NT - 02.08.1985, Qupperneq 23
Föstudagur 2. ágúst 1985 23
Landsmótið í golfi:
Sigríður vann
í 2. flokki
■ Glundroði í vöm KR eftir að Skagastúlka hefur náð að smeygja sér í gegnum vöm Vesturbæjarliðsins. Smugurnar í vörn þeirra
röndóttu reyndust þó ekki nægilega margar í gærkvöldi því f A mátti sætta sig við jafntefli, 3-3.
1. deild kvenna:
Skaginn tapaði stigum
- náði aðeins jafntefli 3-3 gegn KR
■ KR-stúlkurnar urðu fyrstar
allra til að taka stig af stölium
sínum frá Akranesi í 1. deild
kvenna. Liðin gerðu 3-3 jafn-
tefli í Frostaskjólinu í gær, en í
hálfleik leiddi KR 2-1. Þá sigr-
aði Breiðablik Keflavík 0-9.
Ragnheiður Jónasdóttir skor-
aði fyrsta markið í leiknum
þegar í upphafi í Reykjavík og
kom í A í 0-1. Er um 10 mínútur
voru af leik var Kristrúnu Heim-
isdóttur hrint í vítateig ÍA og
Árna Steinssen skoraði úr vít-
inu. Björg Sigþórsdóttir kom
svo KR yfir fyrir hlé.
Halldóra Gylfadóttir jafnaði
metin með skoti í þverslána og
inn á 1. mínútu síðari hálfleiks
en um miðjan hálfleik fékk KR
aftur víti. Boltinn hrökk í hendi
á Skagastúlku í vítateig. Arna
skoraði aftur, 3-2.
Er 20 sekúndur voru eftir
klikkaði svo rangstöðugildra
KR og Guðrún Gísladóttir
komst í gegn. Hún skaut í slána
og inn, en ekki fór knötturinn
nema rétt inn fyrir línuna. Varð
af þessu nokkur rekistefna, en
línuvörðurinn var viss í sinni
sök.
Erla Rafnsdóttir skoraði fiög-
ur marka UBK gegn ÍBK. Asta
B. Gunnlaugsdóttir og Lára Ás-
bergsdóttir skoruðu tvö hvor og
Ásta María Reynisdóttir eitt.
■ Sigríður B. Ólafsdóttir,
GH. Sigraði í 2. flokki kvenna í
landsmótinu í golfl, sem nú
stendur yflr á Akureyri. Hún
lék holurnar 36 á 189 höggum.
Hildur Þorsteinsdóttir, GK,
varð önnur á 198 höggum og
Kristine Eide, NK, þriðja á 198
höggum. Þær Hildur og Kristine
þurftu að leika bráðabana um
silfrið og sigraði þá Hildur.
Skor hinna 35 keppenda í
meistaraflokki karla er frekar
slakt og hefur Stóri-boli reynst
þeim erfiður, þrátt fyrir að golf-
völlurinn sé í toppformi.
Sigurður Pétursson, GR og
Ómar Örn Ragnarsson, GL,
eru efstir með 75 högg og Si-
gurður Hafsteinsson, GR, er
þriðji með 76 högg. Þá kemur
Hannes Eyvindsson, GR, með
77 högg og í 5.-6 sæti eru jafnir
Karl Omar Karlsson, GR, og
Gylfi Kristinsson, GS, með 78
högg.
I meistaraflokki kvenna eru
Þórdís Geirsdóttir, GK, og
Steinunn Sæmundsdóttir, GR,
efstar með 83 högg. Ragnhildur
Sigurðardóttir, GR, og Kristín
Pálsdóttir, GK, hafa leikið
fyrstu 18 holurnar á 84 höggum.
íslandsmeistari kvenna frá
því í fyrra, Ásgerður Sverris-
dóttir, GR, er í 5.-6. sæti með
92 högg.
I 1. flokki kvenna leiðir Erla
Adolfsdóttir, GA, á 93 höggum
og Sigurbjörg Gísladóttir, GV
hefur leikið holurnar 18 á 96
höggum. Það hefur Aðalheiður
Jörgensen, GR, reyndar einnig
gert og eru þær jafnar í 2.-3.
sæti.
í 1. flokki karla er Helgi
Eiríksson, GR, efstur eftir
fyrstu 18 holurnar með 75 högg.
Stefán Unnarsson, GR, er ann-
ar með 77 högg og tveir eru
jafnir í 3.-4. sæti. Ólafur Gylfa-
son, GT, og Óttar Ingvarsson,
GR, hafa báðir leikið á 78
höggum.
I 2. flokki karla hafa verið
leiknar 36 holur og þar eru þrír
efstir og jafnir á 168 höggum,
Karl H. Karlsson, GK, Rúnar
Gíslason, GR og Guðmundur
Sigurjónsson, GS, hafa allir
leikið á þeim höggafjölda.
2. deild kvenna:
Haukasigur
-og sætií l.deild tryggt
■ Haukar tryggðu sér rétt til
keppni í 1. deild kvenna að ári,
er þær sigruðu Framstúlkurnar
í B-riðli 2. deildar 4-0 í Hafnar-
firði í gærkvöldi. Þá sigraði
Þórgerður Selfoss 0-5.
Helena Önnudóttir potaði
knettinum í net Framara í fyrri
hálfleik og þannig stóð í hléi. í
þeim síðari var hún svo aftur á
ferðinni og skallaði þá knöttinn
í netið, hennar 10. mark í sumar
í deildinni. Hafdís Guðjóns-
dóttir varð svo fyrir því óláni að
■ Fyrir stuttu léku Haukar tvo leiki og
unnu báða. Fyrst 2-0 gegn ÍR og skor-
uðu þá Anna Guðmundsdóttir og Hel-
ena mörkin. Svo gegn Þórgerði og
vannst sá leikur 6-2. Helena gerði tvö,
Anna eitt, sem og þær Jóhanna Pálsdótt-
ir, Hrafnhildur Gunnarsdóttir og
Sandra Rúdolfsdóttir.
í A-riðli sigraði Víkingur og kemst í
1. deild en Víkingur verður að leika við
Hauka um meistaratitil 2. deildar. Vík-
gera sjálfsmark og lokaorðið
átti Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Hrafnhildur Hreinsdóttir mis-
notaði víti fyrir Fram í síðari
hálfleik, skaut yfir.
Á Selfossi vann Þórgerður,
sameiginlegt lið Hveragerðis og
Þórs Þorlákshöfn, góðan sigur.
Sigurborg „Lillý“ Ólafsdóttir
skoraði eina markið fyrir hlé og
eftir það bætti hún við tveimur
mörkum. Pia Löve Sörensen
skoraði hin tvö, annað úr víta-
spyrnu.
HM keppni landsliða í tennis:
BeckergegnUSA
■ í dag hefst í Hamborg keppni Vestur-Þjóð-
verja og Bandaríkjamanna í heimsmeistara-
keppni landsliða í tennis. Viðureign þessi er
einkum athygli verð fyrir þær sakir að Vestur-
Þjóðverjar eiga kornunga tennisstjörnu sem
skaust upp á stjörnu himininn í London í fyrri
mánuði með því að vinna einliðaleik karla á
Wimbledon mótinu sem er stærsta tennismótið
sem haldið er í heiminum. í annan stað er vert
að líta keppnina frá þeim sjónarhóli að bestu
spilarar Bandaríkjanna, þeir John McEnroe og
Jimmy Connors munu ekki verða með.
Þrátt fyrir að það væri vitað fyrir löngu, voru
Vestur-Þjóðverjar ekki taldir eiga minnstu
möguleika á sigri gegn Bandaríkjunum sem
hafa unnið heimsmeistarakeppni þessa 28
sinnum. Það var ekki fyrr en Boris Becker,
yngsti Wimbledonmeistari sögunnar, kom til
skjalanna sem farið var að tala um möguleika
Þjóðverja sem raunhæfan.
Þeir hafa aðeins einu sinni leikið til úrslita um
„Davicup“ eins og Engilsaxar kalla heims-
meistaramótið. Það var árið 1970 er þeir
skftlágu fyrir einmitt Bandaríkjamönnum með
0-5.
Becker er nánast þjóðhetja í landi sínu og það
hvílir mjög mikið farg á herðum hans vegna
leikjanna gegn USA. Auk þess er þetta fyrsta
skipti sem hann keppir á heimavelli síðan
Wimbledontitillinn varð hans.
FERÐAFOLK
Flýtið ykkur hægt
Hjá okkur er helgarsala,
þá er opið sem hér segir:
Föstudaga kl. 18.30-20.30
Laugardaga kl. 16.00-20.30.
Sunnudaga kl. 16.00-20.30.
Alla virka daga er
verslunin opin kL 9.00-
18.00.
VERIÐ VELKOMIN!
Kaupfélag
Ólafsvíkur.
m
ingur lék við Grindavík suður með sjó
um daginn og vann 1-2. Inga Lára
Þórisdóttir skoraði fyrst fyrir Víking, en
Svanhvít Másdóttir jafnaði og þannig
stóð í hálfleik. Sigurmarkið gerði svo
Hrund Rúdólfsdóttir.
Þá sigraði Víkingur Grundarfjörð 5-0
fyrir stuttu. Inga Lára skoraði tvö
markanna og Hrund, Helena Ólafsdótt-
ir og Valdís Birgisdóttir gerðu eitt hver.
Stórsigur Noregs
- unnu ísland 7-2
■ ísland tapaði illa fyrir Noregi í
gærkvöldi í fjórðu og næstsíðustu
umferð Norðurlandamóts drengja-
landsliða, sem nú stendur yfir í Berg-
en í Noregi. Norsku strákarnir skor-
uðu sjö sinnum, en þeir íslensku
aðeins tvisvar.
Norsararnir skoruðu fyrstu þrjú
mörk leiksins og þannig var staðan í
hálfleik. Gunnlaugur Einarsson náði
að laga stöðuna aðeins með marki, en
þeir norsku bættu þá hinu fjórða við.
Þá skoraði Gunnlaugur aftur og staðan
4-2 fyrir Noreg. En lokaspretturinn
var Norðmannanna. Þeir röðuðu inn
þremur mörkum án svars og sigruðu
7-2.
Annars eru allar fréttir af leiknum
af afar skornum skammti vegna þess
hve treglega gengur að ná í Islending-
ana í Noreei.
FERÐAMENN
Vöruhúsið Hólmkjör er ein stærsta
verslun íStykkishólmi.
Verslunin býður upp á nýlenduvörur,
heimilistæki og fatnað með meiru.
Hafieitthvað gleymstsem þú ætlaðir
að hafa með þér í ferðalagið þá má n
gera ráð fyrirað við ^
getumgerteitthvaðfyrir ^ ^
þiQ■
Hm..,éggleymdi
stuttbuxum og
hamborgurum.
0
VÖRUHÚSID
HÓLMKJÖR
STYKKISHÓLMI
TE-Húsið er kvöld- og
helgarsala.
Opið frá kl. 20 til23
virka daga en kl. 13 til 23
um helgar.
VERIÐ VELKOMIN!