NT - 07.06.1985, Síða 17

NT - 07.06.1985, Síða 17
taj Föstudagur 7. júní 1985 29 Utlönd Singapore: Stór hluti íbúa býr við sultarkjör - þótt ríkið sé næstauðugasta ríki Asíu ■ Ónefndur íslenskur ráð- herra líkti íslandi við Singpore á sínum tíma og þótti mörgum sú samlíking ansi kaldhæðnisleg ef ekki niðurlægjandi með tilliti til viðmælenda ráðherrans. En hvernig skyldi ástandið vera í Singapore sjálfu? prátt fyrir að Singapore sé eitt auðugasta ríki Asíu býr stór hluti íbúanna við fátækt. Stjórn- arleiðtoga dreymir hins vegar um að gera Singapore að eins konar „Sviss austursins“ við endalok þessarar aldar. Ibúar Singapore eru um 2,5 milijónir en samkvæmt heimild- um Reutersfréttastofunnar lifa um 100.000 íbúanna neðan fá- tæktarmarka og aðrar 300.000 íbúa rétt skrimta af launum sínum í landi þar sem stöðugar verðhækkanir dynja yfir íbú- ana. Félagsfræðingar telja, að eina lausn vandans sé að auka félags- lega þjónustu en stjórnvöld segjast aldrei munu samþykkja að gera Singapore að velferðar- ríki. Leitogi stjórnarandstöð- unnar, Joshua Jeyaretnam, ásak- ar hins vegar ríkisstjórnina um að hafa algerlega mistekist að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að binda enda á fátæktina. í síðustu viku lýsti vararíkis- stjóri Singapore Goh Chok Tong, því yfir á löggjafarsam- kundunni að óraunhæft væri að ætla að hægt yrði að útrýma fátæktinni þrátt fyrir ört vaxandi efnahagsbata eyjunnar. Hann sagði að reynslan sýndi að hvorki stórar ölmusur eða vel- ferðarkerfi, eins og hann orðaði það, leystu vandann. Aukin menntun og hagvöxtur myndu hins vegar verða aðalútgangs- punktarnir í aðgerðum ríkis- stjórnarinnar. Samkvæmt opinberum skýrsl- um tilheyra um 12% Singa- poremanna - um 300.000 manns - fjölskyldum sem hafa minna en 500 singapúrska dollara í mánaðarlaun, sem samsvarar um 9.000 íslenskum krónum og telst það undir framfærslumörk- um þar í landi. 100.000 þessara íbúa hafa þó rninna en 250 þarlenda dollara eða um 4400 íslenskar krónur í mánaðarlaun og það í ríki þar sem árstekjur á mann nema um 260.000 ís- lenskum krónum. Um 3.000 manns fá aðstoð frá hinu opin- bera sem nemur um 1.640 krón- um íslenskum fyrir einstakling á mánuði en um 4.400 krónum íslenskum á mánuði fyrir fjög- urra manna fjölskyldu og þaðan af stærri fjölskyldu. Félagsfræðingurin Cheah Hock Beng, sem stjórnaði fyrstu rannsókn sem gerð hefur verið á fátækt í Singapore, segir þessar opinberu greiðslur vera langt fyrir neðan áætlaðan fram- færslukostnað. Hann áætlar að fjögurra manna fjölskylda þurfi að minnsta kosti 365 singa- púrska dollara eða rúmlega 6.600 íslenskar krónur á mánuði sér til framfærslu. Cheah telur að, að ósekju mætti eyða meira af þjóðarauðnum til hjálpar fá- tækum og þar með yrði um leið komið í veg fyrir þjóðfélags- ólgu. Singaporemenn eiga um 23 billjón singapúrska dollara í gjaldeyrisvarasjóði sínum og hagvöxtur hefur aukist um 7,9% árlega frá árinu 1974 og stjórn- völd ætla sér að auka hann um 5-7% árlega út þennan áratug. Að sögn Reutersfrétta- stofunnar sveltur enginn í Singapore en betlarar sjást enn fyrir framan skýjakljúfa og lúx- ushótel. Sonur forsætisráðherrans Lee Kuan Yews, Lee Hsien Long ráðherra heldur því fram eins og faðir .sinn að velferðarkerfi geri meiri skaða en hitt. En talsmaður bandarísks fyrirtækis sem kannar fjárfestingarmögu- leika vítt og breitt um veröldina varaði nýlega við vaxandi þjóð- félagsólgu í Singapore vegna misskiptingar auðsins. Hann sagði að þegar ríki hafi eins mikinn hagvöxt og Singapore sé óhjákvæmilegt að fólk í lægri þrepum þjóðfélagsstigans fyllist gremju vegna misskiptingar auðæfanna. Pað fólk taki að spyrja, hvað orðið hafi um þeirra þátt í öllum þessum vax- andi hagvexti. Mrún Geislavirkt flug í Evrópu? London-Rcuter ■ Stjórnvöld á Bretlandi eru nú að kanna möguleika á því að flytja geislavirkan úr- gang úr breskum kjarnorku- verum með flugvélum til meginlands Evrópu til að láta endurvinna hann þar. Talsmaður stjórnar breskra kjarnorkuvera segir að stjórnin hafi nú til athug- unar áætlun um að senda blöndu af plútoníum og úraníum-oxíði með flugi til meginlandsins til endur- vinnslu. Þegar kjarnorkuúr- ganginum hafi síðan verið breytt í kjarnorkueldsneyti væri hugmyndin að fljúga með það aftur til Bretlands þar sem það verði notað sem eldsneyti í nýju kjarnorku- veri sem ætlunin er að reisa í Skotlandi. Stjórn kjarnorkuveranna heldur því fram að sáralítil hætta fylgi þessum geisla- virku flugflutningum. Ekki er gert ráð fyrir því að flugið með geislavirka úr- ganginn hefjist aftur fyrr en á næsta áratugi. Talsmaður stjórnar kjarnorkuveranna segir flutningana að öllu leyti í samræmi við þær öryggis- reglur sem alþjóðakjarn- orkustofnanir hafi sett og bresk lög geri ráð fyrir. Albanir vilja bæta tengslin við Júgóslavíu Vín-Reuter ■ Forsætisráðherra Alban- íu, Adil Carcani, hefur látið í ljós áhuga á því að bæta samskipti Albana og Júgósl- ava en þau hafa löngum verið stirð. Albanska fréttastofan ATA hafði eftir forsætisráð- herranum að flokkurinn í Albaníu og ríkisstjórnin hefðu alltaf lagt sérstaka áherslu á samskipti við ná- grannaríkin. Hann sagði að stjórnin teldi að þrátt fyrir ósættanlegar mótsetningar á milli Albana og Júgóslava í hugmyndafræði og stjórn- máluni væri mögulegt að koma á eðlilegum samskipt- um. Fyrrverandi leiðtogi al- banskra kommúnista, Enver Hoxha, sem lést fyrir skömmu, réðst oft harkalega á Júgóslava fyrir hentistefnu, kapítalisma og þjónkun við erlenda heimsvaldastefnu. Hann hélt því fram að Tito og aðrir leiðtogar Júgóslava hefðu reynt að innlima Al- baníu í Júgóslavíu og svipta Albani þannig sjálfstæði. Urn 1,7 milljón Albanir eru búsettir í Júgóslavíu. Al- bönsk stjórnvöld liafa ásakað Júgóslava fyrir kúgun á þess- úm albanska minnihluta. NATO-fundurinn í Portúgal: Bandaríkin hætta við kröfur um stuðning við stjörnustríðsáætlunina Ksloril, Portú}>al-ReuIer ■ Bandaríkin féllu í gær- kvöldi frá tilraunum til að fá utanríkisráðherra NATO til að fallast á stjörnustríðsáætlun Reagans Bandaríkjaforseta vegna sterkrar andstöðu Frakka við áætlunina. Háttsettur bandarískur embættismaður sagði blaða- mönnum að loknurn fyrsta degi fundarins í Estoril að Frakkar vildu aðeins viður- kenna mikilvægi rannsókna á vörnum gegn kjarnorkuvopn- um. Hann sagði ennfremur að ef ómögulegt reyndist að fá aðildarríkin til að fallast á áætlunina væri ekkert vit í því að gera sameiginlega ályktun um hana. Háttsettur franskur emb- ættismaður sagði að ekki kæmi lil greina að samþykkja stjörnustríðsáætlunina þar eð Frakklandsforseti, Francois Mitterrand, hefði fordæmt hana á í'undi sjö helstu ríkja Vesturlanda í Bonn í síðasta mánuði. Evrópskir stjórnarerindrek- ar sögðu að NATÓ ráðherr- arnir myndu í staðinn gefa almenna yfirlýsingu til stuðn- ings Bandaríkjunum í afvopn- unarviðræðunum í Genf en Bandaríkin myndu skoða það sem óbeinan stuðning ríkj- anna við afstöðu þeirra til geimvopna. Stjórnarerindrekarnir sögðu að Frakkar væru ekki einir um að vilja ekki leggja blessun sína á stjörnustríðs- áætlunina, því að Danir, Norðmenn, Svíar og Grikkir settu líka skilyrði fyrir stuðn- ingi sínum við hana. Kanaríeyjar griðastaður sovéska f iskvei ð if lotans ■ Konur hafa líkast til ekki hærri laun í „Singapore suðursins“ en í „Singapore norðursins". Las Palmas-Rcuter ■ Sovétmenn hafa sýnt áhuga á því að færa út kvíarnar á Kanaríeyjum þar sem þeir hafa lengi haft stóra slippstöð til viðgerða og eftirlits með At- lantshafstogurum sínum. Þeir vilja bæta aðstöðuna sína þar þannig að hún geti einnig sinnt sovéska kaupskipaflotanum. Jeronimo Saavedra forseti heimastjórnarinnar á Kanarí- eyjum segir að Sovétmenn hafi lagt fram formlegt tilboð um stofnun sameiginlegs fyrirtækis með heimamönnum til að sjá um viðgerðir á sovéskum kaup- skipum. Saavedra, sem er ný- kominn úr heimsókn til Sovét- ríkjanna, segir að nýja fyrirtæk- ið yrði með svipuðu sniði og spænsk-sovéska fyrirtækið Sov- hispan sem sér um viðgerðir á sovéska togaraflotanum á At- lantshafi. Fyrstu sovésku togararnir komu til Las Palmas á Kanarí- eyjum árið 1964 þegar fasistar voru við völd á Spáni. Nokkrum árum síðar tóku Sovétmenn upp formlega samvinnu við Spán- verja urn viðgerðir og eftirlit á sovéskum togurum og Sovhisp- an var stofnað árið 1971 fjórum árum fyrir dauða Francisco Franco. Sovhispan er nú orðið eitt af stærstu fyrirtækjunum í Las Palmas. Talsmenn fyrirtækisins segja að tekjur af því hafi nurnið um fjórum milljörðum peseta á seinasta ári (tæpl. einn milljarð- ur ísl. kr.). Á hverju ári koma sovéskir togarar að meðaltali 650 sinnum í höfn í Las Palmas og fá þar ýmiss konar þjónustu. Sovhispan hefur m.a. milli- göngu um áhafnaskipti á þess- um togurum. Á seinasta ári aðstoðaði fyrirtækið við skipti á 22.000 sovéskum áhafnarmeð- limum og tók á móti 39.000 sjómönnum á togurunum þar fyrir utan. Fjögur hundruð sovéskir við- gerðarmenn starfa að jafnaði hjá Sovhispan og meira en 60% af öllum viðgerðum í Astican- skipasmíðastöð spænska ríkis- ins eru gerðar á sovéskum togurum. Bandamenn Spánverja í NATO hafa sumir látið í ljós ugg vegna mikilla umsvifa Sov- étmanna á Kanaríeyjum. En Spánverjar segjast ekki hafa orðið varir við neina njósna- eða hernaðarstarfsemi. Einung- is sé þsrna eðlileg þjónusta við fiskveiðiflota Sovétmanna. Það er Ijóst aðviðskiptin við Sovétmenn verða enn mikilvæg- ari og vera þeirra á Kanaríeyj- um enn meira áberandi ef samn- ingar takast um stofnun við- gerðar- og þjónustufyrirtækis við sovéska kaupskipaflotann í Las Palmas.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.