NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 10.09.1985, Qupperneq 12

NT - 10.09.1985, Qupperneq 12
 Þriðjudagur 10. september 1985 12 ■ Hluti af MAN vöruflokknum í nýjumogendurbættumumbúðum. NT-mynd: Róbcrt. Sápugerðin Frigg: Nýstárlegar umbúðir - í MAN vörunum Forstöðumenn 7 dagvistarheimila borgarinnar: Borgaryfirvöld veiti stuðning - í stað þess að berjast gegn okkur ■ Sápugeröin Frigg hefur nú sett á markaöinn MAN sjampó og baðsápu vöruflokkinn, endurbættan að samsetn- ingu og í nýjum og aðlaðandi umbúðum. Nýju flöskurnar eru 250 ml og króklaga þannig að þægilegt er að halda á þeim cða jafnvel hengja á blönduartæki eða sápuskál. Auk miða á framhlið umbúðanna cru miðar að aftan þar sem greint er frá eiginleikum hverrar tegundar, efnainni- haldi og sýrustigi. Er mikilvægt að gefa upp sýrustigið, sérstaklega vegna þess að í íslenskahitaveituvatninuersýrustig hátt og nauðsynlegt er að velja sjampó með lægra sýrustig en hitaveituvatnið hefur, en það hefur ph gildi hærra en 7. Nú eru til sjö mismunandi tegundir undir vörumerkinu MAN, og ætti hver og einn að finna þar eitthvað við sitt hæfi, þar eru sjampó og sápur fyrir allar tegundir hárs. Forstöðumenn sjö dagvistar- heimila Reykjavíkurborgar hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir krefj- ast þess að borgaryfirvöld veiti þeim stuðning í stað þess að vinna gegn sér með þeim hætti sem verið hefur. í yfirlýsingunni segir: „Við undir- ritaðir forstöðumenn á eftirtöldum dagvistarheimilum Reykjavíkurborg- ar hörmum þann skilningsskort sem kemur fram í allri umfjöllun borgar- yfirvalda um þá starfsmannaeklu sem heimilin búa við í dag. Ennþá hafa yfirvöld ekki viðurkennt það ófremd- arástand sem skapast hefur, þegar 7 dagvistarheimili borgarinnar hafa neyðst til að loka deildum eða draga úr starfsemi vegna skorts á hæfu Húsnæðisstofnun rí kisins BREYTTUR EIIMDAGI UMSOKNA UM LÁN TIL BYGGIIMGAFRAMKVÆMDA ÁÁRINU 1986. 1. IMÓVEMBER VERÐUR EIIMDAGI FRAMVEGIS í STAÐ 1. FEBRÚAR. Þess vegna þurfa umsóknir vegna framkvæmda á árinu 1986 að berast eigi síðar en 1. nóvember nk. Lán þau sem um ræðir eru þessi: - Til byggingar á fbúðum eða kaupa á íbúðum í smíðum. - Til byggingar íbúða eða heimila fyrir aldraða, og dagvistarstofnana fyrir börn og aldraða. - Til nýbygginga í stað heilsuspillandi húsnæðis. - Til framkvæmdaaðila í byggingariðnaði. - Til tækninýjunga í byggingariðnaði. Ofangreindur eindagi giidir einnig fyrir framkvæmdaaðila í byggingariðnaði sem vilja leggja inn bráðabirgðaumsóknir vegna væntanlegra kaupenda. Umsækjendur, sem eiga fullgildar lánsumsóknir hjá stofnuninni, er borist hafa fyrlr 1. febrúar 1985, en gera ekkl fokhelt fyrir 1. nóvember nk., skulu staðfesta þær sérstaklega, ella verða þær felfdar úr gildi. Reykjavík, 4. sept. 1984 c§pHúsnæðisstofnun ríkisins starfsfólki. Þessi röskun á starfsemi 7 heimila hefur nú þegar bitnaö á a.m.k. 150 börnum og foreldrum þeirra. Eru þá ótalin þau heimili sem ekki er enn fullvistað á vegna starfsmannaskorts þó ekki hafi komið til lokunar." í yfirlýsingunni segir ennfremur að forstöðumenn hafi margsinnis varað við þeim vanda sem við blasti eftir reynslu síðasta vetrar. Því þurfi eng- um að koma á óvart það neyðarástand sem nú ríkir. Það sé ekki verjandi gagnvart börnunum að halda uppi fullum rekstri á heimilunum þar sem fólk vanti á heilar deildir, - það sé ekki á færi forstöðumanna að töfra fram uppeldisstarf þar sem ekkert starfsfóik sé. Forstöðumennirnir hafi talið að borgaryfirvöld hlytu að skila þessar einföldu staðreyndir en svo er ekki. Stöðugt sé gert lítið úr vanda dagvist- arheimilanna og sé nú svo komið að forstöðumennirnir frábiðji sér opin- berlega að sitja undir yfirlýsingum af því tagi. Jafnframt vilji þeir frábiðja sér ósmekklegar athugasemdir á borð við þær sem Anna K. Jónsdóttir formaður stjórnarnefndar dagvistar lét falla á fjölmennum útifundi for- eldra sl. mánudag um rannsókn og skýrsluhald frá þeim heimilum sem ekki hafa fullmannaðar deildir og því þurft að draga úr starfseminni. Van- traustsyfirlýsingar af þessu tagi flýti ekki fyrir lausn vandans og torveldi forstöðumönnum það samstarf við foreldra sem nauðsynlegt sé við þess- ar aðstæður. Dagvistun barna og formanni stjórnarnefndar sé fullkunnugt um allt það sem gert hafi verið til að ráða starfsfólk. Því lýsa forstöðumennirnir yfir ábyrgð á hendur þeim sem vita mæta vel um allar þær umsóknir sem dæmdar hafa verið óhæfar, um öll þau viðtöl sem tekin hafi verið og allar þær ráðningar sem forstöðu- menn hafi gert þar sem nýir starfs- menn mæta ekki einu sinni til starfa. Og undiryfirlýsinguna skrifa: Elín Mjöll Jónasdóttir forstöðukona í Ægisborg, Guðrún Steingrímsdóttir, Fiagaborg, Elín Jóna Þórsdóttir, Austurborg, Margrét Vallý Jóhanns- dóttir, Hamraborg, Erna Jónsdóttir, Austurborg, Margrét Pála Ólafsdótt- jr, Steinahlíð, Halla Hrólfsdóttir, Múlaborg, Sigfús Aðalsteinsson, Austurborg og Soffía Zophoníasdött- ir, Lækjarborg. Réttir að hefjast ■ Nú um þessar mundir eru réttir að hefjast og þær fyrstu verða í Hrútatungurétt og Miðfjarðarrétt í Húnavatnssýslu. Síðan rekur ein aðra sem hér segir: Auðkúlurétt í Svínadal Arr.arhólsrétf í Helgafellssveit, Snæf. Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr. Felisendarétt í Miðdölum, Dal. Fljótstungurétt í Hvitársíðu, Mýr. Fossvallarétt v/Lækjarbotna (Rvík/Kóp.) Grímsstaðarétt íÁlftaneshr., Mýr. Heiðabæjarrétt í Þingvallasveit, Árn. Hítardalsrétt í Hraunhr., Mýr. Hraunsrétt í Aðaldal, S-Þing. Hrunamannarétt í Hrunamannahr., Árn. Hrútatungurétt í Hrútafírði, V.-Hún. Húsmúlarétt v/Koiviðarhól, Árn. Kaldárrétt v/Hafnarfjörð Kaldárbakkarétt í Kolb.st.hr., Hnapp. Kjósarrétt í Kjósarhr. Kjósarsýslu Klausturhólarétt í Grímsnesi, Árn. Kollafjarðarrétt, Kjalarneshr., Kjós. Langholtsrétt í Miklaholtshreppi, Snæf. Laufskálarétt í Hjaltadal, Skagafirði Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V-Hún. Mælifellsrétt í Lýtingsstaðahr., Skag. Nesjavallarétt í Grafningi, Árn. Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borg. Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg. Reynisstaðarrétt í Staðarhr., Skag. Selflatarétt í Grafningi, Árn. Selvogsrétt í Selvogi, Árn. Silfrastaðarétt í Akrahr., Skag. Skaftholtsrétt í Gnúpverjahr., Árn. Skaftártungurétt í Skaftártungu, V-Skaft. Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. Skeiðaréttir í Skeiðum, Árn. Skrapatungurétt í Vindhælishr., A-Hún. Stafnsrétt í Svartárdal, A-Hún. Svignaskarðsrétt í Borgarhr., Mýr. Tungnárréttir í Biskupstungum, Árn. Undirfellsrétt í Vatnsdal, A-Hún. Vogarétt á Vatnsleysuströnd, Gullbr. Valdarásrétt í Víðidal, V-Hún. Víðidalstungurétt í Víðidal, V-Hún. Þingvallarétt í Þingvallasveit, Árn. Þórkötlustaðarétt v/Grindavík Þverárrétt í Eyjahr. Snæf. Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr. Olfusrétt í Olfusi, Árn. Olkeldurétt í Staðarsveit, Snæf. Hrossaréttir: Víðidalstungurétt, V-Hún. Skarðarétt, Skag. Reynisstaðarétt, Skag. Laufskálarrétt.Skag. föstudag 13. og laugardag 14. sept. þriðjudagur24. sept. mánudagur 16. sept. mánudagur 16. sept. mánudagur 16. sept. sunnudagur22. sept. fimmtudagur 19. sept. Iaugardagur21. sept. miðvikudagur 18. sept. Iaugardagur7. sept. fimmtudagur 19. sept. sunnudagur8. sept. mánudagur23. sept. Iaugardagur21. sept. sunnudagur 15. sept. þriðjudagur24. sept. miðvikudagur 18. sept. þriðjudagur24. sept. miðvikudagur25. sept. laugardagur 14. sept. sunnudagur8. sept. sunnudagur 15. sept. mánudagur23. sept. miðvikudagur 18. sept. föstudagur20. sept. mánudagur 16. sept. miðvikudagur25. sept. miðvikudagur25. sept. fimmtudagur 19. sept. Iaugardagur21. sept. sunnudagur 15. sept. föstudagur20. sept. sunnudagur 15. sept. fimmtudagurl2.sept. miðvikudagur 18. sept. miðvikudagur 18. sept. föstudag 14. oglaugard. 15. sept. miðvikudagur25. sept. föstudagur.13. sept. föstudag 13. oglaugard. 14. sept. mánudagur23. sept. mánudagur23.sept. mánudagur23. sept. þriðjudag 17. miðvikud. 18. sept. fimmtudagur26. sept. * fimmtudagur26. sept. Iaugardagur28. sept. sunnudagur29. sept. sunnudagur29. sept. laugardagurS. okt.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.