnam of torture and forced relocations. HONG KONG - Policc said U. they detained four people after Jjl the govemment closed one of QC thc British colony’s leading banks when it declared itself ^ insolvent. They said one of ^ those held, a Malaysian, was an oflicial of the overseas trust Q bank. ^ W WWW. . M NEWSINBRIEF NEWSINBRIEF NEWSINBRIEF

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.