NT - 29.06.1985, Side 20
Laugardagur 29. júní 1985 20
Manila
á floti
Manila-Reuler
■ Mikil flóð eru nú í
Manila höfuðborg Filipps-
eyja. Að minnsta kosti
fimmtíu manns hafa látið
lífið í flóðunum sem eru
þau verstu í tíu ár.
Allt atvinnulíf lagðist
niður í Manila í gær þar
sem sumir hlutar borgar-
innar voru undir allt að
því tveimur metrum af
vatni. Flestir þeirra sem
létu lífið fórust í aurskrið-
um í hæðum fyrir norðan
og norðvestan borgina.
Flóðin urðu vegna gíf-
urlegra rigninga undan-
farna daga. Úrkoman frá
því á miðvikudag þar til í
gær var á mörgum stöðum
næstum því 500 mm (hálf-
ur metri).
Utlönd
Blóðbað vegna rigningar:
Reggaeruddar
drepa hermenn
Abidjan-Reuter:
■ Það getur verið varasamt að
fresta rokktónleikum vegna
rigningar, að minnsta kosti í
Guíneu í Afríku, því að þegar
slíkt var gert þar í síðustu viku
brutust út óeirðir með þeim
afleiðingum að 7 manns voru
drepnir.
Útvarpið í Conakry, höfuð-
borg Guíneu sagði að æðstu
embættismennirnir í æsku- og
íþróttamálaráðuneytinu hefðu
verið reknir og yrðu ákærðir
fyrir vanrækslu í starfi en ekki
var minnst einu orði á mannfall-
ið.
Óeirðirnar hófust eftir að
reggaestjarnan Alpha Blondy
frá Fílabeinsströndinni neyddist
til að tilkynna á þéttsetnum
íþróttaleikvangnum þar sem
tónleikar eru oft haldnir að af
tónleikunum yrði ekki vegna
rigningar.
Þúsundir öskureiðra aðdá-
enda þustu út á götur og réðust
á hermenn og lögreglu, kveiktu
í bílum og búðarholum og hróp-
uðu vígyrði þar sem fyrrverandi
einræðisherra var lofaður.
Þegar mannfjöldinn grýtti og
stakk 3 hermenn til bana brugð-
ust hermennirnir sem eftir lifðu
ókvæða við og kveiktu mikið
bál Þannig steiktust fjórir aðdá-
endur til bana. Að minnsta
kosti 300 manns særðust og
sumir mjög alvarlega.
Tónleikarnir voru svo endan-
lega haldnir fyrr í þessari viku.
Suður-Afríka
Afríska þjódarráðið
snýr vörn upp í sókn
- beinir nú spjótum sínum að hverfum hvítra
Jóhannesarborg-Reuter:
■ Hinar mögnuðu óeirðir sem
nú geisa í Suður-Afríku í formi
mikilla sprengjuárása virðast
benda til þess að Afríska þjóð-
arráðið, samtök sem bönnuð er
með lögum, sé í mikilli sókn
gegn ríkisstjórn hvíta minnihlut-
ans.
Afríska þjóðarráðið fundaði
nýlega um stefnu sína og ákvað
að snúa vörn í sókn. Stefnuum-
ræðurnar voru þær fyrstu sem
nokkuð kveður að frá árinu
1969.
Samtökin hafa neitað að ræða
sprengjuárásirnar í vikuntii sem
greinilega voru skipulagðar. í
árásunum féllu 8 manns og em-
bættismenn segja að aðgerðir
þessar liafi verið þær hörðustu í
manna minnum.
Leiðtogi samtakanna Oliver
Tambo sagði hins vegar á þriðju-
daginn var að samtökin hafi
ákveðið á fundi sínum í Zambíu
að „skerpa hina vopnuðu bar-
áttu, stuðla að því að aðskilnað-
arstefnan verði óframkvæman-
leg og gera landið stjórnlaust".
Stjórnmálasérfræðingar í
Suður-Afríkur segja að það sé
greinilegt að ný stefna hafi orðið
ofan á og að Afríska þjóðarráð-
ið sé í sókn og að sóknin sýni
að blökkumenn hefðu í auknum
mæli þjappað sér saman í þess-
um óeirðum sem staðið hafa frá
því í febrúar 1984 og kostað
rúmlega 450 manns lífið.
Robert Schrire prófessor í
stjórnmálafræðum við Höfða-
borgarháskóla segir að hinn
mikli hiti sem nú einkenni bar-
áttuna sýni að blökkumenn sem
áður hafi verið óvirkir í barátt-
unni gegn stjórnvöldum séu nú
að vakna til baráttu, og líta
megi á óeirðirnar í vikunni sem
hefnd gegn árás Suður-Afríku-
hers fyrir hálfum mánuði á hús
í nágrannaríkinu Botswana, þar
sem talið var að liðsmenn úr
Afríska þjóðarráðinu hefðust
að. 12 manns fórust í þeirri árás.
Ummæli Tambos um að nú
ætti að herða hina vopnuðu
baráttu bera vott um að samtök-
in hafi stigið skref í átt að meiri
róttækni en nokkru sinni frá því
að samtökin tóku upp vopn árið
1960.
Óheillavænlega gæti horft við
hvítum borgurum sem hingað
til hafa að mestu leyti getað
lifað áhyggjulausir því að
Tambo hefur lýst því yfir að
eftir því sem óeirðirnar
mögnuðust yrði síður tekið tillit
til þeirra og saklausir myndu
verða dauðanum að bráð.
Stjórnmálaskýrendur segja
ennfremur að atburðirnir í vik-
unni sýni að svartir unglingar
gangi í auknum mæli til liðs við
andstöðuöfl og að handsprengj-
ur séu nú algengustu vopnin í
st^ð bensínsprengja áður. Þetta
beri vott um að svertingjar
stefni að frekari mannréttindum
sér til handa og þá jafnvel að
mcirihlutaaðstöðu innan ríkis-
ins.
Tom Lodgc sem sérfróður er
um málefni Afríska þjóðarráðs-
ins segir að samtökin liafi fært
vettvang baráttunnar frá hverf-
um svartra inn á svæði sem
hvítir menn njóti einir sérrétt-
inda sinna.
Stjórnmálaskýrendur greinir
á um hversu lengi óeirðirnar
muni standa. Sumir segja að
öruggt sé að baráttan muni
halda áfram um nokkra hríð
meðan aðrir búast við að barátt-
an nái brátt hápunkti sínum og
hjaðni síðan.
Lodge segir hins vegar að
baráttan beinist nú að svæðum
hvítra þar eð samtökin hafi
þegar gert suma bæi stjórnlausa.
Hæstiréttur Sviss:
Mellur mega auglýsa
Lausanne-Reutcr
■ Hæstiréttur Sviss kvað í
gær upp þann úrskurð að
svissneskar vændiskonur
hefðu leyfí til að auglýsa
þjónustu sína í dagblöðum
svo fremi sem þær væru orð-
varar í auglýsingunum.
Áður hafði undirréttur í
Zurich sektað vændiskonu
fyrir auglýsingu þar sem hún
birti aðeins nafn sitt, heimilis-
fang og vinnutíma.
í úrskurði hæstaréttar seg-
ir að auglýsingin sé hlutlaus,
orðvör og brjóti ekki gegn
almennu siðgæði. Berorðar,
ótvíræðar og hneykslanlegar
auglýsingar væru hins vegar
ólöglegar.
■ Þann 17. júní síðastliðinn var David Bezuidenhout, formaður Verkamannaflokks Namibíu,
formlega gerður að forsætisráðherra Namibíustjórnar sem minnihlutastjórnin í Suður-Afríku skipaði.
Suður-Afríkustjórn hefur reynt að friða blökkumenn og fá þá til að sætta sig við hlutskipti sitt með þvi
að veita þeim takmarkaða sjálfstjórn á afmörkuðum svæðum og hampa umbótasinnum í þeirra röðum.
Bandarískur þingmaður:
Iranar þjálfuðu
flugvélarræningjana
- Reagan hótar hefndum
Chicago-Reutcr
■ Bandarískur öldunga-
deildarþingmaður telur sig
hafa heimildir fyrír því að
einn flugvélarræningjanna,
sem rændu flugvél 14. júní
síðstliðinn og halda nú 39
Bandaríkjamönnum í gísl-
ingu í Beirút, hafí fengi þjálf-
un sína í íran.
Jesse Helms öldungadeild-
arþingmaður heldur því fram
að íranska stjórnin hafí
skipulagt flugvéiarránið.
Hann segir að einn flugvélar-
ræningjanna sé á lista yfir
rúmlega hundrað Líbanon-
menn sem fóru til fran í maí
síðastliðnum ■ boði Píslar-
vottastofnunarinnar sem er
ríkisstofnun.
Reagan Bandaríkjaforseti
segir að þessar stöðugu árásir
á Bandaríkjamenn séu óþol-
andi. Hryðjuverkamenn og
þeir sem þá styðja verði látn-
ir gjalda fyrir verk sín. Hann
gerir ekki aðeins kröfu um
að þeir 39 Bandaríkja-
menn, sem flugvélarræn-
ingjarnir hafa í haldi, verði
látnir lausir, heldur að sjö
aðrir Bandaríkjamenn, sem
einnig er haldið í gíslingu í
Beirút, fái frelsi sitt.
Bandarísk stjórnvöld hafa
að undanförnu gert ítrekaðar
tilraunir til að fá Berri,
leiðtoga shita, til samn-
inga eftir diplómatískum
leiðum. Hingað til hafa
samningatilraunir þessar ver-
ið að mestu árangurslausar
■ Flugvélarræninginn Ali
Atwa, sem sagt er að hafí
fengið hugmyndafræðilega
uppörfun í íran og jafnvel
þjálfun tO hryðjuverka.
þar sem shitar hafa ekki
viljað slá af kröfum sínum
um að rúmiega 700 shitar
sem eru hafðir í haldi í ísrael.
verði látnir lausir.
Berri hefur samt öðru
hvoru gefið út yfirlýsingar
um að hann sé vongóður um
að samningar náist fljótlega
og þannig haldið viðsemj-
endum sínum volgum.
s
J/i
'NEWSINBRIEF
June 28. - Reuter
BEIRUT - Lebanese
Shi’ite leader Nabih Berri
said President Reagan and
President Hafez Al-Assad
of Syria had exchanged
messages on the U.S. hos-
tage crisis and he believed
the issue could be resolved
within two days.
•
BEIRUT - The Shi’ite
mUitia AMAL said it wo-
uld free another U.S. hos-
tage if his health proved
bad, as 39 victims entered
a third week in captivity.
State-owned Beirut Radio
reported the release of
57-year-old Simon Gross-
mayer but a senior offícial
of the Shi’ite AMAL mi-
litia said Grossmayer was
still detained.
•
MANILA - At least 50
people died in floods and
Iandslides in Manila and
surrounding areas after
one of the worst rain-
storms for 10 years, the
government said.
•
MILAN - European
Commission President
Jacques Delors called on
the European Community
to amend its founding tre-
aties to streamline clumsy
decision-making proc-
edures before next year’s
entry of Spain and Portu-
gal.
WASHINGTON - The
index of leading economic
idicators rose in May,
boosting prospects for a
revival in the U.S. eco-
nomy, according to the
||| latestgovernmentfígures.
8; *
ISLAMABAD - An
^ Afghan army Brigadier-
l/j General has been killed in
jj^ action fíghting Moslem
Uj guerrillas in Afghanistan,
^ the offícial Radio Kabul
announced.
•
CORK Ireland - Invest-
igators probing the Atl-
antic seabed for wreckage
of a crashed Air India
Jurnbo jet had „a tcntative
fíx“ on its black-bosx
flight recorder, an Irish
government spokesman
said.
NEW DELHI - The
Indian government has
ordered the release of
about 150 Sikhs from jail
in a new move to ease
tension in the troubled
state of Punjab, the Press
Trust of India reported.
&
ANKARA- A would-
be hijacker was captured
on a Turkish airlines plane
carrying 77 people from
Frankfurt to Istanbul, pol-
ice said.
•
B AGHDAD - Iraq said
its warplanes hit a naval
target in the gulf and the
1 commander of Iraqi naval
I defences said his forces
had destroyed 200 ships
I off the Iranian coast dur-
I ing the past three years.
•
LONDON - Cardinal
Basil Hume, leader of
Roman Catholics in Eng-
I land and Wales, has canc-
elled a visit to Czechosl-
. ovakia next week because
the communist govern-
| ment has not granted him
a visa, a spokesman said.
NEWSINBRIEFJ