NT - 17.08.1985, Side 6

NT - 17.08.1985, Side 6
 Laugardagur 17. ágúst 1985 Vettvangur Ingvar Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra: Ríkisstjórninni ber að ákveða stofnun háskólaútibús á Akureyri ■ 8. júní sl. gekkst Fjórðung- ssamband Norðlendinga fyrir ráðstefnu um háskólakennslu á Akureyri. Ráðstefnan var haldin í sal Mcnntaskólans á Akureyri og var fjölsótt. Ríkti mikill áhugi á umræðuefninu. Fluttar voru margar ræður, stuttar og gagnorðar. Töluðu þar m.a. fulltrúar allra stjórn- málaflokka. Mátti Ijóst vera að ræðumenn höfðu kynnt sér málefnið og myndað sér skoð- un á því. Það auðveldaði allar uniræð- ur á þessari ráðstefnu að fyrir lá greinargott álit ráðherra- skipaðrar nefndar, sem mælt hefur með því að hafin verði háskólakennsla á Akureyri í tilteknum greinum á vegum Háskóla íslands. Þetta mál var því síður en svo framandi ráð- stefnugestum eða nýtt af nál- inni. A ráðstefnunni voru ein- hverjir að ætla á um það, -sem þó skiptir litlu máli - hvenær fyrst var farið að ræða um hugsanlegt háskólastarf á Ak- ureyri. Að því er best er vitað fór einstöku maður að impra á þessari hugmynd í einhverri alvöru á árunum upp úr 1969, varla miklu fyrr, enda síst við að búast miðað við þjóðfélags- aðstæður á þeim tíma. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi orð- aði þessa hugmynd opinber- lega á 100 ára afmæli Akureyr- ar 1962. « Þingmál 1964 Árið 1964 gerði ég undirrit- aður þetta mál að þingmáli með flutningi sérstakrar þings- ályktunartillögu, og voru samflutningsmenn mínir að henni Karl Kristjánsson og Gísli Guðmundsson. Af því tilefni urðu nokkrar umræður um þetta mál manna á meðal næstu ár, oft óvinsamlegar, þótt ekki væri það einhlítt. Ég hélt þessu máli alltaf vakandi í minn hóp norðanlands eftir því sem kostur var, enda liggja fyrir ýmsar ályktanir í þessum anda frá kjördæmisþingum framsóknarmanna í Norður- landskjördæmi eystra og enn beittist ég fyrir flutningi þings- ályktunartillögu um eflingu Akureyrar sem skólabæjar 1971, en í reynd lá málið að mestu í þagnargildi þar til í ráðherratíð minni 1980-1983, að ég fór að vinna hugmynd- inni fylgi með nýjum hætti og ■ í nýrri aðstöðu til áhrifa á framgang málsins. Allt tók það sinn tíma, en 27. maí 1982 skipaði ég sem ráðherra þriggja manna nefnd, sem í áttu sæti rektor Háskóla íslands, skólmeistari Mennta- skólans á Akureyri og þáver- andi ráðuneytisstjóri mennta- •málaráðuneytisins, og var meginverkefni nefndannnar að kanna raungildi þessarar hugmyndar og gera tillögur um hvernig mætti framkvæma hana. Gömul og ný and- staða Reykjavíkur- valdsins Nefndin skilaði jákvæðu áliti, - en því miður nokkru eftir að ég lét af ráðherra- embætti -, og í Ijós er komið að rekstur háskólaútibús á Ak- ureyri er ekkert sérstakt vandaverk eða þrekvirki nema síður sé. Þess er skylt að geta að háskólakennsla, þótt á þröngu sviði sé, hefur farið fram um árabil í Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akuryeri, enda er yfirlæknir sjúkrahússins kennari við læknadeild Há- skóla íslands, - reyndar fyrir minn tilverknað, því að ég endurskipaði Gauta Arnþórs- son í dósentsstöðu á sínum tíma í ntikilli andstöðu við læknadeildina (þar voru uppi raddir um að skipunin væri vítaverð), og fundu deildar- kennarar Gauta það m.a. til foráttu að hann væri búsettur á Akureyri og starfaði við sjúkrahúsið þar, en ekki Landspítalann í Reykjavík. Þetta dósentsmál er að vísu annar handleggur, þótt upp- lýsandi sé að sínu leyti um viðhorf ýmissa háskóla- kennara í Reykjavík til kennslu í háskólagreinum á Akureyri. Afstaða þeirra minnir á andstöðu Jóns Ófeigs- sonar og Bjarna frá Vogi og skoðanabræðra þeirra á þriðja áratug aldarinnar, þegar fram- sæknir Norðlendingar og Aust- firðingar börðust fyrir stofnun menntaskóla á Akureyri undir andlegri leiðsögn Sigurðar Guðmundssonar skólameist- ara og fyrir pólitíska forystu Þorsteins M. Jónssonar þáver- andi alþingismanns, fulltrúa Norð-Mýlinga á Alþingi, og síðar Jónasar Jónssonar frá Hriflu eftir að hann varð kennslumálaráðherra 1927 og lét verkin tala í þessu máli. Einhugur Norðlend- inga Ef dæma má út frá ræðum, sem fluttar voru á framan- greindri ráðstefnu Fjórðungs- sambandsins 8. júní sl., er ástæða til að ætla, að allir Norðlendingar, hvar sem þeir búa á svæðinu frá Hrútafirði til Langaness, geti sameinast um kröfuna um að háskólakennsla verði tekin upp á Akureyri í samræmi við tillögur nefndar- innar. Hver ræðumaðurinn á fætur öðrum studdi málið með gildum rökum, og lögðu allir áherslu á að hér væri um samnorðlcnskt framfaramál að ræða, sem öllum Norðlending- um bæri að styrkja. Um þetta atriði kvað fast að orði Stefán A. Jónsson, bóndi á Kagaðar- hóli í Húnavatnssýslu, svo og Sigurjón Jóhannesson, skóla- stjóri á Húsavík, og Jón Hjart- arson, skólameistari á Sauðár- króki. Rökstuddi Jón skólameistari með fáum en skýrum orðum gildi skipulegrar samvinnu Norðlendinga í skólamálum yfirleitt og lagði áherslu á að vel hefði til tekist um fram- kvæmd hinnar sameiginlegu námsskrár á framhaldsskóla- stigi, sem staðfest var fyrir 4 árum að því er Norðurland varðar. Með þessu.m ummæl- um sínum hrakti Jón Hjartar- son eftirminnilega þær fullyrð- ingar, sem stundum hafa heyrst, að „ekkert" hafi verið gert til þess að samræma kennslu á framhaldsskólastigi í landinu. Slíkt er alger firra, eins og fram kom í orðum Jóns Hjartarsonar, sem hann síðan notaði til þess að rökstyðja þá skoðun sína að háskólaicennsla á Akureyri væri sameiginlegt hagsmunamál allra Norðlend- inga. Steindór Steindórsson, fyrrv. skólameistari, flutti merka ræðu þessu málefni til stuðnings og lét svo um mælt að „háskólastarf á Akureyri ætti að vera óskabarn allra Norðlendinga“ og sagði einnig að allur dráttur á framkvæmd málsins væri til ills. „Það er betra að byrja af vanefnum, en byrja ekki,“ sagði Steindór Steindórsson. í fótspor Jónasar frá Hriflu Hjá ofangreindum ræðu- mönnum, og mörgum fleiri var baráttunni fyrir háskóla- kennslu á Akureyri nú líkt við baráttuna á sínum tíma (u.þ.b. 1922-1927) sem háð var um stofnun menntaskóla á Akur- eyri og áður var minnst á. Um þann samanburð virtist mér enginn taka jafn stórt upp í sig og Gísli Jónsson, menntaskólakennari, gamal- reyndur forystumaður Sjálf- stæðisflokksins á Akureyri, en hann kvað skýrt upp úr með það að sá menntamálaráð- herra, sem nú gegnir því embætti, ætti að fara að dæmi Jónasar Jónssonar frá Hriflu, sem lét það verða eitt sitt fyrsta verk sem kennslumála- ráðherra (1927) að veita Gagn- fræðaskólanum á Akureyri rétt til að brautskrá stúdenta, þvert ofan í andstöðu og úrtölur reykvískra skólaembættis- manna og menntamanna. Síð- ar var nafni skólans breytt með lögum, og heitir hann upp frá því Menntaskólinn á Akur- eyri, ein virtasta skólastofnun ílandinu. RæðaGíslaJónsson- ar var áskorun á núverandi menntamálaráðherra að feta í fótspor Jónasar Jónssonar og ákveða með ráðherrabréfi að Háskóli íslands skuli stofna útibú á Akureyri. Þótt Gísli Jónsson hefði að vissu leyti tekið af mér ómakið að því er varðaði áskorun á ríkisvaldið um að hefjast handa í þessu máli á grundvelli nefndarálits, gerði ég það auð- vitað að meginboðskap mínum á ráðstefnunni að benda á að stofnun háskólaútibús á Akur- eyri væri pólitískt mál, ákvörð- unaratriði ráðherra eða ríkis- stjórnar. Um þeta efni erum við Gísli Jónsson sammála. Þykir mér mikils vert að eiga í Gísla skoðanabróður um það mál, sem mér hefur lengi verið hjartfólgið og ég hef reynt að tala fyrir og halda fram í meira en 20 ár við ærið misjafnar undirtektir, þar til nú á allra síðustu árum. Fleiri sjálf- stæðismenn á Akureyri eru traustir stuðningsmenn há- skólamálsins og nefni ég sér- staklega Tómas Inga Olrich ritstjóra og Guðmund Heiðar Frímannsson menntaskóla- kennara. Tímamót í sögu málsins Með skipun nefndar þeirrar, sem ég setti á laggirnar á ráð- Kyrrseta ■ Það þarf að skipa nefnd sérfróðra manna til þess að kanna málið, og slík skipun þolir enga bið. Húsgagnasmið- ir, bólstrarar, eðlis- og efna- fræðingar, hugsanlega læknar og líffræðingar, ættu að geta skýrt fyrir Iandsmönnum hvað veldur því að upp úr ráðherra- stól verður ekki staðið, nema þeir séu allir yfirgefnir samtím- is. Eitt er víst, að embættisaf- glöp og meðfylgjandi vantraust kjósenda er ekki það meðal sem , vinnur á því tröllataki er límir teinóttar ráðherraskálm- arnar við sætin. Að axla ábyrgð Ráðamaður í þingræðisríki hefur beint eða óbeint umboð þegnanna til þess að sækja ákveðið starf í þágu heildar- innar. Það á að heita svo að slíkt umboð feli jafnframt í sér ábyrgð viðkomandi stjórn- málamanns á eigin gjörðum og undirsáta. Þeir eru ófáir pót- entátarnir sem hafa axlað þessa ábyrgð, jafnvel þó svo að tiltekinn atburður sé ekki beinlínis tengdur þeirra eigin vilja. Hver man ekki eftir Ric- hard Nixon og Watergate, Willy Brandt og Guillaume, Cecil Parkinson og ólétta einkaritaranum, og nú síðast Kjeld Olsen og leyniþjónustu- skömmunum. Þá eru einungis fáir nefndir. Það er alla vega ljóst að lýðræðislega kjörnir stjórnendur og áhrifamenn verða að vera sjálfum sér sam- kvæmir, að öðrum kosti eru þeir rúnir trausti, og þá um leið raunverulegu umboði. ráðherra Einstakur íslenskur ráðherra segir ekki af sér En þessu er nú ekki svo farið á eyjunni bláu, þess eru engin dæmi frá lýðveldisstofnun að einstakur ráðherra hafi sagt af sér án meðfylgjandi stjórnar- slita þ.e. fráhvarf úr embætti hefur ávallt verið af almennum pólitískum ástæðum. Það er víst óþarfi að fjölyrða um samtryggingu íslenskra stjórn- málamanna, það er fyrir brigði sem allir þekkja, margir af eigin raun. Þar sem nefnd samtrygging nær ekki til, tekur við ströng flokkshagsmuna- gæsla, sem er engu síður kunn- uglegur þáttur í íslensku þjóð- lífi. Hvað sem á dynur, þá segir einn íslenskur ráðherra ekki af sér, og er ekki neyddur til þess af sínum samherjum. Það er skiljanlegt að manni er hefur helgað líf sitt stjórn- málum þyki nokkuð til þess koma að setjast í ráðherrastól. Það er jú markmiðið að geta tekið ákvarðanir. Þaðereinnig skiljanlegt að slíkum manni hitni svo í hamsi í orðaskakinu við pólitíska andstæðinga, að hann skrifi alla gagnrýni á reikning formlegrar stjórnar- andstöðu. Þegar málum er svo komið er hætt við að dóm- greindin fari á flakk. Þrátt fyrir margítrekuð mistök og uppá- komur, sem hafa vakið kjós- endur til alvarlegrar umhugs- unar, er aldrei minnst á afsögn. Vanhugsaður flumbrugangur Stundum renna á menn tvær grímur. Það getur verið vont að vakna upp við þann illa draum að það sem var í upp- hafi álitið frumlegt, djarft og fyndið í fari stjórnmálamanns, er í rauninni merki um van- hugsaðan flumbrugang sem hæfir illa þeim er gegnir ábyrgðarstörfum. Hundahald í trássi við gildandi reglur, yfirlýsingar í erlend blöð um landflótta, og það að láta síðan breyta fyrrnefndum reglum sjálfum sér til hægðar, þvílíkt og annað eins lét Albert Guðmundsson sér ekki fyrir brjósti brenna. En þetta var

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.