NT - 10.09.1985, Qupperneq 4
Þriðjudagur 10. september 1985 4
Sprengdu
gegn skipu-
lagslögunum
■ í trássi við ríkjandi
skipulag um vegagerð í
Suður-Múlasýslu hóf
Vegagerð ríkisins fram-
kvæmdir við nýtt vegar-
stæði við Gilsá í Eiða-
hreppi um helgina.
Hreppsnefnd og landeig--.
andi hafa kært vegagerð-
ina fyrir landspjöll og
brot á skipulagslögum.
Fyrirhugað er í skipu-
laginu að vegarstæði við
Illuklif í grennd við Gilsá
verði fært upp á klifið.
Vegagerðin hóf hinsveg-
ar sprengingar á öðrum
stað, þar sem hún telur
veginn eiga að vera.
Þetta athæfi hefur
hreppsnefnd Eiðahrepps
kært sem brot á skipu-
lagslögum. Þá er einnig
fyrirliggjandi kæra frá
landeiganda á Hjartar-
stöðum, en þar rigndi
grjóti yfir nýrækt, og
fældust tvö hross á girð-
ingu. Kæran frá landeig-
andanum hljóðar m.a.
upp á óvarkárni í með-
ferð sprengiefna, en ekki
voru notaðar sprengi-
mottur við sprengingarn-
ar, og engum gert aðvart.
Örn Ragnarsson
oddviti í Eiðahreppi
sagði í samtali við NT að
þetta væri ekki í fyrsta
skipti sem óánægja skap-
ast vegna gerða vega-
gerðarinnar.
Það var Guðni Niku-
lásson, verkstjóri hjá
vegagerðinni, sem stóð
fyrir sprengingunum.
„Við sættum okkur
ekki við minna en að
verkstjóranum eða þeim
sem tók ákvörðunina um
að þetta yrði gert, verði
sagt upp störfum," sagði
Örn.
Ekki náðist í Guðna
vegna þessa máls.
„Ég hef aldrei verið kvótamaður“
- segir Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra
■ í viðtali við Steingrím Her-
mannsson, forsætisráðherra,
sem birtist síðar í vikunni kemur
fram, að Steingrímur telur mjög
ólíklegt að sambandið milli
sóknar og fiskigengdar skipti
höfuðmáli varðandi stoínstærð-
ina í sjónum, heldur séu það
skilyrði sjávarins, átumagn og
hitastig, sem skipti þar höfuð-
máli.
Við höfðum samband við
Steingrím til að inna hann nánar
eftir þessu og spurðum hann hvort
hann væri ekki með þessu að
segja að kvótakerfið væri
mistök?
„Nei, það er ég ekki að segja,
alls ekki. Ég er ekki viss um að
kvótakerfið sé það mikilvægasta
í þessu máli, sambandiðmilli
sóknar og stofnstærðar, ég held
að náttúruleg skilyrði hafi þarna
meiri áhrif, en það þýðir ekki
það að það verði ekki að hafa
einhverja stjórn á fiskveiðimál-
unum. Sérstaklega þó þegar að
af einhverjum ástæðum, hvort
það er af of mikilli sókn eða
ástæðum í náttúrunni, að liinn
veiðanlegi stofn minnkar, þá
þarf að skipta hópnum réttlát-
lega niður á þau skip, sem eru
fyrir hendi. Ég gerði það sjálfur
eftir svokallaðri skrapdagaleið
og var með hugmyndir um að
breyta því í einskonar veiði-
kvóta fyrir löndunarsvæði þar
sem menn gætu haft frjálsar
hendur um hvernig þeir ráðstöf-
uðu honunr, en það varð ekki
ofan á. Hagsmunaaðilar í sjáv-
arútvegi báðu síðan um þennan
kvóta. Ég hef hinsvegar aldrei
verið kvótamaður en ég sam-
þykkti kvótann þegar að hags-
munaaðilar í sjávarútvegi báðu
um hann.“
- Nú hafa skilyrðin í sjónum
hinsvegar breyst.
„Já það er rétt. Nú eru
skilyrðin að breytast og ég er í
engum vafa uin það að takmörk-
un veiðanna einsog var í fyrra,
og árið áður hefur haft sín áhrif
til þess að fiskstofninn er ekki
orðinn ennþá minni, það er
enginn vafi á því en ég held að
miklu hlýrri sjór og átumeiri
muni hafa mest áhrif á það að
þorskstofninn vex hratt á næstu
árum. Ég vek athygli á því að
það er hvað eftir annað að það
komi mjög góður stofn af lítilli
hrygningu, t.d. 73 árgangurinn.
Það var fyrst og fremst vegna
þess að þá voru lífsskilyrði í
hafinu fyrir norðan svo góð að
seiðin komust upp.“
- A Kjördæmisþingi Fram-
sóknarflokksins á Vestfjörðum
var samþykkt ályktun um
sjávarútvegsmál og þú varst á
þessu þingi. í ályktuninni segir
orðrétt, að Kjördæmisþingið líti
svo á að afnema beri kvótakerf-
ið á næsta ári. Ert þú sammála
þessu?
„Ég greiddi ekki atkvæði um
þetta, heldur sat hjá. Vestfirð-
ingar hafa alltaf verið á móti
kvótanum og hafa litið svo á að
hann væri settur sem nauðvörn
þegar að aflinn datt niður úr
öllu valdi í fyrra og hitteðfyrra
og þeir hafa alltaf sagt að þeir
vilji hverfa frá kvótanum jjegar
að fiskur fer vaxandi. Ég er
þeirrar skoðunar að það þurfi
að skoða aðrar leiðir til stjórn-
unar þegar að afli fer verulega
vaxandi eða að auka kvótann,
það mætti skoða það, en hvort
það verður gert á næsta ári eða
síðar, ég þori ekki að dæma um
það. Við eigum eftir að skoða
tillögur fiskifræðinganna."
- Þú segir orðrétt í viðtalinu
að þegar tillögur fiskifræðing-
anna berast þann 20. þessa mán-
aðar, að þá verði ákvörðun,
tekin.
„Já ég geri ráð fyrir því. Þá
verður fyrst og fremst tekin
ákvörðun um aflamagnið, sem
talið verður fært að reikna með
á næstu árum, en ákvörðun um
hvort að því verður svo stjórnað
með kvóta eða eftir öðrum leið-
um, það bíður þess að hags-
munaaðilar í sjávarútveginum
-komi með sínar skoðanir."
- Halldór Ásgrímsson, sjáv-
arútvegsráðherra, hefur talað
um að til greina komi að færa til
kvóta á milli ára, frá 1986 til
ársins í ár. En áður en að til þess
geti komið verður að samþy kkj a
framtíðaráætlun um fiskveiðar
til þriggja ára. Síðan verður að
leggja það fram sem frumvarp á
Alþingi eftir að hagsmunaaðilar
hafa fjallað um málið. Þetta
tekur allt sinn tíma og eflaust
verða uppi skiptar skoðanir á
Alþingi um framtíðartilhögun
fiskveiðanna. Nú er ástandið í
sjávarútvegsplássum víðsvegar
um landið þannig, að það verð-
ur að bregðast við skjótt. Kem-
ur þá til greina að auka kvótann
nú á meðan beðið er eftir fram-
tíðarlausninni?
„Vestfirðingarnir biðja um
það. Ég benti á það þarna í
ræðu að það gæti orðið erfitt því
sumir aðilar hafa hagað sínum
veiðum af mikilli sparsemi og
miðað við að kvótinn entist
þeim, t.d. á Patreksfirði og
Tálknafirði, aðrir hafa ausið
upp fiski og sent hann út með
gámum og klárað kvótann. Það
er því mjög erfitt að auka kvót-
ann bara með því að bæta
einhverri prósentu ofan á.
Hinsvegar kemur til greina að
leyfa línuveiðar eða eitthvað
þessháttar yfir alla röðina. Ég
vil annars ekkert tjá mig sér-
staklega um þetta atriði. Ég
held bara að það sé ákaflega
erfitt svona seint á árinu að
bæta almennt við kvótann.
Það er rétt að sumstaðar um
land þarf að bregðast skjótt við
og ég veit að það er mikill
þrýstingur á fiskifræðingum að
þeir skili fljótt sínu áliti og þá
verður tekin ákvörðun um
það.“
- Nú hef ég eftir Sigurði
Viggóssyni, einum af þingtulltrú-
um á Kjördæmaþinginu, að eftir
að kvótasalan varð leyfð þá ráði
hið frjálsa markaðskerfi um
hana og efnameiri útgerðirnar
kaupi upp kvóta og hafi þá
nægan kvóta út árið, en hinar
efnaminni ráða ekki við að
kaupa kvótann og eru því búnar
með sinn kvóta.
„Það er rétt og það er mjög
mikil andstæða við þessa sölu
hjá mörgum fyrir vestan. Það
komu fram hugmyndir um að
ríkið seldi kvótann. En þó að
það sé andstaða gegn kvótasöl-
unni held ég að hún hafi bjargað
mörgu. Menn fyrir vestan segja:
við erum að kaupa kvóta á
þorsk sem er á okkar miðum.“
- Er þá kvótinn orðinn að
nokkurskonar gjaldmiðli, fyrst
hann gengur kaupum og sölum
og hægt er að eiga innistæðu frá’
síðasta ári auk þess sem hægt er
að fá fyrirfram?
„Það verður nú að skoöast
mjög vel.“
- En kvótinn er varla nein
óumbreytanleg stærð?
„Nei, það er alveg satt, þetta
er háð því hvernig er í sjónum.
Nú virðast aðstæður hafa breyst
og t.d. á Ströndunum er mikill
afli í net og það hefur varla
komið þorskur í Húnaflóann í
20 ár og núna er allt vaðandi í
þorsk þar. Þegar svo stendur á
fer ég að hugleiða hvort það sé
ekki meiri vöxtur í þorskstofn-
inum en fiskifræðingarhafa gert
ráð fyrir. Ég get heldur ekki
skellt skollaeyrum við þegar
reyndur sjómaður einsog Guð-
jón Kristjánsson, skipstjóri,
segir að hér séu göngur af
Grænlandsþorski. Hann heldur
því fram að mikill þorskur af
Grænlandi sé á miðunum.
Þetta er áreiðanlega maður sem
þekkir Grænlandsþorsk frá Is-
landsþorski eins vel og fiski-
fræðingarnir. Vegna mikillar
loðnugöngu fyrir vestan hefur
Grænlandsþorskurinn bæst við
okkar kvóta og þessvegna megi
auka kvótann með tillliti til
þess. Mér finnst svör fiski-
fræðinganna ákaflega einkenni-
lég, að þetta sé bara vitleysa. Ég
er ákaflega hissa á því.“
- Nú hafa margir lýst því yfir
að ekki verði hægt að sam-
þykkja lögin um framtíðar-
stefnu í fiskveiðum nógu fljótt
og Björn Dagbjartsson hefur
sagt að þessí tillaga sjávarút-
vegsráðherra sé markleysa.
Hver er þín skoðun á þessu?
T.Eigi þessi lög að bjarga
einhverju núna verður að sam-
þykkja þau mjög fljótt, helst
strax í október en það verður
erfitt."
- Ágúst Einarsson hjá LÍÚ
hefur sagt að verði ákveðið að
færa til kvótann milli ára, sé
búið að kveða upp dauðadóm
yfir kvótakerfinu, að hans mati.
„Það má vel vera, ég held að
þetta verði erfitt í framkvæmd. “
- En verður kvótafyrirkomu-
lagið ofaná við mótun fiskveiði-
stefnunnar?
„Það fer algjörlega eftir því að
hvaða niðurstöðu Fiskiþmg og
þing annarra hagsmunasamtaka
í sjávarútvegi, komast. Ég held
að það sé vaxandi andstaða
gegn kvótanum vegna þess að
aflamagnið fer mjög vaxandi.
Hinsvegar er það breytilegt eftir
landshlutum og væri hægt að
laga atvinnuástandið ef t.d. lín-
an væri leyfð út árið. Það yrði
enginn mokstur en myndi
bjarga ýmsu samt,“ sagði
Steingrímur Hermannsson að
lokum.
gjg K0KKUB1MM
í Garðabæ auglýsir:
Nú fer að fara í hönd tími árshátíða og annarra
mannfagnaða. Hvort sem veislan er stór eða smá,
þá erum við tilbúnir í allt. Veislan yðar er í
öruggum höndum hjá okkur. Upplýsingar og
pantanir í síma 45430 kl. 13-18 alla virka daga.
KOKKURIMi
Smiðsbúð 4, 210 Garðabæ sími 45430.
■ Sólbraut 13 fékk viðurkenningu fyrir vel hirta lóð og faliegt útlit.
Seltjarnarnes:
Fegurstu lóðir fá viðurkenningu
■ Fegrunar- og náttúru-
verndarnefnd Seltjarnar-
ness hefur gengið frá viður-.
kenningum vegna frá-
gangs garða og húsa í
Seltjarnarnesbæ 1985.
Fjórir aðilar fengu
viðurkenningu vegna lóða
sinna og húsa. Það voru:
Sævargarðar 2, eigendur
Sigþrúður Steffensen og
Ingi R. Jóhannsson.
Sævargarðar 15, eigend-
ur Hjörleif Einarsdóttir og
Þorsteinn Þorsteinsson.
Sólbraut 13, eigendur
Steinunn Margrét Tómas-
dóttir og Aðalsteinn
Karlsson.
Skáli, en eigendur hans
eru Guðrún L. Kristjáns-
dóttir og Stefán Guð-
mundsson.
Viðurkenningu fyrir út-
lit og umhverfi atvinnu-
húsnæðis hlaut Prjóna-
stofan Iðunn, Skerjabraut
1.
Fegursta gatan á Sel-
tjarnarnesinu var valin
Sævargarðar.
Mjög mikil framför hef-
ur verið á allri ræktun og
umgengni í sumar og hafa
íbúar sannarlega tekið við
sér í góða veðrinu og af-
sannað þá kenningu að
gróður eigi erfitt uppdrátt-
ar á nesinu. Nefndin bend-
ir á að margir garðar eru í
mótun, sem spennandi
verður að fylgjast með
næstu árin.