NT - 02.08.1985, Qupperneq 21
Föstudagur 2. ágúst 1985 21
Utlönd
Israel;
Kynþátta-
höturum
bönnuð
þingseta
Jcrúsalem-Keuter
■ ísraelska þingið sam-
þykkti í gær ný lög sem
banna flokkum sem
boða kynþáttahatur að
bjóða fram til þing-
kósninga. Lögin banna
andlýðræðislegum
flokkum einnig að
bjóða fram. Nýju
lögunum er aðallega
stefnt gegn flokki Meir
Kahane, rabbía, sem
berst gegn aröbum.
Þingið samþykkti
lögin með 66 atkvæðum
gegn engu, en sex þing-
menn frá vinstrisinnuð-
um flokkum sátu hjá.
Kahane var kosinn á
þing í kosningunum í
fyrra. Hann berst fyrir
því að hinar tvær mill-
jónir araba, sem búa í
ísrael, verði reknar úr
landinu.
Lögin eru ekki aftur-
virk og því mun Kahane
sitja áfram á þinginu,
en hann getur ekki farið
aftur í framboð án þess
að breyta stefnu sinni.
Talið er að stjórnin
muni einnig nota lögin
til að berjast gegn rnjög
vinstrisinnuðum
flokkum.
Kirkjuleiðtogar mótmæla
stríðsstefnu Reagans
Washington-Reuter
■ Nálega 100 kirkjuleiðtogar
í Bandaríkjunum gagnrýndu
Bandaríkjastjórn í gær fyrir að
reyna að draga úr andstöðu
almennings í landinu við hern-
aðaríhlutun í Nicaragua. Bisk-
upakirkan í Washington réðst
einnig harkalega að stjórninni
fyrir geimvarnaráætlun hennar.
Caspar Weinberger, varnar-
málaráðherra, er meðlimur í
þeim söfnuði.
Kirkjuleiðtogarnir sögðu í
yfirlýsingu sinni að vafasamt
væri að Nicaragua ógnaði öryggi
Bandaríkjanna. Þeir skoruðu á
stjórnvöld að sýna meiri skiln-
ing og friðarvilja í samskiptum
sínum við stjórn Nicaragua.
„Stjórn Reagans er bersýni-
lega að reyna að minnka and-
stöðu við mögulegar sjó- og
loftárásir á Nicaragua," sagði í
■ Bandarískir kirkjuleiðtogar
þóknanleg.
telja ekki að „stjörnustríðsáætlun“ Bandaríkjaforseta sé guði
yfirlýsingu leiðtoganna.
Meðal þeirra sem undirrituðu
hana voru forseti samtaka gyð-
inga í Bandaríkjunum, forseti
þjóðþings kirkna í landinu og
John Walker, biskup Biskupa-
kirkjunnar í Washington.
Biskupakirkjan hefur undan-
farin tvö ár rannsakað ítarlega
kjarnorkumál og samskipti
Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna. 1 120 síðna skýrslu um
málið kemst söfnuðurinn að því
að líklega búi önnur og hættu-
legri hugmynd á bak við geim-
varnaráætlunina. Nefnilega til-
raun Bandaríkjamanna til að ná
yfirburðarstöðu í kjarnorkuvíg-
búnaðarkapphlaupinu.
Þá gagnrýnir Biskupakirkjan
einnig MX kjarnorkueldflauga-
áætlun Reagans forseta.
Þess má geta að Weinberger
var eitt sinn gjaldkeri hjá söfn-
uði Biskupakirkjunnar í Kalif-
orníu. Hann er mjög kirkjuræk-
inn og leggur iðulega leið sína í
St. John’s kirkju söfnuðarins í
Washington.
Leiðtogabros
vekja vonir
■ Læknar eru nú að kanna
hvort krabbameinsfrumur leyn-
ist í nefí Reagans Bandaríkja-
forseta.
Bandaríkin:
Krabbameinsrann-
sókn á forsetanef i
W'ashington-Reuter:
■ Bandarískir læknar fjar-
lægðu smá skinnbút af
nefi Reagans forseta síðastlið-
inn þriðjudag til að kanna
hvort þar væru krabbameins-
frumur.
Reagan hafði kvartað yfir
pirringi í skinninu og læknarn-
ir ákváðu að skera það burt.
Larry Speaks talsmaður Hvíta
hússins segir pirringinn stafa
af því að þar hafi plástur
haldið slöngu fastri inni í nefi
forsetans þegar hann gekkst
undir skurðaðgerð 13. júlí
síðastliðinn.
Við skurðaðgerðina reynd-
ist Reagan hafa krabbameins-
æxli í endaþarmi. Læknar telja
góðar líkur á því að það hafi
ekki borist til annarra líkams-
hluta. En til vonar og vara ætla
þeir samt að kanna hvort
krabbameinsfrumur séu í
nefskinni forsetans.
Helsinki-Reuter:
■ Bros og vinalegar viðræður
utanríkisráðherra risaveldanna
á fundum í Helsinki í tilefni tíu
ára afmælis Helsinkisáttmálans
hafa vakið vonir um að nýrrar
þíðu sé að vænta í samskiptum
Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna.
Eduard Shevardnadze utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna
lýsti yfir ánægju með viðræðurn-
ar við utanríkisráðherra vest-
rænna ríkja og sagði að þær
hefðu verið skref í átt til bættra
samskipta austurs og vesturs.
Hann sagðist halda heim til
Sovétríkjanna aftur ánægður
yfir því hvernig fundurinn hefði
gengið.
En sovéskir og bandarískir
embættismenn vöruðu samt við
of mikilli bjartsýni vegna þessa
fyrsta fundar Shevardnadze,
sem er nýorðinn utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna og George
Shultz utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins,
Vladimir Lomeiko, sagði t.d.
„Gleymið ekki að ein svala býr
ekki til sumar.“
Bandarískir embættismenn
sögðust heldur ekki hafa orðið
varir við að Sovétmenn hefðu
breytt afstöðu sinni til ýmissa
stórmála eða afkipta þeirra af
Afghanistan eða hvernig þeir
taka á mannréttindabaráttu
stjórnarandstæðinga heima
fyrir.
Skógarbrunar
í Frakklandi
Cannes-Reuter
■ Fimm brunaliðsmenn
hafa látist í baráttunni við
mikla skógarelda nálægt
Miðjarðarhafsströnd
Frakklands. Eldarnir hófust
á miðvikudagsnótt nálægt
Toulon og Nice. Skógareld-
arnir eru sagðir þeir mestu
sem orðið hafa í Frakklandi
í fimmtán ár.
Að minnsta kosti 130
manns hafa slasast í barátt-
unni við eldhafið sem færist
stöðugt nær Miðjarðarhafs-
ströndinni. Surns staðar
geysist eldurinn áfram með
sama hraða og hestur á
harðastökki. Slökkviliðs-
menn segja að eldurinn hafi
líklega kviknað út frá neista
þegar tvær háspennulínur
rákust saman í sterkum
vindi.
Bandaríkin:
3000 skattlausir
milljónamæringar
Washington-Reuter:
■ Bandaríski þingmaður-
inn Jake Pickle hefur birt
skýrslu þar sem kemur fram
að 3.170 skattborgarar, sem
höfðu yfir milljón dollara (42
milljónir ísl. kr.) í árstekjur
hafi komist hjá því að greiða
tekjuskatt til bandaríska
ríkisins á síðasta ári.
í skýrslunni kemur einnig
fram að 29.800 Bandaríkja-
menn með árstekjur yfir
250.000 dollara (10 milljónir
ísl. kr.) árið 1983 hafi að
mestu sloppið við tekjuskatt
í fyrra.
Pickle, sem er demokrati,
sagði að þessar tölur sýndu
betur en nokkuð annað að
skattakerfið í Bandaríkjun-
um væri óréttlátt og þarfnað-
ist endurskoðunar. Hann
sagði að skattlausu milljóna-
mæringamir notuðu ýmsa frá-
dráttarliði, sem þingið hefði
.samþykkt, til að koma sér
‘hjá því að greiða skatt.
Hann sagðist ekki trúa því
að þingið hefði ætlað að gefa
auðmönnum möguleika á því
að skjóta sér alveg undan því
að greiða skatta. Allir ættu
að greiða það sem þeim bæri.
Dýragarður
notaður við
skjálftaspár
Moskva-Reuter
■ Sovéskir vísindamenn eru
að koma upp smádýragarði í
fjöllum Mið-Asíu þar sem þeir
ætla að kanna hvort hegðun
ýmissa dýra geti ekki gefið
vísbendingu um yfirvofandi
jarðskjálfta.
Meðal þeirra dýra sem höfð
verða í dýragarðinum má
nefna múrmeldýr, sem er af
íkornaættinni og heldur til í
holum sem það grefur. Tass-
fréttastofan segir að múrmel-
dýr hafi í mörgum tilvikum sýnt
með hegðun sinni að jarð-
skjálfti væri yfirvofandi.
„Lífjarðskjálftatilrauna-
stöðin“ verður nálægt Alma
Ata sem er höfuðborg Kaz-
akhstans í Sovétríkjunum.
§
s
$
Ui
'NEWS IN BRIEF
August 1. Reuter
HELSINKI - Soviet for-
eign Minister Eduard She-
1 vardnadze called his talks
| with Western niininsters
this week a step forward
j for East-West relations
: and said they had convin-
j ced him there was willing-
, ness in the West to reduce
Clobal tensions.
•
HELSINKl -The 10 Eur-
opcan Community nations
plus Spain and Portugal
agreed to summon their
envoys in South Africa
! back to Europe for cons-
ultations, but remained
deeply split over calls for
economic sanctions ag;r
inst Pretoria.
•
TUMAHOLE - South
Africa - Nobel Peace
Prize Winner Desmond
Tutu challenged Pretoria,
saying he wouid defy new
restrictions on black fun-
erals. The black Anglican
bishop was addrcssing
2,000 mourners at a funer-
al for township riot
victims.
•
WASHINGTON - The
White House raised strong
objections to anti-apart-
heid legislation imposing
economic sanctions on
South Africa after the bill
was approved hy a special
joint committee and Ihe
senate and House of Rep-
resentatives.
•
MANAGUA-The Nicar-
aguan Defence Ministry
said its armed forces had
been placed on maximum
alert after a U.S. aircraft
„ carrier was detected off
1the country’s Caribbean
^ coast.
CQ •
% WASHINGTON - Six pe-
ople, including a U.S.
» Army Lieutenant-Colon-
Ul el, have been arrested for
^ plotting to smugglc mili-
tary weapons worth milli-
ons of dollars to Iran, the
Federal Bureau of Inve-
stigation (FBI) said.
•
MOSCO W - Soviet leadcr
Mikhail Gorbachev has
assumed the chairmanship
of the powerful defencc
committee which has supr-
eme control of the armed
forces in the event of war,
'1 a senior Soviet official
said.
•
LIMA - Peru’s new go-
verninent announced an
emergency economic plan
U. which froze prices, slashed
Sy loan rates and lifted mini-
mum wages by 50 per
^ cent. The moves aim to
5 curb runaway inflation.
S CANNES - France - Five
3 flremen died and holi-
daymakers fled for their
tg lives as troops and flremen
^ battled a wall of flame
^ racing through highland
■ forests towards the Medi-
terranean coast.
•
IVIENNA - Sparkling
wine and grape juice have
been implicated in Aus-
tria’s winc-doctoring
scandal, but a top offlcial
said juices for cxport were
not affected.
•
WASHINGTON - More
than 3,000 U.S. million-
aires using tax shelters
approved by congress paid
virtually no federal inc-
ome tax last year, Cong-
ressman Jake Pickle, a
Texas Democrat, said.
NEWSINBRIEFJ