NT - 07.06.1985, Blaðsíða 15

NT - 07.06.1985, Blaðsíða 15
tilkynningar Tilkynning frá Byggðasjóði í lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustu- hætti og öryggi á vinnustöðum er gert ráð fyrir útvegun fjármagns til lánveitinga til fyrirtækja, sem þurfa að bæta aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustað. Samkomulag hefir verið gert milli Fram- kvæmdastofnunar ríkisins og félagsmála- ráðuneytisins um að lán þessi verði veitt úr Byggðasjóði af sérstöku fé, sem aflað verður í þessu skyni. Umsóknir um lán þessi skulu því sendar Byggðasjóði, Rauðarárstíg 25, Reykjavík, á umsóknareyðublöðum Byggðasjóðs, þar sem sérstaklega sé tekið fram að um sé að ræða lán vegna bætts aðbúnaðar, hollustu- hátta og öryggis á vinnustað. Umsóknarfresturertil20.júní n.k. Endurnýja þarf umsóknir, er áður hafa verið sendar en ekki hlotið afgreiðslu. Almennur landsfundur Fundur Samtaka um jafnrétti milli landshluta verður haldinn í Skjólbrekku í Mývatnssveit 8. og 9. júní. Þar verður mótuð uppbygging og stefna samtakanna. Til þingsins er boðið öllum, sem áhuga hafa á að kynna sér starfið og ganga í samtökin. Upplýsingar gefa Magnús Kristinsson í sím- um 96-23858 og 96-23996, Pétur Valdimars- son í síma 96-26326 og Örn Björnsson í síma 95-1988. Föstudagur 7. júní 1985 27 Alnæmufaraldurinn: „Við erum að deyja“ Hommi skrifar leikrit um alnæmu New York-Reuter ■ „Við erum að deyja og eng- inn berst fyrir lífi okkar. Við verðum því að gera það sjálfir," segir rithöfundurinn Larry Kramer, kunnur talsmaður homma í New York. f baráttu sinni gegn slælegri frammistöðu yfirvalda við að finna lækningu gegn alnæmu, hefur Larry þessi skrifað leikrit- ið „Meðalhjartað". í leikritinu leggur hann tii að hommar öskri og hætti ekki að öskra fyrr en eitthvað hafi verið gert í þessum málum. Larry ásakar fjölmiðla og heilbrigðisyfirvöld um að vera áhugalaus um varnir gegn þessum kynsjúkdóm sem veikir ónæmiskerfi líkamans og hefur aðallega lagst á homma. „Meðalhjartað“ var sett á svið í Off-Broadway leikhúsi Jósefs Papp og er annað tveggja leikrita um alnæmu sem vakið hefur töluverða athygli og hylli. Það fjallar um rithöfundinn og hommann Ned Weeks og þann vanda sem hann á við að etja. Weeks tekur þátt í stofnun at- hvarfs fyrir homma sem sýkst hafa af alnæmu en athvarfið á sér fyrirmynd í athvarfi sem Kramer og fleiri hommar komu á fót í New York til minningar um 6 homma sem létust af völdum alnæmu. í leikritinu yfirgefur Weeks hópinn, eins og Kramer gerði sjálfur á sínum Bandaríkin: 10% kvenna naudgað -og gerð tilraun til að nauðga 10-20% kvenna Washington-Reuter ■ 10% bandarískra kvenna hefur verið nauðgað en það er tvisvar til fjórum sinnum hærra hlutfall en í Vestur-Evrópu, að því er niðurstöður bandarískrar könnunar sem birt var frétta- mönnum nýlega herma. Að auki hafa verið gerðar tilraunir til að nauðga öðrum 10-20% bandarískra kvenna en þær komist undan. Martha Burt, sem hafði yfir- umsjón með gerð könnunarinn- ar, sagði blaðamönnum, að frá því að bandarískar kvenrétt- indakonur hófu herferð gegn nauðgunum árið 1971 hefðu við- horf almennings til nauðgana breyst mikið til batnaðar en samt væri langt í frá að tekist hefði að útrýma öllum ranghug- myndum um nauðganir. Martha sagði að sjónvarp, kvikmyndir, auglýsingar' og karlrembubrandarar ýttu undir viðhorf á við: „Hún átti það skilið," „Hún kom því til leiðar með því að æsa hann upp,“ „Hva, enginn skaði skeður,“ og „Hún vildi það,“ og að ítarleg viðtöl við nauðgara sýndu að þeir skýldu sér á bak við þessi útbreiddu viðhorf til glæpsins. Á meðan almenningur héldi að nauðganir gerðust á götum úti sýndi könnunin að meira en tíma, er barátta hópsins til að ná athygli almennings kafnar í skipulagsleysi og samstarfsörð- ugleikum hommanna. „Það er ekki hægt að hrósa neinum fyrir frammistöðu sína í allri þessari vitleysu," segir aðalpersóna leikritsins að skiln- aði og Kramer segir að leiðtogar homma séu samsekir fjölmiðl- um og heilbrigðisyfirvöldum. Barátta homma hafi einkennst af skipulagsleysi og hræðslu við að koma við kauninn á for- dómafullum meirihlutanum og árangurinn því verið eins lítill og raun ber vitni. Kramer segir að leikritið fjalli fyrst og fremst um það hvað gerist þegardýrmætustu eignum manna ss. heilsu sé ógnað, menn afneiti ógninni og feli sig. Kramer segist vonast til að kvik- ntynd verði gerð eftir leikritinu svo að fleiri vakni til umhugsun- ar um alnæmuvanda homrna. „Alnæmufaraldurinn versnar rneð hverri sekúndu sern líður og mér virðist lítil barátta vera til staðar. Ég gleðst þegar ég sé áhorfendur vökna um augu á leiksýningum hvert kvöld," seg- ir Larry Kramer. „En ég yrði ennþá glaðari ef tárin leiddu til einhverrar baráttu,“ sagði Kramer að lokum. ■ Því hefur verið haldið fram að fordómar gegn hommum valdi því hve lítið hefur verið aðhafst í að fínna varnir við alnæmu. helmingur þeirra ætti sér stað innandyra og þótt almennt sé talið að nauðgarar beiti vopnum til að koma vilja sínum fram, væru engin vopn notuð í 70% tilvika. Flestir héldu og að fórn- arlömbin hlytu meiðsli en í 70% tilvika hlytu þær engin meiðsli. Martha Burt sagði ennfremur að könnunin hefði ekki staðfest þær útbreiddu skoðanir að nauðgari og fórnarlamb þekkt- ust né heldur að nauðgar- arnir fremdu verknaðinn vegna þess að þeir væru haldnir svo brýnni þörf fyrir kynlíf þar eð 70% nauðgaranna væru kvæntir eða hefðu reglulegt kynlífssam- band við aðra aðila. Bretar í vanda: Móðgaði Papandreou Thatcherstjórnina? Aþena-Reuter ■ Breska utanríkisráðu- neytið er nú að kanna hvort Andreas Papandreou forsæt- isráðherra Grikkja hafi móðgað Breta á kosninga- fundi skömmu fyrir þing- kosningarnar á Grikklandi með ummælum sem túlka megi þannig að Bretland sé lögregluríki. Á seinasta kosningafund- inum fyrir kosningarnar nú um síðustu helgi ásakaði Papandreou andstæðinga sína fyrir að ganga erinda stórauðmagns. Hann sagði mörg hundruð þúsund stuðn- ingsmönnum sínum að and- stæðingar hans myndu skera niður almannatryggingar og vanrækja sveitir landsins. Papandreou bætti við: „Til þess að þetta gerist, alveg eins og á Englandi, er vald- boðsríki nauðsynlegt, lög- regluríki, ríki kúgunar, tak- mörkunar félaga- og ein- staklingsfrelsi og spillt verka- lýðsforysta eins og í fortíð- inni.“ Seinasti hluti setningarinn- ar, þar sem vitnað er til spilltrar verkalýðsforystu, vísar greinilega til Grikk- lands þar sem sósíalistar hafa margoft ásakað fyrrverandi verkalýðsforystu í Grikk- landi fyrir spillingu. En Bret- ar eru hins vegar í vafa um það hvað mikill hluti af setn- ingunni á við Bretland og hvort Papandreou hafi sagt að breska ríkið væri vald- boðsríki, lögregluríki og kúgunarríki. I tilefni af þessu spurði breskur blaðamaður Pap- andreou að því hvernig hon- um kæmi saman við Margréti Thatcher. Hann svaraði því með orðunum: „Samskipti mín við frú Thatcher? Þau eru algjörlega frábær." Indónesarfá2,4 milljarða aðstoð Yfírgnæfandi meirihluti nauðgara eru kvæntir eða hafa reglulegt kynlífssamband við aðra aðila. Amsterdam-Reuter ■ Hópur fjögurra alþjóðlegra lánastofnana og 12 ríkja sam- þykkti nú í vikunni 2,4 milljarða aðstoð við Indónesa á fjárhags- árinu 1985-1986. Upphæð aðstoðarinnar er í samræmi við óskir stjórnvalda í Indónesíu og hún er studd með- mælum Alþjóðagjaldeyrissjóðs-' ins. Hluti fjárins kemur frá Al- þjóðabankanum og Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum. Á fundi lánastofnana og ríkja, sem hafa bundist samtök- um um aðstoð við Indónesa, kom fram almenn ánægja með efnahagsþróunina í Indónesíu á síðasta ári þegar verðbólga minnkaði og hagvöxtur jókst. Aðstoðin verður notuð til að styrkja landbúnað og lítil og miðlungsstór iðnfyrirtæki til þess að auka fjölbreytni í út- flutningi Indónesa, sem nú byggist aðallega á olíu- og gasút- flutningi. Ali Wardhana samræmingar- ráðherra efnahags, fjármála og iðnaðar, sagði á blaðamanna- fundi að sérstök áhersla yrði lögð á vinnuaflsfrekan iðnað, enda er áætlað að um 1,7 milljón manns komi árlega út á vinnu- markaðinn í Indónesíu þar sem um 150 milljón manns búa.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.