NT - 29.06.1985, Blaðsíða 23

NT - 29.06.1985, Blaðsíða 23
■ Þorgils Óttar og leikmennirnir í A-liðinu fóru létt með Hollendingana í gær. Laugardagur 29. júní 1985 23 Flugleiðamótið í handknattleik: SiguráHollendingum A-liðið vann þá létt í Hafnarfirði í gærkvöldi 26*18 ■ íslenska A-liðið í hand- knattleik sigraði það hollenska í Flugleiðamótinu í handknatt- leik í gærkvöldi með 26 mörkurn gegn 18. Leikurinn fór frarn í Hafnarfirði. íslenska liðið var að allan tímann og hefði getað unnið stærri sigur. Ekki var þó handknattleikurinn mjög burð- ugur enda unt æfingamót að ræða og ekki iagt allt undir. Eins og geta má þá höfðu íslendingar yfir allan tímann og var munurinn á stundum 10 ntörk. Þannig var staðan orðin 23-13 ísíðari háltleik. íslending- ar gáfu síðan eftir í lok leiksins og Hollendingar réttu aðeins úr kútnum. Lokatölur urðu þó 26-18 eins og fyrr segir. Páll Ólafsson var atkvæða- mestur íslendinganna gerði alls 10 mörk en Sigurður Gunnars- son var honum næstur með 6. 3. deild Islandsmótsins í knattspyrnu: Létt hjá Grindavík - sigraði Ármenninga á heimavelli sínum ■ Grindvíkingar unnu sanngjarnan og stóran sigur á Armenningum í gærkvöldi í A-riðli 3. deildar. Leikurinn sem frarn fór í Grindavík endaði 5-0. Símon Alfreðs- son gerði tvö mörk og þeir Hjálmar Hallgrímsson, Ragnar Eðvarðsson og Guðni Bragason gerðu eitt mark hver. Hjálmar úr víti. Ármenningar klikkuðu á víti í leiknum og einum þeirra, Smára Jósafatssym var vísaö at velli í síöari hálfleik. Grindvíkingar voru mun frískari en Ármenningar gáfust þó aldrei alveg upp. Mjög góður dómari leiksins var Karl Ottesen. Valur vann ■ Valur sigraði ÍBÍ 7-1 í fyrstu deild kvenna á ísafirði í gærkvöldi. Guðrún Sæmundsdóttir, og Ragnheiður Skúla- dóttir gerðu tvö mörk. Margrét Óskars- dóttir, Eva Þórðardóttir og eitt mark Vals var sjálfsmark. Harpa Björnsdóttir skor- aði fyrir ÍBÍ. Magni vann ■ Magni frá Grenivík sigraði Hug- inn á Grenivík í 3. deild í fyrradag með tveimur mörkum gegn einu, 2- 1. Heimir Ásgeirsson kom Magna yfir eftir að Bjarni Gunnarsson hafði brennt af víti fyrir heima- menn. Birgir Guðmundsson jafnaði úr víti fyrir Huginn en Hringur Hafsteinsson skoraði sigurmark Magna með skalla skömmu fyrir leikslok. Tjörnes líka Þá var einn ieikur í 4. deild í fyrrakvöld. Tjörnes vann Æskuna 3- 2 á Húsavík. Sigurður Illugason, Magnús Hreiðarsson og Guðmund- ur Jónsson skoruðu fyrir Tjörnes. OgUBK UBK og Þór spiluðu í 1. deild kvenna á Akureyri í fyrrakvöld og unnu Blikastúlkurnar stórsigur 6-1 Ásta María Reynisdóttir og Erla Rafnsdóttir gerðu sitt hvora þrenn- una en Anna Einarsdóttir skoraði fyrir Þór undir lok leiksins. INNIAUSNARVERÐ VAXTAMBA VERÐTRYGGÐRA SPARISKlRTEINA RlKISSJÓÐS (1. FL B 1985 Hinn 10. júlí 1985 er fyrsti fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B 1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 1 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 5.000,- kr Vaxtamiði með 10.000,- kr Vaxtamiði með 100.000,-kr skírteini = kr. 193,21 skírteini = kr. 386,42 skírteini = kr. 3.864,21 Ofangreindar fjárhæðir eru vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. janúar 1985 til 10. júlí 1985 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006 hinn 1. janúar sl. til 1178 hinn 1. júlí nk. Athygli er vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða nr. 1 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, Reykjavík, og hefst hinn 10. júlí n.k. Reykjavík, 26. júní 1985 SEÐLABANKI ÍSLANDS Helgarsportið ■ Knattspyrna: í dag byrjar áttunda umferðin í 1. deild karla á íslandsmótinu í knatt- spyrnu. Tveir leikir verða í dag og hefjast báðir kl. 14:00. Víðir og KR leika í Garðinum en Víkingur og Skaginn leika á Laugardalsvelli. Tveir leikir verða svo á morgun, sunnudag. Þeir verða báðir kl. 20:00 og eru það leikir Fram og FH á Laugardalsvelli og leikur Þórs og Þróttar á Akureyri. Síðasti leikur umferðarinnar verður á mánudags- kvöld er Valur og IBK hittast kl. 20:00 á Laugardalsvelli. Fjórir leikir verða í 2. deild í dag. Völsungur og ÍBV og Leiftur og KS leika kl. 14:00 en Breiðablik og Skallagrímur leika í Kópavogi kl. 16:00. Þá leika Njarðvíkingar gegn Fylki kl. 17:00. Síðasti leikur um- ferðarinnar verður á ísafirði á sunnu- dag kl. 17:00 er heimamenn mæta KA. í 1. deild kvenna verða tveir leikir. KR-stúlkur fara til Akureyrar og spila við KA í dag kl. 14:00 og á morgun við Þór kl. 14:00. Þá eru leikir í 3. og 4. deild um helgina víða um land og margir hverjir hreinir toppleikir. Frjálsar íþróttir: Norðurlandsleikar æskunnar hóf- ust á Sauðárkróki í gær og standa fram á morgundaginn. Golf Opna GR-mótið fer fram um helg- ina og er þaö punktamót. Handknattleikur: Flugleiðamótið stendur sem hæst um þessa helgi. (sjá annarstaðar í blaðinu). &ÆLUVIKA SauZmktóki -OSTUDAGUR 28. JUNI Norðurlandsleikar æskunnar Setningarathðfn með skrúðgöngu um bæinn. LAUGARDAGUR 29 JUNI Norðurlandsleikar æskunnar Golfkeppni unglinga Diskólek í Grænuklauf Týról Tíbet SUNNUDAGUR 30. JUNI Messa í Sauðárkrókskirkju Tindastólsmót á golfvelli Norðurlandsleikum æskunnar slitið. Opnun myndlistarsýningar Sigrúnar Eldjám, Guðrúnar Gunnarsdóttur og Borghildar Óskarsdóttur. MANUDAGUR 1. JÚLI Grettir og free-style danskeppni . í Bifröst ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLI Útiskákmót v/Faxatorg. Þjóðleikhúsið sýnir „Með vífið í < lúkunum''. , I, MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ Gítartónleikar í Safnahúsinu - Þórólfur Stefánsson Grettir og danskeppni í Bifröst FIMMTUDAGUR 4, JULI Jazzkvöld í Bifröst Útibridgemót v/Faxatorg. FÖSTUDAGUR 5. JÚLI Ungiingaball í Bifröst - Belfigour Harmóníkuball á Faxatorgi. Geirmundur Valtýsson og félagar. LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ Bæjakeppni á golfvelli: Ólafsfjörður, Siglufjörður. Sauðárkrókur Drýsill Utidansleikur í Grænuklauf - Rokktónleikar í Grænukiauf Drýsill - Gypsy - Týról o.fl. Lokadansleikur i Bifröst - Geimsteinn. SUNNUDAGUR 7. JULI Utifjölskylduskemmtun i Grænuklauf Hestamót Léttfeta ALL4 DAGANA Afsláttur af fargjöldum Flugleiða Drangeyjarferðir frá Hressingarhúsi Uppákomur á Hóteli og Sælkerahúsi Nætursala í Hressingarhúsi Hestaleiga Ingimars Pálssonar Myndlistarsýning í Safnahúsi.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.