NT - 02.08.1985, Side 10
Föstudagur 2. ágúst 1985 10
sjónvarp
■ James Garncr í hlutverki einkaspæjarans Marlowe.
Sjónvarp föstudag kl. 22.05:
Marlowe einkaspæjari
■ Föstudagsmyndin fjallar
um Marlowe einkaspæjara og
er hún gerð í Bandaríkjunum
■ Úr myndinni „Dauðinn
ríður hrossi.“ Bang, bang, þú
ert dauður!
árið 1969, byggð á sögunni
„The little sister“ eftir Ray-
mond Chandler.
ítalskur
vestri
■ Það skal strax tekið fram
að seinni laugardagsmyndin er
alls ekki við hæfi barna. Hún
heitir „Dauðinn ríður hrossi
(Death rides a Horse) og er
ítalskur vestri frá árinu 1969.
Leikstjóri er Giulio Petroni en
með aðalhlutverk fara John
Philip Law, Lee Van Cleef og
Anthony Dawson.
Bill vill hefna fjölskyldu
sinnar sem bófaflokkur drap á
hrottalegan hátt þegar hann
var barn. Einn bófanna, Ryan,
hefur afplánað fangelsisdóm
vegna svika samherja sinna.
Bill og Ryan eiga því sam-
eiginlega óvini og hyggja báðir
á hefndir. Þeir eru einkenni-
legir samherjar en hafa þó
sama markmið, að útrýma
drápsmönnunum. Hvort þeim
tekit það eður ei kemur í ljós
á morgun.
Þýðandi er Baldur Sigurðs-
son.
Leikstjóri er Paul Bogart en
með aðalhlutverk fara James
Garner sem leikur Marlowe,
Carrol O’Connor og Rita Mor-
eno.
James Garner hét í eina tíð
James Baumgarner og hefur
sérkennilegan feril að baki.
Hann hætti í menntaskóla, fór
í herinn og særðist í Kóreu-
stríðinu. Hann vann á ýmsum
stöðum eftir það, á bensínstöð,
sem sölumaður, teppalagning-
armaður og sundskýlufyrir-
sæta. Það var tilviljun að hann
hóf að leika og má hann þakka
frama sinn vaxtarlaginu og hlý-
legum persónuleika.
Rita Moreno hiaut Oskars-
verðlaun fyrir aukahlutverk í
„West side Story“ árið 1961.
Hún hefur auk þess leikið í
„The King and 1“ (1956) og
„Singin’in the Rain“ (1952).
Carrol O’Connor hefur m.a.
leikið í „Cleopötru" (1963),
„The Devil’s Brigade“ (1968)
og í „Kelly’s Heroes“ (1970)
en frægastur er hann fyrir leik
sinn í þáttaröðinni „All in the
Family“ þar sem hann hefur
skapað hinn þröngsýna en við-
kunnanlega Archie Bunker.
Marlowe einkaspæjara er
falið að leita ungs manns. Það
verður til þess að hann dregst
inn í margslungið og dularfullt
glæpamál.
Þýðandi er Ellert Sigur-
björnsson.
Sjónvarp laugardag kl. 23.05:
Sjónvarp laugardag kl. 21.05:
■ Laurence Olivier og Jennifer Jones í Carrie.
Laurence Olivier og Jennifer
Jones í laugardagsmyndinns
■ Fyrri laugardagsmyndin
heitir „Carrie“ og er bandarísk
frá árinu 1952, byggð á skáld-
sögu eftir Theodore Dreiser.
Leikstjóri er William Wyler
sem var oft nefndur „90 töku
Wyler“ vegna þess að hann
krafðist fullkomnunar á öllum
sviðum. Wyler vann þrenn
Óskarsverðlaun fyrir „Mrs.
Minever" (1942), „The best
Years of our Lives“ (1946), og
fyrir „Ben-Hur“ (1959).
Með aðalhlutverk fara hinn
þekkti Laurence Olivier og
Jennifer Jones sem hét í raun
réttri Phyllis Isley. Hún vann
Óskarsverðlun fyrir leik sinn í
„Söngur Bernadettu" árið
1943.
Carrie er ung og einföld
sveitastúlka sem flytur til borg-
arinnar. Þar kynnist hún mið-
aldra manni og takast með
þeim ástir, en hann er kvæntur
fyrir og eiginkonan vill ekki
veita honum skilnað.
Þýðandi er Ragna Ragnars.
Sjónvarp mánudag kl. 21.
Crummondspæjari
■ Á mánudagskvöldið verður
sýndur bresk-bandaríski leik-
sviðsfarsinn „Crummond
spæjari“. Leikstjóri er Ter-
ence Williams en leikendur
eru leikhópurinn The Low
Moan Spectacular Comedy
Troupe. Lcikhópur með þessu
nafni er út af fyrir sig ærín
ástæða til að kanna hvað þarna
er á ferðinni.
Tveir þýskir njósnarar koma
til Bretlands á styrjaldarárun-
um til þess að næla sér í
vísindaleyndarmál: Þeim verð-
ur þó ekki kápan úr því klæð-
inu því hinn stórsnjalli spæjarí
Crummond er óbrígðull og sér Þýðandi er Bríet Héðins-
við þeim. dóttir.
Föstudagur
2. ágúst
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn
Morgunútvarpið. 7.20 Leikfimi.
Tilkynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þátt-
ur Sigurðar G. Tómassonar trá
kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
8.15 Veöurfregnir. Morgunorð -
Þórhildur Ólafsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: -
Litli klárinn" Sigurlaug M. Jónas-
dóttir les gamalt ævintýri í þýðingu
Theódórs Árnasonar. Höfundur
ókunnur.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónieikar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. For-
ustugreinar dagblaðanna (útdr.).
Tónleikar.
10.45 „Það er svo margt að minn-
ast á„ Torfi Jónsson sér um
þáttinn.
11.15 Morguntónleikar Tónlist eftir
Rakhmaninoff, Chopin og Rimskí-
Korsakoff.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 „Úti í heimi“, endurminning-
ar dr. Jóns Stefánssonar Jón Þ.
Þór les (22).
14.30 Miðdegistónleikar a. Blokk-
flautukonsert í C-dúr eftir Georg
Philipp Telemann. Michala Petri
og St. Martin-in-the-Fields hljóm-
. sveitin leika; lona Brown stjórnar.
b. Píanókonsert nr. 20 í d-moll K.
466 eftir Wolfgang Amadeus
Mozart. Géza Anda leikur með og
stjórnar Mozarthljómsveitinni í
Salzburg.
15.15 Léttlög.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 Á sautjándu stundu Umsjón:
Sigríður Ó. Haraldsdóttir og Þor-
steinn J. Vilhjálmsson.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Barnaútvarpið Stjórnandi:
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir.
17.35 Frá A til B Létt spjall um
umferðarmál. Umsjón: Björn M.
Björgvinsson. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Tilkynning-
ar. Daglegt mál. Valdimar Gunn-
arsson flytur þáttinn.
19.55 Lög unga fólksins. Þóra Björk
Thoroddsen kynnir.
20.35 Kvöldvaka
21.25Frá tónskáldum Atli Heimir
Sveinsson kynnir Hamrahlíðarkór-
inn og tónskáld.
22.00 Hestar Þáttur um hesta-
mennsku í umsjá Ernu Arnardótt-
ur.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Ur Blöndukútnum - Sverrir
Páll Erlendson RÚVAK
23.15 „West Side Story“ - söng-
leikur eftir Leonard Bernstein
Kiri Te Kanawa, José Carreras,
Tatiana Troyanos, Kurt Ollmann
og Marilyn Horne syngja með kór
og hljómsveit undir stjórn höf-
undarins. Umsjón:Magnús Einars-
son.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00.
Laugardagur
3. ágúst
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
7.20. Leikfimi. Tónleikar.
7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þátt-
ur Valdimars Gunnarssonar trá
kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð -
Karl Matthiasson talar.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.30 Forustugreinar dagblaðanna
(útdráttur). Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga - Helga Þ.
Stephensen kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir
Óskalög sjúklinga, frh.
11.00 Drög að dagbók vikunnar.
Umsjón: Páll Heiðar Jónsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 Inn og út um gluggann.
Umsjón: Emil Gunnar Guðmund-
son.
14.20 Listagrip Þáttur um listir og
menningarmál í umsjá Sigrúnar
Björnsdóttur.
15.20 „Fagurt galaði fuglinn sá“
Umsjón: Sigurður Einarsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Helgarútvarp barnanna
Stjórnandi: Vernharður Linnet.
17.50 Síðdegis I garðinum með
Hafsteini Hafliðasyni.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynning-
ar.
19.35 Elsku mamma Þáttur í umsjá
Guðrúnar Þórðardóttur og Sögu
Jónsdóttur.
20.00 Harmonikuþáttur Umsjón:
Bjarni Marteinsson.
20.35 Útiiegumenn Þáttur Erlings
Sigurðarsonar. RÚVAK.
21.00 Kvöldtónleikar Þættir úr sí-
gildum tónverkum.
21.40 „Framavonir“, smásaga eftir
Erlend Jónsson. Höfundur les.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Náttfari - Gestur Einar Jónas-
son. RÚVAK
23.35 Eldri dansarnir
24.00 Fréttir
24.04 Miðnæturtónleikar
00.55 Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00.
Sunnudagur
4. ágúst
8.00 Morgunandakt Séra Ólafur
Skúlason dómprófastur flytur ritn-
ingarorð og bæn.
8.10 Fréttir
8.15 Veðurfregnir. Forustugreinar
dagblaðanna (útdráttur)
8.35 Létt morgunlög Salon-hljóm-
sveitin í Köln leikur.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar a. „Gakk ei í
dóm við þjón þinn", kantata nr. 105
á 9. sunnudegi eftir Þrenningarhátið
eftir Johann Sebastian Bach. Wil-
helm Wiedl, Kurt Equiluz og Ruud
van der Meer syngja með Tölzer-
drengjakórnum og Concentus
musicus-kammersveitinni í Vínar-
borg Nikolaus Harnoncourt
stjórnar. b. Víólukonsert í G-dúr
eftir Georg Philipp Telemann. Cino
Ghedin og I Musici-kammersveitin
leika. c. Konsert fyrir enskt horn og
hljómsveit eftir Anton Reicha.
Heinz Holliger og Concertgebouw-
hljómsveitin í Amsterdam leika;
David Zinman stjórnar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suður Friðrik Páll
Jónsson.
11.00 Messa I Skálholtskirkju.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.35 MA-kvartettinn
14.30 Miðdegistónleikar a. Pianó-
konsert I a-moll op. 54 eftir Robert
Schumann. Géza Anda og Fll-
harmoníusveit Berlínar leika; Raf-
ael Kubelik stjórnar. b. „Reviere et
Caprice“ op. 8 eftir Hector Beriinoz.
Itzhak Perlman leikur á fiðlu með
Parísarhljómsveitinni; Daniel Bar-
enboim stjórnar.
15.10 Leikrit: „Boðið upp í morð“
eftir John Dickson Carr Fjórði
þáttur: Samningur um líf og
dauða. Þýðing, leikgerð og leik-
stjórn: Karl Ágúst Úlfsson.
Leikendur: Hjalti Rögnvaldsson,
Helgi Skúlason, ErlingurGíslason,
María Sigurðardóttir, Guðmundur
Pálsson, Erla B. Skúladóttir, Þor-
steinn Gunnarsson, Steinunn Jó-
hannesdóttir, Rúrik Haraldsson,
Karl Guðmundsson, Edda V.
Guðmundsdóttir, Guðmundur
Ólafsson, Kristján Franklín
Magnús, Helga Þ. Stephensen,
Eyþór Árnason og Arnar Jónsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Milll fjalls og fjöru Þáttur um
náttúru og mannlíf í ýmsum
landshlutum. Umsjón: örn Ingi.,
RÚVAK.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Síðdegistónleikar a. Sinfónfa
nr. 51 c-moll op. 67 eftir Ludvig van
Beethoven Sinfóníuhljómsveitin í
Chicago leikur; Georg Solti
stjórnar. b. „Hnotubrjóturinn",
svíta op. 71a eftir Pjotr Tsjaíkov-
skí. Concertgebouw-hljómsveitin í
Amsterdam leikur; Eduard van
Beinum stjórnar.
18.00 Bókaspjall Áslaug Ragnars
sér um þáttinn.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynning-
ar.