NT - 07.06.1985, Blaðsíða 3

NT - 07.06.1985, Blaðsíða 3
 Föstudagur 7. júní 1985 3 Efnislegar deilur um þingsköp: Menntamálaráðherra vildi ekki ræða dagvistarmálin - mun svara fyrirspurn um þau í dag ■ Þegar Albert Guðmundsson fjármálaráðherra hafði mælt fyrir stjórnarfrumvarpi um af- nám einkaréttar ríkisins á sölu á tóbaki og eldspýtum og Stein- grímur Sigfússon gert athuga- semdir sínar við það, tók Kristín Kvaran til máls um þingsköp. Kvaðst hún hafa óskað þess, að menntamálaráðherra svaraði fyrirspurnum utan dagskrár vegna þess ástands sem ríkti í dagvistarstofnunum landsins. Hefði ráðherra hafnað því á þeim forsendum að dagvistar- mál væru að verulegu leyti sveitarstjórnarmál. Kristín sagði að þessi svör ráðherrans væru ófullnægjandi, bygging og rekstur dagheimila væru á ábyrgð menntamálaráð- herra. Kristín vitnaði síðan í fyrirsögn NT í gær, þar sem sagði, að foreldrar og fóstrur vildu ekki fleiri dagvistarstofn- anir meðan það ástand ríkti að þær sem fyrir væru byggju við óviðunandi starfsskilyrði. „Þegar þessir aðilar vilja ekki fleiri dagvistarstofnanir, þá hlýtur það að segja stóra sögu,“ sagði Kristín og bætti því við, að í fyrsta sinn í 40 ára sögu Fóstru- skóla íslands hefðu nú of fáar umsóknir um skólavist borist. Hún kvaðst furða sig á þeim viðbrögðum menntamálaráð- herra að vilja ekki ræða málið á Alþingi. Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra tók til máls um þingsköp og kvaðst ekki hafa heyrt útvarpsfréttir í fyrrakvöld vegna anna og ekki séð NT í gær. Hún vissi því ekki hvað fjölmiðlar hefðu sagt um málið og því talið sig þess van- búna að svara á grundvelli þess, enda hefði ekki legið fyrir um hvað Kristín Kvaran hefði ætlað að spyrja. „Þetta mál snýst um kjör starfsmanna sem ekki eru ríkisstarfsmenn,“ sagði ráðherr- ann. Ragnhildur sagði hins vegar að í menntamálaráðu- neytinu væri fullbúin starfsáætl- un fyrir dagvistarstofnanir, sem kynnt yrði í sumar, einmitt fyrir því fólki, sem á þeim stofnunum störfuðu svo að þær gætu tekið afstöðu til hennar og bent á það sem þar mætti betur fara. „Hvernig á að fjármagna framkvæmd þeirrar áætlunar?" spurði Guðrún Helgadóttir, og sagði að hingað til hefðu karl- ráðherrar ekki neitað því að svara fyrirspurnum þingmanna, en nú brygði svo til að kvenráð- herra neitaði að svara spurning- um kvenþingmanns. Starf- andi forseti deildarinnar, Karv- el Pálmason, margítrekaði að hann gæfi orðið aðeins laust um ■ „Menntamálaráðherra ræð- ur yfir útgjaldalið sem heitir ýmis framlög, en fé af þeim lið er aldrei veitt til aðila sem hafa framlög á fjárlögum fyrir, slíkar aukafjárveitingar verða að koma í gegnum fjármálaráð- herra,“ sagði Runólfur Þórar- insson fulltrúi í Menntamála- ráðuneytinu í samtali við NT í gær vegna athugasemdarinnar sem birtist hér á eftir. Tilefnið er augljóst; fyrirsögn NT á frétt um höfnun á aukafjárveitingu til Þjóðminjasafns vegna kostn- aðar við viðgerð á altarisbrík þingsköp, en ekki til efnislegra umræðna. Hann sagði að utandagskrár- umræður væru leyfðar ef sam- komulag væri um það milli fyrir- spyrjanda og viðkomandi ráð- herra. Margir tóku til máls „um þingsköp“ og gagnrýndu það að Hóladómkirkju. Athugasemdin er svohljóðandi: Herra ritstjóri. í blaði yðar í dag er svohljóð- andi fyrirsögn forsíðufréttar: „Altarisbrík Hóladómkirkju einkamál Þjóðminjasafnsins - að mati fjármála- og mennta- málaráðuneytis sem neitað hafa safninu um 140 þúsund króna fjárveitingu." Vegna þessa tekur Mennta- málaráðuneytið fram eftirfar- andi: Ráðuneytið ritaði Fjár- laga- og hagsýslustofnun svo- hljóðandi bréf, dags. 30. apríl ráðherra skyldi ekki vera undir- búinn undir að ræða dagvistar- málin. Niðurstaðan varð sú að í dag mun menntmálaráðherra svara fyrirspurn Kristínar Kvar- an utan dagskrár og gefst þing- mönnum þá tækifæri til „efnis- legra umræðna". síðastliðinn, varðandi þetta mál: „Menntamálaráðuneytið sendir Fjárlaga- og hagsýslu- stofnun hér með ljósrit af bréfi þjóðminjavarðar, dags. 15. þ.m., varðandi beiðni um auka- fjárveitingu að fjárhæð kr. 141 þúsund vegna viðgerðar á altar- isbrík í Hóladómkirkju, sem Jón biskup Arason lagði til kirkjunnar um 1540. Ráðuneytið vísar til þeirra röksemda, sem er að finna í bréfi þjóðminjavarðar, fyrir þessari málaleitan, og leggur Misstu tvo í Blöndu ■ Fyrsta daginn í Blöndu kom enginn lax á land. Veiðimenn urðu þó varir við fisk, og tveir sluppu af önglinum eftir að hafa háð erfiða baráttu. Frést hefur af sel í ósnum, og er við- búið að hann geri usla í væntanlegum laxatorfum. Pétur Hafsteinsson formað- ur veiðifélags Blöndu og Svartár sagði í.samtali við veiðihornið að þrátt fyrir það að enginn lax hefði komið á land þá andaði hlýju til laxveiðimanna þar sem vart hefði orðið við hann. „Hann kemur á næsta straumi;' sagði Pétur. Fjór- ar stangir eru í Blöndu sem er mjög vatnslítil um þessar ntundir. Lax í Litluá Einn lax hefur veiðst í Litluá í Kelduhverfi. Áin er svo til troðfull af sjógengn- um silungi. Gripið hefur verið til þess ráðs að setja kvóta á hverja stöng, en þær eru fimm. Leyfilegt er að veiða 20 silunga á stöng og eru ófáir veiðimenn sem hafa fyllt kvótann frá því áherslu á að umbeðin aukafjár- veiting verði veitt, enda yrði það að flokkast undir meirihátt- ar slys, ef altarisbríkin eyðilegð- ist, ekki síst þar sem við íslend- ingar höfum verið að gera kröfu um að fá hingað heim ýmsa dýrmæta íslenska muni og hand- rit úr erlendum söfnum. F.h.r. Knútur Hallsson (sign). Runólfur Þórarinsson (sign.)“ Menntamálaráðuneytinu barst síðan svarbréf frá Fjár- laga- og hagsýslustofnun við málaleitan þessari, dags. 22. ■ Ekki var fullkomlega Ijóst fyrir þingmönnum og áheyrendum í gær hvort dagvistarmál væru á dagskrá eða ekki og engum spurningum var svarað. Það verður hins vegar gert í dag og starfsfólk dagvista verður líklega að gera sér aðra ferð á þingpalla með föruneyti sínu fríðu. NT-mynd: Ámi Bjama. Þjóðminjasafnið og altarisbríkin: Menntamálaráðuneytið bað um aukafjárveitingu Umsjón: Eggert Skúlason veiði hófst 1. júní. Laxinn sem kom á land var smár,3 pund. Stærsti silungurinn sem veiddist vó 7,5 pund. Fiskurinn tekur hvað sem er og hefur veiðst á spún, maðk og flugu. Veiðileyfið í ánni kostar 600 krónur. Hvað kostar maðkurinn? Þeir viðmælendur Veiði- hornsins sem haft var sam- band við út af verði á laxa- maðki sögðu að verðið væri í kringum fimm krónur á maðk. Þó er það háð framboði og eftirspurn, eins og hefur verið í gegnunt árin. Viðbúið er að verðið rokki á bilinu 4,50 og í mesta lagi nái það 6 krónum ef þornar um og lítið fram- boð verður á orminum. Lax fékkst fyrir ofan Laxfoss Það telst til tíðinda þegar lax veiðist í Norðurá á milli fossa, snemma í júní. Veiði- menn hafa þó séð talsvert af fiski fyrir ofan Laxfoss og einn veiddist reyndar-í síð- asta holli sent kláraði í gær. Vanalega gengur laxinn ekki upp fyrir fossinn fyrr en í lok í júní þegar vatnið í ánni er farið að hitna. Nú er vatnið komið í 8,5 gráður og virðist fiskurinn sætta sig við það. Hollið sem kláraði í gær hafði 19 laxar frá því 3. júní. maí síðastliðinn, og hljóðar það svo: „Fjárlaga- og hagsýslustofn- un vísar til bréfs Menntamála- ráðuneytisins, dags. 30. apríl 1985, þar sem sótt er um auka- fjárveitingu að fjárhæð 141 þús. kr. til Þjóðminjasafns íslands vegna viðgerðar á altarisbrík í Hóladómkirkju. Ekki er fallist á ofangreint erindi. F.h.r. Héðinn Eyjólfsson (sign.)“ Samkvæmt framanrituðu er áðurgreind forsíðufrétt í blaði yðar með öllu tilhæfulaus að því er tekur til Menntamálaráðu- neytisins og óskast leiðrétting birt á jafnáberandi stað í blaði yðar hið allra fyrsta. Eins og af framansögðu er Ijóst er það rangt sem fram kom í fyrirsögn umræddrar fréttar að menntamálaráðuneytið hafi neitað Þjóðminjasafninu um aukafjárveitingu, það voru aðrir aðilar sem það gerðu. NT biðst afsökunar á þessari ónákvæmni. RUTUDAGUR * y o o w * LAUGARDAGINN 8. JUNI Þaö veröur fjör í Umferöarmiöstööinni á laugan—— Stærsta rútusýning á íslandi meö um 50 rútur af öllum geröum og staeröum: Nýjar rútur, gamlar rútur, antik rútur, fjallabílar, eldhúsbílar, boddýbílar og snjóbílar. Yfirgripsmesta ferðakynning sem haldin hefur veriö meö 21 aöila er kynna starfsemi sína. Skemmtiatriöi allan daginn: Bjössi bolla mætir á staöinn og heilsar uppá börnin, lúörasveit leikur, gömlu, góöu rútusöngvarnir kyrjaöir, ókeypis feröagetraunir og síöast en ekki síst, ókeypis skoöunarferöir um Reykjavík allan daginn. ítilefni dagsins veita sérleyfishafar 50% afslátt at fargjöldum OPID KL.10—18. Félag sérleyfishafa

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.