NT - 02.08.1985, Page 1
JL
NEWS SUMMARYIN ENGLISH SEEP.21
Reykjavík:
Vinnuslys
í slippnum
■ Maður sem var við vinnu
sína í slippnum í Reykjavík í
gærmorgun var fluttur á slysa-
deild, eftir að hann féli af
göngubrú og niður í slippinn.
Fallið var um einn og hálfur
metri.
Brotist inn í
sólbaðsstofu
■ Brotist var inn í Sólbaðs-
stofuna Afró á Sogavegi í fyrri-
nótt. Einhverju magni af skipti-
mynt var stolið. Að sögn rann-
sóknarlögreglu voru litlar sem
engar skemmdir unnar á hús-
næðinu.
Fjársvikamálið
vatt upp á sig
Farið fram á gæsluvarðhald yfir framkvæmdastjóranum
■ Fjársvik framkvæmda-
stjóra Blindrafélagsins eru
samkvæmt heimildum NT mun
meiri, en virtist við upphaf
rannsóknar og hefur verið farið
fram á gæsluvarðhald yfir fram-
kvæmdastjóranum til 14. ágúst.
í fyrstu var talið að upphæðin
sem hann hefði svikið út úr
félaginu væri 1,5 milljónir.
Tveggja vikna rannsókn rann-
sóknarlögreglu hefur leitt í ljós
að málið er mun umfangsmeira.
Þórir Oddsson hjá RLR
sagði í samtali við NT í gær, að
þar sem skilyrði fyrir gæslu-
varðhaldi væru fyrir hendi,
þætti rétt að krefjast þess. Gerð
hefur verið húsleit hjá fram-
kvæmdastjóranum og hefur
RLR gögn undir höndum sem
tengjast hans umsýslu með
fjármuni félagsins. Þórir vildi
ekki nefna neina upphæð í
þessu sambandi, né gera grein
fyrir því að hverju rannsókn
beindist nú.
Þórir sagði að í dag yrði
tekin afstaða til kröfu RLR um
gæsluvarðhald til 14. þessa
mánaðar. Rannsókn er ekki að
fullu lokið og þótti Þóri því
ekki rétt að "skýra frekar frá
málavöxtum á þessu stigi málsins.
Upp komst um svik fram-
kvæmdastjórans, þegar endur-
skoðandi félagsins lagði fram
spurningu um sex óútskýrðar
ávísanir sem notaðar voru til
þess að greiða út happdrættis-
vinninga. Fimm þessara ávís-
ana voru gefnar út á handhafa
og leystar út af framkvæmda-
stjóranum. Ein ávísunin var
stíluð á Landsbankann og fór
sú upphæð heil og óskipt á
einkareikning framkvæmda-
stjórans.
r
Stálu 160 kg
peningaskáp
■ Innbrotsþjófar höfðu á
brott með sér rammgerðan pen-
ingaskáp frá bílasölu Matthías-
ar, eftir innbrot í fyrrinótt.
Skápurinn sem er vel á annað
hundrað kíló fannst síðar
sömu nótt, á Reykjanesbraut
við Skógarhlíð. Skápurinn
reyndist þá vera læstur, og inni-
haldið óhreyft.
í tengslum við þetta mál rann-
sakar rannsóknarlögreglan
stuld á bláum pall-bíl, sem hvarf
frá Háaleitisbraut þessa sömu
nótt.Bíllinn fannst síðan yfirgef-
inn í Hafnarfirði. Síðar kom í
ljós að annar pall-bíll hafði
verið tekinn ófrjálsri hendi í
Hafnarfirði. Sá bíll er enn
ófundinn, en hann er af gerðinni
Mercedes Bens, gulur að lit
með númerið G-11261.
Hafnarfjörður:
■ Gissur Guðmundsson, formaður Lögreglufélags Hafnarfjarðar sýnir Heilbrigðisnefnd hinar
hörmulegu aðstæður á Lögreglustöðinni. F.v. Gissur, Hrafn Johnsen, form. nefndarinnar, Droplaug
Benediktsdóttir, Haraldur Sigurjónsson og Eyjólfur Sæmundsson. NT-mynd Árni Bjarnu.
Lögreglustöðinni lokað
Tilmæli heilbrigðisnefndar
■ Heilbrigðisnefnd Hafnar-
fjarðar heimsótti lögreglustöð-
ina þar í bæ síðdegis í gær. Eftir
heimsóknina samþykkti nefndin
einróma tillögu til bæjarfógeta
og lögreglustjóra, um að loka
stöðinni 15. ágúst, hafi ekki
verið gerðar úrbætur á þeim
hörmulegu aðstæðum sem rfkja
þar.
Bónusstrækur 9. sept.
- ef ekki semst fyrir þann tíma
■ Bónussamningum samn-
inganefnda vinnuveitenda
og VMSÍ hefur verið frestað
að ósk VSÍ til 4. september
n.k. Hið langa hlé var ákveð-
ið eftir að VSÍ hafnaði alger-
lega tilboði VMSÍ um að
fallast á frestun gegn því að
fiskverkunarfólk fengi greitt
sérstakt 30 króna bónusgjald
á hverja unna klukkustund
til viðbótar núgildandi
bónus.
Að sögn Guðmundar J.
Guðmundssonar, form.
VMSÍ,samþykkti samninga-
nefndin að mæta á næsta
fundi með vinnuveitendum
þann 4. september n.k. Til-
kynnt var jafnframt að Verka-
mannasambandið og samn-
inganefndin niuni leggja það
eindregið til við verkalýðsfé-
lögin að öll bónusvinna verði
stöðvuð frá og með 9. sept-
ember n.k., hafi samningar
þá ekki náðst, og þar til
samið hefur verið um nýjan
bónussamning.
Að sögn Guðmundar er
það ágætt dænti um hve nú-
verandi bónuskerfi er flókið,
að vinnuveitendur hafi borið
því við að þeir þurfi að hafa
tímann til 4. septembertil að
reikna út og mæla upp hvern-
ig margar af þeiin breyting-
um sem VMSl færi fram á
kæmu út í framkvæmd, -
sem sé að vissu leyti rétt hjá
þeim.
„Ég vildi hvorki vera fangi né
lögregla þarna,“ sagði Hrafn
Johnsen, formaður nefndarinn-
ar. „Allar aðstæður eru fyrir
neðan allar hellur. Föngum er
alls ekki upp á klefana bjóðandi
og starfsaðstaða lögreglunnar
er hörmuleg."
„Við vitum vel hvað það
þýðir. Engin ástæða að ætla að
þeim tilmælum verði hlýtt,“
sagði Kjartan Guðmundsson,
varðstjóri þegar hann frétti sam-
þykkt nefndarinnar. „Þeir
heimsóttu stöðina fyrir tveim og
hálfu ári síðast og samþykktu
þá svipuð tilmæli, síðan hefur
ekkert heyrst frá þeim.“
í lögreglustöðinni eru 5
fangageymslur og er gistirýmið
fullnýtt á hverri nóttu og oft
þarf að ferja fanga til Reykja-
víkur yfir nóttina.
Kjartan sagði það sína
skoðun, að ef ekkert yrði gert í
málinu, þá myndu lögreglu-
þjónarnir grípa til eigin ráða og
loka sjálfir klefunum. Yrðu þá
allir fangar fluttir beint til
Reykjavíkur.
Nýskip
un land
mála?
bls.
2
Kanada:
Fékk lim-
inn aftur
■ Kanadískum læknum tókst
í fyrsta sinn í gær að græða á
mann getnaðarlim.
Það voru „plastískur“ skurð-
læknir og þvagfærasérfræðingur
frá Vancouver, sem fram-
kvæmdu þetta líknarverk á
manninum, sem er liðlega tví-
tugur. Skurðaðgerðin tók 7
tíma og var sjúklingurinn við
góða heilsu, eftir atvikum, að
sögn starfsmanna spítalans, en
ekki verður ljóst fyrr en eftir 10
daga, hvort aðgerðin hefur
heppnast.
Að sögn annars læknisins
hafa alls verið framkvæmdar
um 30 aðgerðir af þessu tagi í
heiminum, og „um helmingur
þeirra heppnaðist“. Hins vegar
mun ekki vitað hversu margir af
þessum 30 mönnum njóta nú
eðlilegs kynlífs.
Embættismenn vildu ekki
skýra frá hvernig getnaðarlim-
urinn hefði orðið fyrir slysi.