NT - 29.06.1985, Blaðsíða 22
Laugardagur 29. júní 1985 22
■ Danir voru afar góðir á Evrópukeppninni í Frakklandi í fyrra en þá var þessi mynd tekin.
Hlaup æskunnar með Rás 2
Flugleiðamótið
■ Flugleiðamótið i handknattleik mun
standa sem hæst um helgina. í dag
laugardag er leikið á Selfossi og spila
þar kl. 16:00 Island A-ísland B og kl.
17:30 Holland og Noregur. Á morgun
sunnudag verða fjórir leikir. Að Varmá
spila kl. 10:30 ísland B-ísland A. Siðan
verður fariö á Akranes og keppa Noreg-
ur og Holland þar kl. 11:00, ísland
B-Noregur kl. 17:00 og loks lsland A-
Holland kl. 18:30. Mótinu lýur svo á
mánudagskvöld i Laugardalshöll með
leikjum Hollands og íslands B og Nor-
egs og Íslands A. Fyrri leikurinn hefst
kl. 19:00.
■ Hlaup æskunnar, sem fer
fram á þrem stööum á landinu
og verður ræst samtímis í gegn-
um Rás 2, verður haldið í dag
29. júní.
Hlaupið veröur í Örfirisey í
Rcykjavík, á Sauöárkróki og á
Egilsstöðum. Sigurvegur.um í
hverjunt aldursflokki verður
boðið til keppni í 7 km hlaupi
Reykjavíkur maraþonsins í lok
ágúst. Auk þess fá þeir verðlaun
frá Rásinni.
Flokkaskipting er þannig að
9-10 ára strákar og stelpur
hlaupa 1 km, 11-12 ára og 13-14
ára hlaupa 2 km og þeir sem
hlaupa í opna flokknum fyrir 15
ára og eldri hlaupa 3 km. {
fyrsta hlaupinu er ræst kl. 14:10
og því síðasta kl. 15:30.
Tekið er við skráningum hjá
eftirtöldum aðilum: Sauðár-
krókur: Norðurlandsleikaræsk-
unnar, Björn Sigurbjörnsson, s.
95-5382, Egilsstaðir, skrifstofa
UÍA, Skúli Oddsson, s- 97-
1384, Reykjavík, skrifstofa
FRÍ, Gunnar Páll Jóakimsson,
s. 83686.
Viðurkenningar fyrir góða framkomu:
Danir prúðir
áhangendur
- og fengu viðurkenningu fyrir það - júdókarl
og lyftari fengu líka lof og hrós
■ Áhangendum danska lands-
liðsins í knattspyrnu hafa verið
veitt sérstök verðlaun fyrir
prúðmannlega og íþróttamann-
lega franrkomu í úrslitum Evrópu-
keppni landsliða, sem haldin
var í Frakklandi í fyrra.
Pað er nefnd sem kallar sig
alþjóðanefndin fyrir drengilegri
frantkomu sem verðlaunin
vcitti. í henni eiga m.a. sæti
Killanin lávarður, fyrrum for-
maður Alþjóða ólympíu-
nefndarinnar og Juan Antonio
Samaranch, eftirmaður hans.
í tilkynningu frá nefndinni
segir að þeir 20.000 Danir, sem
fylgdu liði sínu til Frakklands
hafi verið landi sínu til sóma og
sýnt það og sannað að hægt sé
að veita landsliði sínu stuðning
án þess að valda vandræðum.
Verðlaunin eru veitt nú til að
minna á að ekki eru allir áhorf-
endur jafnslæmir og þeir frá
Liverpool, sem óeirðunum ollu í
Brússel í s.l. mánuði.
Þá ákvað nefndin að heiðra
þá Mohamed Ali Rashvvan frá
Egyptalandi og Dariusz Zaw-
adzki frá Póliandi. Rashwan
keppti í júdó á ÓL í Los Ange-
les í fyrra og komst í úrslit í
opnum flokki. Par beið hann
lægri hlut fyrir Yasuhiro Yam-
ashita frá Japan. Japaninn var
meiddur á hægra fæti og eftir á
sagði Rashwan að hann hefði
e.t.v. getað unnið gulliðef hann
hefði notfært sér meiðsli and-
stæðins síns, en hann hefði kos-
ið að gera það ekki.
Zawadzki keppti á heims-
meistaramóti unglinga í lyfting-
um í Lignano og var úrskurðaö-
ur í 3. sæti þar sem hann taldist
léttari en Nicola la Carpia frá
Ítalíu. Hann neitaði að taka við
bronsverðlaunum sínum og
sagði að ítalinn ætti þau skilið,
þar sem hann væri í raun þyngri
en la Carpia.
Raðveggir eru einfaldir milliveggir,
sem eru auðveldir í uppsetningu við
allar hugsanlegar aðstæður.
Raðveggi er auðvelt að taka niður
ef breyta þarf fyrirkomulagi á skrif-
stofu eða herbergjaskipun í íbúðar-
húsi. Þá er öll vinna við raflagnir og
pípulagnir auðveld og fljótleg.
Raðveggi er hægt að fá í mismun-
andi hljóðeinangrunarflokkum
(39-54 dB) og með sérstökum eldtefj-
andi einingum, samþykktum af
Brunamálastofnun ríkisins.
Leitið upplýsinga og tilboða hjá
söluaðilum okkar.
Við uppsetningu er gólflisti lagður lárétt. Vegglisti og
loftlisti skrúfaðir fastir. Síðan er hinum einstöku veggein-
ingum (sjá mynd) rennt uppá loftleiðarann og þvínæst
látnar falla niður á gólfleiðarann.
SÖLUSTAÐIR:
FJALAR h/f
Húsavík
Sími 96-41346
INNRÉTTINGAMIÐSTÖÐIN BYNOR VALMI BRIMNES BYGGINGAVAL TRÉSMIÐJA FUÓTSDALSHÉRAÐS
Armúla 17a Glerárgötu 30 B-götu 3 Strandvegi 54 Iðavöllum 10 Fellabæ
Slmar 91-84585, 84461 Akureyri Neskaupstað Vestmannaeyjum Keflavlk Slmi 97-1700
Slmi 96-26449 Slmi 97-7605 Slmi 98-1220 Slmi 92-4500
midas
íslandsmótið í liðakeilu:
Lið Ásgeirs efst
- fyrir úrslitakeppnina sem fram fer um helgina
■ Lið Ásgeirs Hreiðars er með forystu
eftir fyrri leikdaginn í undankeppni ís-
landsmótsins í keilu. Fyrstu þrír leikirnir
voru leiknir um helgina og eftir það hefur
lið Ásgeirs hlotið 2084 stig. nærri 240
stigum meira en liðið sem er í öðru sæti.
Það er lið Þórs Magnússonar og hefur það
fengið 1845 stig. Lið BirgirGuðjónssonar
er í 3. sæti með 1836 stig.
I liði Ásgeirs Hreiðars eru kunnir
kappar frá íslandsmóti einstaklinga sem
haldið var fyrr í mánuðinum. Ásgeir varð
sjálfur í 4. sæti í keppninni þá og Alois
Raschofer og Bjarni Sveinbjörnsson, sem
eru í liði hans, urðu í 2. og 5. sæti.
Fleiri kunn nöfn frá íslandsmóti ein-
staklinga má finna í liðunum nú. Emilía
Vilhjálmsdóttir, íslandsmeistari kvenna,
er varamaður í liði Birgis Guðjónssonar.
Björg Hafsteindóttir, sem þá varð í 2.
sæti, leiðir nú lið til keppni og Sólveig
Guðmundsdóttir, sem varð 3. er einnig
mætti með lið til leiks.
En staðan í liðakeilunni eftir fyrstu þrjá leikina er
þessi:
1. Lið Ásgeirs Hreiðars............... 2084 stig
2. Lið Þórs Magnússonr ............... 1845 stig
3. Lið Birgis Guðjónssonar............ 1836 stig
4. Lið Bjargar Hafsteinsdóttur........ 1762 stig
5. Lið Halldórs R. Halldórssonar......1712 stig
6. Lið Þóris Hall..................... 1603 stig
7. Lið Helga G. Ingimundarsonar ...... 1542 stig
8. Lið Jónasar R. Jónssonar........... 1529 stig
9. Lið Sólveigar Guðmundsdóttur....... 1363 stig
Seinni leikirnir þrír í liðakeppninni
verða svo leiknir nú á laugardaginn og
hefst keppnin kl. 9. Fjögur efstu liðin
leika svo í undanúrslitum á sunnudag kl.
9. Þá keppa lið nr. eitt og þrjú og liðin
sem urðu í öðru og fjórða sætinu. Hvor
viðureign er tveir leikir. Úrslitakeppnin
er einnig tveir leikir svo og viðureignin
um 3. sætið. Sigurvegararnir verða væntan-
lega krýndir upp úr kl. 16.00.
Meistaramót ÍR og boðsmót FRÍ:
Vallarmet í 400 m grind
- hjá Bandaríkjamanninum Bernie Holloway
■ Bandaríski blökkumaöurinn Bernie
Holloway setti nýtt vallarmet í 4(X) m
grindahlaupi á Meistaramóti ÍR og boðs-
móti FRÍ, sem fram fór á miðvikudag og
fimmtudag. Holloway, sem í ár hefur
hlaupið á 49,7 sek. og er meðal tíu bestu
í heiminum í greininni, varð langfyrstur í
hlaupinu á 50,9 sek. og bætti vallarmet
Stefáns Hallgrímssonar um 0,9 sek. Hann
hljóp einnig 400 m á mótinu á 47,5 sek.
en hann hyggst keppa sem gestur á
Meistaramóti Islands þann 6.-8. júlí.
Aðeins tímaspursmál virðist vera þang-
að til Oddný Árnadóttir bætir íslandsmet
sitt í 400 m hlaupi. í strekkingsvindi á
mótinu á miðvikudag hljóp hún á 55,4
sek. og var 3 sek. á undan Helgu Halldórs-
dóttur. Oddný hefur hlaupið á 55,1 sek. í
ár, en þriggja ára met hennar er 54.90
sek. Oddný hljóp 200 m á fimmtudag á
24,6 sek., 0,2 sek. frá íslandsmeti hennar.
Guðrún Ingólfsdóttir KR er að nálgast
50 m á ný í kringlukasti en hún tók sér
frí frá köstunum síðustu tvö sumur vegna
barneignar og meiðsla. Hún kastaði 49,54
m. en á best 53,68 m árið 1982.
Aðrir sem bættu sig voru Bryndís
Hólm ÍR sem sigraði í spjótkasti með
46,48 m þriðji besti árangur frá upphafi
hjá íslendingi, Gunnar Birgisson ÍR sem
varð fyrstu í 3000 m hiaupi, 8:50,7 mín.
Birgir Þ. Jóakimsson sem varð annar í
400 m grindahlaupi, 57,1 sek., Geir
Gunnarsson KR sem sigraði í stangar-
stökki, 4,10 m.
Sigurvegarar i ödnun greinum: 100 m karla Jóhann
jonannsson 1K, 10,8 sek. (ólogi. vindur), 800 m
Guðmundur Skúlason, Á, 1:54,5, hans besta í ár, 1500
m Gunnar Birgisson, 4:12,0 mín. 110 m grindahlaup,
Þórður Þórðarson, ÍR, 15,9 sek. (ólöglegur vindur),
langstökk, Kristján Harðcrson, Á, 7,26 m (ólögl.
vindur), hástökk, Gunnlaugur Grettisson, ÍR, 1,92 m
kringlukast, Eggert Bogason, FH, 54,64 m sleggju-
kast, Eggert Bogason, 51,40 m spjótkast, Óskar
Thorarensen, IR, 62,68 m 100 m kvenna, Oddný
Arnadóttir, 11,8 sek. (ólögl. vindur), 100 m grinda-
hlaup, Bryndís Hólm, ÍR, 16,0 sek. (ólögl. vindur), 400
m grindahlaup, Eva Sif Heimisdóttir, ÍR, 73,2 sek.,
langstökk, Bryndís Hólm, 5,61 m (ólögl. vindur),
hástökk, Bryndis Hólm, 1,60 m.