NT - 07.06.1985, Blaðsíða 2
Föstudagur 7. júní 1985 2
var frestað
■ Samninganefndir BSRB
og ríkisins koma aftur saman
til fundar kl. 10 fyrir hádegið.
Nefndirnar skiptu sér í tvo
vinnuhópa á fundi í gær, þar
sent málin voru rædd fram og
til baka. Annarhópurinn fjall-
aði um launastigann, en hinn
um lífeyrismál, vaktavinnumál
og fleira.
Kristján Thorlacius formað-
ur BSRB sagði í gær, að við-
ræðum um kaupmáttartrygg-
ingu hefði verið frestað í bili,
enda myndi BSRB hafa náið
samráð við Alþýðusambandið
þar um.
■ Hundrað ára afmæli bílsins
verður haldið hátíðlegt á laugar-
dag. Fornbílaklúbbar á Norður-
löndum efna til margskonar hóp-
ferða og hátíðahalda. Islenski
klúbburinn efnir til ferðar austur
yfir fjall í Hveragerði, þar sem
farið verður m.a. í tívólí. Lagt
verður af stað frá Hótel Esju
kiukkan 13:30. Þá er það hvatning
frá klúbbnum til meðlima, sem
einhverra hluta vegna geta ekki
Situr fyrir svörum
um utanríkisstefnu
■ Flýtirinn verður ekki í fyrirrúmi hjá félagsmönnum Fornbflaklúbbsins og farartækjum þeirra á
leiðinni austur yfir fjall. Myndin sýnir Dodgc 1940 módel sem var í þjónustu FÍB um nokkurra ára
skeið. Eigandi er Bjarni Einarsson frá Túni Eyrarbakka.
Hundrað ára afmæli bílsins
komið með í ferðina, að þeir haldi
upp á afmælið á einhvern hátt.
Með þessum afmælisakstri hefst
sumarstárf Fornbílaklúbbsins, en
vetrarstarfi lauk með aðalfundi
félagsinssem haldinn var 18. maí.
■ Sendiherra Sovétríkjanna
á íslandi, Evgeniy Kosarev,
mun halda fyrirlestur um utan-
ríkisstefnu Sovétríkjanna og
svara spurningum þarafleið-
andi á opnum fundi Utanríkis-
málanefndar Framsóknar-
flokksins þann 13. júní n.k.
Sveit fjögurra blaðamanna
mun leiða spurningarnar, en
öðrum fundargestum verður
einnig frjálst að beina spurn-
Vinstrisinnar?
■ Það hefur reyndar iðu-
lega konrið fyrir að Dropar
hafi tekið efni úr öðrum
blöðum „ófrjálsri hendi” sem
kallað er, enda marga góða
húmorista að finna á öðrum
blöðum Af einhverjum ástæð-
um hefur þó blað allra
landsmanna, Morgunblaðið
orðið útundan hjá okkur.
Það er eiginlega mál til kom-
ið að bæta úr þessu og því
birtum við meðfylgjandi úr-
klippu úr Morgunblaðinu í
gær. Hún talar eiginlega fyrir
sig sjálf!
QJUl
DaviA Oddawn
Andrcas Papandrcou
Vinstrisinnar í Grikklandi og Reykjavik ■ Þú geta sagt mér hvar ég geta tekið leiguflug!
ingum til sendiherrans.
Fundurinn verður haldinn
að Hótel Hofi og mun hefjast
kl. 20.00. Fundarstjóri verður
Guðmundur G. Þórarinsson,
formaður Utanríkismála-
nefndar Framsóknarflokksins.
Vinnuslys á
Seyðisf irði
■ Járnplötur hrundu ofan á
mann sem var við vinnu sína í
verksmiðjunni Stál á Seyðisfirði á
þriðjudagskvöld. Plöturnar lentu
á fótum hans, og lærbrotnaði hann
á öðrum fæti og tvíbrotnaði á
hinum. Maðurinn var fluttur á
sjúkrahúsið á Seyðisfirði og síðan
með flugvél til Reykjavíkur. Líð-
an hans mun vera eftir atvikum.
Sofnaði út
frá potti
■ íbúar í fjölbýlishúsi við Iðufell
í Breiðholti kölluðu til slökkvilið í
fyrrakvöld, þar sem vart varð við
reyk sem lagði úr einni íbúðinni
Álitið var að íbúðin
væri mannlaus og braut slökkvilið-.
ið upp hurðina. Talsverður reykur
var í íbúðinni og stafaði hann af
því að pottur með mat í stóð á
eldavélinni. Húsráðandi reyndist
vera heima og svaf hann þungum
svefni. Maðurinn ætlaði að hita
sér upp mat og lagði sig á meðan.
Erlingur Lúðvíksson varðstjóri hjá
slökkviliöinu sagði í samtali við
NT að það væri ein af algengustu
orsökum fvrir útköllum hjá
slökkviliðinu að fólk sofnaði út frá
pottum á eldavélum.
Fiskúrgangur til fóðrunar í fiskeldi:
Býður upp á 160 þúsund
tonna framleiðslu á ári
- og verðmætaaukningu á úrganginum,allt að 27 af hundraði
BSRB og ríkið:
Umræðu um
■ Ef allur Fiskúrgangur og
bræðslufiskur sem til fellur í
sjávarútvegi í dag yrði notaður
til fóðrunar og framleiðslu á
eldisfiski væri hægt að framleiða
115-160 þúsund tonn af matfisk
á ári, með þeirri fóðrun einni
saman.
í drögum að skýrslu um þtóun
fiskeldis á íslandi kemur fram
að verðmætaaukning á úr-
ganginum gæti orðið allt að
27-föld miðað við að úrgangur-
inn væri notaður til fumleiðslu
á fiskimjöli. Skilaverð þess úr-
gangs sem notaður er til lýsis-
framleiðslu og fisktnjölsgerðar
á ári hverju er 1310 milljónir.
Væri úrgangurinn notaður til
fóðrunar á loðdýrum myndi
verðmætaaukningin vera 7-10
af hundraði.
Við fóðrun á eldisfiski gæti
verðmætaaukningin, ef best
léti, orðið 27 afhundraði. Skila-
verð úrgangsins myndi þá vera
35325 milljónir króna. Það skal
tekið fram að til þess að ná
skilaverðinu svo háu er miðað
við að með tilraunum takist að
ná fóðurþörfinni á kg af laxi
niður í 3,5 kg af fóðri. í dag er
eðlilegt að áætla 4,8 kg af fóðri
á kíló af laxi. Tekist hefur með
tilraunum í Noregi að ná fóður-
þörfinni niður í allt að 3,5 kg.
Þá segir í drögunum að með
því að nota þennan úrgang til
fóðrunar á gönguseiðunt, sem
myndu síðan heimtast vel, væri
um enn meiri ávinning að ræða.
kaupmáttar-
trygginguna
Sendiherra Sovétríkjanna:
Bæjarstjórn Akureyrar:
Stóð saman að
forsetakjörinu
- Sigurður Jóhannesson kjörinn samhl jóða
■ Stgurður Jóhannesson,
bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, var á þriðjudaginn
kosinn forseti bæjarstjórnar
Akureyrar með atkvæðum
allra bæjarfulltrúa.
Þótti þetta nokkrum tíð-
indum sæta því að minnihluti
sjálfstæðismanna hefur setið
hjá við forsetakjör það sem
af er þessu kjörtímabili.
„Þetta þýðir enga stefnu-
breytingu sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn, heldur má líta á
þetta sem persónulegan virð-
ingarvott við Sigurð Jóhann-
esson,“ sagði Gunnar
Ragnars, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í gær.
Sigríður Stefánsdóttir, Al-
þýðubandalagi, var kosin
fyrsti varaforseti bæjar-
stjórnar og Freyr Ófeigsson,
Alþýðuflokki var kosinn
annar varaforseti.
í bæjarráð voru kosnir Sig-
urður Jóhannesson, Sigríður
■ Sigurður Jóhannesson
Stefánsdóttir, Valgerður
Bjamadóttir, Sigurður J. Sig-
urðsson og Gunnar Ragnars.
Ekki náðist í Sigurð Jó-
hannesson í gær, þar sem
hann er í vinarbæjarheim-
sókn í Noregi.