NT - 10.09.1985, Page 15
- a Þriðjudagur 10. september 1985 15
IVI
Axel Jónsson
fyrrverandi alþingismaður
Fæddur 8. júní 1922
Dáinn 31. ágúst 1985.
Kveðja frá bæjar-
stjórn Kópavogs
I dag þriðjudaginn 10. sept-
ember verður jarðsettur frá
Kópavogskirkju heiðursmaður-
inn Axel Jónsson fyrrverandi
alþingismaður og bæjarfulltrúi í
Kópavogi.
Axel Jónsson lést þann 31.
ágúst aðeins 63 ára að aldri.
Ungur að árum fór hann að hafa
afskipti af félagsmálum, en árið
1962 var Axel kosinn í bæjar-
stjórn Kópavogs og gegndi því
starfi fram á mitt ár 1982, en gaf
þá ekki kost á sér til endurkjörs.
Hann sat í bæjarráði Kópavogs
á árunum 1962 til 1971 ogsíðan
1978-1979. Axel Jónsson sat í
ýmsum ráðum og nefndum á
vegum bæjarfélagsins og var
m.a. forseti bæjarstjórnar
Kópavogs um skeið. Árið 1963
tók Axel sæti á Alþingi og
gegndi þingmannsstörfum til árs-
ins 1978.
Axel Jónsson fylgdist ætíð
grannt með því sem var að
gerast og varðaði Kópavog.
Hann lét sér hag Kópavogs-
kaupstaðar ávallt miklu varða
og nutu bæjarbúar velvilja hans
fram á hans hinsta dag, þó ekki
færi slíkt alltaf hátt.
Að leiðarlokum vill bæjar-
stjórn Kópavogs þakka honum
fyrir óeigingjarnt framlag,
bæjarfélaginu til handa. Jafn-
framt því sem eftirlifandi eigin-
konu hans, Guðrúnu Gísladótt-
ur, börnum og barnabörnum
eru sendar innilegar samúðar-
kveðjur.
Ragnar Snorri Magnússon,
forseti bæjarstjórnar
Kópavogs.
Kveðja frá
Norræna félaginu
í Kópavogi
Kynni okkar Axels Jónssonar
voru hvorki löng né mikil og
eingöngu bundin starfi Norræna
félagsins í Kópavogi síðustu
árin, en ég minnist þess með
þakkiæti og hlýhug, hve vel og
ljúfmannlega hann tók mér,
nýjum manni í því starfi, þegar
fundum okkar bar fyrst saman.
Mig minnir, að það væri, þegar
haldið var norrænt vinabæjamót
í Kópavogifyrirnokkrumárum,
þar sem báðir komu við sögu.
Löngu áður vissi ég, hver
hann var, því að Axel hafði á
um tæplega aldarfjórðungs
skeið verið þjóðkunnur maður
vegna stjórnmálaþátttöku sinn-
ar og afskipta af opinberum
málum. Störf hans í almanna-
þágu kunna aðrir betur að
rekja, en árum saman var hann
opinber starfsmaður, alþingis-
maður Reyknesinga, bæjarfull-
trúi í Kópavogi og auk þess
kvaddur til ýmissa trúnaðar- og
félagsmálastarfa, eins og títt er
um þá, sem ekki grafa pund sitt
í jörð og eru reiðubúnir að
fórna áhugamálum sínum tíma
og kröftum fram yfir brýnustu
einkaþarfir.
Þegar fyrrnefnt vinabæjamót
var haldið, varð ég þess fljótt
var, að Axel Jónsson hafði mik-
inn áhuga á samstarfi vinabæj-
anna og var öllum hnútum
kunnugur, enda hafði hann öðl-
ast reynslu af bæjarmálum og
lagt Norræna félaginu lið í starfi
þess. Hann var vel kynntur og
virtur af fulltrúum hinna vina-
bæjanna, sem hann þekkti
niarga hverja vegna samstarfs
ogfyrri kynna. í Kópavogi hefur
vinabæjasamstarfið lengst af
verið tekið alvarlega og rækt
samkvæmt því, og um það hefur
verið góð samvinna milli bæjar-
yfirvaldanna og Norræna félags-
ins. Á því hygg ég, að sé einföld
skýring.
Kópavogur er ungur bær og
félagsdeild Norræna félagsins
þar ennþá yngri. Samvinna bæj-
ar og félags hefur vafalaust
fljótt orðið nánari en ella vegna
þess, að í áratug var Hjálmar
heitinn Ólafsson bæjarstjóri í
Kópavogi, en jafnframt var
hann sá maður, sem af hvað
mestum krafti beitti sér fyrir
stofnun Norræna félagsins þar á
sínum tíma, var löngum lífið og
sálin í starfi þess og formaður
þess og Norræna félagsins á
Islandi, þegar hann lést fyrir
rúmu ári, en formaður Kópa-
vogsdeildarinnar hafði hann þá
verið lengst af. Hjálmar gat því
um skeið beitt sér tvíefldur fyrir
íramgangi norrænnar sam-
vinnu, sem var honum hjartans
mál, en naut þar líka fulltingis
margra góðra manna og
kvenna, sem lögðu sitt af
mörkum. í þeim hópi var Axel
Jónsson.
Þó að þeir væru ekki pólitískir
samherjar, að minnsta kosti
ekki nema í sumum málum, var
með þeim góð vinátta, og kunn-
ugir hafa sagt mér, að þeir hafi
átt auðvelt með samstarf og
einatt lagst á eitt, og segir sig
sjalft, að þeir hafa þá haft styrk
hvor af öðrum og munað um
sameiginlegt átak þeirra í þeim
málum, sem þeir þörðust fyrir.
Vinátta og vaxandi samstart'
Norðurlanda á sem flestum
sviðum var áhugamál beggja,
eins og þeir sýndu í verki, svo
sjálfsagður hlutur, að hvorugur
hefði nennt að standa í karpi við
þá geðstirðu úrtölumenn, sem
stundum reyna að gera lítið úr
norrænni samvinnu og þeirri
hugsjón, sem hún er reist á.
Hvergi sást þetta betur en í
vinabæjasamstarfinu, sem gert
er ráð fyrir, að norrænu félögin
og viðkomandi bæjaryfirvöld
hafi samvinnu um að efla og
halda uppi. Ég hygg, að Axel
Jónsson hafi átt drjúgan þátt í
því„ hve vel hefur tckist til í
Kópavogi í þessu efni, enda lét
hann ekki sitja við orðin tóm,
en var jafnan reiðubúinn að
leggja nokkuð á sig fyrir hug-
sjón sína.
Oft hljóp hann undir bagga,
þegar þörf var einhvers konar
fyrirgreiðslu. Nú í sumar þurfti
Norræna félagið í Kópavogi til
dæmis að skjóta skjólshúsi yfir
sænska gesti, sem hér voru á
ferð. Axel og kona hans, Guð-
rún Gísladóttir, dvöldust að
mestu utanbæjar um það leyti,
en töldu sjálfsagt að fá gestun-
um íbúð sína til umráða, meðan
þeir þurftu á að halda, og mun
það ekki hafa verið í fyrsta sinn.
sem þau hjón brugðust með svo
myndarlegum hætti við svipuð-
um óskum. En Axel Jónssyni
var Ijóst, að vinabæjasamstarf á
að geta komið að gagni jafnt í
blíðu og stríðu; það má nota til
stuðnings réttum málstað, þegar
snúa þarf vörn í sókn og ætlast
má til gagnkvæms stuðnings og
sanngirni og láta á það reyna,
hvað vináttan þolir. Það sýndi
Axel fyrir þrettán árum, þegar
við íslendingar áttum hendur
okkar að verja vegna útfærslu
landhelginnar og að okkur var
sótt með ofbeldi og rangfærsl-
um. Þá gerði hann sér ótil-
kvaddur ferð á eigin kostnað til
fjögurra vinabæja Kópavogs,
Óðinsvéa, Þrándheims, Norr-
köping og Tampere og kynnti
málstað íslendinga og hélt fram
rétti okkar. Á þremuraf þessum
stöðum var sonur hans með í
förinni, sem vitaskuld var til
þess gerð að andæfa, eftir því
sem einum manni var fært, því
áróðursmoldviðri, sem upp var
þyrlaö til þess að skaða íslenska
hagsmuni. Það er bæði rétt og
skylt að muna og virða slík
dæmi um mannslund og dugnað
einstaklings í þjóðarþágu.
Axel Jónsson var heiðursfé-
lagi Norræna félagsins í Kópa-
vogi, sem nú kveður hann með
þökk og virðingu fyrir vel unnin
störf. Hann sat þar ekki í stjórn,
svo að ég minnist, en var löng-
um endurskoðandi þess, fulltrúi
þess á sambandsþingum og jafn-
an boðinn og búinn.að leggja
því margvíslegt lið með Ijúfu
geði, eins og heiðursfélagakjör
hans er tii vitnis um. Slíkra er
gott að minnast.
í átján ár átti Axel viö hciisu-
brest að stríða, en einmitt á
þeim átján árum vann hann
mörg þau störf, sem lcngst verð-
ur minnst, og dró ckki af sér.
Hann lét ckki meira á því bera
en hjá varð komist, að hann
gengi ekki heill til skógar, og
þann tíma, sem ég þekkti hann,
var hann hress í máli og hýr í
lund. Hann og kona hans áttu
sumarbústað uppi í Kjós og
voru bundin þeirri sveit sterkum
böndum. Það er gott til þess að
hugsa, að þar skyldi Axel Jóns-
syni auðnast að lifa sitt síðasta
sumar, sem verið hefursvo blátt
og bjart þar um slóðir, að lengi
verður minnst.
Fyrir hönd Norræna félagsins
í Kópavogi sendi ég ekkju hans,
börnum og öðrum skyldmenn-
um samúðarkveðjur. Því félagi
unni hanr og þó mest þcirri
hugsjón, sem það var stofnað til
þess að cfla. Sjálfur gaf hann
um það gott fordæmi, hvernig
það er unnt.
Hjörtur Pálsson
Ráðstefna S.U.F.
Ráðstefna Sambands ungra framsóknarmanna um stefnu,
starfshætti og skipulag Framsóknarflokksins. Bifröst 14.-15.
sept 1985.
Dagskrá:
Laugardaginn 14. sept.:
1. Kl.13:00 Setning. Finnur Ingólfsson, formaður SUF.
2. Kl.13:05 Samþykkt miðstjórnarfundar Framsóknarflokks-
ins er varðar SUF. Finnur Ingólfsson.
3. Kl.13:15 Hvernig koma stjórnmál og stjórnmálamenn
fólki á aidrinum 18-25 ára fyrir sjónir. Hverju þarf
að breyta?
a:
b: Hallur Magnússon.
4. Kl.13:30 Hvernig kemur Framsóknarflokkurinn ungu fólki
fyrir sjónir. Hverju þarf að breyta?
a: Guðrún Hjörleifsdóttir
b: Þórður Ingvi Guðmundsson.
5. Kl.13:45 Stuttar fyrirspurnir og umræður.
6. Kl.14:15 Við hvaða breytingum má búast á næstu
kosningabaráttu með tilkomu nýrra útvarps-
laga?
Helgi Pétursson, ritstjóri.
7. Kl.14:25 Er æskilegt að náin tengsl séu á milli stjórnmá-
laflokkanna og hinna ýmsu félagsmálahreyf-
inga?
a: Unnur Stefánsdóttir
b: Gunnar Baldvinsson
c:
8. Kl. 15:00 Stuttar fyrirspurnir og umræöur.
9. Kl.15:30 Kaffihlé.
10. Ki. 16:00 Er skipulag Framsóknarflokksins í takt við
tímann?
a: Drífa Sigfúsdóttir.
b: Níels Árni Lund.
11. KI.16:15 Hvernig á Framsóknarflokkurinn að haga vinnu-
brögðum sínum í næstu framtíð?
a: Magnús Ólafsson.
b: Bjarni Hafþór Helgason.
12. Kl. 16:30 Hvernig á ungliðahreyfing innan stjórnmála-
flokks að starfa?
a: Jón Sigfús Sigurjónsson.
b:
c: Þórður Æ. Óskarsson.
13. Kl.16:45 Almennar umræður og fyrirspurnir.
14. Kl.19:00 Kvöldverður.
Sunnudagur 15. sept.:
1. Kl.10:00 Ber að taka upp nýtt stjórnunarfyrirkomulag á
íslandi í formi sjálfstæðra fylkja?
a: Þórður I. Guðmundsson.
b: Ásmundur Jónsson
2. Kl.10:30 Aimennar umræður og fyrirspurnir.
3. Kl.12:00 Fundarslit.
Ráðstefnan er öllum opin, ungt framsóknarfólk er sérstaklega
hvatt til að mæta.
Kostnaður er kr. 1400.-
innifalið er kaffi, kvöldmatur og morgunmatur.
Nánari upplýsingar í s. 24480.
S.U.F
H ITAVEITA REYKJAVlKUR
Orðsending frá
Hitaveitu Reykja-
víkur
Húsbyggjendur eru minntir á, að hitaveitu-
heimæðar í hús eru ekki lagðar ef frost er í
jörðu, nema gegn greiðslu þess aukakostn-
aðar, sem af því leiðir. Til þess að sleppa við
þennan aukakostnað þurfa húseigendur að
uppfylla eftirfarandi skilyrði fyrir 10. október
n.k.:
1. Leggja inn beiðni um tengingu hjá Hitaveit-
unni.
2. Hafa hús sín tilbúin til tengingar.
Hús telst tilbúið til tengingar þegar því hefur
verið lokað, hitakerfi lagt og lóðjöfnuð u.þ.b.
í rétta hæð.
-----"T
Almennir stjórnmálafundir
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra og Jón Kristjáns-
son alþingismaður boða til almennra funda á Fljótsdalshéraöi
vikuna 8.-15. september.
Fundarefni: Landbúnaðarmál og önnur þjóðmál.
Fundirnir verða sem hér segir:
Þriðjudagur 10. september kl. 16.00 í Hálsakoti.
Þriðjudagur 10. september kl. 21.00 á Skjöldólfsstöðum.
Fimmtudagur 12. september kl. 21.00 á Iðavöllum.
Föstudagur 13. september kl. 16.00 i Végarði.
Föstudagur 13. september kl. 21.00 á Rauðalæk.
Laugardagur 14. september kl. 16.00 á Arnhólsstöðum.
Einnig veröur fundur á Borgarfirði eystra föstudaginn 6.
september kl. 21.00 og á Vopnafirði sunnudaginn 15.
september kl. 21.00.
Fundarefni: Sjávarútvegur og landbúnaðarmál og önnur
þjóðmál.
YAMAHA DX - 7
Námskeið fyrir eigendur DX-7 verður haldið
á vegum YAMAHA og hefst það 11. sept-
ember.
Einnig verðu rkennd meðferð Músíktölvunn-
ar CX-5, svo og DX-5 og QX-1, sem er
Sequenser. Þá verður einnig farið yfir með-
ferð þeirra tækja, sem væntanleg eru á
þessu sviði frá YAMAHA á næstunni.
Upplýsingar og innritun í Hljóðfæraverslun
Poul Bernbourg hf., Rauðarárstíg 16, sími
20111.
Mannleg samskipti -
áætlanir - breytingar
Þetta er meðal námsefnis á námskeiðum
Verkstjórnarfræðslunnar. Ný námskrá var
að koma út. Hringið til Verkstjórnarfræðsl-
unnar, Iðntæknistofnun íslands, símar
687000 og 687009, og fáið sendar upplýs-
ingar.
Þ10DLEIKHUS1Ð
Sala á aðgangskortum stendur nú yfir.
Miðasala kl. 13.15-20.00. Sími 11200.