NT - 10.08.1985, Page 7

NT - 10.08.1985, Page 7
Laugardagur 10. ágúst 1985 7 Ólafur Ketilsson: Um hnakkapúða og bílbelti umferðarráð, líklega með fimma manna starfslið, til þess að telja ökutjónin, hvað það gjörir annað fyrir okkur en láta birta þau tjónin í blöðum, og láta lesa þær tölur í ríkisút- varpi, og sjónvarpinu líka. Við ökumenn sú hættulegasta og heimskasta sétt landsins, þyrft- um bæði kennslu, við verkið, svo ogendurtekna tilsögn. Það sem við höfum síðast heyrt, að vísu frá lögreglumönnum þar sem annar galaði í útvarp frá Ártúnshöfða, en hinn frá Akureyri, að vísu meinlaust hjál. Svo og í dag frá lögreglu- manni og umferðarráðsmanni, þar sem þeir bentu aðeins á það að aka eftir aðstæðum, svo og að það vantaði miklu meira fé til Umferðarráðs, en Árnes- ingur okkar sem fékk ekki að tala út var því varla samþykk- ur. Vona að okkar alþingis- menn sem vilja vaka yfir vel- ferð umferðarmála, endurbæti á næsta Alþingi sína hnakka- púðatrú, en hinir hvíli hjá þeim, sem hvíla á hnakkanum eftir að þeir hafa fengið sínar þrjár undanþágur frá öllum umferðarlögum hjá sjálfum dómsmálaráðherranum. Ólafur Ketilsson. 3. gr. Á eftir 64. gr. komi nýr liður og ný grein, svohljóðandi: H. Um notkun öryggisbelta í bifreiðum. 54 gr a Hver sá, er situr í framsæti bifreiðar, sem búið er öryggis- belti, skal nota það við akstur á vegum. Eigi er skylt að nota öryggisbelti við akstur aftur á bak. Sama gildir um akstur á bifreiðastæðum, við bensín- stöðvar eða við svipaðar að- stæður. Dómsmálaráðherra getur sett reglur um undanþágur frá notkun öryggisbelta, ef heilsu- fars- eða læknisfræðilegar ástæður eru taldar gera slíka undanþágu brýna. Eigi er skylt að nota öryggis- belti í leigubifreiðum til mann- flutninga. Dómsmálaráðherra getur sett reglur um undan- þágu frá notkun öryggisbelta við annan sérstakan akstur, eða við erfið og hættuleg skil- yrði utan þéttbýlis, svo sem í mikilli ófærð eða þar sem hætta getur verið á skriðuföllum eða snjóflóðum. 13. bindi mannkynssögu ■ Lög um hnakkapúða og bílbelti ásamt þremur undan- þágum voru samþykkt á Al- þingi þann 25. maí 1981, sem eru skráð þannig á heillri síðu sem hér með fylgir á sérblaði no.55. ' Um breyting á umferðarlög- um no. 40 1968 sbr. lög 1970 og lög nr. 30. 1977. Á eftir 2. málsgrein 5. gr. laganna komi ný málsgrein svohljóðandi. í þeim bifreiðum sem búnar eru öryggisbeltum skv. þessari grein, skuli og vera hnakka- púðar af viðurkenndri gerð á framsætum. Ákvæði þetta gild- ir um bifreiðar sem fluttar eru til landsins eftir 1. janúar 1983. 2. gr. Heimilt er að aka á reiðhjóli og leiða reiðhjól á gangstéttum og gangstígum, ef það er ekki til hættu eða óþæg- inda fyrir aðra vegfarendur. b.8. málsgrein orðist svo; Reglur þessar gilda einnig um létt bifhjól. 3. gr. svohljóð- andi: H. Um notkun öryggis- belta í bifreiðum. 64. gr. a. Hver sá, er situr í framsæti bifreiðar, sem búið er öryggis- belti, skal nota það við akstur á vegum. Eigi er skylt að nota öryggisbelti við akstur aftur á bak. Við bensínstöðvar eða við svipaðar aðstæður. Dóms- máiaráðherra getur sett reglur um undanþágur frá notkun öryggisbelta, ef læknisfræði- legar ástæður eru taldar gera slíka undanþágu brýna. Dóms- málaráðherra getur sett reglur um undanþágu frá notkun ör- yggisbelta við annan sérstakan akstur. 4. gr. leiðir þó ekki til lækkunar eða niðurfellingar fé- bóta. 5. gr. Dómsmálaráð- herra skipar 19 menn í Um- ferðarráð tilþriggja ára í senn. 6. gr. Eigi skal þó refsa fyrir brot gégn 3. gr. 7. gr. Lög þessi öðlist þegar gildi. Samþykkt á Alþingi 25. maí 1981. í framhaldi frá þessum lög- um ræddu alþingismenn á síð- astliðnu Alþingi mjög mikið og lengi, um það hvort það skyldi sekta okkur ökumenn ef við hlýddum ekki nefndum lögum, sem var að lokum fellt. Nú leyfi ég mér að spyrja þá hátt- virtu alþingismenn sem sömdu og samþykktu nefndar breyt- ingar á umferðarlögunum, hverju þau hafa breytt til bóta í akstrinum,? og hvaða ákvæð- um þau hafa breytt við kennslu til ökuverka, og áhrifum kennslunar? Við hinir eldri ökumenn sem lærðum ekki að aka óskum eftir því'. Ég vil líka spyrja það nítján manna laga mannkyn: litröö AB ■ Saga mannkyns. Ritröð AB. 13. bindi: Stríð á stríð ofan 1914-1945, eftirHenning Poulsen. Gunnar Stefánsson íslenskaði. Almenna bókafé- lagið 1985. 272 bls. Margt bar óneitanlega til tíðinda á því tímabili mann- kynssögunnar, sem þetta bindi í nýrri ritröð Almenna bóka- félagsins greinir frá. Tvær heimsstyrjaldir voru háðar, sem færðu yfir mannkynið meiri hörmungar en áður höfðu þekkst. Daglegt líf fólks tók meiri og örari breytingum víðast hvar en dæmi voru til á jafnskömmum tíma áður og miklar breytingar urðu á valda- hlutföllum í heiminum. Við upphaf tímabilsins voru gömlu evrópsku stórveldin enn þau sem mestu réðu, en þegar tímabilinu lauk höfðu þau gengið sér svo til húðar að þau áttu sér ekki viðreisnar von sem heimsveldi. í þeirra stað komu Bandaríkin og Sovétrík- in, sem voru hinir eiginlegu sigurvegarar síðari heims- styrjaldarinnar. í þessari bók er greint frá þessum atburðum, frá heims- styrjöldinni 1914 - 1918, frá stjórnmálaþróun millistríðs- áranna, frá aðdraganda síðari heimsstyrjaldarinnar, frá styrj- öldinni sjálfri, frá byltingunni í Rússlandi 1917, frá skipan mála eftir fyrri heimsstyrjöld í Evrópu, frá nýlenduveldunum og frá daglegu lífi og menn- ingu, auk þess sem hagsagan fær allmikið rúm, meira en almennt gengur og gerist í yfirlitsritum af þessu tagi. Eins og vænta má er hér mikill fróðleikur samankominn og vekur nánast furðu hve miklu höfundur kemur að á tæpum þrjú hundruð blaðsíð- um. Frásögn hans er öll skemmtileg og læsileg og er ekki að efa, að hún muni falla íslenskum lesendum vel í geð. Hann fléttar saman góða heild- ar- eða yfirlitsmynd af atburð- um þessara ára og gerir góða tilraun til að skýra stjórn- málaþróun í heiminum með tilliti til þess sem gerðist í efnahags- og menningarmál- um. Hinir svokölluðu „al- mennu lesendur“ ættu því að geta haft gott gagn af ritinu. Frá fræðilegu sjónarmiði séð er það hins vegar afar yfir- borðskennt, enda víst ekki við öðru að búast, og ýmsu því sem umdeilt er meðal sagn- fræðinga er haldið fram án þess að varnaglar séu slegnir. Þetta er þó ekki sagt höfundi til hnjóðs. Honum hefur að flestu leyti tekist vel og fátt er vandasamara en að semja al- mennt yfirlitrit sem þetta svo vel fari. Þá á höfundur hrós skilið fyrir það, hve miklu rúmi hann ver til umfjöllunar á menningarsögunni, en hún vill gjarnan verða hornreka þegar rætt er um mikil umbrotatímabil. Frá hendi útgefenda er bók- in ágætlega úr garði gerð. Hún er í stóru broti, prentuð á góðan pappír og prýdd miklum fjölda mynda og korta. Hvort- tveggja mun gera lesendum lesturinn auðveldari og ánægjulegri og margar mynd- anna hafa mikið heimildagildi. Þær hafa að sönnu allar komið fyrir almenningssjónir áður, en munu á hinn bóginn fæstar hafa birst áður í íslensku riti. Um þýðingu Gunnars Stefánssonar treysti ég mér ekki til að dæma þar sem ég hef ekki séð norska textann, sem bókin er þýdd úr, en þýðing Gunnars er á ágætri íslensku og ber þess engin merki að bókinni hafi verið snúið úr erlendu máli. Jón Þ. Þór hanistan. Mannréttindabrot og kúgun voru ekki einu sinni til umræðu, einungis þessi tiltekni atburður. En því miður, kald- rifjuð árásarstefna kemur okk- ur ekki við, það má ekki blanda saman íþróttum og stjórnmálum! I þessum stutta pistli er hvorki rými eða ástæða til þess að fjalla um aðra þætti þessa máls. T.d. eðlileg samskipti leikmanna frá ríkjum sem mannréttindasamtök hafa ekki beinlínis velþóknun á, og svo samskipti þeirra við aðra. Enda njóta þessir leikmenn þess að hin alþjóðlega íþrótta- hreyfing virðist yfirleitt ekki vilja skörun íþrótta og stjórn- mála. íhlutun í innanríkismál á sko enga samleið með prúð- mennsku og drengskap. Æskilegur aðskilnaður Það er siðferðilega rétt að beita S-Afríku refsiaðgerðum vegna stjórnarfarsins þar í landi. Það leikur enginn vafi á því að fatlaðir íþróttamenn eiga að gjalda þess að aðskiln- aðarstefna ríkir í heimalandi þeirra, jafnvel svartir þátttak- endur. Látum þá fá til te- vatnsins. En er ekki rétt að ganga röskleg til verks og leyfa andúðinni á aparteid að verða fyrsti vísirinn að allsherjar hreinsun á vettvangi íþrótta? Blöndum saman íþróttum og stjórnmálum. Hvernig væri t.d. að nota ársskýrslu Amn- esty International sem mæli- kvarða á þátttökurétt þjóða á Ólympíuleikum? Með því móti væri hægt að draga í dilka hreina og óhreina, eigum við að kalla það æskilegan aðskiln- að? Það er altjént ótækt að virkja ekki þann eldmóð er hefur gripið íþróttasamtök víða um heim, í réttlátri reiði þeirra vegna ástands mála í S-Afríku. Nú má ekki láta staðar numið, sá sem ekki er samkvæmur sjálfum sér verður aldrei sannfærandi baráttu- maður. Því verður ekki trúað fyrr en á reynir að annarlegar hvatir búi innra með nokkrum þeim er lætur sig varða jafn göfugt efni og almenn mann- réttindi eru óneitanlega. Af þeim sökum ætla ég ekki að særa neinn með því að nefna hræsni, skinhelgi, eða yfir- drepsskap. Sturla Sigurjónsson. Málsvari frjalslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútiminn h.f. Ritstj.: Helgi Pétursson Framkvstj.: Guömundur Karlsson Auglýsingastj.: Steingrímur Gíslason Innblaösstj.: Oddur Ólatsson Skrifstofur: Siðumúli 15, Reykjavik. Simi: 686300. Auglýsingasími: 18300 Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 687695, íþróttir 686495, tæknideild 686538. m ifíf Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 35 kr. og 40 kr. um helgar. Askrift 360 kr. Liðkað fyrir nýsköpuninni ■ Ástæða er til að fagna þeirri ákvörðun fjármála- ráðherra að beita sér fyrir því að felld verði niður aðflutningsfjöld á tæki til nota við fiskeldi. Ljóst er að mikill hluti af því fé, sem þarf til að hefja framkvæmdir við fiskeldistöðvar, verður að taka að láni erlendis og því er óþarfi að íþyngja nýsköpun í atvinnulífi með skattheimtu. Nefnd, sem Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, skipaði í vor til þess að gera tillögur um opinberar aðgerðir sem hvetji til nýsköpunar í atvinnulífinu lagði þetta meðal annars til og hefur ráðherrum öllum verið kynntar tillögur nefndarinnar. Nefndin lagði mikla áherslu á að fjármagn yrði útvegað til rannsókna og þróunar, en sem kunnugt er var það megin niðurstaða aðalfundar miðstjórnar Framsóknar- flokksins á Akureyri fyrir tveim árum, að fimm hundruð milljónum króna yrði varið til nýsköpunar í atvinnulífinu. Ríkisstjórnin hefur síðan unnið að framgangi þeirrar stefnu sem Framsóknar- flokkurinn mótaði. En betur má ef duga skal. Nefndin sem forsætisráðherra skipaði gerði það að tillögu sinni, að þar til virðisaukaskattur hafi verið tekinn upp verði felld niður öll gjöld þar með talinn söluskatt- ur af vélum, tækjum, búnaði og fjárfestingarvör- um til uppbyggingar nýrra atvinnugreina, svo sem fiskeldis, loðdýraræktar, rafeindaiðnaðar og líftækni. Fjármálaráðherra hefur nú beitt sér fyrir þessu, hvað fiskeldi varðar. En nefndin lagði einnig til, að allir opinberir fjárfestingarsjóðir skuli verja hluta af ráðstöfunarfé sínu til áhættulána, fjárfest- ingarhömlur í löggjöf verði rýmkaðar verulega og heimilt verði að undanþiggja fyrirtæki í nýjum greinum tekjuskatti, launaskatti og aðstöðugjaldi um ákveðið árabil. Þessum tillögum verður að gefa gaum svo fljótt sem auðið er. Nýir keppinautar Eins og NT skýrði frá fyrir réttri viku, hefur Bandaríkjastjórn ákveðið að láta bjóða út flutn- inga fyrir Varnarliðið hingað til lands. Skipadeild Sambandsins hefur nú í förum milli íslands og Bandaríkjanna nýtt og glæsilegt skip og eins og haft er eftir Ómari Jóhannssyni í blaðinu í gær, hefur legið ljóst fyrir, að Sambandið stefndi að því að fá eitthvað af flutningum fyrir Varnarlið- ið. Forystumenn hinna skipafélaganna tveggja sem einnig eru talsmenn frjálsrar samkeppni, fá nú nýjan keppinaut, fyrir utan hugsanlega þátttöku erlendra skipafélaga. Nú er að sjá hver stendur sig.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.