NT - 10.08.1985, Qupperneq 23
Laugardagur 10. ágúst 1985 23
Evrópumeistaramótið í sundi:
Eðvarð er í
heimsklassa
■ Eðvarð Pór Eðvarðsson sundmað-
urinn snjalli úr Njarðvíkum gerði það
ekki endasleppt á Evrópumeistaramót-
inu í sundi sem fram fer í Búlgaríu.
Fyrst setti hann íslandsmet í 100 og 200
metra baksundi, synti á 2:06,20 mín. og
komst þar með í undanúrslit. Eðvarð
vann riðilinn á 2:05,77 mín. og bætti
metið því aftur sama daginn. Pessi tími
er sá besti á Norðurlöndunum í ár og
nálægt Norðurlandametinu. Það er og
besti árangur Vestur-Evrópumanns í
greininni á Evrópumótinu. Aðeins
Sovétmenn og Austur-Þjóðverjar náðu
betri tíma.
I gær kepptu Ragnar Guðmundsson,
Bryndís Olafsdóttir og Ragnheiður
Runólfsdóttir. Að þessu sinni féll ekkert
íslandsmet, aldrei þessu vant.
Ragnar Guðmundsson synti 400
metra skriðsund á 4:13,96 mín. sem er
mjög nálægt metinu, Bryndís synti 100
metra flugsund á 1:08,03 mín. og Ragn-
heiðursynti lOOmetra bringus á 1:16,75
mín.
í dag keppir Ragnheiður í 200 metra
fjórsundi, Eðvarð í 100 metra baksundi
og Ragnar Guðmundsson í 1.500 m
skriðsundi.
Körfuknattleikur:
Viðar í Hauka
■ Viðar Vignisson, landsliðsmaður í
körfuknattleik, mun leika með Haukum
næsta vetur samkvæmt heimildum NT.
Viðar er sterkur frákastamaður og verð-
ur Haukunum mikill styrkur. Þeir hafa
ekki verið auðunnir undanfarin tvö ár
og við þessi tíðindi aukast ekki sigurlík-
ur hinna liðanna. Það má telja víst að
Haukar hampieinhverjum sigurlaunum í
vor.
Evrópubikarkeppnin í frjálsíþróttum:
AÍIir á völlinn
- sænski hástökkvarinn Sjöberg kominn til landsins
■ í dag hefst á Fögruvöllum, frjáls-
íþróttavellinum í Laugardal, C-riðill
Evrópubikarkeppninnar í frjálsíþrótt-
um. Það er ástæða til að hvetja fólk til
að fara niður í Laugardal og fylgjast
með þessum einstaka íþróttaviðburði á
íslandi. Veðurspáin fyrir helgina er ekki
amaleg og þar sem dagskráin er stutt og
samþjöppuð ætti engum að leiðast eða
verða kaít. Rétt er að vekja athygli á því
að keppnin stendur aðeins í tvo tíma
hvorn dag, í dag og á morgun.
í dag byrjar ballið kl. 14.00 en á
morgun kl. 13.30. Þess má geta að þrátt
fyrir ýmsar yfirlýsingar í sumum blöðum
undanfarið mun Evrópumethafinn í
hástökki, Patric Sjöberg keppa á mót-
inu.
Hér kemur tímaseðill mótsins:
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST:
14:00 400 m gr. hl. kvenna - hástökk karla -
kúluvarp karla - spjótkast kvenna.
14:10 400 m gr. hl. karla - langstökk karla.
14:20 100 m hl. kvenna.
14:25 100 m hl. karla.
14:35 800 m hl. kvenna.
14:40 1500 m hl. karla.
14:45 spjótkast karla.
14:50 400 m hl. kvenna.
15:00 400 m hl. karla.
15:10 3.000 m hl. kvenna.
15:25 10.000 m hl. karla.
KAvann
Völsung
■ KA og Völsungur áttust við í
gærkvöldi í 2. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu á Akranesi. Leikur þessi
skipti miklu máli fyrir bæði liðin. KA
í efsta sætinu og Völsungur skammt á
eftir og þurftu að sigra til að vera
verulega hættulegir á toppnum. En
það var heimaliðið sem vann 1-0 og
stendur því vel að vígi.
KA var betri aðilinn í fyrri hálfleik
og léku þá ágætlega.
Ekkert mark höfðu þeir þó upp úr
krafsinu. í seinni hálfleik átti að láta
sverfa til stáls af beggja hálfu og
færðist mikil harka í leikinn. Spilið var
ekki í fyrirrúmi eins og oft vill verða
þegar kapp er meira en forsjá og
leikurinn einkenndist af miðjuþófi.
Mark KA kom svo aðeins fjórum
mínútum fyrir leikslok og var það
Bjarni Jónsson sem skoraði. Að sögn
vallarstarfsmanns á Akureyri var þetta
„púra rangstaða“. Bjarni var tveim til
þrern metrum fyrir innan þegar hann
skóraði eftir fyrirgjöf.
15:45 kringlukast kvenna.
16:00 4x100 boðhlaup karla.
16:10 4x100 boðhlaup kvenna.
SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST:
13:30 stangarstökk.
14:00 110 m gr. hl. karla - kringlukast karla -
hástökk kvenna.
14:10 800 m hl. karla - langstökk kvenna - kúluvarp
kvenna.
14:15 1.500 m hl. kvenna.
14:25 3.000 m hindrunarhlaup.
14:40 100 m gr. hl. kvenna.
14:45 200 m hl. kvenna.
14:50 200 m hl. karla.
15:0010.000 mhl. kvenna-sleggjukast-þrístökk.
15:40 5.000 m hl. karla.
16:00 4x400 m boðhlaup karla.
16:10 4x400 m boðhlaup kvenna.
Haukar meistarar
■ Haukar uröu á fimmtudaginn ís-
landsmeistarar í 2. deild kvenna í
knattspyrnu er þær sigruöu Víking í
jöfnum og spennandi leik. Staðan eftir
venjulegan leiktíma var 1-1 og svo var
einnig eftir framlengingu. Vítaspyrnu-
keppnin endaði og með jafntcfli en að
lokum brenndu Víkingisstelpurnar af
og Haukar tryggðu sér sigur.
Nachi legurer
japönskgæðavara
á sérsaklega hagstæóu veröi.
Allaralgengustu tegundir
fáanlegará lager.
Sérpantanir eftir þörfum.
nflTUIXHM r
HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK
SIMI: 685656 og 84530
TflAPGIP Múgsaxarar
Verð kr. 246.136.- Vökvastýrt vagnbeisli Til afgreiðslu strax
SVOfSIA GETUR FARIÐ FYRIR ÞÍIMU HÚSI
EF MÁLNIIVIGIIM ANOAR EKKI
ISPO málning og múrefni eru þýsk gæðaframleiðsla sem byggir á margra ára
rannsóknum Þjóðverja á áhrifum frosts á steinsteypu.
Nú þegar er komin góð reynsla á ISPO múrefni til viðgerða á alkalískemmdum
húsum hérlendis og hefur Rannsóknarstofnun bygginganðnaðanns staðfest
gæði efnisins.
Nú er komin á markaðinn hérlendis ISPO málning sem er vatnsfráhrindandi
og hefur einstaka öndunarhæfni, þannig að hún kemur í veg fyrir frost- og
alkalískemmdir í steinsteypu.
ISPOSAN málning er vatnsfrá-
hrindandi en andar og andar
alveg sama hversu margar um-
ferðir eru málaðar.
ISPOSAN hefur frábæra viðloð-
un við alla málningu og eróhætt
að mæla með ISPOSAN máln-
ingu sem góðri vörn gegn alkali'-
skemmdum.
ISPOSIL málningu má eingöngu
nota á áður ómáluð hús og til
að forðast misskilning sejjum við
þessa málningu eingöngu til
málarameistara. Frábær utan-
hússmálning fyrír húsbyggjend-
ur, sem vanda til húsa sinna.
ISPOACRYL-100. 100% acryl-
málning sem er gott að nota til
sprunguviðgerða og til að mála
hús sem ekki hafa oft verið
rnáluð.
MÁLNINGARVÖRUDEILD, HRINGBRAUT 120.
RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND
Lelðbeinandl frá ISPO er á staðnum á fimmtudogum frá 3-6 tll að lelðbeina um val og notkun á ISPO múr-
og málningarefnum.
midas