NT - 29.06.1985, Blaðsíða 14

NT - 29.06.1985, Blaðsíða 14
Laugardagur 29. júní 1985 14 Rás 2 mánudag kl. 17. -18. Kántrý og karate m.a.í„Takatvö“ ■ Þáttur Þorstcins G. Gunn- arssonar Taka tvö er á Rás 2 á mánudaginn kl. 17, en þar eru eingöngu leikin lög úr kvik- myndum sem kunnugt er. Það mætti halda að sá sjór yrði einhvern tíma þurrausinn. Því svarar Þorsteinn hins vegar ákveðið neitandi og segir hreint með ólíkindum hversu mikið komi út af kvikmynda- tónlist. í þættinum í dag kennir ýmissa grasa. Þar leikur Þor- steinn lög úr myndinni Rhine- stone, sem verið er að sýna í Reykjavík þessa dagana. Þar afrekar Dolly Parton það að gera Sylvester Stallone að kán- trýsöngvara á einni nóttu og þarf þá ekki að giska frekar á hvers konar tónlist ríkir í þeirri mynd. Þá spilar Þorsteinn lög úr léttri karate-mynd sem bráð- lega verður sýnd hér á landi. Myndin heitir The Last Drag- on og státar af mörgum þekkt- um músiköntum. Þar má m.a. nefna Stevie Wonder, Rock- well og hljómsveitina De- Barge, en lag þeirra úr mynd- inni Rhythm of the Night hefur verið vinsælt upp á síðkastið. Cyndi Lauper á lag í nýjustu kvikmynd leikstjórans Steven Spielberg og verður það lag, ásamt fleirum úr þeirri mynd, spilað í þættinum. Og ekki má gleyma nýjustu myndinni um James Bond, sem hafnar eru sýningar á hér á landi. Hún er að hluta til tekin hér á landi og margir landar eiga eflaust eftir að sjá hana. ■ Þorsteinn G. Gunnarsson segir langt í frá að hann sé að verða uppiskroppa með lög úr kvikmvndum, þar sé um auðugan garð að gresja. ■ Jason Robards þykir sýna frábæran leik í hlutverki Erie Smith, eins og hans er reyndar von og vísa. Utvarp laugardag kl. 14. Síðasta hljóðagetraun ■ í dag kl. 14 hefst í útvarpi síðasti þáttur Ligga ligga lá, sem þeir Sverrir Guðjónsson og Hrannar Már annast. Nýr stjórnandi tekur við um mán- aðamótin. Sverrir sagðist gera sér vonir um að Hrannar Már færi nú loks að sitja á strák sínum, en hann hefur sem kunnugt er verið nokkuð óstýrilátur til þessa. Að öðru leyti gengur þátturinn sinn vanagang, síðasta hljóða- getraunin verður í dag, en krakkarnir hafa verið mjög áhugasamir um að taka þátt í henni. „Mig langar til að benda foreldrum á að vera duglegir við að virkja ímyndunarafl barnanna, t.d. með því að lesa fyrir þau nógu mikið, og einnig að halda skynjuninni opinni fyrir alls konar um- hverfishljóðum. Markmiðið með þessum þáttum mínum var að vissu leyti að víkka út hljóðheyrn barna, en þau fá oft dálítið þröngan hljóð- heim,“ segir Sverrir. Utvarp laugardag kl. 17.05: Helgarútvarp barnanna ■ í dag kl. 17.05 hefst Helg- arútvarp barnanna á Rás 1 undir stjórn Vernharðs Linnet og verður efni fjölbreytt að venju. Það þýðir þó lítið að spyrja um efni þáttarins með löngum fyrirvara, því að hann er ekki unninn fyrr en á föstu- degi til að efnið sé sem ferskast. Það er þó þegar vitað að sagt verður frá íþróttamótum fyrir unglinga, sem haldin hafa verið, s.s. knattspyrnunni í yngstu flokkunum. Sömuleiðis verður sagt frá og talað við krakka um félagslífið í Vinnu- skóla Reykjavíkur, sem er mjög blómlegt. „Við vildum gjarna koma á framfæri þeim tilmælum til krakka úti á landi að þeir láti okkur vita um íþróttamót, æskulýðsmót og ýmislegt sem er að gerast hjá þeim, því að við missum einmitt oft af ýmsu slíku. Það má alltaf ná í okkur í símatíma barnaútvarpsins kl. 5-6 og við vildum gjarna heyra í þeim og jafnvel heimsækja þá ef það er eitthvað um að vera,“ segir Vernharður Linnet. Sjónvarp mánudag kl. 21.25: Eugene O’Neill einþáttungur ■ Mánudagsleikritið nú er einþáttungurinn Hughie eftir Eugene O’Neill og það er sjálf- ur Jason Robards sem fer með aðalhlutverkið. Auk hans leik- ur Jack Dodson í því. Sýningin á Hughie hefst kl. 21.25. Hughie var næturvörður á hrörlegu hóteli sem má muna fífil sinn fegri, en er nú látinn. Einn hótelgestanna, Erie Smith, (Jason Robards) vill halda þeim upptekna hætti að ræða við næturvörðinn, sem kemur í stað Hughies um alla heima og geima, en hugleikn- asta umræðuefnið er alls kyns ímynduð ævintýri sem Erie heldur sig hafa ratað í ásamt Hughie vini sínum. Jason Robards er þekktur af því að vera einn besti túlkandi persóna Eugene O’NeilI og hefur hlotið frábæra dóma fyrir leik sinn í þessari sviðsupptöku frá 1981. Þýðandi er Reynir Harðar- son. Laugardagur 29. júní 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 7.20 Leikfimi. Tónleikar. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Valdimars Gunnarssonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð - Torfi Ólafsson talar. 8.15 Veðurfregnir. Tónleikar. 8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón- leikar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Óskalög sjúklinga, frh. 11.00 Drög að dagbók vikunnar Umsjón: Páll Heiðar Jónsson. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 Ligga ligga lá Umsjónarmað- ur: Sverrir Guöjónsson. 14.20 Listagrip Þáttur um listir og menningarmál í umsjá Sigrúnar Björnsdóttur. 15.20 „Fagurt galaði fuglinn sá“ Umsjón: Sigurður Einarsson. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar Martha Argerich leikur planótónlist eftir Frédéric Chopin. a. Sónata nr. 3 í h-moll op. 58. b. Pólonesa nr. 7 I As-dúr op. 61. 17.00 Fréttir á ensku 17.05 Helgarútvarp barnanna Stjórnandi: Vernharður Linnet. 17.50 Síðdegis i garðinum með Hafsteini Hafliðasyni. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Sumarástir Þáttur Signýjar Pálsdóttur. RÚVAK. 20.00 Harmonikuþáttur Umsjón: Högni Jónsson. 20.30 Útilegumenn Þáttur í umsjá Erlings Sigurðarsonar. RÚVAK. 21.00 Kvöldtónleikar Þættir úr sí- gildum tónverkum. 21.40 „Leyndarmál“, smásaga eftir Bernard MacLaverty Erlingur E. Halldórsson les þýðingu sína. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 Náttfari - Gestur Einar Jónas- son. RÚVAK. 23.35 Eldri dansarnir 24.00 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón Örn Marinósson 00.50. Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá Rás 2 til kl. 03.00. Sunnudagur 30. júní 8.00 Morgunandakt Séra Ólafur Skúlason dómprófastur flytur ritn- ingarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. forustugr. dagbl. (útdr.). 8.35 Létt morgunlög Hljómsveit 101-strengur leikur lög eftir Steph- en Foster. 9.00 Fréttir 9.05 Morguntónleikar 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Út og suður - Friðriks Páls Jónssonar. 11.00 Prestsvigsla í Dómkirkjunni (Hljóðrituð 16. þ.m.). Biskup Islands, herra Pétur Sigurgeirs- son, vígir Helgu Soffíu Konráðs- dóttur cand. theol. til aðstoðar- prestsþjónustu í Fella- og Hóla- sókn í Reykjavikurprófastsdæmi og Sigurð Ægisson cand. theol. til Djúpavogsprestakalls I Austfjarða- prófastdæmi. Vígsluvottar: Hólm- fríður Pétursdóttir, sr. Hreinn Hjart- arson, sr. Kristinn Hóseasson og sr. Ólafur Skúlason. Séra Agnes M. Sigurðardóttir þjónar fyrir altari. Organleikari: Marteinn H. Friðriks- son. Hádegistónleikar 12.10 Dagskrá. Tónleikar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30 Um garða og gróður Minnst 100 ára afmælis Garðyrkjufélags Islands. Umsjón: Ágústa Björns- dóttir. 14.30 Miðdegistónleikar Félagar i Fílharmóníusveitinni í Berlín leika. a. Oktett í Es-dúr op. 20 eftir Felix Mendelssohn. b. Hymnus cp. 57 eftir Julius Klengel. 15.10 Milli fjalls og fjöru á Vest- fjarðahringnum Umsjón Finnbogi Hermannsson. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir 16.20 Leikrit „Raddir sem drepa“ eftir Poul Henrik Trampe fimmti þáttur. 17.00 Fréttir á ensku 17.05 Síðdegistónleikar a. „II dolce suono", aría úr óperunni „Lucia de Lammermoor" eftir Gaetano Don- izetti. Edita Gmberova syngur. Sin- fóníuhljómsveit Útvarpsins í Múnchen leikur; Gustav Kuhn stjórnar. b. „Espana", rapsódia eftir Emanuel Chabrier, og svíta nr. 2 úr „Þríhyrnda hattinum" eftir Manuel De Falla. Fíladelfíuhljóm- sveitin leikur; Riccardo Muti stjórnar. c. „Schéhérazads" eftir Maurice Ravel. Elly Ameling syngur. Sinfóniuhljómsveitin í San Francisco leikur; Edo de Waart stjórnar. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynning- ar. 19.35 Það var og Þráinn Bertelsson rabbar við hlustendur. 20.00 Sumafúívarp tinga íóii??in» Blandaður þáttur í umsjón Jóns Gústafssonar. 21.00 (slenskir elnsöngvarar og kórar syngja 21.30 Útvarpssagan „Langferð Jón- atans" eftir Martin A. Hansen Birgir Sigurðsson rithöfundur les þýðingu sína (25). 22.00 „Flmm hugvekjur úr dölum“ Hjalti Rögnvaldsson les Ijóðaflokk úr bókinni „Ný og nið“ eftir Jóhann- es úr Kötlum. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Iþróttaþáttur Umsjón Samúel örn Erlingsson 22.50 Eiginkonur íslenskra skálda Umsjón: Málmfríður Sigurðardótt- ir. RUVAK. 23.10 Djassþáttur - Jón Múli Arna- son 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. KHT Laugardagur 29. júní 14:00-16:00 Við rásmarkið Stjórn- endur: Jón Ólafsson ásamt Ingólfi Hannessyni og Samúel Erni Erl- ingssyni, íþróttafréttamönnum. 16:00-17:00 Listapopp Stjórnandi: Sigurður Þór Salvarsson. 17:00-18:00 Hringborðið Stjórnandi: Árni Þórarinsson. HLÉ 20:00-24:00 Kvöldútvarp 24:00-03:00 Næturvaktin Stjórnandi: Kristín Björg Þorsteinsdóttir. Rásirnar samtengdar að lokinni dagskrá rásar1. Sunnudagur 30. júní 13:30-15:00 Krydd í tilveruna Stjórnandi: Helgi Már Baröason. 15:00-16:00 Tónlistarkrossgátan Hlustendum er gefinn kostur á að svara einföldum spurningum um tónlist og tónlistarmenn og ráða kmssnájþ IttT.lSÍÍ Sí'örnðP.d''l,íln Gröndal. 16:00-18:00 Vlnsældallstl hlust- enda Rásar 2 20 vinsælustu lögin leikin. Stjórnandi: Gunnlaugur Helgason. Laugardagur 29. júní 16.00 Páfamessa i Péturskirkjunnl Bein útsending frá Vatíkaninu, Róm. Jóhannes Páll II. páfi vígir biskupa og erkibiskupa til embætta og flytur ræðu. Við vígslumessuna flytur Fílharmóníusveit Vinarborg- ar ásamt tveimur kórum og ein- söngvurum „Krýningarmessu" eft- ir Wolfgang Ámadeus Mozart. Her- bert von Karajan stjórnar. (EBU - Mexikanskaog Italska sjónvarpið) Fáist ekki gervihnattasamband fellur þessi dagskrárliður niður en Iþróttir hefjast kl. 16.00. 18.00 Iþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 19.25 Kalli og sælgætisgerðin Fimmti þáttur. Sænsk teikni- myndasaga f tfu þáttum gerð eftir samnefndri barnabók eftir Roald Dahl. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. Sögumaður Karl Ágúst Úlfsson. (Nordvision - Sænska sjónvarpið). 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Sambýlingar Fimmti þáttur. Breskur gamanmyndaflokkur i sex þáttum. Þýðandi Guðni Kolbeins- son. 21.05 Það hófst i Napóli (It Started in Naples) Bandarisk bíómynd frá 1960. Leikstjóri Melville Shavel- son. Aðalhlutverk: Clark Gable, Sophia Loren, Vittorio de Sica og Marietto. Bandarískur lögfræðing- ur fer til Napóli til að ganga frá málum látins bróður sins. Munað- arlaus drengur og fögur en skap- stór móðursystir hans baka þó lögfræðingnum ýmsa erfiðleika. býðandi Veturliði Guðnason. 22.30 Hljómsveitin Imperiet Páuúi frá hljómleikum sænsku rokksveit- arinnar „Imperiet" á ferð hennar um Norðurlönd i vetur. Hljómsveit- in lék hér á Norrokk-tónleikum 1984. 23.35 Dagskrárlok Sunnudagur 30. júní 16.00 Fjórðungsmót hestamanna á Suðurlandi Bein útsending frá fél- agssvæöi Fáks í Víðidal i Reykja- vik lokadag mótsins. Umsjónar- maður Bjarni Felixson. 18.00 Sunnudagshugvekja Séra Pjetur Þ. Maack flytur. 18.10 Slndbað farmaður Bandarisk teiknimynd gerð eftir ævintýri úr „Þúsund og einni nótt“. Þýðandi Eva Hallvarðsdóttir. 19.00 Hlé 19.50 Fréttaágrlp á táknmáll. 20.00 Fréttlr og veður 20.25 Auglýslngar og dagskrá 20.40 Sjónvarp næstu vlku Umsjón- armaöur Magnús Bjarnfreðsson. 20.55 Fosshjartað slær Það hefur löngum gustað hressilega um á- kvarðanir og stefnu í virkjunarmál- um íslands en minna hefur borið á hinum verklegu framkvæmdum og daglegu lifi þeirra manna sem að þeim starfa. „Fosshjartað slær" er ný íslensk kvikmynd sem fjallar um hinar grónu vatnsaflsvirkjanir okkar, nýgræðinga á borð við Kvíslaveitu og Blönduvirkjun og ýmis mikilsverö atriði sem hafa orðið hornreka i hinni hvössu um- ræðu. Kvikmyndun: Rúnar Gunn- arsson. Texti: Baldur Hermanns- son. Þulur: Ólafur H. Torfason. Hringsjá s/f framleiddi myndina fyrir Landsvirkjun. 21.50 Til þjónustu reiðubúinn Tólfti þáttur. Breskur framhaldsmynda- - flokkur í þrettán þáttum. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 22.40 Nina Simone Bandariska blökkukonan Nina Simone syngur nokkur lög eftir sjálfa sig og aðra. 23.15 Dagskrárlok

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.