NT - 29.06.1985, Qupperneq 4
r* nr? ' Laugardagur 29. júní 1985 4
lilí Fréttir
„Sumir eru bara
veikirfyrirþess-
um uppboðum“
- NT fylgist með uppboði í Vökuhúsinu
■ Það var handagangur í öskjunni og mikil
mannþröng í Vökuhúsinu á Smiðshöfða síðasta
fímmtudag, þegar uppboð fór fram á vegum
borgarfógetaembættisins undir stjórn Jónasar
Gústavssonar borgarfógeta.
Þar fóru undir hamarinn eins og á færibandi
ógrynni lausafjármuna, allt frá brauðristum upp
í bíla, sem teknir hafa verið tögtaki undanfarna
tvo mánuði upp í vangreidda skatta og ýmsar
aðrar kröfur.
Venjan er að þessi uppboð
fari fram á 2-3 mánaða fresti en
þess á milli hleðst uppótrúlegur
fjöldi allskyns hluta sem teknir
hafa verið lögtaki en eigendurn-
ir oft og tíðum kæra sig ekki um
að komast yfir þessar eigur
sínar aftur. Má af því ráða að
oft eru gæði eða ástand þessara
lausafjármuna ekkert sérlega
mikil. Eflaust hafa sumir keypt
köttinn í sekknum á meðan
aðrir gerðu góð kaup og stór-
græddu á viðskiptununi, því
inn á milli mátti sjá býsna eigu-
lega hluti eins og nýleg sjónvörp
og'myndbandstæki.
„Ég er nú bara að bíða eftir
bílunum,“ sagði einn viömæl-
enda NT á staðnum, „nenni
ekki að bjóða í smádraslið.
Hinsvegar er hægt að gera
þrælgóð kaup í einum bíl hérna
sem þeir ætla að fara að bjóða
upp. Hann er á 130-200 þúsund
hér, er samt 400-500 þúsund
króna virði.“
Athyglisvert var hve rnikill
fjöldi bíla, um 50 stykki, beið
þess að verða boðinn upp. Ef
bíla skyldi kalla. Mest megnis
voru þetta örgustu hró, ógang-
færir og margir hverjir í pörtum.
Samt eru bílhræin vön að ganga
öll út á þessum uppboðum, þó
ekki sé nema á tíkall.
„Vinur minn er alveg slæmur
með þetta," hélt viðmælandi
okkar áfram,„hann mætir hérna
á hvert einasta uppboð, kaupir
einhverja druslu sem hann lætur
draga heim til sín og einsetur
sér að gera upp svona með
tímanum. f>að bregst ekki að
innan þriggja mánaða hringir
hann á Vökubíl og borgar 500
krónur fyrir að láta draga brakið
hingað aftur. Svei mér, ef hann
hefur ekki keypt sama hræið
tvisvar. Sumir eru bara svo
veikir fyrir svona uppboðum.“ ■ Fjöldi manns var rnættur á staðinn og tilboð bárust stöðugt úr þvögunni , fæstir sáu almennilega í hvað þeir voru að bjóða. NT-inynd:Svcmr
„Upp rísi „þjóðlið“
og skipist í sveit“
Sextíu lúðrasveitarmenn minntust frumflutnings
„Öxar við ána“ við Öxarárfoss í fyrrakvöld
■ Undir tók í veggjum gjár-
innar við Öxarárfoss þegar sex-
tíu félagar úr Lúðrasveitinni
Svanur og Lúðrasveit Verka-
lýðsins mættu þar í fyrrakvöld
og léku „Öxar við ána“ eftir
Helga Helgason, tónskáld, en
þá voru liðin nákvæmlega
hundrað ár frá því er lagið var
fyrst flutt á þessum sama stað.
Þar áttu hlut að máli auk Helga
Helgasonar, lúðurþeytararnir
Páll Jónsson, Helgi Jónsson og
Gísli Arnason.
Það var á Þjóðfundinum 27.
júní 1885 sem lagið var fyrst
flutt, en fyrir þessum fundi
gekkst hið svonefnda „þjóðlið",
sem upprunnið var í Þingeyjar-
sýslu og voru helstu leiðtogar
þcss feðgarnir á Gautlöndum,
Jón Pétursson, forseti Alþingis
og Pétur sonur hans. Þjóðliðið
var skipulagt í sveitir og deildir
og því með dálitlu hernaðar-
sniði, enda félagar þess ungir og
fullir af hugsjónamóði. Þessi
hreyfing ætlaði sér að koma
hreyfingu í þjóðfrelsismálin og
vinna fylgi endurbótum á stjórn-
arskránni í anda Benedikts
Sveinssonar, alþingismanns og
sýslumanns á Héðinshöfða.
Steingrímur skáld Thorsteins-
son orti kvæði „Öxar við ána“,
til Þingvallafundarins og fékk
Helga Helgason, tónskáld, til
þess að semja við það lagið.
Gerði Helgi betur en það, því
hann samdi viðlag við ljóðið, svo
það félli betur að laginu, „Fram,
fram aldrei að víkja... o.s.frv.“
Munu fáir geta hugsað sér að
sleppa viðlaginu nú, þegar lagið
er sungið.
Til er mynd af fjórmenning-
unum sem frumfluttu lagið 1885
og í fyrrakvöld komu fjórir
lúðrasveitarmannanna sér fyrir
í sömu sporunum og á myndinni
og léku lagið upp aftur í anda
gamla tímans.
Besta veður var á Þingvöllum
er þessir minningarhljómleikar
fóru fram og gerðu lúðrasveitar-
menn og aðrir viðstaddir góðan
róm að þessu framtaki.
■ „Lúðurþeytarafélagið í Reykjavík“ leikur „Öxar við ána“ við
Öxarárfoss, 27. júní 1885. Frá vinstri: Helgi Helgason, snikkari og
tónskáld, Helgi Jónsson, Gísli Árnason og Páll Jónsson.
Stjórnandi Lúðrasveitarinnar
Svans var Skarphéðinn Einars-
son, en stjórnandi Lúðrasveitar
Verkalýðsins Ellert Karlsson.
Konur í Eyjafirði:
Ljóða- og smásagnasamkeppni
■ Eyfirskar skáldkonur geta átt
von á glaðningi í byrjun vetrar,
það er að segja ef þær vinna til-
verðlauna í ljóða- og smásagna-
KFUM heldur
landnámsmót
■ Landsamband KFUM á ís-
landi stendur að norrænu KFUM-
drengjamóti í Vatnaskógi 4.-10.
júlí næstkomandi. Þá munu 120
drengir frá öllum Norðurlöndun-
um nema Grænlandi og Álands-
eyjum safnast þar saman. Slíkt
mót er haldið annað hvert ár á
Norðurlöndunum.
Drengjamótið nefnist Land-
námsmótið 1985 enda minnir
dagskrá þess á þegar norrænir
menn námu land á íslandi fyrir
rúmum 1100 árum. Keppt verður
í ýmsum íþróttum fornmanna og
víkingar koma í heimsókn .
Drengirnir munu iðka hesta-
mennsku, veiðar, leiki og útilíf á
mótinu en að sjálfsögðu verður
lögð áhersla á að uppfræða þá í
Guðs orði.
samkeppni sem efnt var til í tilefni
loka kvennaáratugarins.
Hópar kvenna á Akureyri og
við Eyjafjörð hafa síðan í haust
unnið sainan að ýmsum málefnum
í tilefni þess að brátt lýkur kvenna-
áratugi Sameinuðu þjóðanna.
Einn starfshópurinn, svokallað-
ur bókmenntahópur, hefur cfnt til
samkeppni meðal kvenna og lofar
góðum verðlaunum fyrir besta
Ijóðið og bestu smásöguna.
Allar konur búsettar við Eyja-
fjörð geta tekið þátt í samkeppn-
inni og skiptir aldur engu máli.
Þátttakendurnir geta verið hvort
heldu á skólaskyldualdri eða á
ellilaunum.
Skilafrestur er til 15. september
næstkomandi og úrslitin verða
væntanlega kynnt á sjálfum kvenna-
frídeginum 24. október.
Öllum verkunum þarf að skila
undir dulnefni og á nafn höfundar
að fylgja með í lokuðu umslagi.
Hver kona má skila inn eins mörg-
um verkum og hún kýs, hvort
heldur sem er undir einu dulnefni
cða mörgum.
Ragnhildur Bragadóttir, Þór-
unnarstræti 132, Akureyri tekur
við vcrkunum og veitir allar nánari
upplýsingar í síma 25798.
■ Lúðrasveitirnar leika undir stjóm Ellerts Karlssonar, „Öxar við ána“, í útsetningu Ellerts.