NT - 29.06.1985, Side 2

NT - 29.06.1985, Side 2
Britax bílbelti fyrir börnin. Sérhannað, stillan- legt, öruggt og þægilegt fyrir krakka á aldrinum 4-11 ára. Verð kr. 1.329.- Áður kr. 1.709,- Laugardagur 29. júní 1985 2 Fréttir Framhaldsskólarnir: Mikill kenn araskortur Oraga verður úr raun- ðreina- kennslu ■ Ekki er útlitið gott með að fá kennara í framhaldsskólana næsta vet- ur og er þá sérstaklega átt við kennara í raungreinum. Auglýstar voru 28 stöð- ur kennara í eðlisfræði, stærðfræði og tölvufræði í vor, en aðeins fímm hafa sótt um þær, flestir réttindalausir. Á aðalfundi Skólameistarafélags ls- lands sem haldinn var fyrr í þessum mánuði, lýstu menn yfir áhyggjum sínum vegna þessarar slæmu þróunar sem rekja má beint til lélegra launakjara framhaldsskólakennara. Er ekki annað sýnna en að fella verði niður að veru- legu leyti kennslu í fyrrnefndum grein- um í mörgum framhaldsskólum. Vill fundurinn vekja athygli mennta- málaráðherra á þessu alvarlega ástandi og skorar á stjórnvöld að gera þegar í stað ráðstafanir til að kennslustörf verði eftirsóttari. SUMAR- TtTROÐ SKEDUNGS Autostar áklæðin eru einlit, teygjanleg, úr 100% polyakrýlefni. Fást í 5 litumog passaáflest sæti. Verð kr. 1.695.- Áður kr. 2.415,- 5 lítra eldsneytisbrúsi úr plasti með sérlega þægilegum stút til að hella á (tóman) tankinn. Verð kr. 187.- Áður kr. 267.- Ultraflame spritt- töflurnar eru tilvaldar í útigrillið og í arininn. 64 töflur í pakka. Verð kr. 25.- Áður kr. 90.- Blue Poly gljáhjúpur- inn er bón- og hreinsiefni sem gengur í samband við bílinn og ver hann gegn óhreinindum. Verð kr. 150.- Áður kr. 198,- ■ Frá launadcilu BHMR í vor. Afleiðing lélegra launakjara er fyrirsjáanlegur kennara- skortur í framhaldsskólum. Misskilningur hjá Ragnari Júlíussyni: Lesverið hugsað fyr- ir elstu nemendurna ■ „Það er misskilningur, sem fram kemur hjá Ragnari Júlíussyni í NT, að lesver sem sótt var um aðstöðu fyrir í Miðbæjarskólanum hafi verið hugsað fyrir yngstu nemendurna. Það var þvert á móti hugsað fyrir þá aldursflokka sem hafa aðstöðu fyrir í Mið- bæjarskólanum.“ Þetta sagði Málfríður Musica Nova: dramatískt verk óskast ■ Um þessar mundir lýsir MUS- ICA NOVA eftir umsóknum um styrki til þess að smíða og færa upp músík-dramatískt verk. í umsókn- unum skal tilgreina þær hugmyndir sem liggja að baki verkinu, rekja að einhverju leyti framvindu þess ef því verður viðkomið og tilgreina þá samstarfsaðila sem höfundur hefur í huga við uppfærslu verksins. Aöspurð sagði Karólína Eiríks- dóttir formaður NM að félagsskapur inn hefði það markmið að flytja nýja músík, bæði innlenda og er- lenda en styrkti gjarnan íslensk tónskáld til að semja tónverka. Áður hefði MN lýst eftir og flutt stutt kammerverk, en þetta væri í fyrsta skipti sem lýst væri eftir músík-dramatískum 'verkum sem ætlað væri að taka heilt kvöld í flutningi. Umsóknarfresfur er til 1. sept- ember næstkomandi og skal um- sóknum skilað á skrifstofu Islensku tónverkamiðstöðvarinnar að Freyjugötu 1 Reykjavík, eða til stjónarmanna MUSICA NOVA. Ragnarsdóttir yflrkennari Vesturbæjar- skóla í samtali við NT í gær. Ragnar Júlíusson formaður fræðsluráðs Reykjavíkur sagði í viðtali við blaðið í gær, að hann hefði verið á móti því í fræðsluráði að Vesturbæjarskóli fengi þessa aðstöðu, þar sem ekki væri hægt að leggja það á t.d. 6 og 7 ára börn úr vesturbænum að sækja kennslu yfir í Miðbæjarskóla. Málfríður Ragnarsdóttir sagði að stuðningskennsla fyrir yngri bekki Vesturbæjarskóla yrði áfram í húsnæði þess skóla, en hugmyndin hefði verið að fá stofu í Miðbæjarskólanum, þar sem fram færi einstaklingsbundin stuðn- ingskennsla fyrir nemendur 5. og 6. bekkjar annars vegar og hins vegar aðstaða fyrir sér- kennara, þar sem gögn og tæki fyrir sér- kennsluna væru geymd. Fræðsluráð mun ekki hafa svarað beiðni Vesturbæjarskólans um lesver formlega, en Ragnar Júlíusson aftók að við henni yrði orðið í viðtali við NT í gær. Evrópumótið í bridge: Norðmenn fengu til tevatnsins ■ ísland bætti stöðu sína verulega í opna flokknum á Evrópumótinu í bridge, með því að vinna Norð- menn í 9. umferð mótsins. Liðið er nú í 9.-10 sæti. Kvennaliðinu gengur mið- ur en það hefur tapað þrem fyrstu leikjum sínum. {sland vann Luxemb- urg, neðsta liðið, í frekar rólegum leik í 8. umferð. Jón og Sigurður spiluðu allan leikinn en Aðal- steinn og Valur og Jón og Símon skiptu í hálfleik. Jón og Sigurður spiluðu einnig allan leikinn gegn Norðmönnum. Fyrri hálf- leikinn með Aðalsteini og Val sem var nokkuð jafn. Jón og Símon spiluðu seinni hálfleikinn og kom- ust lítið áfram gegn Mæs- elbræðrunum sem spiluðu mjög vel. Við hitt borðið tóku Jón og Sigurður hins- vegar nýliðana í norska liðinu, Voll og Stövning, í kennslustund, og loka- staðan varð 78-63 fyrir ís- land eða 17-13. Kvennaliðið tapaði í 2. umferð fyrir Sviss, 13-17 og síðan fyrir Póllandi, 11-19 í þeirri þriðju. Að loknum 9 umferð- um voru {sraelsmenn efstir með 170 stig en Frakkar og Bretar komu næstir með 165 stig. íslendingar eru ásamt Portúgölum í 9.-10.sæti með 138 stig. { gærkvöldi spilaði ís- lenska liðið við Finna, og í dag spilar það við Sviss- lendinga og Frakka. Á morgun spilar liðið síðan við Austurríki og Belgíu. Blaðamenn fá ekki höfundargreiðslur: Átelja harðlega seina gang ríkisvaldsins - lögfræðingi BÍ falið að grípa til aðgerða P „Aöalfundur Blaöamannafélags ráðherra til þess að Islands átelur harðlega þá töf, sem orðin er af hálfu ríkisins á greiðlsu þess fjár, sem ríkinu sem rikinu var gert að greiða samtökum höfunda fyrir fjöl- földun í skólum með gerðardómi uppkveðnum 4. maí 1984. Þessi af- staða ríkisvaldsins er þeim mun undarlegri sökum þess, að á sl. ári voru sett lög um mun harðari viðurlög fyrir brotum á höfundarrétti en áður höfðu gilt, þannig að nú liggur allt að tveggja ára fangelsisvist við þessum hrotum.“ Svo segir í upphafi bréfs. sem Blaðamannafélag íslands hefur sent Ragnhildi Helgadóttur menntamála- reka á eftir greiðslum fyrir notkun efnis félags- manna B{ í skólum landsins. í bréfinu segir, að það verði að teljast fráleitt fordæmi, þegar ríkis- valdið virði að vettugi löglega upp- kveðna dóma í landinu. Blaðamanna- félagið hefur falið lögmanni sínum að koma á lögbanni á ólögmæta fjölföld- un í skólum, helst áður en skólastarf hefst aftur í haust. Jafnframt að kæra hið fyrsta hið ólöglega athæfi til saksóknara ríkisins, svo unnt verði að kalla hlutaðeigandi aðila til refsi- ábyrgðar, jafnframt skólayfirvöld sem einstaka kennara. TILBOÐIÐ GILDIR MEÐAN BIRGÐIR ENDAST BENSINSJOÐVAR SKBJUNGS

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.