NT - 29.06.1985, Blaðsíða 12
Laugardagur 29. júní 1985 12
Éiiiainr' ■
Annie
Lennox
Hin sérkennilega
söngkona Eurytmics
v^ \ v 4
|I>HII1III'I|I|I||I1—ilI III|IW—IIHíllillWiHíil
iMnnmBMn
■ Hún Annie Lennox, betri helmingur hljómsveitarinnar
Eurytmics, er án el'a einn athyglisverðasti og jafnframt
sérstakasti listamaður poppbransans.
Lennox hefur skapað sér sérstæða ímynd. Karlmannleg
hárgreidsla hennar og karlmannlegt fas myndar skemmtilega
andstöðu við kvcnlegan andlitsfarða og dálxti hennar á
skartgripum og öðru glysi.
100.000 fagna MEZZO
■ Hljómsvcitin Mezzoforte sló í gegn á
Jónsmessuvökti í Barcelona. Hljómsvcitin
koin |»ar fram ásamt þremur spænskum
hljómsveitum og var Mezzoforte gífurlega
vel lagnað.
Hljomsvcitin hóf leik sinn eftir miðnættið
og áhorfendur ætluðu ekki að hleypa þeim
al' sviðinu, þvílík voru fagnaðarhetin. I»eir
voru klappaðir upp í tvígang og í lokin
spihiöu þcir undir marglitu skini ilugelda
sem skotið var upp í lok tónleikanna. Á
annað hundrað þúsund manns fylgdust með
leik hljómsveitarinnar auk þess sem tón*
ieikunum var sjónvarpað beint um víöan
Spán.
I’essa hclgina spilar Mezzoforte á mikilli
tónlistarhátíð í St. Gallens í Sviss, l’aðan
liggur leiöin til Þýskalands og 8.-11. júlí
leikur hljómsveitin í Finnlandi og kemur
ntcðal annars fram á velþekktri djasshátíð í
Pori. Síðan liggur leiðin aftur til Þýskalands
og leika þeir þar á inörgum lónleikum. Hljóm-
sveitin Itefur fengið mikið áf tilboöum
undanfaríð og Ijóst er að mikið verður að
gera hjá strákunum langt fram á haust.
Með Mezzoforte í þessari hljómleikaferð
er söngvarinn Weston Foster og hollenski
slagverksleikarinn Jerone I)c Rijk og danski
saxófónleikarinn Niels Malk Holnt.
Konan Annie Lennox er
skosk að ættum. Að eigin sögn
var hún dálítið utanveltu sem
barn og unglingur. Ilún lagði
stund á tónlistarnám, lærði á
píanó og spilaði á flautu i
skólahljómsveitinni. Sem ung-
lingur sat hún öllum stundum
heima við, gutlaði á píanóið og
setti saman Ijóð. Hún átti litla
sem enga sainleið með jafn-
öldrum sínum.
Sextán ára gömul fór hún að
umgangast sér eldra fólk og
leiddist brátt inná brautir dæg-
urtónlistarinnar. Hún kom
víða við í tónlistinni og kom
fram á mörgum „pöbhum" og
litlum klúbbum. Frægðin lét
þó á sér standa, þar til hún
kynntist Dave Stewart. Saman
stofnuðu þau eina virtustu
hljómsveit samtimans, liljóm-
sveitina Eurytmics. Frá þeim
fór að koma hvert gæðalagiö
á fætur öðru, nægir í því sam-
bandi að nefna lög eins og
„Here comes the rain again“,
„Who’s that girl“, „Love is a
stranger“ og nú síðast „Whould
I lie to you“.,
Annie Lennox er kona sem
fer sínar eigin leiðir. Hún er
ekkert gefin fyrir blaðaviðtöl
og hefur lítið látið uppi um
sjálfa sig og samstarfið við
Dave Stewart. Það var því
hcilög skylda NT að stela bút-
um úr stórgóðu viðtali sem
erlent tímarit átti við Lennox
núna snemma í vor. Hún var
fyrst spurð um samstarf liennar
og Stewarts.
„Ef tvær manneskjur eiga
náið samstarf getur tvennt
gerst. Annarsvegar að ein-
staklingarnir nái ekki saman
og þróist hvor í sína áttina.
Slíkt samstarf er auðvitað
dauðadæmt. Hinsvegar geta
einstaklingarnir reynt að að-
lagast hvor öðrum og virt
skoðanir hins aðilans. Sam-
starf okkar í Eurytmics hefur
þróast í þessa átt. Nú orðið
skiljum við vel hugsanagang
hvort annars og ættum því að
geta virkjað það besta í vinnu
okkar.
Ég er ekki frá því að fyrri
plötur okkar beri þcss merki
að samstarf okkar hafí ekki
þróast til fulls. Nú orðið þekkj-
um við okkar takmörk og virð-
uin gerðir hvort annars. Við
störfum hlið við hlið og stönd-
um ekki í vegi hvort fyrir öðru.
Við erum Eurytmics og hljóm-
sveitin stendur og fellur með
okkur, þess vegna verðum við
að viröa hvort annað sem lista-
menn,“
Hvernig er með vinnuað-
ferðir ykkar? Gengur allt upp
í stúdíóinu og vinnið þið þar
kannski lengi án þess að nokk-
ur árangur náist?
„Það er vissulega allur gang-
ur á því. Stundum kemur það
fyrir að hlutirnir ætla ekki að
ganga upp. Þá gefum við því
lagi sem við erum að vinna að
frí um tíma. Við tökum svo
upp þráðinn síðar og erum þá
kannski í betra formi. Stund-
um sjáum við líka hvað er að
þegar við erum komin heim og
farín að slappa af. Þá eru
málin yfírleitt leiðrétt strax
næsta dag.
Venjulega fínnum við strax
ef lögin okkar og upptökurnar
eru ekki eins og þær eiga að
vera. Það er reyndar stærsti
kostur listamanna að geta gert
sér grein fyrir því hvernig hlut-
imir eiga ekki að vera. Við í
Eurytmics höldum ekki uppá
lög og hugmyndir ef við erum
ekki hundrað prósent viss um
að séu akkúrat það sem við
viljum.“
Hvað með sviðsframkom-
una. fínnur þú fyrir sviðsótta?
„Já, ég geri það og hversu
ótrúlegt sem það er, þá kemur
sviðsóttinn yfírlcitt í draumi og
skiptir ekki máli hvort ég sé á
tónleikaferðalagi eða ekki.
Þetta eru sannar inartraðir og
ég verð verulcga óttaslegin.
Ég hef mikla reynslu í að
koma fram og hef aldrei lent í
neinuin vemlegum vandræð-
um á sviði. Það getur komið
fyrír alla að byrja að syngja á
vitlausum stað í laginu eða
ruglast lítillega í textanum.
Þegar þessháttar hlutir koma
fyrir mig þá brosi ég bara, eitt
bros getur nefnilcga borist
langt.“
ÍNotar þú einhverjar sérstak-
ar aðferðir til þess að koma þér
í form fyrir tónleika?
„Venjulega þarf ég ekki að
koma mér i ncitt ákveðið form,
þetta kemur allt einhvern veg-
inn að sjálfu sér. Maður veit af
tónleikunum framundan og þá
eykst spennan og krafturinn,
fyrr en varir ertu svo kominn í
rokna stuð.
Hitt er svo annað mál að rétt
fyrir tónleika fer maginn að
ólga og ég tek að skjálfa. Ég
hcld að það séu eðlileg
viðbrögð. Ég get fullyrt að ég
er aldrei fullkomlega róleg rctt
fyrir konsert.“
Hvað með röddina, atvinnu-
tæki söngvarans, kemur það
einhvern tímann fyrir þig að
missa röddina?
„Já því miður það geríst allt
of oft þegar ég hef sungið
mikið í langan tíma. Ég hef
ekki þjálfað röddina sem
skyldi auk þess sem ég fer illa
með hana, ég misbýð henni
oft. Þegar röddin fer er ekki
nema eitt að gera, nefnilega
halda kjafti. Þá má ekki
syngja, tala eða nokkurn
skapaðan hlut gera sem reynt
getur á raddböndin. Þetta er
sérlcga erfítt á tónieikaferða-
lögum, þá skipta konsertarnir
öllu máli og ég reyni að þegja
sem mest á milli, það er meðal
annars þess vegna sem ég er
nísk á b!aðaviðtöl.“
(Byggt á Interview og Sound)