NT


NT - 10.09.1985, Side 19

NT - 10.09.1985, Side 19
 ■ Gary Bannistcr sá um að kaffæra meistara Everton á „mottunni“ í Lundúnum. Enska knattspyrnan: Þriðjudagur 10. september 1985 19 Íþróttir íslandsmótið 1. deild: Glæsisigur Fram ■ „Við verðum þama ef Valsar- ar klikka," sagði ánægður Ás- geir Elíasson, þjálfari og leikmaður Fram eftir að lið hans hafði unnið glæsilegan sig- ur á F.H.-inguin í Kaplakrika á laugardaginn. Lokatölur leiks- ins vour 5-1 og skoraði Óniar Torfason þrennu i leiknum. Það var fljcítlega Ijóst að Framarar voru í ham. Þeir spil- uðu vel og frammi voru Guð- mundarnir, Torfason og Steins- son hættulegir, sérstaklega var Guðmundur Steinsson erfiður og Henning Henningson sem átti að gæta hans lenti í hinum mestu crfiðleikum. Fyrsta markið korn á 19, mínútu, Viðar Þorkelsson gaf þá fastan bolta á Guðmund Torfason sem var staddur inn á teig og hann sneri sér fallega, komst á auðan sjó og skoraði örugglega af mark- teig. Stuttu st'ðar komst Guö- mundur Steinsson upp að enda- mörkum meö að leika bæði á Henning og Dýra Guðmunds- son í vörn F.H. og sendi góðan bolta á Ómar Torfason sem af- greiddi boltann í netið 0-2. Á síðustu mínútu fyrri hálf- leiks skoruðu svo Framarar gull af marki. Ómar Torfason óð þá upp miðjuna og sendi á Guð- mund Torfason sem sendi strax á nafna sinn Steinsson og mark hjá honum setti endapunktinn á stórfallega sókn. Snemma í síðari hálfleik fá svo Framarar vítaspyrnu eftir að Halldór markvörður F.H.- inga fclldi Kristin Jónsson inn í teig. Guðmundur Steinsson skaut - í stöng og út. Þetta atvik skipti þó litlu fyrir leikglaða Framara og Omar Torfason bætir fjóiöa marki þeirra við um miðjan síðari hálfleik. Þá var komið að F.H.-ingum að svara fyrir sig. Eftir góða aukaspyrnu Viðars Halldórs- sonar sicallar Jón Erling boltann inn í niark Fram. Það voru samt Framarar scm áttu síðasta orðið i þcssum leik er ÓmarTorfason fullkomnaði þrennu sína með að fylgja vel eftir stangarskoti Guðmundar Steinssonar. Það stöðvar ekkert United ■ Ron Atkinson, fram- kvæmdastjóri Man. Utd., hef- ur víst ærna ástæðu til að vera kátur þessa dagana því upp- byggingarstarf hans á Öld Traf- ford virðist vera að bera ríkuieg- an ávöxt - allavegana neitar liðið að tapa leik og leikmenn Oxford Utd. voru stórgóðu liði Man. Utd. engin hindrun á laug- ardaginn. Siggi Jóns og félagar fengu fullt af færum gegn gest- unum frá Lundúnum en mis- tókst að nýta nema tvö af þeint sem dugði ekki til sigurs því West Ham setti líka inn tvö. Birmingham-Aston Villa . 0-0: Þetta einvígi milli liðanna frá Birmingham varð aldrei rismik- ið enda er vaninn sá að meira er hlaupið og barist en spilað í þessum leikjum. Þó sýndu leik- menn Birmingham ágæta knatt- spyrnu á köflum og hefðu verð- skuldað sigur í leiknum en allt kom fyrir ekki. Coventry-Arsenal .......0-2: Coventry er nú komið á sinn vanalega stað í deildinni þ.e. a.s. við neðri mörk, en kapparn- ir frá Miðlöndunum eru auðvit- að síður en svo óvanir þessari stöðu því síðustu átján ár hafa þeir átt í stöðugu fallbraski - en alltaf sloppið. Tony Woodcock skoraði í fyrri hálfleik fyrir Ars- enal og Skotinn Kampavíns- Kalli bætti öðru við um miðjan síðari hálfleik. Liverpool-Watford.......3-1: Hér var leikin sóknarnatt- spyrna á báða bóga og þótti leikurinn fjörugur og skemmti- legur. Watford náði óvænt for- ystunni í leiknum strax á 5. mínútu með marki frá Colin West. Phil Neal jafnaði þó fyrir heimamenn úr vítaspyrnu, eftir að brotið hafði verið á Steve Nichol. Eftir teið skoruðu síð- an Craig Johnstone og marka- kóngurinn snjalli Ian Rush. Leicester-Nott. Forest . . 0-3: Öruggur sigur Forest á öðru liði frá Miðlöndunum en því miður þá voru fréttamenn Raut- ers ekki með á nótunum hverjir gerðu mörkin fyrir Forest. Luton-Chelsea ..........1-1: Þessi leikur var settur á um morguninn til að koma í veg fyrir vandræði. Mike Harford náði forystunni fyrir Luton en Kerry Dixon jafnaði fyrir Chelsea áður en yfir lauk. Man. Utd.-Oxford Utd. . 3-0: Engin vandræði hér fyrir sterkt lið Man. Utd. og strax á fyrstu mínútunum gekk mikið á upp við mark gestanna þar sem með- al annars var skotið í stöng og bjargað á línu. Norman Whites- ide og Bryan Robson skoruðu í fyrri hálfleik fyrir Manchester og útherjinn snjalli Peter Barn- es bætti því þriðja við. Barnes kom inn í liðið fyrir Danann Jesper Olsen sem meiddist og hefur átt afbragðsleiki að undanförnu. Það er þó spurning hvað kappinn haldi lengi góðu leikskapi því yfirleitt lendir hann upp á kant við allt og alla - þetta skeði t.d. er Barnes spilaði með Leeds Utd. Q.P.R.-Everton .........3-0: Gary Bannister, fyrrum leikmaður Sheff. Wed., var í banastuði á laugardaginn og skoraði tvö mörk, seinna mark- ið var sérlega glæsilegt - skalli í bláhornið efst. John Byrne bætti þriðja markinu við fyrir O.P.R. og liðið undir stjórn Jim Smith. áður stjóra hjá Oxford þar til Robert Maxwell blaðabraskari og eigandi Oxford lét hann fara, virkar sterkt. Everton saknaði aðallega Kevins Sheedy í þess- um leik. Sheff. Wed.-West Ham . . 2-2: „Uglurnar" frá Sheffield voru ekki á skotskónum á Hillsbor- ough þrátt fyrir mörkin tvö því þeir urðu sér úti um talsvert fleiri færi en mistókst að skora. Skotinn snjalli Frank McAvi- ennie náði forystunni fyrir Lundúnaliðið en þeir Lee Chapman og Gary Tompson komu Miðvikudagsliðinu yfir. Tony Cottee jafnaði svo fyrir West Ham. Southampton-Man. City. . 3-0: Fyrsti sigur hjá Southampton á þessu keppnistímabili og gamlar kempur voru í aðalhlut- verkum. Jimmy Case, áður Li- verpool og Brighton, og Joe Jordan. áður ótrúlega mörgum liðum, skoruðu tvö markanna á The Dell en Lawrence bætti því þriðja við. Tottenham-Newcastle ... 5-1: Lundúnaliðið er að komast á skrið enda ekki seinna vænna því margir heitir aðdáendur voru orðnir örvæntingarfullir Alan Davies náði forystunni fyrir Newcastle strax í byrjun en eftir það tók Tottenham vóld á vellinum. John Chiedozie gerði tvö rnörk en þeir Falaco, Hazz- ard og Hoddle eitt hver. W.B.A.-Ipswich.........1-2: Trevor Punthey og Alan Sunderland skoruðu fyrir Ips- wich en Garth Crooks skoraði mark síns nýja liðs. í annarri deild heldur Ports- mouth áfram að vinna og Kevin O’Callagan setti inn mark liðs- ins í útisigri gegn Fulham. Svert- inginn Andy Gray skoraði fyrir Palace. Tommy Wright, ian Ba- ird og George McClusky skor- uðu fyrir Leeds í útisigrinum gegn Shrewsbury en Cross svar- aði fyrir heimamenn. Framliðið var vcl að þessum sigri komið, leikmcnn náðu vel saman og gaman var að fylgjast með yfirhlaupum og annarri samvinnu sem einkennir góð lið. Guðmundur Steinsson og Óntar Torfason áttu báðir mjög góðan leik en einu sóknarað- gerðir F.H.-inga á laugardaginn fólust í góðum fyrirgjöfum Viðars sem þó dugðu lítið gegn heilsteyptum Frömurum. p ENGLAND STAÐAN Man. United 7 7 0 0 18-2 21 Liverpool 742 1 16-6 14 Sheff.Wed 742 1 11-10 14 Everton 74 1 2 14-9 13 Arsenal 74 1 2 10-8 13 Chelsea 7331 9-6 12 QPR 740 3 19-9 12 Newcastle 7322 10-13 11 Tottenham 73 13 15-7 10 Watford 73 1 3 15-12 10 Birmingham 7 3 1 3 6-10 10 Aston Villa 72 3 2 9-9 9 Man. City 7223 8-12 8 Southampton 7 142 9-8 7 Luton 6 1 4 1 8-9 7 Ipswich 62 1 3 4-9 7 West Ham 7 1 33 8-10 6 Leicester 6 1 32 6-10 6 Oxford 7 12 4 10-14 5 Coventry 7 1 2 4 8-12 5 Nott. Forest 6 114 5-10 4 WBA 7 0 16 5-10 1 2. deild: Portsmouth 7 5 2 0 15-4 17 Wimbledon 7 4 2 1 6-4 14 Charlton 5 4 1 0 11-5 13 Huddersfield 7 3 3 1 12-9 12 Blackburn 7 3 3 1 10-7 12 Oldham 6 3 2 1 11-6 11 Brighton 7 3 2 2 10-8 11 Barnsley 7 2 3 2 8-7 9 Millwall 5 2 2 1 9-7 8 Sheff. United 5 2 2 1 8-6 8 Leeds 7 2 2 3 9-13 8 Norwich 6 2 13 9-9 7 Crystal Palace 5 2 12 8-8 7 Stoke 6 13 2 9-9 6 Bradford 5 2 0 3 6-7 6 Fulham 5 2 0 3 5-6 6 Grimsby 7 0 5 2 10-12 5 Hull 5 0 4 1 6-8 4 Shrewsbury 7 0 4 3 8-13 4 Middlesbrough 5 1 1 3 1-6 4 Carlisle 5 0 2 3 4-11 2 Sunderland 6 0 15 3-13 1 ENGLAND ÚRSLIT 1. deild: Birmingham-Aston Villa ... 0-0 Coventry-Arsenal .., 0-2 Leicester-Nott. Forest ... 0-3 Liverpool-Watford ... 3-1 I.iitnn-Ghplspa ... 1-1 Manchester United-Oxford ... 3-0 QPR-Everton .... ... 3-0 Sheffield Wednesday-West Ham . ... 2-2 Southampton-Manchester City .. ... 3-0 Tottenham-Newcastle ... 5-1 West Bromwich-Ipswich ... 1-2 2. deild: Brighton-Blackburn ... 3-1 Carlisle-Barnsley ... 1-1 Charlton-Crystal Palace ... 3-1 Fulham-Portsmouth ... 0-1 Huddersfield-Bradford ... 2-0 Hull-Middlesbrough ... 0-0 Norwich-Sherffield Unit ... 4-0 Shrewsbury-Leeds ... 1-3 Stoke-Millwall ... 0-0 Sunderland-Grimsby ... 3-3 Wimbledon-Oldham ... 0-0 Skotland: Aberdeen-Hearts ... 3-0 Dundee United-Clydebank ... 2-1 Hibernian-Celtic ... 0-4 Rangers-St. Mirren ... 3-0 SOLr SALOON Laugavegi 99 Símar 22580 og 24610 Nú er rétti tíminn að drífa sig i sólina hjá okkur. Lausir tírnar. Splunkunýjar perur Belaríum S og speglaperur (Quik tan) Spegtaperur nvta geislann betur meðþviað beina honum upp á við eins og tjóskastara. Þœr innihalda rneira a/. t-geis/um, sern gera húðina brúna en minna aj fígeislum sem geta brennt og eru áho/lari. Hollasta og árangursrikasta peran á markaðnum. Hjá okkur er aðstaðan orðin alveg pottþétt... tr',nr dömur og herra á öltum a/dri sem vilja /t,a /risk/ega ut allt arið og viðhalda bruna /itnurn úr sumarlej/tnu. Hjú okkur getið þið slappað a/i hágœða só/bekkjum úta//yrir ykkur, h/ustað á tonlist eða skroppið ígu/una e/þið vi/jið t'innig hö/um við Slendertone grenningar- og vöðvaþjál/unartœki. /vrir þá sem þess þur/a með. Og e/tir gáða sturtu og ka//i i setustojúnni labbað út /rísk og endurnterð á súl og hkarna. Opið virka daga kl. 7.20—23.00 Laugardaga og sunrtudaga /il kl. 19.00. Dömur og herrar verið velkomin. sí

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.