NT - 02.08.1985, Qupperneq 12
Föstudagur 2. ágúst 1985 12
■ Það er ekki á hverjum degi sem fólki gefst kostur á að bregða sér út í Eldey.
Lára Gunnarsdóttir
í Slunkaríki
■ Á morgun, laugardaginn
3. ágúst, opnar Lára Gunnars-
dóttir sýningu í Slunkaríki á
ísafirði. Á sýningunni eru 14
teikningar, unnar með blýanti,
litblýanti og kolum.
Lára var við nám í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
frá 1978-’83. Þessi sýning er
fyrsta einkasýning hennar en
hún hefur áður tekið þátt í
nokkrum samsýningum.
Sýningin verður opin frá kl.
4-6 þriðjudaga til föstudaga og
frá 3-6 um helgar. Henni lýkur
15. ágúst.
Fyrirlestur um teikni-
kennslu
■ í kvöld kl. 20.30 heldur
Jan Thomæus frá Svíþjóð fyrir-
lestur og sýnir litskyggnur í
Norræna húsinu.
Jan Thomæus er teiknikenn-
ari með áratuga starfsreynslu
og hefur oft sýnt fram á, hversu
mikilvægt sé fyrir börn og ungl-
inga að fá tækifæri til að tjá sig
í myndlist og skapa eigin verk.
Hann er þekktur brautryðj-
andi listmeðferðar á Norður-
löndum og hefur skrifað marg-
ar bækur unt skapandi
myndlist.
í fyrirlestri sínum mun Jan
Thomæus fjalla um menntun
teiknikennara og hvað frjáls
listsköpun sé mikilvæg fyrir
þroska barna og hvernig
teiknikennarar og aðrir upp-
alendur geti haft áhrif á þetta
þroskaferli. Með fyrirlestrin-
um sýnir hann litskyggnur, sem
lýsa slíka þroskaferli hjá dreng
frá því hann er fjögra ára þar
til sextán ára og sést á myndun-
um, hvernig hann vinnur úr
reynslu sinni.
Jan Thomæus er staddur hér
á landi vegna VI. norræna
námsþingsins í listmeðferð og
er einn af fyrirlesurum þar.
Fyrirlesturinn í kvöld er þó
utan við þingið, því að hann er
á vegum Teiknikennarafélags-
ins og ætlaður almenningi. Að-
gangur er ókeypis og allir eru
velkomnir.
Jimmy Boyle og
Gateway-hópurinn
■ í dag verður opnuð í
Norræna húsinu sýning á verk-
um skoska myndlistarmanns-
ins Jimmy Boyle og skjól-
stæðinga hans úr „The Gate-
way Exchange".
„The Gateway Exchange“
er opin vinnustofa fyrir ungt
fólk, sem ýmist er nýkomið úr
fangelsi, nýsloppið undan oki
eiturlyfja, eða þarf á endur-
hæfingu að halda af öðrum
ástæðum.
Jimrny Boyle, stofnandi
þessarar miðstöðvar, er fyrr-
verandi refsifangi, sem talinn
var stórhættulegur umhverfi
sínu. Honum vildi það til
happs, að hann var settur í
tilraunadeild innan Barlienne-
fangelsins í Glasgow. Þar fékk
hann tækifæri til þess að vinna
að höggmyndalist og veita
árásargirni sinni útrás á þann
hátt. Smáni saman varð hann
þekktur listamaður og nýtur
borgari og 1984 stofnaði hann,
ásamt konu sinni. geðlæknin-
um Söru Boyle, „The Gateway”
vinnustofuna. þar vinnur hann
nú að því að hjálpa ungu fólki,
sem farið hefur halloka í lífinu,
að ná sér aftur á strik með
sama hætti og hann gerði sjálf-
ur - að móta og mála og veita
tilfinningum sínum útrás á
þann hátt, en ekki með því að
ráðast gegn þjóðfélaginu með
ofbeldi.
Sýningin er sett upp í Norræna
húsinu í tengslum við VI.
norræna námsþingið í listmeð-
ferð og er um leið framlag til
alþjóðaárs æskunnar.Hún
verður opnuð almenningi kl.
17 ídagog verðuropin daglega
kl. 14-19 til 11. ágúst.
Gönguklúbburinn
Hana-nú í Kópavogi
■ Gönguklúbbur Frístunda-
hópsins Hana-nú í Kópavogi
gengur aftur um Kópavog og
nágrenni á morgun, laugardag-
inn 3. ágúst. Mæting við Digra-
nesveg 12 kl. 10 f.h.
Allir Kópavogsbúar ungir
sem aldnir eru velkomnir með.
Verslunarmannahelgin
1985
Þjórsárdalur - Gaukurinn ’85:
Landleiðirhf.
FráReykjavík-BSÍ
Föstudag2/8kl. 16:00,18:30,20:30
Laugardag3/8kl. 14:00,21:00
Sunnudag4/8kl. 21:00
Mánudag5/8kl. 21:00
Aðgangseyrir að Gauknum ’85 er kr. 1.400.
Fargjald m/áætlunarbíl fram og til baka kr. 520.-
Frá Þjórsárdal
kl.03:15
kl.03:15
kl. 03:15,10:30,17:00
Galtalækur - Bindindismót:
Austurleiðhf.
FráReykjavík-BSÍ FráGaltalæk
Föstudag 2/8 kl. 20:30 —
Laugardag3/8kl. 13:30 —
Sunnudag4/8 - - kl. 16:00
Mánudag 5/8 -- kl. 13:00,16:00
Aðgangseyrir að Bindindismótinu er kr. 1.200,-
Sérstakur unglingaafsláttur er á föstudag fyrir krakka 13-15 ára
kr. 1000.-. Fargjald m/áætlunarbíl fram og til baka kr. 600,-
Þjóðhátíðin í Eyjum:
Herjólfur-sérl. Kristján Jónsson
Frá Reykjavík-BSÍ
Miðvikudag31/7kl. 11:00,19.30
Fimmtudag 1/8 kl. 11:00,19:30
Föstudag 2/8 kl. 08:00,16:30
Laugardag3/8kl. 12:30
Sunnudag4/8kl. 12:30,20:30
Mánudag5/8kl. 11:00,19:30
Ath.: Brottför Herjólfs frá Þorlákshöfn til Vestm. er VA klst.
seinna en brottför áætlunarbíls frá Reykjavík.
Aðgangseyrir að Þjóðhátíð í Eyjum er kr. 1.500,-
Fargjald með Herjólfi er kr. 400,- önnur leið.
Fargjald með áætlunarbíl er kr. 130,- önnur leið. Sérstakt
afsláttarverð: innifalið fargjald með Herjólfi fram og til baka og
aðgangseyrir kr. 2.100.-
Frá Vestmannaeyjum
kl. 07:30,17:00
kl. 07:30,17:00
kl. 05:00,14:00
kl. 10:00
kl. 10:00,18:00
kl. 07:30,17:00
>órsmörk:
kusturleið hf.
rrá Reykjavík-BSÍ
Jaglega kl. 08:30 og einnig
östudaga kl. 20:00
jisting í skála Austurleiða kr. 200.
irbíl fram og til baka kr. 1.100.-
Frá Þórsmörk
Daglega kl. 15:30
p/nótt. Fargjald m/áætlun-
Þingvellir:
Þingvallaleiðhf.
Frá Reykjavík- BSÍ Frá Þingvöllum
Daglegakl. 14:00 ogeinnig
föstudaga kl. 20.00 Daglega kl. 17:00
FaTgjald m/áætlunarbíl fram og til baka kr. 250,-
Laugarvatn:
Ólafur Ketilsson hf.
Frá Reykjavík - BSÍ Frá Laugarvatni
Föstudag 2/8 kl. 10:00,19:30 kl. 16:00
Laugardag3/8kl. 10:00 kl. 16:00
Sunnudag 4/8 kl. 10:00 kl. 17:00
Mánudag 5/8 kl. 10:00 kl. 16:00
Fargjald m/áætlunarbíl fram og til baka er kr. 440,- Sætaferðir í
Aratungu eru kl. 22:00 föstudags- og laugardagskvöld.
Úlfljótsvatn - f jölskylduhátið:
Sérl. Selfosshf.
Frá Reykjavík - BSÍ Frá Últljótsvatni
Föstudag 2/8 kl. 20:00 —
Laugardag3/8kl. 13:00 —
Sunnudag4/8 — kl. 20:25
Mánudag5/8 - - kl,15:20
Fargjald m/áætlunarbíl fram og til baka kr. 360,-
Borgarfjörður ’85 Geirsárbökkum Borgarfirði:
Sæmundur Sigmundsson
Frá Reykjavík - BSÍ Frá Geirsárbökkum
Föstudag2/8kl. 18:30 —
Laugardag3/8kl. 13:00,18:00
Sunnudag4/8kl. 13:00,20:00 kl. 16:00
Mánudag 5/8 -- kl. 16:00
Sætaferðir verða á dansleiki frá tjaldsvæði. Aðgangseyrir að
hátíðinni Borgarfjörður '85 er kr. 700.-. Frítt er fyrir börn innan
12 ára í fylgd með fullorðnum. Fargjald m/áætlunarbíl fram og
til baka kr. 700,-
Atlavík
Ferðirfrá:
Reykjavík um Akureyri
föstudag 2/8 kl. 08:00
Reykjavík um Höfn
föstud.2/8 kl. 13:00
Borgarnesiföstud.2/8kl. 10:00
Blönduósiföstud. 2/8 kl. 13:30
Varmahlíðföstud. 2/8 kl. 14.30
Hellissandi föstud. 2/8 kl. 07:45
Ólafsvík föstud. 2/8 kl. 08.00
Grundarfirði föstud. 2/8 kl.08:30
Stykkishólmi föstud. 2/8 kl. 09:30
Akureyriföstud. 2/8 kl. 08:15,17:00
laugard.3/8kl. 08:15
Höfn í Hornafirði
föstud. 2/8 kl. 20:00
Egilsstöðum
fimmtudag 1/8 kl. 11:00, 20:30, 24:00
föstudag 2/8 kl. 10:30, 11:30, 12:00, 16:30, 19:00,
20:30, 22:30, 00:30
laugardag 3/8 kl. 11:00, 13:00, 15:00, 20:30, 22:00, 01:00
sunnudag 4/8 kl. 10:00, 12:00, 13:15, 17:00, 22:00, 02:00
Fargjald aðra leið með áætlunarbíl kr. 120,-
fargjald fram og til baka
kr. 2.600,-
kr. 2.500,-
kr. 2.200,-
kr. 1.500,-
kr. 1.300,-
kr. 2.000,-
kr. 2.000,-
kr. 2.000.-
kr. 2.000,-
kr. 1.000,-
kr. 1.000,-
kr. 1.300,-
Ferðir frá Atlavík til:
Reykjavíkur, Borgarness, Blönduóss og Varmahlíðar mánudag
5/8 kl. 13:00. Snæfellsness, Hellisands, Olafsvíkur, Grundarfjarð’-
ar og Stykkishólms mánudag 5/8 kl. 08:00.
Hafnar í Hornafirði
mánudag5/8kl. 13:00ogl5:30
Akureyrar mánudag 5/8 kl. 13:00
Egilsstaða
laugardag 3/8 kl. 10:00,12:00, 14:00, 19:00, 21:30, 24:00, 03:00
sunnudag 4/8 kl. 11:00, 12:45, 16:00, 21:00, 01:00, 03:00
mánudag 5/8 kl. 08:30, 10:30 13:00, 17:30, 19:30, 21:00.
Aðgangseyrir að útihátíðinni í Atlavík er kr. 2000,-
Sumartónleikar í
Skálholtskirkju:
Sumarhátíð sembalsins
■ Verslunarmannahelgin er
fjórða hátíðarhelgi Sumartón-
leika í Skálholtskirkj u. Þá mun
finnski semballeikarin Elina
Mustonen leika tónsmíðar eft-
ir Johann Sebastian Bach, Ge-
org Friedrich Hándel og Dom-
enico Scarlatti en í minningu
þessara þriggja tónskálda hef-
ur árið 1985 verið nefnt Tón-
listarár Evrópu.
Elina Mustonen nam sembal-
leik í Finnlandi þegar í barn-
æsku og síðar hjá hinum fræga
semballeikara Ton Koopman í
Amsterdam. Þó ung sé að
árum hefur hún þegar öðlast
frægð í heimalandi sínu og
mun hún í sumar halda þar
einleikstónleika á þremur tón-
listarhátíðum. Hún kennir
semballeik við Sibeliu-
sarakademíuna í Helsinki.
Kl. 15 á laugardag leikur
Elina Mustonen svítur í d-moll
og F-dúr eftir Hándel, tvær
sónötur í C-dúr eftir Scarlatti
og þátt úr Tónafórninni eftir
Bach.
Kl. 17 á laugardag er á
efnisskrá hennar svítur í g-moll
og f-moll eftir Handel, tvær
sónötur í A-dúr eftir Scarlatti
og tokkata í e-moll eftir Bach.
Kl. 15 á sunnudag leikur
hún fyrri efnisskrá sína frá
deginum áður.
Kl. 17 á sunndeginum er
síðan messa og er prestur sr.
Guðmundur Öli Ólafsson í
Skálholti en listamenn sjá um
tónlistarflutningin.
í tengslum við tónlistar-
hátíðina er sýning frá Goet-
hestofnuninni í Lýðháskólan-
um í Skálholti um ævi Bachs,
Hándels og Schutz. Ennfremur
eru seldar þar veitingar.
Áætlunarferðir eru báða
dagana í Skálholt og er farið
kl. 13 frá Umferðarmiðstöð-
inni í Reykjavík.
Ókeypis aðgangur er að tón-
leikunum og er fólki ráðlagt að
koma tímanlega því að kirkjan
hefur verið þéttsetin um
hátíðardaga.
„Kynlíf íslenskra
karlmanna“
í Gallerí salnum,
Vesturgötu 3
■ Nú fer í hönd síðasta sýn-
ingarhelgi í Gallerí salnum,
Vesturgötu 3 á teikningum að-
standenda Gallerísins, sem ber
yfirskriftina „Kynlíf íslenskra
karlmanna". Ekki segja að-
standendur sýningarinnar þó
samhengið Ijóst.
Galleríð er opið kl. 1-6 alla
daga nema mánudaga. Fimmtu-
daga er opið til kl. 22. Sýn-
ingunni lýkur 7. ágúst.