NT - 22.06.1985, Blaðsíða 5
ÍT]j Laugardagur 22. júní 1985 5
Ltl w Fréttir
■ Þau voru ekki í sólbaði á verönd sumarbústaðarins sem verður fyrir utan Kjarvalsstaði um helgina.
Þau voru bara beðin um að fylla sér þarna örstutta stund meðan Ari Ijósmyndari NT tæki myndir af
þessum ágætu forsvarsmönnum iðnsýningar Rangæinga. Sumarbústaðurinn er hluti af þeirri sýningu.
„Blandaður kokkteill“ á
Kjarvalsstöðum um helgina
■ Á iðnsýningu Rangæinga á
Kjarvalsstöðum um helgina
verða barir, sumarhús og súr-
heystætarar. - Og ekki bara
það. Rangæingar verða þar með
sýnishorn af allri sinni fram-
leiðslu; húsgögn, Þykkva-
bæjarparísar og Þykkvabæjar-
franskar, gler, listmuni, þak-
rennur, verkfæraskápa, fatnað
og margt fleira. „Það verður
blandaður kokkteill í húsinu,“
eins og Árni Johnsen alþingis-
maður og hvatamaður að sýn-
ingunni komst að orði.
Sýningin stendur í þrjá daga;
hefst á föstudag klukkan þrjú
og lýkur á sunnudagskvöld. Að-
gangur að henni er ókeypis. Við
opnunina syngur m.a. barnakór
Rangæinga, bændur úr sýslunni
spila á harmoníku og óvæntir
gestir koma í heimsókn.
Fyrirtæki í Rangárvallasýslu
sameinuðust um að slá upp
þessari sýningu til að kynna þá
framleiðslu sem á sér stað í
sýslunni, til þess að auglýsa
fyrirtækin þar og auðvelda sölu
; þeirra á framleiðslu sinni á inn-
lendum markaði. Og ekki síst:
Til að komast nær viðskiptavin-
unum í Reykjavík.
Rangárvallasýsla hefur eink-
um verið þekkt fyrir landbúnað
en á síðustu árum hefur iðnað-
arframleiðsla þar aukist mikið
og nú hafa hátt í 500 manns-
atvinnu af henni.
AXEL ER HUEITUR HL LEIKS
Nýr Citroen fyrír270.000." kiónur*
Axel, yngsti meðlimur Citroén
fjölskyldunnar er mættur til leiks á
smábílamarkaðinn. Þar með gefst
enn fleirum kostur á því að eignast
Citroén á verðisem allirgeta ráðið við.
ALVÖRU BÍLL FYRIR
270.000.- KRÓNUR
Á þessu verði skiparAxel sér á bekk
með ódýrustu bílum á íslandi. Hann
ber þess þó engin merki því vel hefur
verið til hans vandað og Citroén
gæðin eru alltaf jafn áreiðanleg.
EINSTAKIR
AKSTURSEIGINLEIKAR
Axel er framhjóladrifinn með
sjálfstæðri fjöðrun á öllum hjólum,
sem gefur hefðbundinni Citroén
vökvafjöðrun lítið eftir. Hann liggur
því vel á vegi, gripið er óvenju gott
og fyrir vikið reynist hann sérlega vel
á malarvegum og í vetrarfærð.
Stýrið er lipurt, stjórntæki eru vel
staðsett og sætin afar þægileg.
STERKUR OG
ÖRUGGUR
Af smábíl að vera er Axel einstak-
lega sterkbyggður og traustvekjandi.
Sérstaklega ber að geta yfirbygging-
arinnar sem veitir þér og farþegum
þínum mikið öryggi. í bílnum eru
diskabremsurá öllum hjólum, sem er
óvenjulegt fyrirbíl í þessum stærðar-
flokki en ótvírætt öryggisatriði.
Aðstaða ökumanns er einnig
afbragðsgóð. Hann situr hátt og
hefur góða yfirsýn yfir veginn
framundan og öll stjórntækin.
STÓRT
FARANGURSRÝMI
Farangursrými Axels er tæpir 300
lítrar. Auðvelt er að ferma og
afferma hann í gegnum stórar
afturdyrsem opnast vel. Með því að
leggja niður aftursætið tvöfaldast
rýmið í 600 lítra.
BÍLASÝNING
Við verðum með Axel til sýnis og
reynsluaksturs í Lágmúla 5 á milli kl.
14og 17 í dag. Það er vel til fundið
að koma og sannreyna kosti Axels
af eigin raun.
Alvöru bíll fyrir kr. 270.000.-,
skráður, ryðvarinn og stútfullur af
bensíni - betri kostur finnst varla.
CITROÉN A