NT - 10.09.1985, Blaðsíða 18

NT - 10.09.1985, Blaðsíða 18
w Dreifingarstjóri Dagblaðiö NT óskar að ráða dreifingarstjóra. Starfssvið: Skipulagning og stjórn á dreif- ingu blaðsins um land alit og pökkunardeild. Umsjón með skráningu áskrifenda og sam- band við umboðsmenn. Við leitum að manni sem getur unnið sjálfstætt og skipulega, á gott með að umgangast fólk og á auðvelt með að leysa úr vandamálum sem upp kunna að koma skyndilega. Þetta er viðamikið starf og laun eru í samræmi við það. Skriflegar umsóknir leggist inn á NT sem fyrst. (Fyrirspurnum ekki svarað í síma). tæ Afgreiðslumaður Við leitum einnig að afgreiðslumanni: Starfssvið: Viðkomandi yrði dreifingarstjóra til aðstoðar í öllum daglegum störfum. Hann þyrfti að sjá um útskrift reikninga o.fl. Við leitum að manni sem á gott með að umgangast fólk og sérstaklega fólk af yngri kynslóðinni í blaðberastétt. Góð laun eru í boði. Skriflegar umsóknir leggist inn á NT sem fyrst. lll Útlitsteiknari Loks leitum við að útlitsteiknara: Starfssvið: Viðkomandi tæki við stjórn á útlitsdeild NT og hefði náið samstarf við ritstjórn og aðra á tæknideild. Við leitum að vönum og hugmyndaríkum útlitsteiknara, sem getur unnið með okkur að margvíslegum verkefnum sem framundan eru. Góð laun eru í boði fyrir þetta ábyrgðar- starf á NT, góð vinnuaðstaða og gott and- rúmsloft. Skriflegar umsóknir leggist inn á NT, Síðu- múla 15, Reykjavík, sem allra fyrst. Áríðandi er, að þeir sem áhuga kynnu að hafa á þessum störfum gætu hafið störf við blaðið sem allra fyrst. Lausar stöður við sjúkrahúsið á Egilsstöðum Leiðbeinandi við föndur/handavinnu, V2 staða frá 15. okt. n.k. Uppl. gefur hjúkrunar- forstjóri í síma 97-1631/1400. Sjúkraþjálfari, 1/i staða. Mótandi starf, ný aðstaða tekin í notkun bráðlega. Uppl. gefur Gunnsteinn Stefánsson, yfirlæknir í síma 97-1400. Skrifstofumaður/launafulltrúi V staða. Bókhaldsþekking nauðsynleg. Uppl. gefnar í síma 97-1386. - eftir steindautt jafntefli gegn Þrótti ■ Þórsarar frá Akureyri fyrir- gerðu möguleikum sínum á sigri í 1. deild Islandsmótsins í knatt- spyrnu á laugardaginn er liðið kom til Reykjavíkur og tókst ekki að skora hjá Þrótturum. Þrótturum tókst ekki heldur að skora frekar en endranær og úrslitin urðu því markalaust HNOT- SKURN ■ Slakur leikur en hart barist. Lítid um tækifæri og jaíntefli sanngjarnt. Dómari í leiknum var Sveinn Sveinsson og var ágætur. Gaf hann fjögur gul spjöld, tvö á iid. Ahorfendur voru ekki ýkja margir. NT Boltinn ■ Varnir beggja liða stóðu fyrir sínu og mega þær sparka á milli sin boltanum. jafntefli, 0-0. Leikurinn var steindauður mest allan tímann. Þórsarar sóttu meira og áttu betri færi en Þróttarar vörðust mjög vel á litla Valbjarnarvelli. Vegna þrengsla á vellinum þá er mjög auðvelt að loka svæðum og leikmenn fengu ekki mikinn tíma til að taka ákvarðanir með boltann á tánum. Eins og fyrr þá virðist ekki vera sama barátt- an í Þórsurum á útivelli eins og á heimavelli og liðið virkaði á tíðum full áhugalaust. Þróttarar verða nú að fara í Garðinn til að spila til úrslita um hvort liðið heldur sæti sínu í deildinni. Þar dugar þeim jafntefli. Leikurinn á laugardaginn var varla hafinn er Atli Helgason komst aleinn innfyrir vörn Þórs en skaut ekki mjög nákvæmlega af vítateig og boltinn fór framhjá. Mjög gott færi. Þetta var allt og sumt er gerðist í fyrri hálfleik utan að Nói og Nikulás fengu gult spjald hvor. Síðari hálfleikur var ögn fjörugri. Þórsarar fengu tvö mjög góð færi og hefðu átt að skora úr a.m.k. öðru þeirra. 0. september 1985 18 íþróttir Evrópumolar ■ Keppnistímabilið í ítölsku 1. deildinni hófst á sunnudaginn. Eins og ávallt þá voru það nokkrar stjörnur sem voru í sviðs- Ijósinu hjá Itölunum. Karl- Heinz Rummenigge skor- aði tvívegis fyrir Inter Mí- lanó í 3-1 sigri á Pisa. Þessi mörk hans færðu bros á andlit Franz Beckenbauer landsliðsþjálfara Þjóðverja en þeir eiga að leika gegn Svíum í undankeppni HM þann 25. sept. Brosið fraus þó fljótlega því Inter hefur neitað að láta Rummen- igge lausan í þriggja daga æfingabúðir fyrir leikinn. Það eru þó víðar vand- ræði með landsliðsmenn en hjá Þjóðverjum. Mark Hateley miðherji Englend- inga lék með liði sínu AC Mílanó um helgina og hjálpaði til við að vinna sigur á Bari, 1-0. Þetta kostaði þó það að meiðsl sem Hateley hefur átt við að stríða lengi, tóku sig upp og ekki er víst að hann verði með Tjöllunum gegn Rúmenum á morgun. En eins manns dauði er annars manns brauð, eða vín. Sá sem datt í lukku- pottinn á Ítalíu í fyrradag var danski landsliðsmaður- inn Preben Elkjær Larsen sem skoraði fyrsta mark Verona í 2-2 jafnteflisleik gegn Lecce. Þetta mark var einnig fyrsta markið í ítölsku deildinni á þessu ári og fyrir það fékk Elkjær 700 flöskur af víni, léttu víni væntanlega. Ekki var Zbigniew Bon- iek í minna stuði en Elkjær. Hann lagði upp bæði mörk síns nýja félags, Roma, í sigri á Atlanta, 2-1. Nela og Pruzzo skoruðu þau. í Hollandi heldur Feyen- oord forystu í deildinni eft- ir 2-0 sigur á Utrecht. Ajax komst aftur á vinningsslóð eftir tvo tapleiki í röð. Nú rúllaði Ajax upp Venlo 7-1. Ajax er þó fjórum stigum á eftir Feyenoord. Den Bosch er í öðru sæti í deildinni eftir 2-2 jafntefli gegn Roda þar sem mark- vörður liðsins óð upp völl- inn á síðustu mínútu og jafnaði með góðu marki - sannarlega allt lagt í sókn- ina. ■ „Þefaðu af þessum“ gæfi Hlynur Birgisson verið að hugsa er hann reyndi að stinga tánum í nef Lofts Ólafssonar. íslandsmótið í knattspyrnu 1 deild: NT-mynd: Róbcrt. Þórsarar úr leik Þau féllu bæði í fætur Kristjáns Kristjánssonar. Fyrst tókst hon- um að vera aðeins á undan Guðmundi markverði Þróttar í bolta er datt innfyrir vörnina. Loftur Ólafsson náði þá að bjarga mjög naumlega á línu. Stuttu síðar kom fyrirgjöf og Kristján var dauðafrír á mark- teig en skaut yfir. Reyndar var boltinn í loftinu er Kristján fékk hann, en engu að síður var allt opið. Þannig lauk þá þessari viðureign. Hvorugu liðinu tókst að sýna góða knattspyrnu. Svæði á þess- um litla velli eru af skornum skammti og því er oft auðveld- ara að verjast en sækja. íslandsmótið 1. deild: Víðismenn betri - gegn KR en náðu ekki sigri ■ K.R. og Víðir skildu jöfn á K.R.-velli í spennandi leik þar sem Víðismenn sýndu klærnar og hefðu, með smá heppni, átt að fara með þrjú stig heim í Garðinn. Leikurinn endaði þó með að hvort lið gerði eitt mark og Víðismenn mæta því Þróttur- um í hreinum úrslitaleik um fall í síðustu umferð íslandsmótsins. Það voru K.R.-ingar sem hófu leikinn af krafti á sínum heimavelli og ætluðu sér greini- lega að spila djarft með aðeins þrjá varnarmenn til staðar. Með jákvæðri spilamennsku upp- skáru þeir líka mark og það af fallegri gerðinni. Ásbjörn Björnsson tók þá á móti bolta inn í teig og renndi út á Ágúst Má sem skaut góðu skoti upp undir slá Víðismarksins. Eftir þessa góðu byrjun var sem leikmenn K.R. teldu sig hafa gert sitt í bili og Garðsbúar fóru að láta að sér kveða með Grétar Einarsson, sannarlega einn leiknasta leikmann 1. deildar, í fararbroddi flestra góðra sókna. Á 27. mín. unnu Ólafur Róbertsson og Grétar vel saman upp hægri vænginn en Stefán í marki K.R. varði skalla Ólafs. Stefán bjargaði einnig vel mínútu síðar er Guð- mundur Jens komst einn í gegn. Aftur á móti varð Stefán að sjá á eftir knettinum í netið er Vilberg Þorvaldsson braust á óskiljanlegan hátt í gegnum vörn K.R.-inga og renndi bolt- anum í netið. 1-1 og þannig var staðan í hálfleik. í síðari hálfleik héldu Víðis- ntenn áfram að vera meira ógn- andi liðið á vellinum án þess þó að takast að skora. Þeir komust næst marki er Gísli Eyjólfsson skallaði í stöng og út. K.R.-ingar byrjuðu þennan leik vel en döluðu er á leið og á þetta við alla leikmenn liðsins að undanskildum Snæbirni sem sótti sig og Stefáni í markinu sem varði vel allan tímann. Víðismenn léku vel sem liðs- heild enda hafa sömu mennirnir verið í þessum slag í langan tíma og því farnir að þekkja hvorn annan vel. Gísli var sterk- ur í vörninni og frammi gefur Grétar Einarsson liðinu fjöl- breytilega möguleika í sóknar- aðgerðum. Spánn: Enn tapar Pétur - nú fyrir Osasuna og er Hercules með eitt stig ■ Ekki gengur Pétri Péturs- syni og félögum hjá Hercules í spænsku knattspyrnunni of vel. Liðið tapaði nú um helgina á útivelli fyrir Osasuna 1-0. Hefur Hercules nú aðeis eitt stig eftir þrjár umferðir. Madrid liðið Atletico og Real eru nú efst í deildinni en Atletico sigraði meistarana frá í fyrra Barcelona í spennandi leik í Madrid. Bar- celona náði forystu strax eftir 10 mín. er Caldere skoraði með þrumuskoti. Atletico lét þetta ekki á sig fá og þeir Cabrera og da Silva tryggðu sigurinn með mörkum á tveimur mínútum. Real sigruðu Espanol með mörkum frá Butrageno og Sanc- hez en Zuniga kom Espanol yfir í upphafi leiksins. HNOT- SKURN ■ Þokkalegur leikur. Vídis- menn sterkari. Ágúst Már skor- adi fyrir KR og Vilberg Þorvalds- son fyrir Víði. Áhorfendur 500 og dómari Gisli Guðmundsson var í lagi.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.