NT - 07.06.1985, Side 8

NT - 07.06.1985, Side 8
■ Flestir ferðamenn, sem farið hafa til Moskvu, hafarek- ist á ofurölvað fólk, í fylgd fé- laga sinna, sem ekki eru eins illa haldnir, eða í fylgd lög- reglu, á leið til næstu stöðvar svo þeir geti látið renna af sér. Reyndar þarf nú sjálfsagt ekki að fara svo langt til þess að slíkt verði fyrir sjónum manns, en hins vegar er það staðreynd að drykkjusýki er orðin svo al- geng í Sovétríkjunum, að Gor- batchev hefur skorið upp herör gegn vandanum. Marga grunaði að Gorbatc- hev myndi taka þessi mál föst- um tökum, þegar hann komst til valda í mars síðastliðinum. Hann er þekktur fyrir að hafa andstyggð á vodka og al- menningur hefur því átt von á aðgerðum Kommúnistaflokks- ins gegn þessu þjóðfélags- vandamáli. Svört skýrsla Samkvæmt skýrslu, sem eignuð er Vísndaakademíunni í Novosibrisk, en er þó líka komin frá deild innan KGB, sem fjallar um þjóðfélagsleg málefni, er áætlaður fjöldi drykkjusjúklinga í Sovétríkj- unum um 40 milljónir eða einn sjötti þjóðarinnar. Sjötta hvert Föstudagur 7. júní 1985 8 ■ Þetta er orðin of algeng sjón að mati Kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Meðlimir kommúnista- flokksins, sem hneigjast til drykkju, geta átt von á því að verða „leystir frá störfum" eða reknir úr flokknum. Gerð hef- ur verið áætlun um átak í bygg- ingu meðferðarstofnana fyrir drykkjusjúka og einnig hefur verið gerð áætlun um að stefna að því að minnka heildar fram- leiðslu sterkra drykkja frá og með næsta ári, en ákvarðanir um það verða teknar á þingi flokksins á næsta ári. í gamni hafa menn reynt að skýra andúð Gorbatchevs á vodka með því, að hann tók lögfræðipróf sitt frá Lomon- ossov háskóla í Moskvu. Orð fer að háskólanum í Moskvu og Bolsjoi leikhúsinu fyrir almennt bindindi. Að sögn munu leikarar og dansar- ar leikhússins taka Martini fram yfir vodka, Sá drykkur er seldur í búðum forréttinda- hópa og á svörtum markaði. Whiskey mun vinsælasti drykkurinn meðal prófessora háskólans, en stúdentarnir sjálfir, sem verða að uppfylla mjög ströng skilyrði til að verða teknir inní skólann og ganga í gegnum erfiðar „síur", drekka sem allra minnst, til þess að vekja ekki athygli Gorbatchev gerir ráðstafanir til að minnka áfengisneyslu BLAÐBERA VANTAR í EFTIRTALIN HVERFI: Skipholt, Austurberg og Seltjarnarnes EINNIG VANTAR BLAÐBERA A BIÐLISTA I ÖLL HVERFI :mí,: fite !!',RsPríssííítlg'spr!::r?TF!Fr:X, Eí' Síðumúlii 5. Simi 686300 gripið yrði til skömmtunar á áfengi, líkt og Nikita Krutsjev gerði árið 1964, árið sem hann missti völdin. Talað var um að verð áfengis myndi fjórfaldast, en Gorbatchev hefur ekki gengið svo langt, að minnsta kosti ekki enn sem komið er. Hann hefur hinsvegar gripið til mjög strangra ráðstafana. Lágmarksaldur hækkaður Nú fá aðeins þeir, sem náð hafa 21 árs aldri að kaupa áfengi. Lágmarksaldurinn var áður 18 ár. Háar sektir eru við broti á þessum reglum. Endur- tekið afbrot getur þýtt tveggja ára vist í fangabúðunr. Áfeng- isverslanir opna nú kl. 14, en opnuðu áður kl. 11 fyrir há- degi. Þeir sem teknir eru ölv- aðir við akstur geta átt von á að vera sektaðir um 100 rúblur, sem svarar til helmings meðal- launa, og missis ökuleyfis. Að hvetja börn undir lögaldri til neyslu áfengis getur kostað fangelsi eða vist í „endurhæf- ingarbúðum". Þettagildir jafnt um foreldra barnanna sem aðra. barn sem fæðist verður fyrir skaða á fósturskeiði vegna drykkjusýki foreldra sinna. Dánartíðni mun hafa aukist á tímabilinu frá 1960 til 1980 úr 7,1% í 10,4% og árleg fjölgun þjóðarinnar minnkað á sama tíma úr 1,26% niður í 1,03%. Þetta eru niðurstöður athugun- arinnar, sem ekki hafa verið birtar opinberlega, en þeim hefur hvergi verið mótmælt af yfirvöldum. Dagblöðin hefja herferð Undanfarnar vikur hefur gætt vaxandi áróðurs í sovésk- um blöðum gegn neyslu áfeng- is. Slagorð, sem lúta að vernd barna, hafa birst í Pravda, málgagni flokksins. Talað er um stóraukið átak gegn drykkjusýkinni. Samkvæmt landbúnaðartímaritinu „Sel- skaya jizn“ byrja 90% þeirra sem drekka að staupa sig áður en þeir ná 15 ára aldri. I öðru blaði er fullyrt að 90% afbrota og 60% glæpa eigi sér stað í framhaldi af áfengisneyslu. Orðrómur var á kreiki um að „partkom„-nefndarinnar sem fylgist náið með stúdentunum og gerir strangar siðgæðis kröfur. Hver verður árangurinn? Það er auðvitað „að beiðni verkalýðsins" sem gripið er til þessara ráðstafana, skv. Pravda. En hver verður árang- urinn? Bresnev lét hækka verð áfengis um 300% strax árið 1966. Lítersflaskan af sterku víni er nú seld á 13 rúblur, sem er alltof hátt verð fyrir pyngju hins almenna borgara, sem hefur 180 rúblur í meðaltekjur. Þess vegna óttast menn að heimabruggun muni stórauk- ast, en hún er í dag talin mjög almenn. Uppskriftirnar eru öllum aðgengilegar. Spurning- in er hvort ekki þarf að skammta sykurinn líka, ef ein- hver árangur á að nást. Með aðgerðum sínum ræðst Gorbachev gegn fyrirbæri, sem aldagömul hefð er fyrir í Sov- étríkjunum: Vodkadrykkju og bruggi. Frekar dauflegt hlut- skipti hins almenna borgara hefur átt sinn þátt í að styrkja þessa hefð. Þess vegna gætir vissra efasemda um árangur herferðarinnar. Þýtt og endursagt úr L’Express „Marxisminn-leninisminn er vodka fólksins."

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.