NT

Ulloq

NT - 17.08.1985, Qupperneq 7

NT - 17.08.1985, Qupperneq 7
Laugardagur 17. ágúst 1985 7 herratíma mínum, og hafði það hlutverk að gera tillögur um háskólakennslu á Akur- eyri, urðu tímamót í sögu þessa máls. Nefndin reyndist hliðholl hugmyndinni um að stofna til háskólakennslu á Ak- ureyri og gerði nákvæma áætl- un um, hvernig staðið skyldi að byrjunarframkvæmdum, sem hæfust haustið 1985. Nefndarálitið er gagnort og tillögur nefndarinnar skýrar. Skilyrði eru þegar fyrir hendi, að áliti nefndarinnar, til þess að hefja háskólakennslu á Ak- ureyri í tilteknum greinum. Háskólakennsla á Akureyri er viðráðanlegt verkefni, eins og nefndin ætlar henni að vera, og þarf í sjálfu sér ekki að leiða til aukakostnaðar fyrir háskól- ann þar sem á móti ícæmi sparn- aður í Reykjavík á því sviði. Bæjarstjórn Akureyrar hefur heitið að greiða fyrir háskóla- kennslu í bænum með því að sjá fyrir húsnæði undir starf- semina. Vel undirbúið landsbyggðarmál Af því sem fyrir liggur um stofnun háskólaútibús á Akur- eyri er Ijóst að hér er um vel undirbúið mál að ræða, tillög- urnar eru hófsamar og við- ráðanlegar. Með nægum vilja af hálfu ríkisstjórnarinnar væri unnt að hrinda þeim í framkvæmd. Pví miður hefur ríkisstjórnin ekki sýnt nægan vilja enn sem komið er til þess að gera þessar tillögur að veru- leika. Sú ákvörðun mennta- málaráðherra að fela þróunar- nefnd háskólans endurskoðun- arhlutverk í sambandi við til- lögur Akureyrarnefndarinnar gerir hvort tveggja að seinka ákvörðun í málinu og auka óvissu um niðurstöðuna yfir- leitt. Eins og ég hef margbent á í umræðum um þetta mál, m.a. í bréfi til forsætisráðherra 12. maí sl., falla tillögurnar um stofnun háskólaútibús á Akur- eyri ágætlega að hugmyndum ríkisstjórnarinnar um nýsköp- un í atvinnulífinu og æskilega byggðaþróun. Hér er um til- lögur að ræða sem fela í sér dreifingu á þjónustustarfsemi, sem er augljóslega langbrýn- asta hagsmunamál lands- byggðarinnar og mikilvægast til þess að tryggja jafnvægi í byggð landsins. Hér er um pólitískt mál að ræða, en ekki ákvörðunaratriði fyrir há- skólaráð eða deildir háskólans eins og þetta mál liggur fyrir. Ég mun síðastur manna gera lítið úr sjálfstæði og sjálfstæð- um ákvörðunum háskólans í sínum eigin málum innan skynsamlegra marka. Hins vegar er Háskóli fslands eng- inn yfirbjóðandi hins pólitíska valds um meginstefnur í þró- un sinni og umfangi starfsemi sinnar. Alþingi setur Háskóla íslands lög og ráðherra setur honum starfsreglur á grund- velli laga. Ef ákveða skal að stofna útibú frá Háskóla fs- lands á Akureyri er eðlilegast að ríkisstjórnin hafi þar for- göngu og taki um það ákvörð- un. Háskólaráð á ekki að vera ákvörðunaraðili í slíku máli, heldur framkvæmdaaðili sam- kvæmt eðli máls þegar þar að kæmi. Ákvörðun um stofnun háskólakennslu á Akureyri er dæmigert pólitískt viðfangs- efni. Annaðhvort vill ríkis- stjórnin láta kenna háskóla- greinar á Akureyri eða hún vill það ekki. Ef hún vill stofna útibú frá Háskóla íslands á Akureyri þá gerir hún það, ef hún viíl það ekki þá gerir hún það ekki. Ríkisstjórn sem hef- ur pólitískan vilja í einhverju máli sækir ekki um leyfi til utanaðkomandi afla til að koma vilja sínum fram. Ég ætla ekki að væna ríkis- stjórnina um pólitískt viljaleysi í þessu máli, en hins vegar óttast ég að þetta mál verði dregið óhæfilega á langinn. Ingvar Gíslason. einungis nokkurs konar upp- hitun, hallærislegt en saklaust. Peir sem muna framvindu verkfalls opinberra starfs- manna síðastliðið haust vita að fjármálaráðherra átti erfitt með að feta sig á hinni hálu braut framans, það seig á ó- gæfuhliðina. Umrætt verkfall getur ef- laust kallast ein harðasta kjara- deila á fslandi undanfarin ár. Hvernig sem á deiluna er litið, þá er það Ijóst að títt- nefndur ráðherra átti sök á því að magna hana langt umfram það sem aðstæður gáfu tilefni til. Pað má minna á það hvern- ig samningaviðræður voru dregnar á langinn, og um leið á ummæli þess efnis að í raun ættu launþegar að taka á sig frekari launalækkun. Hver gleymir heimskulegum og ó- rökstuddum dylgjum í garð kennara? Ekki urðu afskiptin af ólöglegum útvarpsrekstri í Valhöll heldur til þess að auka hróður ráðherrans. Eins og flestum mun kunnugt er hægt að tína til fleira úr þessari atburðarás sem orkaði tvímæl- is. Svo hlaupið sé hratt yfir sögu, þá hefur háttvirtur fyrsti þingmaður Reykvíkinga enn einu sinn komið sér í vandræði. Jú, það er salan á Flugleiða- hlutabréfunum sem vísað er til. Öll málsmeðferð er slík að einungis koma tveir kostir til greina. Annað hvort hefur ráð- herra látið undan þrýstingi áhrifamanna og brugðist þann- ig skyldum sínum, eða þá hefur hann ekki verið hæfur til þess að annast þessa sölu. Hvor kosturinn um sig er full ástæða þess að Albert víki. Nóg til af hæf um mönnum og konum Það er kominn tími til að látið sé reyna á ábyrgö ís- lenskra stjórnmálamanna, ef ísland á að kallast lýðræðisríki þá er ekki þolandi að kjörnir eða skipaðir valdamenn taki ekki afleiðingum gjörða sinna. Það er víst að launin taka þeir í samræmi við ímyndaða ábyrgð. Það er mannlegt að skjátlast, og stjórnmálamanni er verða á mistök á að viður- kenna þau og fara frá. Annað er vanvirða við kjósendur. Æðstu embætti ríkisins eru eftirsótt vegna virðingar og valda, og því er nóg til af hæfum mönnum og konum er geta tekist á við vandamál þjóðarinnar án þess að þjóðar- búið hljóti beinan eða óbeinan skaða af. Sturla. Málsvari frjálslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútíminn h.f. Ritstj.: Helgi Pétursson Framkvstj.: Guðmundur Karlsson Auglýsingastj.: Steingrímur Gíslason Innblaðsstj.: Oddur Ólafsson Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavik. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300 Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 687695, íþróttir 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaöaprent h.f. Kvöldsimar: 686387 og 686306 Verð i lausasölu 35 kr. og 40 kr. um helgar. Askrift 360 kr. rar ríF Háskólakennsla á Akureyri ■ Ingvar Gíslason, alþingismaður og fyrrverandi menntamálaráðherra ritar grein í NT í dag um háskólakennslu á Akureyri. Ingvar hefur lengi haft forgöngu um baráttu fyrir þessu sannkallaða rétt- lætismáli í skólamálum landsmanna og lykilmáli fyrir þróun byggða utan Reykjavíkur í framtíðinni. Skóli og aðstaða til menntunar er lífsspursmál fyrir þær byggðir, sem ætla að halda ungu fólki sínu hjá sér og því skal engan undra þótt Norðlendingar vilji efna til kennslu á háskólastigi á Akureyri. Raunar er vandséð hvers vegna kennslu í fjölmörg- um greinum á vegum ríkisins hefur ekki verið dreift meira um landið. Vera kann, að menn hafi sett fyrir sig fjarlægðir og erfiðleika á aðföngum til kennslunn- ar, en héðan í frá eru allar slíkar mótbárur fánýtar. Landið verður brátt umlukið þéttriðnu neti tölvu- sambanda og upplýsingar um tölvur munu verða öllum aðgengilegar, hvar semerá landinu. NT tekur því heils hugar undir baráttu Ingvars Gíslasonar fyrir háskólakennslu á Akureyri og hér er vitnað í grein hans í blaðinu í dag: „Eins og ég hef margbent á í umræðum um þetta mál, m.a. í bréfi til forsætisráðherra 12. maí s.I., falla tillögurnar um stofnun háskólaútibús á Akureyri ágætlega að hugmyndum ríkisstjórnarinnar um ný- sköpun í atvinnulífinu og æskilega byggðaþróun. Hér er um tillögur að ræða, sem fela í sér dreifingu á þjónustustarfsemi, sem er augljóslega langbrýnasta hagsmunamál landsbyggðarinnar og mikilvægast til þess að tryggja jafnvægi í byggð landsins. Hér er um pólitískt mál að ræða, en ekki ákvörðunaratriði fyrir háskólaráð eða deildir háskólans eins og þetta mál liggur fyrir. Ég mun síðastur manna gera lítið úr sjálfstæði og sjálfstæðum ákvörðunum háskólans í sínum eigin málum innan skynsamlegra marka. Hins vegar er Háskóli íslands enginn yfirbjóðandi hins pólitíska valds um meginstefnur í þróun sinni og umfangi starfsemi sinnar. Alþingi setur Háskóla íslands lög og ráðherra setur honum starfsreglur á grundvelli laga. Ef ákveða skal að stofna útibú frá Háskóla íslands á Akureyri, er eðlilegast að ríkisstjórnin hafi þar forgöngu og taki um það ákvörðun. Háskólaráð á ekki að vera ákvörðunaraðili í slíku máli heldur framkvæmdaaðili samkvæmt eðli máls þegar þar að kæmi. Ákvörðun um stofnun háskólakennslu á Akureyri er dæmigert pólitískt viðfangsefni. Annaðhvort vill ríkisstjórnin láta kenna háskólagreinar á Akureyri eða hún vill það ekki. Ef hún vill stofna útibú frá Háskóla íslands á Akureyri þá gerir hún það, ef hún vill það ekki þá gerir hún það ekki. Ríkisstjórn sem hefur pólitískan vilja í einhverju máli sækir ekki um leyfi til utanaðkomandi afla til að koma vilja sínum fram. Ég ætla ekki að væna ríkisstjórnina um pólitískt viljaleysi í þessu máli, en hins vegar óttast ég að þetta mál verði dregið óhæfilega á langinn.“ Þetta var tilvitnun í grein Ingvars Gíslasonar, alþingismanns um háskólakennslu á Akureyri, sem birtist í NT í dag og blaðið ítrekar stuðning sinn við þetta þjóðþrifamál.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.